Morgunblaðið - 04.02.1960, Side 21

Morgunblaðið - 04.02.1960, Side 21
Fimmtudagur 4. febrúar 1960. MORCWSRLAfílÐ 21 Kúsbyggjendur - IUúrarar Pússningarsandur frá Þorlákshöfn til sölu á 16 kr. pr. tunnan. Afgreiddur samdægurs. — Pantanir í síma 22577. Kennsla Landspróf. — Les með skóla- fólki tungumál, stærðfraeði, eðlis fræði o. fl. og bý undir landspróf, stúdentspróf, verzlunarpróf og önnur próf. — Kenni einnig byrjendum þýzku. — Dr. Ottó Arnaldur Magnússon (áður Weg) Grettisgötu 44-A. — S:rni 15082. Rœsfingakona óskast í Ingólfs apótek. — Upplýsingar á staðnum fyrir hádegi í dag. — Ekkf svarað í síma. IÍTSALA S A L A Eim er talsvert eflir af kven- og karlmannaskóm Nokkur pór af bamaskóm tekin fram ■ dag Aðalstræti 8 LESBÓK BARNANMA Njálsbrenna og hefnd Kára 103. Gengu þcir þá fyrir jarl off kvaddi Flosi hann og allir þeir. Jarl spurði, hvaS manna þeir væru. Flosi nefndi sig. Jari haföi áður spurt brennuna, og kenndist hann af því þegar við mcnnina. Hann spurði þá Flosa: „Hvað segir þú mér til Helga Njálssonar, hirðmanns míns?“ „Það“, sagði Flosi, „a*ð ég hjó höfuðið af honum.“ Jarl bað taka þá og var svo gert. I»á kom að í því Þor- steinn Síðu-Hallsson. Bað hann Flosa griða og gengu margir til að flytja með hon- um. Kom svo að jarl tók sætt- um við þá og gerðist Flosi hirðmaður Sigurðar jarls. 104. Þeir Kári og Kolbeinn svarti tóku landi í Friðarey nokkru síðar. Hún er milli Hjaltlands og Orkneyja. Við Kára tók sá maður, er Dáviður hvíti hét. Hann sagði Kára allt um ferðir þeirra Flosa ,slíkt sem hann hafði vts orðið. Hann var hinn mesti vinur Kára og var Kári með honum um veturinn. Höfðu þeir þá fréttir vestan úr Hross eyju, allar er þar gerðust. lo5. Sigurður jarl bauð til sín að jólura Gilla jarli, mági ginum, úr Suðureyjum og Sigtryggi, konungi af írlandi. Sat konungur í miðju hásæti, en til sinnar handar konungi gat hvor jarlanna. Sigtryggur konungur og Gilli jarl vildu heyra tíðindi þau, er gerzt höfðu um brenn- una og svo síðan er hún varð. Þá var fenginn tii Gunnar Lambason að segja söguna og var settur undir hann stóll. 106. I þennan tíma komu þeir Kári og Kolbeinn og Dá- viður hvíti til Hrosseyjar öll- um á óvart. Kári og þeir fé- hgar gengu þegar til jarls- bæjarins og komu að höllinni um drykkju. Bar það saman, að þá var Gunnar að segja söguna, en þeir Kári hlýddu til úti á meðan. Þetta var jóladaginn sjálfan. Sigtryggur konungur spurði: „Hversu þoldi Skarphéðinn í brennunni?“ „Vel fyrst“, sagði Gunnar, „en þó lauk svo, að hann grét“. Um allar sagnir hallaði h»nn til, en ló frá víða. 5 Segðu mér sögu: Brúðan EINN góðan veðurdag tóku 3 litlar stúlkur sig saman með brúðurnar sín ar og fóru í mömmuleik í einum húsagarðinum. — Þær léku sér vel og lengi. Allt í einu tóku þær eftir því að hjá þeim stóð telpa úr nágrenninu. Hún var ósköp fátæk og átti lítið af gullum. Hún hélt á brúðunni sinni á hand- leggnum. Það var ekki falleg brúða en Rósu litlu þótti sýnilega vænt um hana. „Hvert ert þú að fara“, spurðu stelpurnar sem fyrir voru. „Ég ætlaði að vita hvort ég mætti leika mér við ykkur meðan litli bróðir sefur, því þeg ar hann vaknar verð ég að passa hann“. „Við ?rum að hætta í mömmu- leik“ sagði Siddý sem átti langfallegustu brúðuna og tók um leið saman allt sitt dót og sama gerðu hinar. — Svo reigsuðu bær út á götu, en Rósa í humátt á eftir. — „Ég ætti nú ekki annað eftir en að láta mína brúðu vera með svona drusiu- dúkku eins og þessari dúkku hennar Rósu“ hvíslaði Síddý að vinkon- um sínum. Hinar fussuðu einnig alveg sammála Siddý. Þær voru hálfreið- ar yfir því að Rósa litla skyldi fylgja þeim eftir og voru að stinga saman nefjum um, hvernig þær ættu að stinga hana af. Þær gengu þvert yfir göt- una og litu um leið til baka til að vita hvort Rósa kæmi á eftir. En Rósa stanzaði því hún sá bíl, sem kom eftir göt- unni á hraðri ferð. Hún hrópaði hrædd: „Síddý, bíllinn, bíllinn“? Siddý var kominn lengst út á götuna nú leit hún við og sá að bíllinn var alveg við hliðina á henni. í of- boðinu missti hún brúð- una sína finu í götuna og hausinn á henni fór 1 mjöl. Siddý fór að há- skæla. En Rósa litla fór til hennar og spurði hana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.