Morgunblaðið - 20.01.1960, Page 1
2(1) sitíur
SAS-vél fdrst
með 40 manns
Ceravelle ferst
við lendingu í
Ankara
ÓSLÓ, 19. janúar — (NTB) —
ÞESSI dagur, 19. janúar, er
dimmasti dagurinn í allri
sögu skandinavíska flugfé-
lagsins SAS. í kvöld kl. 8 eft-
ir norskum tíma fórst flugvél
frá félaginu í lendingu við
flugvöllinn hjá Ankara, höf-
uðborg Tyrklands.
í vélinni voru 35 farþegar, þar
af tvö börn og sjö manna áhöfn,
— samtals 42 menn. Þeir munu
allir hafa látið lífið samstundis,
er flugvélin flaug á hæðadrag í
nágrenni fugvallarins.
Flugvélin var ein af nýjustu og
fullkomnustu farþegaþotum SAS,
af gerðinni Caravelle og bar heit
ið Ormur Víkingur. Hún lagði
af stað frá Kaupmannahöfn í
morgun (þriðjudag) og hafði
komið við í Dússeldorf, Vínar-
borg og Istanbul. Á síðasta staðn
um hafði ný áhöfn tekið við flug-
vélinni og átti hún að halda á-
fram með þotuna austur til
Damaskus og Kairó, en þá varð
slysið á fyrsta viðkomustaðn-
um.
Þetta er fyrsta alvarlega slysið
í allri sögu SAS. Fram til þessa
hefur aldrei neinn farþegi látið
lífið í flugslysi hjá SAS.
Árið 1951 hrapaði tveggja
hreyfla flugvél SAS við Bromma
í Stokkhólmi, en allir sem í
henni voru björguðust.
TVEIR LIFANDI
í Reutersfrétt frá Ankara
segir, að björgunarlið, sem
kom skjótlega á slysstaðinn,
hafi fundið þrjá menn úr
flugvélinni með lífsmarki. —
Einn þeirra lézt þó skömmu
síðar, en hinir tveir voru
fluttir í sjúkrahús, mikið
slasaðir. Samkvæmt því hafa
40 farizt. Flugstjórinn, sem
var Norðmaður, fórst.
Vonir um að kanadíska land-
helgistillagan fáist samþykkt
Smáþjóðirnar hafa samúð með íslend-
ingum og geta jbví ekki stutt banda-
risku tillöguna
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNAN
í Genf um stærð landhelgi er
nú farin að færast nær. Hún
á að hef jast 17. marz og munu
fulltrúar 86 ríkja sitja hana.
— Langmikilvægasta málið
verður ákvörðun fiskveiði-
landhelginnar.
í blöðum erlendis er nú
þegar farið að birtast allmik-
ið af fréttum og frásögnum
af málatilbúnaði eða getgát-
um um það, hvað muni ger-
ast í Genf.
Tvær andstæðar tillögur
Af þessum fréttum virðist það
ljóst, að þátttökuþjóðirnar muni
skipast í tvær fylkingar, um sitt
hvora tillöguna. Annað er tillaga
Kanada um 12 mílna fiskveiði-
landhelgi. Hitt er tillaga Banda-
rikjanna um 6 mílna landhelgi
og auk þess 6 mílna belti, sem
Vinstri-menn fordœma
Caifskell sem dragbít!
strandríki hefur einkarétt til fisk
veiða, en þó með þeirri undan-
tekningu, sem öllu gildir að
þjóðir sem lengi hafa stundað
fiskveiðar skuli halda þeim rétti
á ytra sex-mílna beltinu.
Báðar þessar tillögur komu
fram á sjóréttarráðstefnunni í
Genf 1958 bornar fram af sömu
ríkjum, en hvorug fékk tilskilinn
meirihluta.
Samúð með fslendingum
Kanadíska blaðið Winnipeg
Free Press sem er áhrifamikið
þar í landi birti'fyrir nokkru for-
ustugrein um þetta mál. Telur
það að nú séu miklu meiri líkur
til þess heldur en á ráðstefnunni
1958, að kanadíska tillagan um
óskoraða 12 mílna fiskveiðiland-
helgi nái fram að ganga. Telur
blaðið, að ríkan þátt í þessu muni
eiga sú samúð, sem íslendingar
njóta meðal fjölda smáþjóða í
deilunni við Breta. Kemst blaðið
m. a. svo að orði um þetta:
„ Þær aðgerðir Breta
að senda fallbyssubáta til þess
Framhald á bls. 19.
Fyrsti litli
skut-
togarinn
SKUTTOGARNIR ryðja sér
i* meir til rúms. Þykir það
þyggingarlag og veiðiaðferð
«ú sem því fylgir á margan
'hátt heppilegri en hin gamla
aðferð að toga á hliðinni.
Fram að þessu hafa flestir
,'skuttogararnir verið stór skip,
'sem jafnframt voru verk-
smiðjuskip, en nú eru einnig
farnir að koma fram á sjón-
arsviðið minni skuttogarar
eins og sá sem sést hér á
myndinni. Þessi togari er
brezkur. Heitir hann Univer-
sal Star og verður gerður út
frá Aberdeen í Skotlandi.
,Hann er 98 fet á lengd. Það
)sérkennilegasta ið hinn nýja
itogara er tog-gálginn aftan á
íhonum. Vekur skipið mikla
'athygli meðal útvegsmanna.
0 0 0 0000000 0 0 0'0 01
WASHINGTON. — Undirritaður
hefur verið samningur milli
Bandaríkjanna og Japan um
samvinnu á sviði fjármála og
hervarna. Er þar gert ráð fyrir
áframhaldandi hersetu Banda-
ríkjanna í Japan næstu tíu árin
og að árás á annað ríkið jafn-
gildi árás á bæði.
300 bílar þeysa í
átt til Monte Carlo
En fyrsta dauðaslysið varð i Sviþjóð
LONDON, 19. janúar.
—• (Reuter) —
MISKLÍÐIN í brezka Verka-
mannaflokknum brauzt út í
gærkvöldi opinberlega og er
áætlað að 8 milljónir sjón-
varpsáhorfenda hafi orðið
vitni að einstæðum deilum
milli tveggja leiðtoga Verka-
mannaflokksins í sitt hvor-
um fylkingararmi.
Talsmaður vinstri-fylking-
arinnar, Michael Foot, lýsti
því yfir í sjónvarpsdeilu þess-
ari, að Hugh Gaitskell, nú-
verandi formaður Verka-
mannaflokksins, væri drag-
bítur á flokknum. Einnig
sakaði hann Gaitskell um að
valda klofningi með tillögum
um afnám þjóðnýtingar-
stefnu flokksins.
Afleiðing ósigursins
Það hefur almennt verið vitað,
að mikil valdabarátta hefur stað-
ið yfir á bak við tjöldin í brezka
Verkamannaflokknum, m. a.
vegna hins ægilega kosninga-
ósigurs flokksins sl. haust. Gait-
Hugh Gaitskell,
skell, foringi flokksins og meiri-
hluti flokksmanna telja, að
flokkurinn hafi tapað vegna
þess, að brezkur almenningur er
mótfallinn þjóðnýtingu og
sósíalism’a. Vilja þeir taka upp
frjálslynda stefnu og almenna
baráttu og vernd fyrir lítilmagn-
ann í þjóðfélaginu. Þeir vilja
sömuleiðis, að verkalýðshreyf-
ingin verði ekki lengur svo ná-
tengd flokknum sem verið hef-
ur. —
í vetur var efnt til sérstaks
flokksþings, þar sem hinn fljáls-
lyndari armur vildi beita sér
fyrir umbótum á flokknum. En
þá snerust nokkrir harðir og
íhaldssamir sósíalistar og marx-
istar upp gegn þeim fyrirætlun-
um og hindruðu þeir að sósíal-
ismanum yrði kastað fyrir borð.
Síðan hefur verið grunnt á því
góða milli fylkingararmanna í
flokknum og sífelldar erjur og
fjandskapur þar á milli. Hafa
birzt nokkrar greinar í málgögn-
um flokksins, sem hafa sýnt opin-
berlega að þar ríkir sundrung.
Deila milli Williams og Foots
En í sjónvarpinu í gær gerð-
ust þau merkilegu tíðindi, að
tveir Verkamannaflokksmenn
komust í hár saman í umræðum
um stefnu flokksins. Þeir, sem
þarna komu fram, voru Francis
Williams, ritstjóri tímaritsins
Forward, sem er málgagn hægri
arms flokksins, og hinsvegar
Michael Foot, sem hefur til
skamms tíma verið ritstjóri
MONTE Carlo, 19. janúar. —
(Reuter) — Monte Carlo kapp-
aksturinn er hafinn. Lögðu 297
bifreiðar af stað í keppnina frá
9 stöðum í Evrópu. Stefna þær
nú eftir ýmsum fyrirfram
ákveðnum krókaleiðum til
Monte Carlo á Bláströndinni. —
Fyrsta banaslysið í sambandi við
keppnina varð í vesturhluta Sví-
þjóðar í morgun.
Níu brottfararstaðir
í gær lögðu kappakstursbílar
af stað frá Ósló, Aþenu, Varsjá
og Glasgow. Á miðnætti síðast-
liðnu var lagt af stað frá Lissa-
bon, Frankfurt og Haag og í
morgun lögðu síðustu keppend-
urnir upp frá Rómaborg og
París.
Bifreiðarnar sem lögðu upp
frá Ósló fengu slæma færð og
ísingu á vegunum suður með
vesturströnd Svíþjóðar. Þar
varð það slys í morgun, að
hollenzki þátttakandinn, van
Nieuwenhuysen, rakst á vöru-
bíl við þorpið Rabbalshede og
lét lífið. Félagi hans í bílnum,
A. Moggre, meiddist hættu-
lega. Dönsku þátttakendurn-
ir, Preben Petersen og Arne
Arenhag, urðu einnig úr leik,
vegna þess að bifreið þeirra
rakst á vörubíl við Varburg í
Suður-Svíþjóð.
Erfið keppni
Það er búizt við að þessl
Monte Carlo keppni verði ein
hin erfiðasta, vegna snjóa og ís-
ingar á flestum vegum í Evrópu.