Morgunblaðið - 24.02.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.02.1960, Blaðsíða 23
MiðvífcudagUr 24. febrúar 1960 MORGVNBLAÐIÐ 23 Þessar tvær sigruðu í bruni kvenna á Vetrarleikunum. Sú til hægri heitir Heidi Biebl frá Þýzkaiandi. Hún hlær meira, enda hlaut hún gullið. Hin vinstra megin er hin fræga bandaríska Fenny Pitou, eftirlætisgoð áhorfendanna. — Hún fékk silfur- verðiaun. — Linda Meyer frá Bandaríkjunum braut annan stafinn. Féll hún við það og braut hægra viðbein- i ið. Var hún lögð inn á sjúkra-1 hús. Þung raun Stórsvigbraut kvenna var 1300 metra löng með 362 metra hæð- armun. Allmikil ísing var á nokkrum stöðum á henni, svo keppendurnir urðu að standast þunga raun. Margar féllu og hættu keppni, þeirra á meðal Heidi Biebl, sigurvegarinn í bruni kvenna og Traudl Hecher, sem varð þriðja í þeirri grein. Úrslit: 1. Vvonne Riígg, Sviss ... 1:39,9 min 2. Penelope Pitou, USA . .. 1:40,1 — 3. Giuliana M. Chenal, ítal 1:40,2 — 4. Betzy Snite, USA....1:40,4 — 5-6. Annelise Meggl, Þýzkal. 1:40,7 — 5-6. Carla Marchelli, Ítalíu . 1:40,7 — 7. Therese Leduc, Frakkl. . 1:40,8 — 8. Anne M. Leduc, Frakkl. 1:41,5 — 9. M. Chamot-Herthod, Sv. 1:41,8 — 10. Sonja Sperl, Þýzkal. ... 1:41,9 — Sv/ss fékk bœði gullin í stórsvigskeppnunum Penny Pitou, sárlasin, fœr eintóm silfurverðlaun SVISSNESK, ung og fögur stúlka, að nafni Yvonne Rúgg, var himinlifandi af gleði er hún hafði sigrað í stórsvigi kvenna á Olympíuleikunum. Það var ekki nóg með það, að hún hefði unnið landi sínu önnur gullverðlaunin, heldur hafði Svissland með þessu unnið sigur í stórsvigi bæði karla og kvenna og það er mik- ilvægt, því að þetta er uppá- hanldsíþrótt þessarar Alpaþjóðar. Uppáhald áhorfendanna, bandaríska skíðadrottningin Penny Pitou, varð nú að sæta því sama og í bruni kvenna, að verða nr. 2. Yvonne hafði tím- ann 1 mín. 39,9 sek. en Penny 1 mín 40,1 sek. Hamingjuósk frá Staub Yvonne Rúgg varð feikilega glöð er hún fékk að vita, að hún hefði sigrað. — Eg get ekki trúað því. Þetta var erfitt hlaup. Mér fannst ég ekki vera vel upplögð þegar ég lagði af stað. Eg hélt að þetta væri vonlaust en lagði af stað allt að einu. Svo gekk mér svo vel með fyrstu hliðin, að ég tók rögg á mig og herti á ferðinni eins og ég gat. Yvonne er hraðritari að at- vinnu. Hópur samlanda hennar safnaðist í kringum hana til að óska henni til hamingju og einn þeirra fyrstu sem faðmaði hana að sér var Roger Staub, sem hafði unnið stórsvig karla dag- inn áður. Með hlta Penny Pitou var mjög illa upplögð, er hún hóf keppnina. Segir flokksstjórí Bandaríkjanna, að hún hafi verið með hita og ógleði og er hún lauk þessari keppni lagðist hún í rúmið. — Þykir það vel gert af henni sár- lasinni að vinna silfrið, þó að hún hefði haft hug á því, að vinna fleiri gull á þessum leik- um, en trúlofunarhringinn einn frá Zimmerman. Það slys varð í keppninni, að 999 I D A G er dagskráin þannig í Squaw Valiey: Svig karla. 500 m. skautahlaup karla. Auk þess hefst keppni i listhlaupi á skautum og ís- hokkikeppnin heldur áfram. 00000000*000 0 0 0 0» — 15 km ganga Framh. af. bls. 22. gleði — og ekki síður af þvi að Östby var kominn í mark sem fjórði maður. Reyndustu skíðamenn á staðn- um sögðu þetta göngueinvígi mesta einvígi skíðasögunnar. Sjö sekundur skildu að 1. og 3. mann eftir 15 km keppni. Svíarnir sem haft höfðu forystuna í byrjun en urðu að gefa eftir, voru hvað fyrstir að óska Norðmönnum til hamingju. Sagt að leikslokum — Ég neytti ítrustu krafta minna, en það nægði ekki, sagði Jernberg. Ég vissi er að markinu dró að tími Brusveens var betri en minn (um senditækin) en við því gat ég ekki gert, sagði þessi reyndi göngumaður sem þótti lík- legastur sigurvegari. Hann kom sveittur og útkeyrður í mark og sagði „Það var mikil mótstaða í dag“. Og þar átti hann við þunna loftið sem göngumennirn ir eru allir óvanir þar sem þeir liafa aldrei keppt svo hátt yfir sjávarmáli sem nú. Ramgaard iýsti þessu þannig. „Það var eins og að ganga á vegg allan tím ann“. En Svíarnir viðurkenndu að þeir hefðu farið of hratt í byrj un. Úrslit í 15 km. göngu 1. Haakon Brusveen, Noregi 51,56 mín 2. Sixten Jernberg, Svíþjóð 51.59 — 3. Haknlinen, Finnlandi .... 52.03 — 4. Östby, Noregi ...... 52,18 — Vaganov, Kússlandi ...... 52.18 — 6. Mantiran, Finnlandi ..... 52.46 <=» Mig hefur dreymt — en aldrei þorað að vona að Jbað rættist sagði 38 ára gömul húsmóðir, sem fékk bronsverðlaun RÚSSNESKA stúdínan Lidya Skoblikova var sú fyrsta á þessum á þessum Vetrar- olympíuleikum til að vinna til tveggja gullverðlauna. Hún vann sitt annað gull í 3000 m skautahlaupi í dag. En henni mistókst að setja um leið sitt annað heimsmet á þessum leikum — þó skildu aðeins 5/10 úr sek. hana frá meti landskonu hennar, Sju- kovu, sem hljóp á 5.13.8 í Alma Ata. — Silfrið fór eins og búizt var við til Rússa. — Það var Valentina Stenina, nýbakaður heimsmeistari i skautahlaupi kvenna, sem hreppti það. Hún er eigin- kona Boris Stenin, sem einn- ig er nýbakaður heimsmeist- ari. — Aldrei þoraff aff vona . . . En alltaf kemur eitthvaö á óvænt. Og í þetta sinn var þaff í sambandi viff bronzverfflaun- in. Það var 38 ára gömui finnsk húsmóðir, sem vann til þess, og fékk aff sjá fána lands síns á verfflaunastöng- inni. Hún er elzt finnsku Olym- píukcppendanna, þessi hús- móðir frá Harjala. Og hún upp lifffi stærsta augnablik lífs sins og sins langa skautaferils. „Það er þetta sem mig hef- ur dreymt um, en aldrei þoraff að vona að rættist" sagði Sevi Huttunen er henni var lyft af sterkum finnskum örmum þeg ar sýnt var aff bronzið varð finnskt. „Ég er nú ekki lengur nein ungpía“ sagði hún „og ég bjóst við að þurfa að fara að hætta þessu. En það er þessi íþrótta- gleði, sem alltaf vaknar i mér og gerir það að verkum aff ég get ekki setið inni í stofu þeg- ar isinn kemur“. Gleðin var ekki minni meðal Svía þegar sýnt var aff Christina Scherling hafði orð- iff í fimmta sæti á 5.25.5 sem er næstum 15 sekundum betri en liennar staðfesta sænska met. fsinn var mjög góffur en veð ur í kaldasta lagi og mótvind- ur á lokaspretti háffi nokkuff. Úrslit í 3000 m skautahl. kvenna 1. Lydia Skoblikova, Rússlandi 5:13,3 2. Valentina Stenin, Rússlandi . 5:16,6 3. Sevi Huttunen, Finnlandi. .. 5:21,0 4. Takamizawa, Japan .........5:21,4 5. Christina Scherling, Svíþjóð . 5:25,5 6. Helena Piljaczyk, Póllandi. . 5:26,2 7. Eiwira Seroczynska, Póllandi 5:27,3 8. Jeanne Asworth, USA........5:28,5 9. Tamara Rylova, Rússlandi .. • 5:30,0 10. Yoshiko Takano, Japan......5:30,9 Klukkuskák við 10 meistaraflokks- memi AKUREYRI, 23. febrúar. — í gærkvöldi tefldi Friðrik Ólafs- son stórmeistari að hótel KEA samtíma klukkuskák við 10 meistaraflokksmenn. Úrslit urðu þau að Friðrik vann 5 skákir, tapaði þremur og gerði 2 jafn- tefli. Þeir, sem unnu Friðrik, voru Júlíus Bogason, Margeir Stein- grímsson og Steingrímur Bern- harðsson. —mag. Fjöltefli FRIÐRIK Ólafsson stórmeistarl teflir fjöl'efli við imglinga, 10— 16 ára, í K. R.-heimilinu í kvöld kl. 8,00 e. h., og í Tómstunda- heimilinu að Lindargötu 50, ann- að kvöld kl. 8,00 e. h. Þátttak- endur mæti stundvíslega og hafi með sér töfl. Fjöltefli þetta er liður í sam- starfi Æskulýðsráðs Reykjavíkur og Taflafélags Reykjavíkur, en þessir aðilar hafa starfað sam- an að skákkennslu unglinga und anfarin ár, í taflklúbbum víðsveg ar um bæínn. Þar hafa ungling- arnir notið tilsagnar þekktra skákmanna, tekið þátt í kapp- mótum og teflt fjöltefli Öllum þeim mörgu, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og kveðjusendingum á sjötugsafmæli mínu, flyt ég mínar alúðarfyllstu þakkir. Bjarni Björnsson, Vesturgötu 9 Hjartkær eiginmaður minn AXEL GRlMSSON fyrrverandi brunavörður, verður jarðsunginn 25. ferbr. frá Laugameskirkju. At- höfnin hefst með húskveðju frá heimili okkar kl. 1,15. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Marta S. H. Kolbeinsdóttir. Útför eiginkonu minnar og móður okkar, STEFANÍU INGIMUNDARDÓTTUR Þórsgötu 21 A er andaðist 19. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 26. febrúar kl. 10,30 f.h. — Þeim, sem vildu minn- ast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Jóhann Stefánsson, Margrét Jóhannsdóttir, Jón K. Jóhannsson. Hjartkær sonur minn, EIRÍKUR STEINGRÍMSSON vélstjóri, Lönguhlíð 15, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 13,30. Athöfninni verður útvtirpað. Blóm vin- samlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á skógrækt í Dverghömrum. Parísarbúðin Austurstræti 8, veitir minningargjöfum móttöku. Halla Eiríksdóttir Hjartanlegéir þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móður okkar og tengdamóður VIGDÍSAR BJÖRNSDÓTTUR frá Kjaransstöðum. Margrét Þormóðsdóttir, Haraldur Pétursson. Innilegt þakklæti færi ég öllum þeim, sem auðsýndu mér samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin- manns míns, SKÚLA S. Þ. SfVERTSENS María J.Sívertsea Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu GUÐMUNDU SIGURJÓNSDÓTTUR Suðurlandsbraut 63 Júlíus Einarsson Sigurjóna Júlíusdóttir, Þórir Björnsson, Aðalbjörg Júlíusdóttir, Vilhjálmur Angantýsson, Einar Júlíusson, Guðrún Ásgrímsdóttir, Guðbjörg Júlíusdóttir, Einar Pétursson, Sigurður Júlíusson, Ingrid Júlíusson, og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför DAGBJARTS GUÐMUNDSSONAR verkstjóra Guð blessi ykkur öll. Dagbjört Brynjólfsdóttir, synir og tengdadætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.