Morgunblaðið - 20.01.1960, Qupperneq 19
Miðvikudagur 20. Jan. 1960
MORCTJlSnLAÐlÐ
ip
Sendiherra Frakka
þakkar
Blaðinu hefur borizt eftir-
farandi frá franska sendi-
ráðinu:
DJÚPT snortinn vegna hins
margþætta samúðar-vottar, sem
honum, hefur borizt frá ýmsum
hlutum fslands og sérstaklega úr
Reykjavík, í tilefni hins hörmu-
lega viðburðar í Fréjus, og vegna
hinnar ríkulegu aðstoðar sem ótal
Islendingar hafa af frjálsum vilja
veitt hinum nauðstöddu, hvort
sem er einstaklingar eða samtök,
biður Sendiherra Frakklands alla
þá sem hlut eiga að máli, að mót-
taka sitt auðmjúka þakklæti og
íbúanna í Fréjus, sem eru djúpt
hrærðir af þeim bróðurhug, sem
óhamingja þeirra hefur vakið á
íslandi.
— Bretar
Frh. af bls. 13.
landi sigldu nú fleiri og fleiri
skipalestir norður undir Is-
land á leiðinni yfir hafið. Meg.
inhluta kafbátastyrksins var
því beint þangað og í febrúar
1941 lét Dönitz ítölsku kaf-
bátana fara þangað líka. Þarna
komust kafbátarnir mjög
sjaldan í færi og þegar 5 þýzk
um kafbátum var á skömmum
tíma sökkt við Island síðari
hluta vetrar var farið að
dreifa þeim aftur. Komust
þeir þá oft í færi og fyrstu 6
mánuði ársins 1942 sökktu
Italir og Þjóðverjar 585 skip-
um Bandamanna á Atlants-
hafi.
Hitler óttaðist innrás í Noreg
I júlí 1941 tóku Bandaríkja-
menn við vernd íslands af
Bretum og markaði það þátta.
skil í orrustunni um Atlants-
hafið. Bandaríkjamenn tóku
þá að sér vernd skipalestanna
milli Bandaríkjanna og Is-
lands og létti þetta mjög af
Bretum svo að þeir gátu ein-
beitt sér meira að kafbáta-
veiðunum í austanverðu Atl-
antshafi. Við það bættist, að
Bandamenn tóku að nota flug-
vélar í vaxandi mæli til vernd
ar skipalestunum og kafbáta-
leitarinnar.
Dönitz segist hafa litið svo
á, að kafbátunum hefði öllum
átt að beita gegn skipalestun.
um, þeir hafi verið sterkasta
vopn Þjóðverja og eina von
þeirra um að geta bugað
Bandamenn. En hann segir,
að Hitler hafi ekki metið þá
til fullnustu. Hitler hafi allt-
af óttazt, að Bretar gerðu inn-
rás í Noreg og því krafizt þess,
að svo og svo margir kafbátar
yrðu á verði meðfram norsku
strandlengjunni og á svæðinu
milli Skotlands, Færeyja og
íslands. Þetta segir Dönitz að
hafi dregið mjög úr hinum
raunverulega kafbátahernaði
á Atlantshafinu og hert á und.
anhaldi Þjóðverja.
Eisenhower sagffi nei
Síðasti hluti bókarinnar
fjallar um endalok ófriðarins.
Þar segir Dönitz, að sér hafi
komið mjög á óvart þegar Hitl
er útnefndi hann eftirmann
sinn. Segist hann þá hafa vit-
að hvernig Bandamenn ætl-
uðu sér að skipta Þýzkalandi
og hagað allri herstjórn í sam-
ræmi við það. Dönitz segist
hafa lagt áherzlu á að flytja
sem mest af hernum og al-
mennum borgurum í vestur-
átt, út af fyrirhuguðu hernáms
svæði Rússa. Vildi hann gera
sérsamninga um uppgjöf við
Montgomery og Eisenhower á
vesturvígstöðunum, en draga
bardagana við Rússa á aust-
urvígstöðunum á langinn til
að koma enn fleira fólki und.
an, yfir á brezka og banda-
ríska hernámssvæðið.
En Dönitz til sárra von-
brigða hafnaði Eisenhower
þessu með öllu og krafðist
skilyrðislausrar uppgjafar og
að bardögum yrði hætt á öll-
um vígstöðum samtímis.
De Gaulle boðar
ráðstefnu um Alsír
ALSÍR og PARÍS, 19. janúar. —
(Reuter) — Borgarstjórar í
Alsír lýstu því yfir í dag að
Alsírbúar mundu staðfesta þá
ákvörðun sína að halda áfram að
vera franskir, „jafnvel með því
að grípa til vopna, ef þörf kref-
ur“. Var þessi yfirlýsing gefin út
á sameiginlegum fundi borgar-
stjóranna í dag, þrem dögum áð-
ur en de Gaulle heldur ráðstefnu
í París um málefni Alsír.
Það olli mikilli óánægju meðal
hægrisinnaðra Evrópumanna í
Alsír er de Gaulle tilkynnti á
síðasta ári að þegar hætt yrði að
berjast mundu Alsírbúar öðlast
sjálfsákvörðunarrétt. Samkvæmt
tillögum hans eiga þeir um
þrennt að velja: Sjálfstæði, sam-
einingu við Frakkland eða sjálf-
stjórn innan frönsku ríkjasam-
steypunnar.
Massu
Massu kvaddur til Parísar
Franska ríkisstjórnin sendi í
dag eftir Jacques Massu hers-
Fréttir
'í stuttu máli
Nýr frambjóðandi
LOS ANGELES. Pat Brown,
ríkisstjóri í Kaliforníu, til-
kynnti í dag, að hann hefði
ákveðið að gerast frambjóð-
andi demókrata til forseta-
cmbættisins í prófkosning-
um sem fram eiga að fara
! í Kaliforníu.
Eigi kvaðst Brown hafa í
hyggju að hefja kosningabar-
áttu í öðrum ríkjum, nema
þá ef aðrir hugsanlegir fram-
bjóðendur demókrata færu að
bjóða sig á móti honum í próf
kosningunum í Kaliforníu. —
★
WASHINGTON. I gær var undir
ritaður samningur um smíði á
farþegaskipi, sem flutt getur 100
farþega, með 80 sjómílna hraða.
Er skipið með vængi (hydrop-
hoil), sem lyfta skipsskrokknum
upp úr sjónum við mikla ferð,
og er búizt við að það fyrirbyggi
sjóveiki. Ráðgert er að skipið
haldi uppi ferðum milli Banda-
ríkjanna og Puerto Rico.
höfðingja frá Alsír, vegna um-
mæla sem höfð eru eftir honum
í vestur-þýzku dagblaði, þar sem
hann ræðst á Alsír-stefnu de
Gaulle, og var Massu væntan-
legur í kvöld.
Fréttir herma að Massu, sem
er yfirstjórnandi Alsírsvæðisins
og var forsprakkinn að Maí-
byltingunni“ 1958, sem tryggði
valdatöku de Gaulle, yrði kraf-
inn skýringa á viðtalinu, sem
hefur vakið feikna eftirtekt í
París og Alsír.
Skilja ekki de Gaulle
1 viðtalinu er haft eftir Massu
að herinn hafi „ef til vill gjört
rangt“ í að ryðja de Gaulle braut
ina með „Maí-byltingunni“ og að
„við skiljum ekki lengur" stefnu
de Gaulle.
Franskar fréttir herma að
Massu hafi eindregið mótmælt
því sem eftir honum var haft.
En Hans Kemski, söguhöfund-
urinn, segist hafa skýrt rétt frá
viðtalinu. Hann kveðst hafa „rit-
að mörg viðtöl, við Krúsjeff,
Chou En-Lai og Adenauer, og
enginn hefur nokkurntíma mót-
mælt því er ég hef skrifað“.
Óttast eftirgjöf
De Gaulle hefur boðað til ráð-
stefnu á föstudag um Alsír, þar
sem allir helztu leiðtogar lands-
ins mimu mæta, og mun Massu
sitja ráðstefnuna. Ýmsir hægri-
sinnar í Alsír, sem stóðu að bylt-
ingunni 1958 vegna aðgerðar-
leysis ríkisstjórnarinnar gegn
uppreisnarmönnum, óttast nú að
ráðstefnan muni samþykkja nýj-
ar eftirgjafir til uppreisnar-
manna.
— Landhelgin
Framh. af bls. 1.
aff „vernda“ fiskimenn sína
undan ströndum íslands, hef-
ur valdiff gerbreytingu á al-
þjóðaviffhorfum og skoðunum
í þessu máli.
Á ráffstefnrunni sem haldin
var í Genf fyrir nærri tveimur
árum mun um það bil helming
ur þátttökuþjóffanna engra
beinna hagsmuna hafa haft
að gæta af fiskveiffum. Þess
vegna gátu margar þeirra
stutt bandarísku tillöguna um
sex mílna landhelgi plús sex
mílna fiskveiðibelti, þar sem
réttindi þeirra væru varffveitt
um alla eilífff, sem hafa stund-
að þar fiskveiffar.
Nú er þaff ekki Iengur hægt
fyrir smáþjóffirnar aff styffja
þessa tillögu. Því aff ef þær
styddu bandarísku tillöguna
nú, þýddi þaff í raun réttri aff
þær væru aff samþykkja aff-
gerffir Breta, aff þær væru aff
fordæma, — ekki affgerffir
Breta, heldur affgerðir hins
litla lslands.“
Einnig bendir blaðið á það, að
tillaga Bandaríkjanna um að
vernda gömul sérréttindi samrým
ist illa þeirri meginreglu í túlkun
Sameinuðu þjóðanna á alþjóða-
rétti, að allar þjóðir eigi að vera
jafnar fyrir lögunum. Telur
Winnipeg Free Press, að eina
vonin til að ná alþjóðasamkomu-
lagi um þessi mál sé að sam-
þykkja kanadísku tillöguna um
12 sjómílna óskoraða fiskveiði-
landhelgi.
Stúlka óskast
til afgreiðslu við aðgöngumiðasölu nú þegar.
Umsókn, ásamt uppl. um aldur og menntun, ásamt
mynd, sendist fyrir n.k. laugardag í pósthólf 1416.
GAMLA BÍÓ s.f.
Sendisveinn
Duglegur og röskur sendisveinn
óskast nú þegar.
Vinnutími frá kl. 6—12 f.h.
JlltfniitttÞlfifetfr
Afgreiðslan — Sími 22480
Innilegar þakkir öllum þeim, er sendu mér vinsamleg
skeyti og viðtöl á áttræðisafmæli mínu.
Hannes Jónsson, Núpsstað.
Hjartanlega þakka ég öllum vinum mínum, fjær og nær,
sem á einn eða annan hátt sýndu mér vinsemd á nýliðinni
jólcihátíð, — bæði með elskulegum kveðjum og miklum gjöf-
um, sem ég fæ aldrei fullþakkað né launað, — sérstaklega
vil ég þakka læknum sjúkrahúss Akraness, og hjúkrunar-
fólki öllu fyrir élskulegt viðmót og allskonar hjálp, sem
það hefur veitt mér úm svo langan tíma.
Bið ég góðan guð að launa ykkur öllum.
Með beztu kveðju
Gíslína Kristjánsdóttir, Akranesi.
Konan mín
SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR
lézt að Elliheimili Keflavíkur þann 18. þ.m. Jarðarförin
auglýst síðar.
Gísli Daníelsson.
Jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa
JÓHANNESAR BARÐARSONAR
sjómanns, Karfavogi 46
fer fram frá Fossvogskirkju föstudag. 22. jan. kl. 13,30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, er vildu minnast
hins látna er bent á Dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda:
Margrét Jónsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall sonar okkar og
bróður
ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR
sem fórst með M.B. Rafnkell.
Guðrún Ólafsdóttir,
Guðmundur Eyjólfsson systur og mágar.
Alúðar þakkir færum við þeim mörgu er auðsýndu
okkur samúð og vinsemd við andlát og útför
ELÍNAR PÉTURSDÓTTUR SNÆDAL
frá Eiriksstöðum.
Fyrir hönd okkar og annara vandamanna.
Steinuun Vilhjálmsdóttir, Björgvin Sigurðsson.
Alúðar þakkir mínar og konu minnar, flytjum við
öllum þeim, er hjálpuðu til við leit að vélskipinu Rafnkell
G.K. 510, bæði á sjó og í lofti og þeim mörgu, sem þátt
tóku í leit á fjörum, svo og öðrum þeim er veittu ómetan-
lega hjálp við hinn sorglega atburð, er gerðist aðfara-
nótt hins 4. þ.m., er er vélskipið Rafnkell frá Garði,
hvarf í hafið með allri áhöfn. Sömuleiðis flytjum við
ÖU. aðstandendur hinna látnu sjómanna, hjartans þakkir
fyrir alla samúð og hluttekningu er við höfum orðið
aðnjótandi, við hið sorglega slys og biðjum öUu þessu
fólki gæfu og guðs blessunar á þessu nýbyrjaða ári
og alla tíma.
Fyrir hönd aðstandenda:
Guðmundur Jónsson, Rafnkelsstöðum.