Morgunblaðið - 04.02.1960, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 4. febrúar 1960.
M O n G V N Tt r 4 fí IÐ
17
— Reynf að sföðvo
Framhald af bls. 13.
einkum eru bornir af öðrum.
• Tenging kaups og vísitölu
afnumin
Jafnhliffa |>essu er lagt til,
að tenging kaups við vísitölu
framfærslukostnaðar sé num-
in úr gildi. Þetta er nauðsyn-
legt til þess að gera þá breyt-
ingu tekjuskiptingarinnar,
sem að framan getur, raun-
haffa, og koma í veg fyrir þá
öru verðbólguþróun, sem ann
ars myndi hljótast af víxl-
hækkunum verðlags og kaup-
gjalds. Um þetta atriði eru á-
kvæði í 24. gr. frumvarpsins.
Það leiðir beinlínis af fyrir-
komulagi, sem lögákveðið hefur
verið hér á landi frá 1943 varð-
andi verðlagningu landbúnaðar-
afurða, að á meðan kaup verka-
manna, iðnaðarmanna og sjó-
manna breytist ekki, breytist
ekki kaup bóndans, og verð land
búnaðarafurða hækkar ekki af
þeim sökum. Á hinn bóginn verða
bændur til samræmis við aðra
að fá endurgreiddar í hærra
vöruverði þær hækkanir á kostn
aði rekstrarvöru sinnar, sem af
gengisbreytingunni leiða. Um
þetta atriði eru ákvæði í 25. gr.
frumvarpsins.
• Sérstaða togarasjómanna
í samræmi við það, að kaup-
hækkanir eiga sér ekki stað
vegna þeirrar hækkunar vísitölu
framfærslukostnaðar, sem af
gengisbreytingunni leiðir, er
ekki gert ráð fyrir, að bátasjó-
menn og togarasjómenn fái neina
kauphækkun vegna þeirrar
hækkunar fiskverðs, sem geng-
isbreytingin hefur í för með sér.
Um þetta eru ákvæði í 26. og 27.
gr. frumvarpsins. Eins og drepið
var á hér að framan, er ríkis-
stjórnin þó þeirrar skoðunar, að
togarasj ómenn hafi sérstöðu sam
anborið við aðra launþega. l>eir
hafa á undanförnu ári orðið fyr-
ir tekjurýrnun, sem beinlínis
stendur í sambandi við útfærslu
landhelginnar. Það er ekki rétt-
látt, að ráðstafanir, sem gerðar
eru með framtíðarhagsmuni allr-
ar þjóðarinnar fyrir augum,
bitni þannig beinlínis á einni
stétt manna. Ríkisstjórnin telur,
að sú bætta afkoma togaranna,
sem af gengisbreytingunni leið-
ir, muni gera það kleift að
hækka tekjur togarasjómanna.
Á hinn bóginn hefur ríkisstjórn-
in ekki viljað setja ákvæði um
þetta atriði í það frumvarp, sem
faér liggur fyrir, heldur talið
eðlilegast, að um það væri sam-
ið á milli togaraeigenda og sjó-
manna sjálfra.
• Farmenn og flugmenn
Þá hafa farmenn og flugmenn
einnig nokkra sérstöðu í sam-
bandi við efnahagsráðstafanirn-
ar. Þeir hafa fengið huta launa
sinna greiddan í erlendum gjald
eyri með 30% yfirfærslugjaldi,
þar sem skipafélögin og flugfé-
lögin hafa tekið að sér greiðslu
25% af 55% yfirfærslugjaldinu.
Þetta er vandamál, sem 'ráða
verður fram úr með frjálsum
samningum milli aðila og greiða
léikvæði 28. gr. þessa frumvarps
fyrir þeim samningum.
• Aðstaffa námsmanna
Um íslenzka námsmenn er-
lendis gildir að sínu leyti svipað
og um farmenn og flugmenn, að
þeir hafa getað keypt erlendan
gjaldeyri á sérstaklega hagstæðu
gengi. Þau fríðindi munu nú að
sjálfsögðu falla niður. Hefur ver
ið ráð fyrir því gert í fjárlaga-
frumvarpinu, að námsmönnum
verði þetta bætt að nokkru með
því, að námsstyrkir hækki í
sama hlutfalli og verð hins er-
lenda gjaldeyris, Þannig að
styrkirnir geti haldizt óbreyttir
í erlendum gjaldeyri, þrótt fyrir
gengisbreytinguna.
• Frjálsir samningar
Engin ákvæði er aff finna í
þessu frumvarpi varðandi
grunnlaun. Ákvörðun þeirra
verffur eftir sem áffur háff
frjálsum samningum á milli
atvinnurekenda og stéttarfé-
laga.
Þrátt fyrir þetta getur ekki
hjá því farið, að viðhorfið í
launamálum verði annað að lok-
inni framkvæmd þeirra ráðstaf-
ana, sem hér er gert ráð fyrir,
heldur en það hefur verið um
langt skeið undanfarið. Útflytj-
endur hafa um margra ára skeið
talið öruggt, að þeir gætu fengið
sérhverja launahækkun, er þeir
veittu starfsmönnum sínum, jafn
aða með hækkun útflutnings-
bóta. Á sama hátt hafa aðrir at-
vinnurekendur miðað við það,
að þeir gætu fengið sérhverja
launahækkun endurgreidda í
hækkuðu verði á vörum sínum
og þjónustu. Þetta hefur orðið
til þess, að æ ofan í æ hefur
verið samið um launahækkanir,
sem ekki áttu sér stoð í aukn-
um framleiðslutekjum, og ekki
gátu heldur leitt til breyttrar
tekjuskiptingar þjóðarinnar. Slík
ar launahækkanir eru launþeg-
um gagnslausar, en leiða hins
vegar til verðbólgu, og hafa
þannig hinar alvarlegustu afleið
ingar fyrir efnahagslíf landsins,
þegar til lengdar lætur.
• Grundvöllur Iaunahækkana
Ríkisstjórnin telur, aff meff
þeim ráffstöfunum í efnahagsmál
um, sem þetta frumvarp felur í
sér, muni nýtt viffhorf skapast.
Útflytjendur verffa framvegis aff
sæta ríkjandi gengi og geta ekki
fengið aukinn launakostnað end-
urgreiddan í hækkuðum útflutn
ingsbótum. Þá er þaff einnig ætl-
un rikisstjórnarinnar aff leyfa
engar verffhækkanir á innlend-
um vörum og þjónustu vegna
launahækkana. Meff þessu móti
getur því aðeins skapazt grund-
völlur fyrir launahækkunum, að
um sé að ræffa aukningu fram-
leiðslutekna, sem launþeginn
njóti góffs af fyrir sitt leyti í
hækkuðu kaupi. Það er lika að-
eins meff þessu móti, sem launa-
hækkanir geta orðið launþegum
til raunverulegra hagsbóta.
Rússar lartgf
á undan
— segir von Braun
Washington, 2. febrúar. — Eld-
flaugasérfræðingurinn Wernher.
von Braun sagffi í dag, aff síff-
ustu eldflaugatilraunir Rússa
hefðu sannaú' og sýnt, að þeir
væru mörgum árum á undan
Bandarikjamönnum í smíði lang-
drægra eldflauga.
Spáði hann því, að á þessu ári
mundu Rússar koma mannaðri
eldflaug á braut umhverfis jörðu
og senda rannsóknartæki til
tunglsins. Sagði hann, að Saturn-
eldflaugin, sem Bandaríkjamenn
hefðu á prjónunum, væri senni-
lega helmingi minni en þær, sem
Rússar væru að fullgera. Saturn
yrði langstærsta eldflaug Banda-
ríkjanna, en áætlað hefði verið,
að hún yrði ekki fullreynd fyrr
en 1964. Hægt yrði þó að flýta
verkinu vegna aukinnar fjárveit-
ingar Eisenhowérs. Saturn mun
hafa afl, sem samsvarar 1,5 millj.
pundum.
— Ferðapistlar
Framh. af bls. 8
blasir við manni í sinni síungu
tign og ég hlakka til hins langa
sumars sem ég á fyrir höndum í
splríkju Attíku.
Það er dálítið skrýtið til þess
að hugsa, að á þessu fjögra sól-
arhringa ferðalagi hef ég í raun-
inni ferðazt um allar íslenzku
árstíðirnar. Haustkalsi í París og
Norður-ítalíu, vetrarhörkur í
Júgóslavíu, indælt vorveður í
Makedoníu og Þessalóníku og
loks bezta íslenzkt sumarveður í
Aþenu.
Þrátt fyrir allt og allt sé ég
ekki eftir þessu stranga ferða-
lagi sem stundum var hart nær
óþolandi. Það er alltaf nokkurs
virði eftir á að vera nýrri reynslu
ríkarL
Efnahagsmálaráðuneyfið
stofnað vonum seinna
Frá umræðum
á Alþingi
EFN AH AGSMÁL ARÁÐU -
NEYTIÐ nýja og ráðuneytis-
stjórinn voru til umræðu á
fundi sameinaðs þings í gær.
Var tilefni umræðnanna fyr-
irspurn frá Ólafi Jóhannes-
syni um hver lagaheimild
hefði verið fyrir stofnun ráðu
Hrafnhildur Þórarinsdóttir.
Starfs-
frœðsla
EINN af yngstu skólum
Reykjavíkurbæjar er Haga-
skólinn við Fornhaga.
Hann er gagnfræðaskóli, sem
hefur hátt á fjórða hundrað
nemendur á skyldualdri en
einnig stúlkur í 3. og 4. bekk.
Er það einskonar verzlunar-
deild, þar sem einkum er lögð
áherzla á að búa stúlkurnar
undir vinnu við skrifstofu- og
verzlunarstörf. Er þeim kennd
bókfærzla, vélritun, mál og
ýmis hagnýt störf.
Jafnframt náminu í fjórða
bekk vinna stúlkurnar úti hja
ýmsum stórfyrirtækjum í bæn
um. Vinna þær yfirleitt tvo
tíma á dag, alls í sex vikur.
Ætlunin er að þær kynr.ist
þ?annig ýmsum störfum,
sem unnin eru í þessari at-
Jónína Jónsdóttir.
vinnugrein. Ein þessara
stúlkna afgreiddi okur í Vest-
urveri í gær.
— Eina skrifblokk, takk —
litla með gormi.
— Ekki til, segir hún, en
kemur með eina miðlungs-
stóra, þessar eru minnstar.
— Látum svo vera. Hvað
heitir þú?
— Hrafnhildur Þórarins-
dóttir.
— Ertu í fjórða bekk?
— Já, verð gagnfræðingur í
vor.
— Hvað tekur svo við? Ætl-
arðu í annan skóla?
—Nei, sennilega ekki, nema
þá húsmæðraskóla.
— Hvernig líkar þér að
vinna í búð?
— Ágætlega, en við erum
núna aðeins 5 daga á hverjum
stað. Ég gæti vel hugsað mér
að vera áfram, sagði Hrafn-
hildur að lokum.
í Verzlunarsparisjóðnum
voru tvær stúlkur úr sama
bekk. Þegar við komum inn
og spurðum hverjar þær
væru, var okkur bent á eina,
sem greinilega var niðursokk-
in í vinnu sína. Hún varð okk-
ar ekki vör fyrr en ljósmynd-
arinn hóaði í hana um leið
og hann smellti af.
— Fyrirgefðu að við réð-
umst svona að þér. Hvað heit-
ir þú?
— Jónína Jónsdóttir.
— Hvað ertu að gera?
— Reikna út sparisjóðs-
vexti.
— Er það skemmtilegt
verk?
— Já, ágætt. Ég vildi
gjarnan vinna við það lengur.
— Ætlarðu að læra eitthvað
meira?
— Nei.
neytisins og ádei’.a á rikis-
stjórnina fyrir stofnun þess.
Urðu allsnarpar umræður og
var flutt 21 ræða um málið
á fundinum.
Af hálfu stjórnarandstöðunnar
töluðu auk fyrirspyrjandans Ey-
steinn Jónsson, Þórarinn Þórar-
insson og Halldór E. Sigurðsson.
Töldu þeir enga lagaheimild hafa
verið fyrir stofnun ráðuneytisins
og lög um embætti og skyldur
starfsmanna ríkis og bæja hefðu
verið brotin, er starf ráðuneytis-
stjórans var ekki auglýst. Þá
taldi einn þeirra stofnun efna-
hagsmálaráðuneytisins algerlega
óþarfa og hefði verið nær að fela
Hagstofunni starf þess.
Af hálfu ríkisstjórnarinnar töl
uðu forsætisráðherra, dómsmála-
ráðherra, fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra. Bentu þeir
á, að af 9 ráðuneytum hefðu fjög-
ur verið stofnuð með lögum, en
fimm án sérstakrar lagaheimild-
ar. Sú framkvæmd hefði aldrei
verið gagnrýnd og eftir venju-
legri túlkun á stjórnarathöfnum
mundi svo margendurtekið for-
dæmi, án aðfinnslu eða brigzla,
næg heimild fyrir stofnun hins
nýja ráðuneytis meðan ekki væri
sett önnur löggjöf. Hins vegar
rriinntu þeir á, að Bjarni Bene-
diktsson hefði á þingi 1957 flutt
tillögu um að skipuð yrði milli-
þinganefnd til endurskipuleggja
og hafa eftirlit með stjórnarráð-
inu, en það hefði þá mætt and-
stöðu V- stjórnarinna'r undir for-
ystu Eysteins Jónssonar. Starf
ráðuneytisstj órans hefði ekki ver
ið stofnað um leið og ráðuneytið.
Hann hefði verið ráðinn í tíð V-
stjórnarinnar og hefði sömu kjör
nú og þá hefði verið samið um og
aðeins væri um breytingu á
starfi hans og ræða og því ekki
ástæða til að auglýsa það.
Talsmenn stjórnarinnar viku
nokkuð að brýnni nauðsyn hins
nýja ráðuneytis, sem stofnað
væri vonum seinna. Kváðu þeir
það hafa verið mikið happ fyrir
þjóðina, er Jónas Haralz réðist í
þágu íslenzka ríkisins og væri
rík ástæða til að stuðla að þvi
að hans nyti þar við sem lengst.
Það væri fjarstæðukennd hugs-
un að halda að Hagstofan gæti
tekið að sér störf efnahagsráðu-
neytisins, því hennar verksvið
væri allt annað.
— Arabia
Framh. aí bls. 11
geta menn notið þess að drekka
tært og kalt vatn, að vísu með
svolitlu saltbragði. Þar getur
maður keypt af Bedúínunum
lamb og þeir eru til með að
slátra því fyrir mann á stund-
inni og flá það. Þar getur mað-
ur síðan keypt heilmikið af döðl-
um fyrir lítinn pening, farið
með þær til tjaldbúða sinna út
í jaðri vinjarinnar og kveikt upp
bál, þar sem maður getur steikt
lambið með sama hætti og Bedú-
ínarnir gera það. Sólin gengur
til viðar og maður undrast og
hrífst af kyrrðinni, sem kemur
yfir vinina. Við sólarlag fer
Arabapresturinn, Múezzininn, að
syngja og kalla til hinna sann-
trúuðu ofan úr mínarettunni. —
Hann syngur vers úr kóraninum
með sinni einhljóma rödd en þó
að sumu leyti lagrænni. Þetta
er bezti tími dagsins, vegna þess
að svalur vindur, eða kannski
„ekki eins heitur" kemur frá
eyðimörkinni og maður finnur
ljóðrænu hinna gömlu Austur-
landa, þar sem hún svifur yfir
hinum gömlu rústum vinjar-
innar.
Domenico Palmara.