Morgunblaðið - 04.02.1960, Page 14

Morgunblaðið - 04.02.1960, Page 14
14 MORCUNBLAÐlh Fimmtudneur 4 febrúar 1960. Verðhœkkun á vöru- birgðum bönnuð Afnám vísitölukerfisins, ábreytt fiskverð verðlagning landbúnaðarafurða f ÞRIÐJA kafla efnahagsmála- frumvarps ríkisstjórnarinnar eru ákvæðin um afnám vísitölu- uppbóta á laun, verðlag landbún- aðarafurða, samninga sjómanna, nýjar álagningarreglur, bann við verðhækkun á birgðum inn- fluttra vara og heimild til niður- greiðslu á verðlagi. Eru þessi ákvæði í 23.—28. grein frv. — Fara þær hér á eftir: • Afnám vísitöluuppbóta Óheimilt er að ákveða, að kaup, laun, þóknun, ákvæðis- vinnutaxti eða nokkurt annað endurgjald fyrir unnin störf skuli fylgja breytingum vísitölu á einn eða annan hátt. Tekur þetta til kjarasamninga stéttarfélaga og til allra annarra ráðningar- og vérksamninga, svo og til launa- reg’lugerða og launasamþykkta allra stofnana og fyrirtækja. ákvæði í samningum um kaup og kj®r. gerðum fyrir gildistöku laganna um greiðslu verðlagsupp béitar samkvæmt vísitölu, verða ógilt, er lög þessi taka gildi, og sama gildir um sams konar á- kvæði í launareglugerðum og launasamþykktum stofnana og ftrrirtækja. Nú er þrátt fyrir ákvæði 1. málsgr. þessarar gr. ákveðið í samningi stéttarfélaga eftir gild- istöku þessara laga, að greidd skuli verðlagsuppbót samkvæmt vísitölu, og er þá slíkt ákvæði ógilt og hlutaðeigandi vinnuveit- endum er óheimilt að fylgja því. Háð samþykki 6 manna nefndarinnar Frá 1. apríl 1960 er heimilt að hækka mjólkurverð til framleið- enda í hlutfalli við hækkun þá á kostnaðarhlið verðlagsgrund- vallar landbúnaðarvara 1959— 1960, sem leiðir af ákvæðum þessara laga. Við ákvörðun þess, hve mikil þessi hækkun sé og hvenær hún skuli koma til fram- kvæmda að því er snertir ein- staka kostnaðarliði í verðlags- grundvellinum, skal fylgja á- kvæðum 2. og 3. málsliðs 1. máls- grein 6. gr. laga nr. 68/1959. (Sex manna nefndin fær, þannig til meðferðar, hve mikil hækkun á mjólkurverði skuli vera og hvenær hún skuli koma til framkvæmda). Samningar sjómanna Þar til nýir samningar hafa verið gerðir milli bátasjómanna annars vegar og útvegsmanna hinsvegar um skiptaverð til báta sjómanna á þorskveiðum, skal miða aflahluti við það skipta- verð, sem í gildi var í febrúar- mánuði 1959, sbr. 9. gr. laga nr. 1/1959, um niðurfærslu verðlags og launa. Jafnframt skal, við út- reikning á aflahlutum eftir gild- istöku laga þessara, reikna þá liði, sem greiðast af óskiptu sam- kvæmt gildandi samningum við upphaf yfirstandandi vetrarver- tíðar, á því verðlagi, sem var fyr- ir gildistöku laganna. Þar til nýir samningar hafa verið gerðir um aflaverðlaun togarasjómanna milli þeirra ann- ars vegar og togaraútgerðar- manna hins vegar, skal miða við það fiskverð, sem í gildi var í febrúarmánuði 1959, sbr. 9. gr. laga nr. 1/1959, um niðurfærslu verðlags og launa. Verðhækkun á birgðum bönnuð Verðlagsyfirvöld skulu þegar eftir gildistöku þessara laga setja nýjar reglur um álagningu í heildsölu og smásölu á innflutt- um vörum, er miðist við það, að álagning í krónum hækki ekki nema sem svarar beinni hækkun dreifingarkostnaðar vegna ákvæða þessara laga. Hækkun á verði innlendra iðnað arvara og hvers konar þjónustu vegna ákvæða þessara laga má ekki eiga sér stað, nema með samþykki verðlagsyfirvalda, og hún má ekki vera meiri en svar- ar þeirri hækkun tilkostnaðar, sem leiðir af ákvæðum laganna. Sama gildir um aksturtaksta vörubifreiða, fólksbifreiða og sendibifreiða og um flutnings- gjöld skipa og flugvéla. Þ'ýzkt menning- arkvöld um Bert Brecht NÆSTA þýzka menningarkvöld í þýzka bókasafninu að Háteigs- vegi 38 (á heimili þýzka sendi- kennarans) verður í dag kl. 9. Mun þýzki sendikennarinn tala um Bertolt Brecht og skýra verk hans, og verður leikin hljóm- plata með þáttum úr Túskildings óperunni (Dreigroschenoper). Bert Brecht, sem dó 1956 að- eins 58 ára að aldri, var þekkt- asta leikritaskáld Þjóðverja á okkar tímum. Hann var aðalfröm uður hinnar nýju leiklistar- stefnu, sem kölluð er „episches Theater". Um 1930 gekk hann i kommúnistaflokkinn, og á valda tímum Hitlers flúði hann til út- landa og skrifaði þar nokkur af þekktustu verkum sínum. Eftir stríð varð hann leikhússtjóri í Austur-Berlín. Sum af verkum hans voru ekki aðeins leikin um allt Þýzkaland, heldur einnig er- lendis. Margir íslendingar hafa séð Túskildingsóperuna, sem leikin var hér í fyrra. Þýzk menningarkvöld eru fyrsta fimmtudag á hverjum mánuði. Var áður fjallað um Thomas Mann og Gottfried Benn. Öllum er heimill aðgangur. Bannað er að hækka verð á birgöum innfluttra vara, sem greiddar hafa verið á eldra gengi, o3- sama gildir um verð á birgðum iðnaðarvara, sem framleiddar eru úr efni, sem greitt hefur verið á eldra gengi. Til birgða teljast í þessu sambandi vörur greidd- ar á eldra gengi, sem ekki eru komnar í hendur innfiytj- enda. Ríkisstjórninni er heimilt að verja fé úr ríkissjöði til þess að halda niðri verði á vörum og þjónustu. Mr. R. J. Edwards og Mr. W. J. Owen. Þeir flytja mál íslands í brezka þinginu EINS og frá hefur verið skýrt í Morgunblaðinu eru hér staddir í boði SÍS tveir brezkir þingmenn, þeir William James Owen, þing- maður fyrir Northumberland og Robert J. Edwards þingmaður fyrir Staffordshire. f FYRRADAG bauð forstjóri SÍS, Erlendur Einarsson, frétta- mönnum að ræða við þingmenn- ina á stjórnarskrifstofu sam- bandsins. Sagði hann, að ástæðan til heimboðs gestanna væri sú, að þeir væru báðir þingmenn þess arms verkamannaflokks- ins brezka, sem aðhylltist samvinnustefnu frekar en þjóð- nýtingarstefnu svo og að þeir væru málsvarar íslands í fisk- veiðideilunni. Þar sem allar upp- lýsingar um fiskveiðideiluna, sem fram kæmu í Englandi væru nokkuð tilfærðar Bretum í hag, hefði sér fundizt vel til fallið að bjóða þessum mönnum að kynnast málinu frá sjónarhóli ís- lendinga. Þingmennirnir hafa ferðazt nokkuð um á vegum SÍS og skoð- að fyrirtæki þess í Reykjavík, á Selfossi og á Akureyri. Þá flugu þeir yfir fiskimiðin í flugvél Landheigisgæzlunnar. Sögðust þeir ekki hafa séð neina brezka togara, en herskipin hefðu lónað ein og yfirgefin úti fyrir ströndinni. Þegar þingmennimir voru spurðir um álit þeirra á landhelg isdeilunni, tóku þeir skýrt fram, að þeir töluðu ekki sem málflyt- jendur stjórnar sinnar eða flokks, Heimdallarfundur: Fræðslulöggjöfin Heimdallur, F. U. S. efnir í kvöld um málfundum, sem Heimdallur til fundar um fræðslulöggjöfina með tilliti til breytinga á henni. Lúðvík Stefán Verður fundurlnn haldinn í Val- höll við Suðurgötu og hefst kl. 20,30. Framsögumenn fundarins verða fjórir: Jakob R. Möller mennta- skólanemi, Haraldur Gísla- son verzlunarskólanemi, Lúðvík Karlsson landsprófsnemi og Stef án Snæbjörnsson iðnnemi. Að loknum ræðum þeirra verða frjálsar umræður. Er fundur þessi annar af fjór- efnir til á þessum vetri. Var hinn fyrsti haldinn fyrir hálfum mánuði. Umræðuefni þess fundar var þegnskylda. Tóku margir til máls og urðu umræður fjörugar. Fundurinn í kvöld hefst eins og áður er sagt kl. 20.30. Allir Heimdellingar, og þá einkum skólamenn, eru velkomnir á fundinn. heldur einungis sem tveir ein- staklingar. En sem slíkir sögðust þeir harma það mjög, hversu deila Breta og íslendinga hefði orðið alvarleg. Sögðust þeir hafa fengið mun betri skilning á sjón- armiðum fslendinga, bæði af því að tala við íslenzka fiskimenn strandgæzlumenn og ráðamenn þjóðarinnar, en þeir hafa hitt hér að máli þingmenn úr öllum þing- flokkum. Sögðust þeir nú skilja hve mik ilvægt það væri fyrir efnahags- afkomu íslenzku þjóðarinnar, að hafa strangt eftirlit með fiski- stofninum. Þingmennirnir ætla að flytja málið fyrir Neðri deild brezka þingsins er heim kemur og kváðust vona, að það hefði ein- hver áhrif í þá átt, að sanngjarn- ari stefna verði upp tekin af hálfu Englandsstjórnar á fisk- veiðiráðstefnunni í Genf. Þeir Owen og Edwards skoð- uðu hér einnig gróðurhús. Ed- wards, sem er efnafræðingur að menntun, tók sérstaklega fram, að fslendingar ættu mikla auð- lind, þar sem heita vatnið værL Kvað hann mjög æskilegt fyrir íslendinga að hagnýta hana til hins ýtrasta og væri hún á- reiðanlega þess virði að til hag- nýtingar hennar væri varið nokkru fé. Þingmennirnir héldu heim- leiðis í gær. Allt brann á skommum tíma GRUNDARFIRÐI, 3. febrúar — Kl. 19 sl. mánudag kom upp eld- ur í geymsluhúsi verzlunarfélags ins Grund h.f. og brann það til grunna á skömmum tíma. Lög- reglurannsókn hefur farið fram og kom ekki í ljós neitt, sem benti á sérstök eldsupptök, en allar líkur benda til þess að kviknað hafi í út frá rafmagni. Haraldur Donir og Norðmenn bíða — segir Unden STOKKHÓLMI 2 febrúar: — Unden, utanríkisráðherra Svía, sagði í dag, að ástæða sé tii að ætla, að hvorki Norðmenn né Danir muni færa út lögsögu- landhelgi sína né fiskveiðiland- helgi fyrr en árangur Genfai-ráð stefnunnar verður Ijós. Ráðherr- ann sagði, að álit Svía væri það, að einstök ríki gætu ekki fært út landhelgi sína nema hægt væn að færa fram söguleg réttmdí. Sænska stjórnin lýsti sig andvíga því, að fiskveiðilandhelgi ríkja nái út fyrir lögsögulandhelgina. R-11171 hœsta númerið Á HVERJUM degi eru sem kunn ugt er skráðir fleiri eða færri bílar, ýmist nýir eða gamlir, sem eigendaskipti hafa orðið að. í gærdag var sett í umferð hæsta Reykjavíkur-númer, sem nú er á bíl. Platan ber númerið R—11171. Giskað er á, að bílar hér í Reykjavík séu nú um 9000. í húsinu var geymd þurr skreið, ýmis áhöld og verzlunar- vörur tilheyrandi Grund h.f., svo og veiðarfæri tveggja báta. í Grundarfirði er slökkvilið og ein dæla til að slökva eld með, en í þessu tilfelli var hún ekki starfhæf sakir bilunar, þótt spgja megi að það hefði ekki skipt miklu máli, þar sem húsið var alelda, er að var komið. Mikill mannsöfnuður streymdi að bruna staðnum þegar eftir kl. 19 og 10—15 mín. síðar féll þak hús- ins og áður en klukkutími var liðinn var allt brunnið. Vakað var yfir brunarústunum næstu nótt á eftir, til að forða nær- liggjandi mannvirkjum. Hús og það sem í því var, var vátryggt. Fimmtugur Árni Bjarnarson Akureyri f DAG er Árni Bjarnarson bók- útgefandi á Akureyri 50 ára. Sakir rúmleysis í blaðinu verð- ur afmælisgrein um hann að bíða birtingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.