Morgunblaðið - 20.01.1960, Síða 9
MiðvíkudaOTir 90 ían 10R0
Mnrrr.TnvrtrjniD
9
)
Talið frá vinstri: Gvendur snemmbæri (Sig. B Sigurðsson), Anna (Guðrún Valtýsdóttir), Jón
(Björn Pétursson), Guðrún (Sigríður Kolbeins), Margrét (Ásgerður Gísladóttir), Guðmundur
bóndi (Þorsteinn Ragnarsson).
Leikfélag Akraness:
Nýársndttin
eftir Indriða Einarsson
ÞÓ að oft heyrist, pg jafnvel sjá-
ist á prenti, íítilsvirðandi og með
aumkunarblandin ummæli um
starfsemi þeirra, sem fást við að
þjóna leiklistargyðjunni úti á
landsbyggðinni, er það eigi að
síður talið með merkisatburðum
á sviði menningarmála heima í
héraði, er leikfélag viðkomandi
staðar ræðst í að koma upp leik-
sýningu. Og þó að hneyksla
kunni einhverja hinna meiri
háttar gagnrýenda, vil ég leyfa
mér að halda því fram, að ekki
sé alltaf verr skilað hlutverkum
úti í hinni strjálu byggð en þar
sem þéttbýlla er, og ætti staðhæf
ing þessi ekki að þurfa að stríða
gegn almennri skynsemi, því að
listrænir hæfileikar eiga það til
að skjóta upp kollinum á hinum
ólíklegustu stöðum og virðast
ekki svo mjög vera háðir þéttbýli
eða strjálbýli, annesjum eða af-
dölum.
En ekki meira um það að
sinni. Það sem ætlunin er að
minnast hér á nokkrum orðum,
er leiksýning Leikfélags Akra-
ness á sjónleiknum Nýársnóttin
eftir Indriða Einarsson, en sjón-
leigur þessi var frumsýndur í
Bíóhöllinni laugard. 9. jan. sl.,
og hefur aldrei fyrr verið sýndur
hér á Akranesi. Má hiklaust telja
hann með stærstu verkefnum fé-
lagsins fyrr og síðar, enda þótt
það hafi oft áður sýnt meiri hátt.
ar sjónleiki og ekki ætíð ráðizt
á garðinn þar sem hann var lægst
ur.
Efni sjónleiks þessa er sótt í ís-
lenzkar þjóðsögur, þann þátt
þeirra, sem að álfatrú lýtur, og er
svo þekkt, að ekki gerist þörf að
rekja það nánar hér.
Hin þekkta leikkona og leik-
stjóri, Hildur Kalman, dótturdótt
ir höfundar, hefur sett leikinn á
svið og stjórnar honum. Er hún
löngu landskunn fyrir leiklistar-
hæfileika sína og á enda til slíkra
að telja. Ber sýningin þess merki,
að stjórnandinn hefur unnið verK
sitt vel og náð furðanlegum ár-
angri, þegar þess er gætt, að leik
endurnir eru að sjálfsögðu mjög
misjafnlega þjálfaðir og sviðsvan
ir, og sumir algerir nýliðar.
Verður vandi leikstjórans og
þeim mun meiri, þar sem sýning-
in er mjög fjölmenn en sviðið
í þrengra lagi. En eigi að síður
hefur leikstjóranum tekizt að ná
góðum heildarsvip á sýninguna.
Með hlutverk fara þeir, sem
nú skal greina:
Þorsteinn Ragnarsson leikur
Guðmund bónda. Er meðferð
hans á hlutverkinu í höfuðatr-
iðum góð, framsögn skýr og skil-
merkileg, en gervi hans, og lát-
bragð á stundum, þykir mér
vera í unglegra lagi.
Margréti, konu Guðmundar
bónda, leikur frú Ásgerður Gísla
dóttir. Er hlutverkið ekki stórt,
en ekki get ég fundið að með-
ferð þess, enda er frúin sviðs-
vön og ótvíræðum leikarahæfi-
leikum búin.
Önnu, ystur Margrétar, Ieikur
ungufrú Guðrún Valtýsdóttir. Er
hún alger nýliði á sviðinu, og bar
leikur hennar þess nokkur merki,
sem ekki er óeðlilegt. En fram-
sögn hennar er skýr og góð og
skilaði hún hlutverki sínu sóma-
samlega, svo ung sem hún ennþá
er. En það sem helzt verður að
fundið er einmitt það, að hún er
til muna of ung til að geta gert
hlutverkinu þau skil, sem vera
þyrfti. Kemur það bæði fram í
gervi og raddblæ. En þessi ann-
marki verður fremur að skrifast
á reikning leikstjórans en leik-
arans, þ.e., að velja hana svo
unga í hlutverkið.
Björn Pétursson leikur Jón
fósturson hjónanna. Ekki veit ég
til, að hann hafi fyrr leikið, og
var frammistaða hans slík. að
ætla má, að nokkurs sé af hon-
um að vænta með aukinni þjálf-
un á leiksviði. En sviðsöryggi er
byrjendum sjaldan gefið, sem
ekki er við að búast. Það sem
belzt mætti finna að leik Björns
er að hann sé í daufara lagi á
köflum. En þess ber jafnframt að
gæta, að hann er stöðugt á milli
tveggja elda, hinnar mennsku
meyjar annars vegar og álfameyj
anna hins vegar, sem stöðugt
reyna að heilla hann til sín, og
getur það réttlætt að nokkru það
hik, sem á honum virðist vera
stundum.
Frú Sigríður Kolbeins leikur
Guðrúnu, unnustu Jóns, af góð-
um skilningi og nokkrum tilþrif-
um. Hefur hún farið með nokkur
hlutverk hér áður og jafnan
reynst vel liðtæk, en bezta leik
þykir mér hún sýna nú. Er fram
sögn hennar ágætlega skýr.
Ungfrú Ásdís Berg Einarsdótt
ir leikur Siggu þjónustustúlku.
Er hlutverkið ekki stórt, en sem
byrjandi fór hún ekki ólaglega
með það.
Alfreð Einarsson leikur Grím,
verzlunarmann. Alfreð er orðinn
sviðsvanur leikari á áhugamanna
vísu, enda skilaði hann hlutverki
sínu með prýði. Sýndi hann sér-
staklega góðan svipbrigða- og lát
bragðsleik auk þess sem fram-
sögn hans er skýr og góð.
Sigurður B. Sigurðsson leikur
Gvend Snemmbæra. Tekst hon-
um með ágætum að túlka þennan
kynlega kvist, enda er Sigurður
orðinn sviðsvanur vel og lætur
einkum vel með ferð gamanhlut-
verka.
Þórleifur Bjarnason leikur álfa
kónginn með miklum tilþrifum
og skörungsskap. Er hann réttur
maður á réttum stað í þessu hlut-
verki og gerir því hin ágætustu
skil.
Frú Ingibjörg F. Hjartar leik-
ur Áslaugu álfkonu. Skilar hún
hlutverkinu sérlega vel, er tígu-
leg í framkomu, svo sem vera ber
og hefur með afbrigðum skýra
framsögn. Túlkar hún þessa
heilladís álfheima af næmum
skilningi.
Frú Bjarnfríður Leósdóttir!
leikur Mjöll, dóttur álfakóngsins,
með þeirri reisn og tígulleik, sem
hlutverkinu sæmir. Má hiklaust
telja hana í flokki þeirra, sem
fremst standa í leiklistinni hér.
Þær frúrnar Sigríður Sig-
mundsdóttir og Ólafía Ágústs-
dóttir leika stallsystur Mjallar,
Ljósbjört og Heiðbláin. Er þokki
N auBungarppboB
sem auglýst var í 92., 93. og 94. tbl. Lögbirtingablaðsins
1959, á hluta í Nýlendugötu 15B, hér í bænum, eign Ingi-
bjargar Ingólfsdóttur, fer fram eftir kröfu Einars Viðar
hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 22. janúar 1960, kl.
3,30 síðdegis.
BORGAFÓGETINN 1 REYKJAVlK.
eða lítil bandsög óskast til kaups.
Uppl. í síma 22453.
yfir leikmeðferð þeirra, en þó
virðist Ölafíu vanta herzlumun-
inn til að skila hlutverki sínu
(Heiðbláin) ákjósanlega vel, og
stafar það vafalaust fremur af
ónógri þjálfun á leiksviði en
hæfileikaskorti.
Adam Þ. Þorgeirsson leikur
Húnboga stallara. Er hann einn
hinna mörgu nýliða á sviðinu og
fer laglega af stað. Hefur hann
góða framsögn og er ekki ólík-
legur til meiri afreka síðar.
Garðar Óskarsson leikur Reið-
ar sendimann. Hlutverkið er
ekki stórt en sómasamlega af
hedi leyst.
Bogi Sigurðsson leikur Svart,
þræl álfakóngsins. Bogi er ungur
og lítt reyndur á leiksviði, ef til
vill í yngra lagi í hlutverkið, en
leysir það eigi að síður vel af
hendi, og mun betur, en búast
mætti við af byrjanda.
Árni Marinósson og Finnbogi
Gunnlaugsson leika álfasveina.
Þá fara nokkrir ónafngreidir
leikendur með' hlutverk huldu-
fólks og álfa.
Undirleik á flygel annast frú
Sigríður Auðuns.
Lárus Árnason hefur málaft
leiktjöld og tekizt vel, en betur
hefur hann þó stundum gert.
Leiksviðsstjóri er G,sli Sigurðs
son, sem jafnframt hefur annazt
leiktjaldasmíði ásamt Ingibergi
Árnasyni.
Ljósameistari er Jóhannes
Gunnarsson. Hárgre:ðslu annast
frú Ragnheiður G. Möller, en
hvíslari er ungfrú Jóhanna
Þórðardóttir.
Leiksýning þessi er þeim sem
að henni standa til mikils sóma,
og eiga leikstjóri og leikendur,
svo og allt aðstoðarfólk, þakkir
skilið fyrir sitt mikla og óeigin-
gjarna starf.
Húsfyllir var á frumsýning-
unni og létu leikhúsgestir óspart
í ljós ánægju sína með öflugu
lófataki, og leikstjóranum voru
færð blóm.
Þegar petta er ritað, hafa alls
verið fjórar sýningar á framan-
greindum sjónleik á Akranesi, og
alltaf fyrir fullu húsi.
Formaður Leikfélags Akra-
ness er Alfreð Einarsson, kenn-
ari.
Valgarður Kristjánsson.
Til sdlu í Vesturbænum
3 herb. íbúð við Víðimel á I. hæð ásamt 1 herb. í kjallara
og hlutdeild í eldhúsi. Stór og mjög vandaður bílskúr.
MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson: fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, IL — Símar 2-28-70 og -94-78.
íbúB óskast
Höfum kaupanda að nýrri eða nýlegri 6 herbergja
íbúð sem ekki þyrfti að vera laus fyrr en 1. okt.
í haust. Mjög mikil útborgun í boði.
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOF A
Vagns E. Jónssonar.
Austurstræti 9. Sími 14400
íbúBir til sölu
Til sölu eru góðar 2ja og 4ra herbergja íbúðir í sambýlis-
húsi á fögrum stað í Háaleitishverfi. íbúðirnar eru seldar
með fullgerðri miðstöð, tvöföldu gleri, útidyrahurðum,
múrhúðun á allri sameign inni í húsinu, handrið á stiga og
húsið fullgert að utan. Nýtízku sjálfvirkar þvottavélar
fylgja. Frystiklefi. Bílskúrsréttur. Hagstætt verð. Lán
kr. 50 þús. til 5 ára á 2. veðrétti.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
CóB risíbúB
til sölu á ágætum stað í bænum. íbúðin er ca. 110 ferm.,
3 herbergi, eldhús, bað, ytri og innri forstofa og stór
geymsla auk sameignar í kjallara. íbúðin er laus nú þegar.
Góð hitaveita, fagurt útsýni. íbúðin er nýstandsett.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
Húseigiim Akrahóll
i Grindavík
eign dánarbús Jóhannesar Hannessonar er til sölu.
Tilboð sendist:
Málflutningsskrifstofu
Einars B. Gnðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
og Guðmundar Péturssonar
Aðalstræti 6 — Símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602