Morgunblaðið - 20.01.1960, Page 12
12
MORCUNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 20. jan. 1960
Fréttabréf frá Ströndum:
Læknabústaðurinn
gerður að sæðingar-
stöð ?
ARIÐ 1959 var með betri árum
hvað búskap og fiskveiðar snert-
ir. Að vísu kom gróður seint.
Túnsláttur byrjaði ekki fyrr en
í byrjun júlí, en þá kom góð
og ör spretta. Sláttur hófst ekki
fyrr en um 20. júlí, og var hey-
fengur mikill og góður hér í
hreppi. Að vísu kom hér óþurrka
kafli, en því eru Arnesingar ekki
óvanir og hafa lært af reynsl-
unni. Eru flestir bændur búnir
að koma sér upp mörgum súr-
heysgryfjum. Eru aðeins nokk-
ur ár síðan bændur hér fóru að
gefa kindum súrhey og hefur það
reynzt vel, ekki borið á neinni
veilu í kindum.
Hjá Kaupfélagi Strandamanna
var slátrað á fjórða þúsund fjár
og er það heldur meira en vant
er. Kemur þar tvennt til greina,
— bændur eru heldur að fjölga
fé sínu en margir fjáreigendur
fluttu héðan. Meðalvigt var í
! góðu meðallagi, 12,1 kg., rösku
kílói meira en í fyrra. Mestu
meðalvigt hafði hinn merki
bóndi í Bæ. Guðmundur Yalgeirs
son, 16,5 kg.
Það er mikill hugur í bændum
í hinu góðu landbúnaðarhéraði
að koma sér upp sæðingarstöð,
og heyrzt hefur, að komið hafi
til tals að kaupa gamla lækna-
bústaðinn í Trékyllisvík til
þeirra framkvæmda. En þess má
geta, að enginn læknir hefur ver-
ið í læknabústaðnum sl. 15 ár.
og hann aðeins notaður til að
hreinsa í hunda hreppsins. Mest
háir bændum í Trékyllisvík skort
ur á beitilandi, en alltaf er fólk
að flytja burt úr byggðarlaginu.
Við að býli, sem illa eru í sveit
sett og rýr að landkostum, fara
í eyði, fæst land fyrir væntan-
legt fé stærri bænda.
Eim fækkar fólki
Sl. tvö ár hafa 9 fjölskyldur
flutt úr byggðarlaginu, samtals
47 manns. Allar hafa þessar
fjölskyldur flutt til Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar, nema Trausti
Magnússon, sem fór með sína
fjölskyldu ‘í Sauðanesvita við
Siglufjörð og Steindór Arason í
Veiðileysu, er fór til Ölafsvíkur.
Fjórar fjölskyldur fluttu á sl. ári
frá Djúpavík og eiga nú 17
manns heima á Djúpuvík, þar
af 8 börn. Tvær jarðir fóru í
eyði á árinu.
Forsetinn sæmdi Guðjón Guð-
mundsson, Eyri, Fálkaorðunni
um síðustu áramót. Er það fyrsti
hreppsbúinn, sem þann heiður
hlýtur, og eru allir sammála um,
að hann sé vel að honum kom-
inn. Guðjón á Eyri er algerlega
ómenntaður maður, en hefur
gengt fjölmörgum trúnaðar-
[ störfum fyrir sveit sína og leyst
' öll sín störf vel af hendi.
I.æknir, en engin Ijósmóðir
Grásleppuveiði var mjög góð
á Gjögri í vor, fengust úr aflan-
um 112 tunnur af verkuðum
hrognum, og er það talsvert
meiri veiði en undanfarin ár.
Veðráttan var afar hagstæð og
auk þess notuð nælonnet, sem
eru miklu betri til veiðanna en
hampgarnsnet, sem hafa verið
notuð.
Tilkynning
trá Laugarás sf.
Tll sölu er íbúð á 10. hæð nr. 5 í I. byggingaflokki.
Þeir félagsmenn í H. byggingjiflokki sem vilja neyta
forkaupsréttar síns, láti félagið vita skriflega fyrir
hádegi á laugardag.
STJÓRNIN.
ÁrshátíÖ
hárgreiðslukvenna og háfrskera
verður haldin að Hótel Borg laugard. 6. febr. og
hefst með borðhaldi kl. 7.
Skemmtiatriði á meðan á borðhaldi stendur.
Allar upplýsingar í símum 12274, 13846, 33968,
22997,10375 og 16460.
Skemmtinefndirnar.
Lítið hefur verið um jarð-
vinnslu á árinu, vegna þess að
jarðýta Búnaðarfélagsins í hér-
aðinu hefur verið í ólagi.
í sumar var byrjað að ýta
fyrir vegi inn Kjörvogshlíð með
smájarðýtu. Gekk verkið seint
og var dýrt, en ýtt var fyrir um
þrem km.
Sveinn Sigmundsson, kaupfé-
lagsstjóri Strandamanna, sagði
upp starfi sínu í fyrravetur.
Sóttu þrír menn um kaupfélags-
starfið, er það var auglýst laust,
en engum var veitt það. Sveinn
flytur héðan í vor en enginn
kaupfélagsstjóri fenginn ennþá.
Er Strandamönnum mikil eftir-
sjá að Sveini Sigmundssyni.
Ljósmóðurlaust er í hreppnum,
en læknir kom hér í byrjun des.
og er mikið öryggi í að hafa
lækni í svo afskekktu byggðar-
lagi. Veit ég ekki annað en að
hann verði fram á sumar, nema
Leikfélag Kópavogs sýndi sakamálaleik Agötu Christie, „Músa-
gildruna", 18 sinnum fyrir jól við ágæta aðsókn. Þess má geta
að forseti Islands og menntamálaráðherra voru viðstaddir síð-
ustu sýningu á „Músagildrunni". Nú hefur L. K. ákveðið að
sýna Ieikinn nokkrum sinnum enn og verður næsta sýning nk.
fimmtudag kl. 8,30 i Kópavogsbíói. — Myndin er af Magnúsi
Kristinssyni og Arnhildi Jónsdóttur í hlutverkum sínum. —
hvað hann verður £ tvo mánuði
frá febrúarlokum á Fæðingar-
deild Landspítalans.
Alltaf fjölgar heimilum, þar
sem aðeins eru þrjár til fjórar
manneskjur allt árið. Eftir ára-
mótin fór fjöldi manns héðan á
Suðurlandsvertíð.
Þrír frændur frá Veiðileysu,
bræðurnir Karl og Lýður Hall-
bergssynir og Elías Magnússon,
reru Sólartindi héðan 6 vikur
fyrir áramót. Fiskuðu þeir 57
lestir. Gæftir voru góðar. Menn-
irnir eru allir bráðduglegir og
beittu alltaf sjálfir, þó róið væri
dag eftir dag.
Elzta fólk hér í hrepp man
ekki eftir eins góðri veðráttu
að staðaldri og verið hefur það,
sem af er vetrar.
— Verksmiðju-
togarar
Framh af bls. 11
jafnvel svo mánuðum skiptir, er
það ekki sérstökum erfiðleikum
háð að senda olíuskip til flot-
ans og birgja hann þannig upp
af eldsneyti.
Afgreiðslustúlka
Óskum eftir að ráða stúlku til afgreiðslustarfa við
Flugbarinn á Reykjavíkurflugvelli. Uppl. í sima
16600.
Námskeið í föndri
1 Reykjavík. Föndumámskeið á vegum Tómstundaheim-
ilis ungtemplara hefjast 25. janúar. Leiðbeint verður
í byrjenda- og framhaldsflokkum. — Innritun fer
fram að Fríkirkjuvegi 11 (bakhúsi) í kvöld, fimmtu-
dags- og föstudagskvöld kl. 8—10.
1 Hafnarfirði. Námskeiðin á vegum Tómstundaheimilis
Tempiara hefjast 26. janúar. Leiðbeint verður í
bast- og tágavinnu, ljósmyndun, flugmódelsmíði,
skák og fl. Innritun fer fram í Góðtemplarahúsinu
í Hafnarfirði í dag, fimmtudag, föstudag og laugar-
dag, alla dagana kl. 5—7.
ÖIlu fólki, jafnt piltum og stúlkum, á aldrinum 12—25
ára er heimil þátttaka í ofangreindum námskeiðum.
Námskeiðsgjald er kr. 25.— sem greiðist við innritun.
Tómstundaheimili Ungtemplara
Reykjavík
Tómstundaheimili Templara
Hafnarfirði.
Húsnæði
undir léttan, þriflegan iðnað óskast. Þarf að vera
50—80 ferm. Tilboð merkt: „8250“ sendist Mbl. fyrir
næstu mánaðarmót.
Nýlend uvöruverzl un
eða verzlunarpláss á góðum stað óskast. Tilboð
merkt: „Verzlun — 8215“ sendist blaðinu fyrir laug-
ardag.
Framtíðarafvinna
Stórt atvinnufyrirtæki hér í bæ vill ráða starfsmann,
sem hefir góða þekkingu á reikningshaldi og æfingu
í slíkum störfum. Umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 1323 fyrir
22. þ.m.
SVAVAR PÁLSSON,
löggiltur endurskoðandi — Tjarnargötu 4.
Skrifstofuhúsnœði
2—3 herbergi óskast í miðbænum.
Vikublaðið ÁSIIMIM
Sími 23287.
Vísindalegar fiskveiðar
Talsverð útþenslustefna er í'
fiskveiðum Rússa. Þeir leggja og
mikla áherzlu á fiski- og haf-
fræðirannsóknir, kannski fram-
kvæma þeir meiri rannsóknir en
nokkur önnur þjóð, að undan-
teknum Bandaríkjamönnum. 1
því sambandi má minna á um-
mæli franska fiskifræðingsins
Francis Minot á síðustu ráðstefnu
um fiskveiðar. Hann segir þar,
að það sé ósennilegt að fiskveið-
ar haldi áfram í sömu mynd og
þær hafa gert hingað til, þegar
þörfin fyrir að framleiða meiri
matvæli eykst, þá verður og
brýnni þörf fyrir vísindalegar
aðferðir við fiskveiðar og þá
verður litið á þær aðferðir, sem
nú eru notaðar, sem algerlega
úreltar. Fiskimaðurinn mun
hætta að verða fyrst og fremst
veiðimaður. Hann verður þess í
stað miklu frekar fiskiræktar-
maður. Þegar þessi bylting verð-
ur, þá mun vafalaust verða þörf
fyrir margar nýjar tegundir af
skipum og veiðitækjum, sem
menn myndu telja mjög róttæk
nú og vafalaust mun fiskifræðin
þá skipta margfalt meira máli
en hún gerir í dag.
(Lauslega þýtt og stytt eftir
grein A. C. Hardy í Fishing
News).
Köttur
Stór, grá-bröndóttur högni,
með hvíta bringu og lappir
hefur tapast frá Karfavogi 42.
Vinsamlegast látið vita í
sima 32384 eftir kl. 6.