Morgunblaðið - 04.02.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 04.02.1960, Síða 22
22 M Oti C1I1S ni 4 ÐJÐ Fimmtudagur 4. febrúar 1960. Gabbaði slökkviliðið á Slökkvistöðina og var sagt í símann barnalegri röddu að hús- ið við Skipholt 18 væri alelda. Þótti slökkviliðsmönnum strax kall þetta vafasamt, en eigi að síður voru 3 mannaðir slökkvi- liðsbílar sendir á vettvang eins og venjulegt útkall væri um að ræða. Sími Slökkvistöðvarinnar var þó ekki tekinn úr sambandi fyrr en rannsóknarlögreglunni hafði verið gert aðvart og tókst henni að upplýsa hvaðan hringt var. Enginn eldur hafði komið upp í Skipholti 18. Reyndist vera 12 ára drengur Það reyndist vera 12 ára dreng ur, er hringt hafði úr húsi skammt frá Skipholti 18. Hafði hann komist. í síma þegar mað- ur, sem bjó í herberginu, er hann hringdi úr, brá sér frá. Sú deild rannsóknarlögreglunn ar, sem fjallar um afbrot barna hefir nú mál þetta til meðferðar. De Caulle hreinsar til PARÍS, 3. febr. — (Reuter) — Báðar deildir franska þingsins hafa nú samþykkt að veita de Gaulle úrskurðarvald næstu tólf mánuði. Fær hann þar með víð- tækari völd en nokkrum leiðtoga lýðræðisríkis hafa verið veitt í Evrópu í sögu seinni tíma. De Gaulle kveðst nota þessi miklu völd til þess m. a. að hreinsa til meðal embættis- manna, herstjórnar og ríkis- starfsmanna í Alsír. Málið upplýst LOKSINS hefir tekizt að haf upp á einum þeirra, er stunda þann dýra og smekklausa leik að gabba slökkviliðið, en um slíkt hefir talsvert verið að und- anförnu. Var hér um að ræða unglingspilt, er kallaði út slökkvi liðið með símahringingu. Þótti grunsamlegt Um kl. 7 í gærkvöldi var hringt stjórnin hefur nú lagt fram, eða er í þann veginn að leggja fram. Séð yfir sal Sjálfstæðishússins á hinum glæsilega Varðarfundi í gærkvöldi. Ljósm. Mbl. Ól. K. M. — Ræða Ólafs T hors Framh. af bls. 1. Næst vék forsætisráðherra að gjaldeyrisstöðunni og sannaði að frá árslokum 1954 hefði hún versnað um 300 milljónir. í þeim efnum væru fslendingar einnig lélegastir allra þjóða, sem kunn- ugt væri um, að einni til tveim- ur undanskildum, enda hefði engu mátt muna að landið héfði lent í greiðsluþrot um sl. áramót. Bótakerfið dauðadæmt Þar næst rakti forsætisráð- herra -neð skýrum rökum, að bótakerfið byggðist beinlínis á auknum erlendum lánum og versnandi gjaldeyrisstöðum. Engin lán væru hins vegar fá- anleg að óbreyttu kerfi. Þetta skæri úr að kerfið væri dauða dæmt þó ekki væri annað. Ræðumaður færði þar næst fram ýmis önnur rök, sem sýndu veilurnar í þessu dauða dæmda kerfi. — Kerfið er því dauðadæmt, sagði ræðumaður, en hvað á að koma í staðinn? Sýndi hann fram á, að ekki væri um annað að ræða en að viðurkenna það fall krónunnar, sem raunverulega væri á orðin, en það væri um 20% miðað við núverandi meðal- gengi útflutningsins. Væri miðað við innflutninginn, væri gengis- fallið hins vegar allmiklu meira. Af þessu hlyti að leiða mikla hækkun á vöruverði. Sú lækk- Un krónunnar, sem V-stjórnin hefði viðurkennt 1958 hefði þó verið miklu meiri. Vísitölu- hækkun, sem af þessu leiddi yrði um 13 stig. Hún yrði hins vegar greidd niður í tæp 3 stig og væru allar niðurgreiðslur miðaðar við að fjölskyldufólk, þ. e. hjón með 3 börn, aldrað fólk og öryrkjar þyrftu engar byrðar að axla. ★ Skattalögin Þá gerði ráðherrann grein fyrir breytingum á • skattalögunum. Drap á væntanlegt verzlunar- frelsi, breytingar á tryggingar- löggjöf og önnur helztu megin- atriði þeirra frumvarpa, sem Fórnir í bili óumflýjanlegar Lauk forsætisráðherra hinni ítarlegu og greinargóðu ræðu sinni með því að skora á menn að kynna sér málið til hlítar. Þjóðin yrði að gera sér ljóst, að með engu móti yrði um- flúið að færa nokkrar fórnir í bili. Á öllu riði að þjóðin tæki þessum ráðstöfunum vel. Ef hún gerði það mundiu fórn- irnar verða tiltölulega skammar og sóknin til auk- ins öryggis og bættra lífskjara ekki örðug eða löng. Ef hins vegar þjóðin snerist öndverð gegn þessum ráðstöfunum, væri það eins víst og nótt fylgdi degi að hennar biði miklir og langvarandi örðug- leikar og atvinnuleysi. Ræðu forsætisráðherra var af- burðavel tekið með miklu og langvarandi lófataki. Fleiri tóku ekki til máls sem raunar var ekki kyn eftir hina yfirgripsmiklu og ítursnjöllu framsöguræðu. Var það mál manna að fundur þessi hefði verið með allra glæsileg- ustu Varðarfundum. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 Skyldi hann hanga í lausu lofti? Eða er hann galdra- maður, sem hefur gert hluta af myndinni ósýnileg- an? Það getur svo sem vel verið, því að þetta er sirkussýning. Reyndu að draga strik frá 1—45 og þá muntu sjá, hvað það er, sem ekki sézt á myndinni. hvort hún vildi ekki eiga sína brúðu. „Nei“, æpti Siddý. „Við getum átt hana saman" sagði Rósa „svo á ég líka aðra heima, hún er nú ekki falleg en ég get vel átt hana ef þú vilt þessa“ bætti Rósa við. „Nei, farðu frá mér, þetta er allt þér að kenna, hver heldurðu að vilji irusludúkkuna þína“ org iði Siddý. Rósa fór kjökr andi heim til sín og hinar fóru hver í sína átt. Seinna um daginn kom bílstjórinn með nýja brúðu og gaf Siddý og rétt á eftir kom pabbi hennar heim úr vinnunni með aðra. En þá fór Siddý að hugsa um, hvað allir væru góðir við sig og fór að bera saman hlutskipti sitt og Rósu. Hún sá nú eftir, hvað hún hafði verið vond. Hún pakkaði annarri brúðunni inn og skrifaði utan á pakkann: Til Rósu, frá verstu stelpu á ís- landi. Svo sendi hún bróð ur sinn með pakkann til Rósu. Auðvitað varð Rósa alveg í sjöunda himni. Hún þakkaði drengnum, hún hljóp og þakkaði Siddý og hún þakkaði líka guði í hljóði fyrir að hafa getað afstýrt því að Siddý lenti undir bílnum. Upp frá þessu urðu þær Siddý og Rósa beztu vin- konur. Siddý komst að því, að það er ekki allt fengið með því að eiga fal legar brúður. Bigurður Grétarsson. Skipalæk. í síðasta blaði birtum við nokkrar af skrítlun- um, sem Guðrún Olga Clausen sendi Lesbók- inni. Hérna eru þær af skritlum hennar, sem ekki komust í blaðið síð- ast: Kennari: — Hvað er beinagreind, Kalli? Kalli: — Það er maður, þegar búið er að taka inn- yflin úr honum og snúa ranghverfunni út. ★ — Anna, komdu strax upp til að þvo þér kall- aði mamma ofan af iofti. — Ég vil ekki þvo mér, svaraði Anna, fjögurra ára hnyðra. Lofaðu henni að þvo sér hérna niðri bjá mér, sagði amma. Það er alveg sama. — Nei, sagði mamma ákveðin. Hún á að iæra að hiýða og koma upp, þegar ég segi henni það. Anna fetaði upp stigann og var þungt hugsandi, kom beint til mömmu og spurði: — Átt þú ekki Hka að hlýða mömmu þinni? ★ Mamma: — Hvernig í ósköpunum stendur á þessu, allur rjóminn horf- inn úr skálinni! Ási: — É-é-ég veit það ekki, mamma, en ég sá, að hún kisa alveg kaf- roðnaði, þegar ég korn inn. ★ — Óttalega er harm lít- ill hann bróðir þinn! — Já, en hann er ekki nema hálfbróðir minn. ★ Vertu svo blessuð og sæl. Guðrún Olga Clausen, 9 ára, Reykjavík. vntu skrita mér Ingibjörg Hallgríms- dóttir, Búðardal, Laxár- dal, Dalasýslu, óskar að skrifast á við dreng eða stúiku 13—14 ára, Skúli Ljáðu mér vængi Ur fyrstu sögu flugsins 15. „Graf Zeppelin" var eitt hinna fáu loftskipa, sem endaði ævi sína á friðsamlegan hátt. Síðast var því „lagt upp“ í geypistóru skýli, þar sem um ein milljón manna kom til að skoða það. Næsta stóra loftskipið, sem Þjóðverjar byggðu, „Hindenburg“, sprakk við lendingu i Bandaríkjun- um árið 1937. í því slysi fórust 36 manns. Þjóð- A. Sigurðsson, Skóla- stræti 1, Sandgerði og Guðmundur E. Friðriks- son, Fagurhlíð, Sand- gerði, við pilta eða stúlk- ur, 11—13 ára og Sess- elja Hákonardóttir Sunnu braut 18, Akranesi, við pilt eða stúlku 12—14 ára. verjar gáfust þá upp á að smíða'fleiri loftskip. Svipaða sögu var að segja um loftskip Banda- ríkjamanna. Tvö brotn- uðu í lofti, það þriðja lenti í hvirfilbyl yfir Atlanzhafi, þar sem 78 manns fórust og eitt fórst yfir Kyrrahafi, Banda- rikjamenn hættu nú einnig að byggja stór loftskip. Skrítla Maðurinn (sezt á bekk við hliðina á litlum dreng, sem fer að hágráta): — Af hverju ferðu að gráta, litli vinur? Drengurinn: — Þú sett- ist á eggin mín!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.