Morgunblaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 17
MiðviKudagUr 21. okt. 1959
M O R CTJIS Tt L 4 Ð1Ð
17
Elías Halldórsson
— Kveðja
í dag miðvikudaginn 21. okt.
verður til moldar borinn Elías
Halldórsson, sonur hjónanna Ing-
unnar Elíasdóttur og Halldórs
Jónssonar Langholtsvegi 28.
Hann var fæddur 25. maí 1946
en hann andaðist að kvöldi þess
13. okt. s.l. í Barnadeild Lands-
spítalans eftir harða og þrauta-
fulla sjúkdómsbaráttu, aðeins
rúmlega 13 ára gamall. Bernsku-
ár Ella litla voru full af gleði og
hamingju eins og annará heil-
brigðra barna.
Hann var duglegur og kapp-
samur 1 öllum leikjum og hafði
ávallt yndi af því að hafa eitt-
hvað fyrir stafni eins og athafna-
sömum börnum er títt. Hann á-
vann sér traust og vináttu allra
þeirra er hann umgekkst.
Lífið virtist brosa við þessum
unga sveini, æskuárin nálguðust
og margar fagrar framtíðarvonir
voru tengdar við hann, því að
hann virtist vera mikið og gott
mannsefni.
En skyndilega syrti að, og ský
dró fyrir sólu, því að síðast liðið
vor, þegar öll náttúran var að
vakna til lífs á ný og blóm og
jurtir voru að teygja sig upp á
móti hækkandi sól og líf og gró-
andi var yfir öllu, þá var for-
eldrum hans sagt frá hinni ör-
lagaríku og sorglegu staðreynd,
að hann væri haldinn ólæknandi
sjúkdómi.
Utan úr heimí
Það var mjög sárt og erfitt
fyrir foreldra hans og aðra ætt-
ingja að heyra þennan harða
dóm og horfa á alla framtíðar-
drauma hans hrynja til grunna á
einu andartaki.
Þegar jafnaldrar hans og skóla
bræður voru á sumarferðalögum
og í skemmtilegum leikjum, þá
varð hann að dvelja í sjúkrahúsi,
en aldrei kvartaði hann eða æðr-
aðist yfir hlutskipti sínu, hann
beið aðeins og vonaði að batinn
kæmi skjótt.
Það lágu þung og dimm ský
yfir lífi hans og óðum virtist
syrta að.
En það voru aðeins örfáir dag-
ar á síðastliðnu sumri sem voru
gleðidagar í lífi þessa frænda
míns, því að honum auðnaðist
að dvelja nokkra daga í sumar-
búðum K.F.U.M. í Vatnaskógi í
hópi áttatíu annara drengja,
hann minntist þessa tíma með
mikilli gleði og ánægju.
En þegar haustfölvinn færðist
yfir landið og blöð trjánna tóku
að falla, þá færðist hin kalda
hönd dauðans nær og æskuþrótt-
ur hans þvarr. Lífið fjaraði smá
saman út.
Allt var gert sem í mannlegu
valdi stóð, til þess að bjarga lífi
þessa yndislega vinar, en ekkert
megnaði það.
Hann æðraðist aldrei þrátt fyr-
ir þetta erfiða helstríð sem hann
háði, hann trúði á lífið og full-
kominn bata.
Ávallt var þetta viðkvæði hans:
„Ég verð nú betri á morgun".
Hann sagði við móður sína ör-
fáum klukkustundum áður en
hann lézt:
,,Á morgun verð ég miklu
betri elsku mamma mín“.
Með hugprýði bar hann þennan
sára sjúkdóm allt til hinstu stund
ar, þegar dauðinn leysti hann frá
öllum þrautum þessa lífs.
Engin mannleg orð þó hlý séu,
megna að hugga hina harm-
þrungnu foreldra og systur, sem
svo mikið hafa misst.
En við leitum aðeins til Guðs
og biðjum hann að blessa þau,
hugga og styrkja í þessari sáru
reynslu, því að við vitum að lát-
inn lifir, það er huggun harmi
gegn.
„Ó, þá náð að eiga Jesúm einka
vin í hverri þraut; ó, þá heill að
halla meiga höfði sínu í Drottins
skaut“.
Frændi
Framh. af bls. 12.
eins og fljótandi „lúxushótel“.
Ibúðarherbergi skipsmanna eru
ýmist fyrir einn eða tvo. Um
borð er aðstaða til ýmiss konar
tómstundaiðju þar er bókasafn,
lesherbergi og „músíkstofa“ —
og auk þess að sjálfsögðu setu-
stofur og reykingasalur. — í skip
inu eru einnig margs konar vís-
indatæki og fullkomnar rann-
sóknarstofur. Það er búið tveim
þyrlum, sem fara munu könnun-
arferðir frá borði eftir því sem
þurfa þykir.
Rússar eru brautryðjendur í
smíði og notkún ísbrjóta — og
Hggja til þess eðlilegar og aug-
ljósar ástæður, þarf ekki annað
en líta á legu lands þeirra. Þeir
urðu fyrstir allra þjóða til þess
að byggja verulega öfluga ís-
brjóta. Hinn fyrsti þeirra var
„Jermak“. Hann var smíðaður
fyrir 60 árum — og þótti álíka
mikið furðuverk þá eins og „Len-
in“ nú.
Risaísbrjótur Rússanna er einn
liður í víðtækum áætlunum, sem
stefna að því að „opna“ Norður-
Rússland og Norður-Síberíu, en
þar er að finna geysimikil nátt-
Úruauðæfi svo sem kol og málma
ýmiss konar. — Til þess að nýta
þær auðlindir er að sjálfsögðu
mikilvægt að geta haldið hin-
lun norðlægu siglingaleiðum opn
um — og því hlutverki á „Lenin"
að gegna.
Fagnaðarfaoð-
skapur Gomulka
VARSJÁ, 19. okt. — „Við verð-
um að draga úr kaupgetu almenn
ings,“ sagði Gomulka, aðalleið-
togi pólskra kommúnista í dag,
er hann boðaði aukið ríkiseftir-
lit með landbúnaðinum og ein-
stökum bændum. Gengið verður
harðar eftir því að bændur
greiði skatta sína og verð land-
bnúaðarafurða verður hækkað
um 25% án þess að kaup land-
búnaðarverkamanna og annarra
verði hækkað að sama skapi. Er
þetta gert vegna kjötskortsins í
landinu og samkvæmt samþykkt
miðstjórnar kommúnistaflokks-
ins, en þar sagði m. a., að koma
yrði í veg fyrir „eftirlitslausa
aukningu á kaupgetu almenn-
ings.“
Skrifstofustarf
Opinber stofnun vill ráða nú þegar ungan mann til
skrifstofustarfa. Umsóknir með uppl. um mennt-
un og fyrri störf óskast sendar í pósthólf 1405 fyrir
25. þ.m.
Atvmnurekendtir !
Reglusamur vélstjóri, með rafmagnsdeild, óskar
eftir vellaunaðri stöðu í landi. Margt kemur til
greina. Þeir, sem vildu sinna þessu, eru beðnir að
leggja nafn og símanúmer inn á afgr. Mbl. merkt:
„Vanur—8915“.
Sláturfélag Suðurlands
vill ráða nokkra unga og hrausta menn til náms í
kjötiðnaði. Góð laun og ágæt vinnuskilyrði. Miklir
framtíðarmöguleikar fyrir duglega menn.
Upplýsingar í skrifstofu voirri, Skúlagötu 20,
Reykjavík.
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Piltur óskast
Piltur 15—16 ára óskast til
starfa í verksmiðjunni.
Dósaverksmiðjan H.f.
Sími 12085
Yfirhjúkrunarkona
og vökukona óskast
Upplýsingar í síma 32370.
HRAFNISTA D.A.S.
Skjalaskápar
margar mismunandi stærðir folio og kvart 5—4i—2
og einnar skúffu með tilheyrandi bréfamöppum
Mynda og verðlistar sendir hvert á land sem er.-
Cotfred Bernhött & Co. hf.
Kirkjuhvoli — Sími 15912
Dugleg stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í kjötbúð nú
þegar eða um næstu mánaðamót.
Uppl. í síma 35525.
Sjálfsbjörg
Félag fatlaðra í Reykjavík
Heldur skemmtikvöld í Tjarnarcafé
miðvikud. 21. okt. kl. 20,30 s.d.
Skemmtinefndin
TÍI sölu
5 herb. íbúð á, H. hæð á fallegum stað á Seltjarnar-
nesi. Ibúðin er tilbúin að mestuleiti. Sérstaklega
falleg og þægileg. Verð kr. 470.000. Útb. kr. 220.000
ef samið er strax.
Austurstræti 14 IH. hæð.
Sími 14120
4ra herb. íbúðir
í smíðum
Til sölu nokkrar 4ra herb. íbúðir í sambýlishúsi í
byggingu. Seljast uppsteyptar með miðstöð, öllum
sameiginlegum eignahlutum múruðum úti og inni,
tvöfallt gler í gluggum. Húsið málað utan. Svala-
hurðir o. fl.
Verð mjög sanngjarnt. Hægt að útvega lán út á
2. veðrétt.
Málflutningsstofa
INGI INGIMUNDARSON, hdl.
Vonarstræti 4 II. hæð
Sími 2-47-53