Morgunblaðið - 24.02.1960, Qupperneq 1
24 síður
47. árgangur
45. tbl. — Miðvikudagur 24. febrúar 1960
Prentsmiðja Mcrgunblaðsíns
Viðreisnin í framkvœmd:
Kjaraskerðing hindruð með stórfelldri
eflingu almannatrygginga
Hjón með fjögur börn fá kr. 10,400
Stefna
óbreytt
Alhert skaut
skotum
sex
LONDON, 23. febrúar. —
TALSMAÐUR brezka utan-
ríkisráðuneytisins lét svo um
mælt í dag, að ákvörðun
togaraútgerðarmanna um að
skip þeirra veiddu ekki við
ísland meðan á Genfar-ráð-
stefnunni stæði fæli ekki í
sér neina viðurkenningu
brezku stjórnarinnar á ís-
lenzku 12 mílna landhelginni.
Afstaða brezku stjórnarinnar
hvað lögfræðilega hlið máls-
ins snerti væri enn hin sama.
Sagðist talsmaðurinn hins
vegar vænta þess, að þessi á-
kvörðun togaraútgerðarmanna
yrði til þess að auka líkurnai
fyrir því að Genfar-ráðstefnan
yrði árangursrík, þ. e. að skyn-
samleg og réttlát lausn fengist á
deilunni um fiskveiðilandhelgi.
Palliser á vettvang
Samkvæmt tilkynningu frá
sambandi brezkra togaraútgerð
armanna skaut varðskipið Albert
á brezka togarann James Barrie,
er hann var að veiðum við ís-
land fyrir tveimur dögum. Alberc
skaut sex skotum, er togarinn var
5 mílur undan ströndinni, á vernd
arsvæði, sem freigátan Palliser sá
um. Varðskipsmenn hefðu gert
tilraun til að ráðast til upp-
göngu, en skipstjóri togarans lát-
ið höggva á togvírana til að flýta
undanhaldinu.
Segir 1 tilkynningunni, að
Palliser hafi þá komið á vett-
vang og fylgt togaranum, sem
er 666 tonn og hefur 20 manna
áhöfn, á haf út.
Frh. á bls. 9.
á ári í fjölskyldubœtur
Elli- og örorkulifeyrir til hjóna hækkar um 62,8%,
barnalifeyrir um 43*^0, fæðingarstyrkur um 25%
Frumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi
E I N N liður í ráðstöfunum
þeim, sem fyrirhugaðar eru í
efnahagsmálum þjóðarinnar,
er stórfelld aukning á bóta-
greiðslum almannatrygginga.
I gær var lagt fram á Alþingi
frv. ríkisstjórnarinnar um
breytingu á almannatrygg-
ingarlögunum, er felur í sér
aukningu á þessum bóta-
greiðslum. Helztu atriði
frumvarpsins eru þau, að nú
verða fjölskyldubætur greidd
ar með hverju barni, 2600
kr. með fjórum börnum
10,400,00. Ms^ðralaun verða
greidd með einu barni, og
hækka verulega með fleiri
börnum. Elli- og örorkulíf-
eyrir til hjóna hækkar um
62,8%, en einstaklingslífeyrir
hækkar um ca 44%. Barna-
lífeyrir hækkar um ca 43%
og fæðingarstyrkur um ca
25%. Fjölskyldubætur greið-
ast að fullu úr ríkissjóði, sem
einnig tekur á sig verulegan
hluta af hækkun annarra
bóta nema slysabóta. —
Helztu atriöi frumvarps-
ins fara hér á eftir og
er gerður samanburður á
Hrossin úti í Engey
voru í góðum holdum.
Þau voru forvitin er þau
sáu til mannaferða, en
styggð hljóp í þau, ef
át'ti að ná þeim. í bak-
sýn sést faðmur Reykja-
víkur. Hvernig er útlits
í Engey við bæjardyr
Reykjavíkur. Um það
fjallar grein á bls. 3.
þeim greiðslum, er frv. gerir
ráð fyrir og greiðslum þeim,
sem eru í gildandi lögum.
Fjölskyldubætur
1) Fjölskyldubætur verða
greiddar með fyrsta og öðru
barni í fjölskyldu, jafnháar fyr-
Frh. á bls. 9.
106 inni-
króaðir
A-BERLÍN, 23. febrúar. — Um
300 björgunarliðar unnu baki
brotnu í allan dag við að reyna
að bjarga 106 námumönnum, sem
eru innikróaðir í Karl Marx nám
unni í Saxlandi. Þeir eru um
kílómeter undir yfirborði jarðar.
Sprenging varð í námunni á
mánudag og logar þar nú mikill
eldur. A.m.k. 17 menn létust við
sprengánguna, 51 hefur verið
bjargað. Margir voru mjög slas-
aðir. — Björgunarstarfið er erfitt
vegna hitans og geta björgunar-
iiðar ekki verið niðri í námu-
göngunum nema tvær stundir í
senn.
Vonin um að takast megi að
bjarga mönnunum 106 er nú far-
in að dofna.
Dalai Lama selur gullið
NYJU DELHI, 23. febrúar. —
Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíbeta,
sem dvalizt hefur landflótta
hart nær ár í Indlandi, ætlar að
seja hluta af gulldjásnum þeim,
sem hann kom úr landi áður en
Kínverjar tóku Tíbet. Það var
arið 1951 að Dalai Lama fór að
ótiast alvarlega um framtíð Tí-
bet og sendi hann þá á laun megn
ið af gersemum klaustursins i
Lhasa úr landi. Var farið með
dýrgripina á 1000 múldýrum til
Sikkim, dvergríkisins á landa-
mærum Tíbets og Indlands.
Nú hefur Dalai Lama komið
megni þessa auðs fyrir í Calcutta
og hyggst selja það smám sam-
an. Andvirðinu ætlar hann að
verja til stuðnings tíbetskum
flóttamönnum í Indlandi.
Um 16,000 landa hans eru land
fJótta í Indlandi og þrátt fyrir
stranga landamæragæzlu kín-
verskra kommúnista tekst að
meðaltali 15—16 Tíbetum að
flýja daglega yfir til Indlands.
□-
JMorgmW&íuíi
Miðvikudagur 24. febrúar.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Við innsiglingu Reykjavíkur.
— 8: Sagt frá jómfrúræðu Auðar
Auöuns á Alþingi.
— 10: Hvað er jarðvegur? — eftir
Bjarna Helgason.
— 11: íþróttir.
— 12: Ritstjórnargreinar: Sjóðir land-
búnaðarins — Nýlendukúgarar.
— 13: Flogiö yfir snjólaust ísland í
lok þorra.
— 14: Kvennadálkar.
— 15: Úr kvikmyndaheiminum. —
Lesbók barnanna.
— 16: Bridge. — Lesbók barnanna.
— 22: íþróttir.
-□