Morgunblaðið - 09.03.1960, Page 2
2
MORCVISBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 9. marz 1960
Ekki útsvarsskyldur
1 HÆSTARÉTTI er genginn
dómur í útsvarsmáli, en aðilar
að því eru bæjarstjórinn á Húsa-
vík, f. h. bæjarsjóðsins þar og
Sigfús Baldvinsson útgerðar-
maður é Akureyri. Þau urðu úr-
slit málsins í héraði og síðan fyrir
Hæstarétti að kröfum bæjar-
Leysingavatn
skemmdi veginn
í Fljótshverfi
Kirkjubæjarklaustri, 8. marz.
MIKIL úrkoma hefur verið hér
síðan um síðustu helgi, árnar hafa
rutt sig og flugvatn er í öllum
lækjum. Kemur það sér vel, því
víða var orðinn rafmagnsskortur
af vatnsleysi.
Þjóðvegurinn í Fljótshverfi er
ófær austan við brúna á Hverfis-
fljóti. í leysingunum bar fljótið
svo mikla jakahrönn á veginn, að
ófært er þar öllum farartækjum
eins og stendur. Hefur þetta
stundum komið fyrir áður und-
anfama vetur og er eðlilega mjög
bagalegt fyrir Fljótshverfinga,
ekki sízt nú, eftir að mjólkur-
flutningar eru hafnir úr sveit-
inni. — FréttaritarL
ífir 30 bátar
inn til Sandgerðis
SANDGERÐI, 8. marz. — Allir
bátar voru hér á sjó í gær. — í
gærkvöldi kom hinagð inn til
Sandgerðis 31 bátur, þó heima-
bátar séu ekki nema um 14 að
tölu. Hinir voru frá öðrum ver-
stöðvum.
Bátarnir höfðu samtals 204
lestir. Víðir var hæstur með
16,8 lest, Muninn næstur með 13,2
og Helga þriðja með 14,5. Enginn
bátur er á sjó í dag.
Leiðrétting á síðustu afla-
skýrslu til blaðsins. Sagt var að
Mummi hefði haft 325 lestir og
887 kg., en þetta átti að vera
Muninn. — Frébtaritari.
sjóðs var synjað. Hafði bæjar-
sjóður lagt 11.200 kr. útsvar á
Sigfús árið 1957 vegna síldarsölt-
unarstöðvar er hann rak á Húsa-
vík. Höfðu bæjaryfirvöldin sett
það skilyrði að utansveitarmenn,
er aðstöðu fá þar til síldarsölt-
unar, greiði útsvar af starsemi
sinni til jafns við aðra síldar-
saltendur.
Hið álagða útsvar 1957 neitaði
Sigfús að greiða. Bæjarstjórinn
bað þá bæjarfógetann að gera
lögtak hjá Sigfúsi Baldvinssyni
vegna hins ógreidda útsvars
hans.
í undirrétti urðu úrslit máls-
ins þau, að dómurinn taldi Sig-
fús ekki vera útsvarsskyldan á
Húsavík samkvæmt merkingu 8.
gr. útsvarslaganna.........,enda
verður eigi talið, að hér hafi
verið að ræða um heimiiisfasta
atvinnustofnun“.
í Hæstarétti segir svo í for-
sendum dómsins:
„Ekki er leitt í ljós í máli
þessu, að síldarsöltun sú, sem
stefndi rak á Húsavík sumarið
1956, hafi verið með þeim hætti,
að hann hafi orðið útsvarsskyld-
ur, hvorki samkvæmt a-lið 8. gr.
laga nr. 66/1945 né öðrum á-
kvæðum þeirra laga. Vegna þess,
að áfrýjandi hefur haft uppi
þá málsástæðu, að stefndi hafi
með samningi við hann undir-
gengizt útsvarsskyldu, skal það
tekið fram, að um heimild til
álagninga útsvara fer eftir því,
sem ákveðið er í útsvarslögum
um afstöðu skattþegna til bæj-
ar- eða sveitarfélaga, en ekki eft-
ir samningum.
Samkvæmt framansögu ber að
staðfesta hinn áfrýjaða úrskurð
að niðurstöðu til. Rétt þykir, að
áfrýjandi greiði stefnda máls-
kostnað fyrir Hæstarétti, kr.
2500.00".
Þekktir dansarar i Lido
AVERH. og Aurel hittust í París
í Medrano Circus í amerískum
sjónleik er hét „Hollywood
Rhythm Extravaganza", þar sem
Averil var aðal-dansari, og Aurel
sem solodansari.
Þau hættu þarna er samningur
þeirra var útrunninn, og fóru að
æfa saman, sýningar er voru sér-
staklega gerðar fyrir þau, og
náðu miklum vinsældum bæði í
Evrópu og Brazilíu, og víðar. —
Þau sýndu í langan tíma á beztu
stöðum í Rio de Janeiro og Sao
Paulo, en þar sýndu þau einnig í
sjónvarpi. Eftir að hafa verið í
Sao Paulo i tvo mánuði, fóru þau
Nasser í heimsókn fil
Indlands og Pakisfan
Kaíró, 8. marz (NTB — Reuter)
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Nass-
er forseti fari í opinbera heim-
sókn til Indlands og Pakistan
síðast í þessum mánuði. Er litið
í Verkfrœðingafélag-
inu eru 284 me&limir
AÐALFUNDUR Verkfræðingafé
lags íslands var haldinn 25. fe-
brúar. 1 félaginu eru 284, og eru
þar af 24 erlendis. Byggingaverk
fræðingarnir eru flestir eða 97,
rafmagnsverkfræðingcj 53, efna
verkfræðingar 51, véla og skipa-
Dagskrá Alþingis
I DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu Alþingi kl. 1,30. Þrettán
mál eru á dagskrá.
1. Fyrirspnm: Björgunartæki.
— Ein umr. 2. Síldariðnaður á
Vestfjörðum, þáltill. — Hvernig
ræða skuli. 3. Kaup seðlabankans
á víxlum iðnaðarins, þáltill. —
Hvemig ræða skuli. 4. Hagnýt-
ing síldaraflans, þáltill. —
Hvemig ræða skuli. 5. Tónlistar-
fræðsla, þáltill. — Hvemig ræða
skulL 6. Endurskoðun laga um
landsdóm, þáltill. — Hvernig
ræða skuli. 7. Virkjun Smyrla-
bjargár, þáltill. — Hvernig ræða
skuli. 8. Fjarskiptastöðvar. í ís-
lenzkum skipum, þáltill. — Frh.
einnar umr. (Atkvgr. um nefnd).
9 Lögreglumenn, þáltill. — Frh.
einnar umr. (Atkvgr. um nefnd).
10. Jarðboranir í Krýsuvík og á
Reykjanesi, þáltill. — Ein umr.
11. Þjóðháttarsaga Islendinga,
þáltill. — Fyrri umr. 12. Raí-
leiðsla á 4 bæi í Húnavatnssýslu,
þáltill. — Fyrri umr. 13. Dvalar-
heimili í heimavistarskólum,
þáltilL — Ein umr.
verkfræðingar 51, aðrir 22 og
arkitektar 10.
Á seinasta ári tók stjórnin til
meðferðar 94 mál á 20 bókuðum
íundmn, og í félaginu starfar
fjöidi nefnda að margvíslegum
verkefnum og félagið á fulltrúa
í ýmsum samtökum og opinber-
um nefndum. Félagið gefur út
timarit, sem kemur út 6 sinnum
á ár i og flytur greinar um verk-
fræðileg efni.
tJr stjóm gengu Jón A. Bjarna-
son, er verið hefur formaður und
anfarin 2 ár, Guttormur Þormar
og Páll Ölasson. 1 þeirra stað
voru kjörnir Jakób Gíslcison,
form., Hallgrímur Björnsson og
Haukur Pétursson. Aðrir í stjóm
eru Aðalsteinn Guðjóhnsen og
Bragi Ölafsson. Framkvæmda-
stjóri félagsins er Hinrik Guð-
mundsson.
BARNASPÍTALASJÓÐI Hrings
ins hafa borizt minningargjafir
um Stefán Sigurð Guðjónsson:
Frá afa hans og ömmu, Guð-
rúnu Jónsdóttur og Sigvalda Þor
kelssyni, Laufásveg 20, krónur
5.000.00.
Frá foreldrum hans, Guðrúnu
Stefánsdóttur og Guðjóni Hólm,
kr. 5.000.00.
Kvenfélagið Hringurinn þakk-
ar hjartanlega hinar rausnarlegu
gjafir.
á þetta sem merki þess að ró
sé nú að komast á í löndunum
við botn Miðjarðarhafs.
Árið 1958 hafði verið ákveðið
að Nasser færi í sams konar
heimsókn, en hann varð að marg
fresta henni vegna ástandsins
heimafyrir.
Nú er í ráði að Nasser komi
til Nýju Dehli 28. marz og dvelji
í Indlandi í 12 daga.
Blöðin í Kaíró birta öll á for-
síðum frásögn um það að Sel-
wyn Lloyd hafi á mánudag til-
kynnt neðri deild brezka þings-
ins að Dag Hammarskjöld, aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hafi persónulega tekið
að sér athugun á Súezvandamál-
inu og muni leggja á það mikla
áherzlu að finna lausn þess. —
Blöðin gera engar athugasemdir
við ummælin, en álitið er að
þeim sé fagnað af ábyrgum aðil-
um í Egyptalandi, sem Iengi hafa
verið andvígir afskiptum er-
lendra aðila í málefni Austur-
landa vegna yfirlýsingar þrí-
veldanna 1950. En í þeirri yfir-
lýsingu ábyrgjast Bandaríkin,
Bretland og Frakkland núver-
andi landamæri ísraels.
til Buenos Aires, Santiago de
Chile og fleirri Suður-Ameríku-
borga. í Montreal í Kanada, á
næturklúbbnum Belle Vue-Cas-
ino voru þau í þrjá mánuði, og
þaðan fóru þau til New York, til
að sýna í tvær vikur á nætur-
klúbbnum Bal Tabarin, en urðu
þar mjög vinsæl, og var samn-
ingur þeirra framlengdur í sex
mánuði.
Dansparið byrjar í Lido á
fimmtudaginn, og mun Averil
einnig syngja með hljómsveit-
inni ásamt söngkonunni Valerie
Shane, sem vegna sinna miklu
vinsælda mun dvelja hér lengur
en áætlað var í fyrstu.
4fli glæðist
AKRANESI, 8. marz. — Afli
Akranesbáta, sem byrjaðir eru
netjaveiðar, hefur verið misjafn
að undanförnu — þó hefur afli
heldur glæðzt síðustu dagana.
Nokkrir bátar róa með línu
enn, og beita loðnu. Hefur afli
þeirra yfirleitt verið góður.
Metsan afla í gær höfðu þessir
línubátar: Ásbjörn 11,9 L Skipa-
skagi 11.7 t. Heimaskagi 11,2 t.
og Ásmundur 10,5 t. Ólafur Magn
ússon hafði mestan afla netja-
bátanna 33 tonn
Friðrik
vann ?
SKÁK Friðriks Ólafssonar og
Inga R. Jóhannssonar á Reykja-
víkurmeistaramótinu var ekU
lokið er blaðið fór í prentun, eu
Friðrik hafði þá tvö peð yfir og
vinningslíkur.
Aðalfundur Fram
HAFNARFIRÐI. — Nýlega hélt
Landsmálafélagið Fram aðal-
fund sinn. Páll V. Daníelsson,
sem verið hefir formaður í sL
tvö ár, lét nú af störfum, en við
tók Gestur Gamalíelsson. Hefir
Páll starfað af miklum myndug-
leik að vexti og eflingu félags-
ins og eflt félagsstarfsemina
mjög. — Með Gesti í stjórninni
eru þeir Guðlaugur Þórðarson,
Stefán Sigurðsson, Jóhann Pet-
ersen og Valgarð Thoroddsen.
Að loknum aðalfundarstörfum
flutti Matthías Á. Mathiesen, al-
þm. greinargóða ræðu um efna-
hagsmálin. Síðan urðu allmikl-
ar umræður um þau mál og tóku
margir til máls. •— G. E.
Springur hún?
Framh. af bls. 1
landi til viðræðna við opinbera
aðila þar, sagði við blaðamenn,
að frétt þessi væri algjörlega út
í loftið. „Ég hefi heyrt margar
æfintýrasögur mn ævina. Ég
hugsa að þetta sé ein slík“.
Aðspurðm: hvort hann héldi að
Kínverjum væri mögulegt að
framleiða kjarnorkusprengju,
svaraði Emelyanov: „Það má
Guð vita — ég er enginn spá-
maður, aðeins vísindamaður".
Talsmaður brezka utanríkisráðu
neytisins sagði í dag að Bretar
hefðu engar upplýsingar fengið
um væntanlega sprengingu Kín-
verja. Þegar hann var spurður
hvort Bretar mundu rannsaka
máiið, svaraði hann: „Eg held
ekki. Ef hún springur mun ein-
hver heyra það“.
Dr. Raghuvira sagði efri deild
indverska þingsins að sprenging-
in yrði gjörð nálægt Urumohi í
Sinkiang héraði, sem er rétt norð
an við hið umdelda landamæra-
mærahérað Ladakh. Hann kvað
28. marz hafa verið valinn til að
styrkja aðstöðu Chou En-lai for-
sætisráðherra Kína þegar hann
kemur til Nýju Delhi í april til
viðræðna við Nehru forsætisráð-
herra um landamæradeildur hér
aðanna.
S* NA /5 hnúhr S V 50 hnúlor H Snjóíoma ’ 06/ V S/cúrír fC Þrumur 'Wiiz KutíaM HifaskJf* H Hoei L Lotqi
Aðalfundur Fé-
lags blikksmiða
AÐALFUNDUR Félags blikk-
smiða í Reykjavík var haldinn
19. febrúar s.l.
Stjórn félagsins varð sjálfkjör
in, en hana skipa: Magnús
Magnússon, formaður; Guðjón J.
Brynjólfsson, ritari og Ölafur A.
Jóhannesson, gjaldkeri.
Varastjórn skipa: Einar Finn-
bogason og Þórður Sv.einbjörns-
son.
Trúnaðarmannaráð skipa auk
stjórnar og varastjórnar: Asgeir
Mattihíasson og Bjarni Helgason.
Hlýtt hér — kalt á meginlandinu
UM hádegi í gær var hláka Faxaflóamið: Althvass austan
um allt land, 2—7 stiga hiti, og SA, stormur undan Eyja-
og náði hlýja loftið nærri alla fjöllum í nótt, skúrir.
leið til Grænlands. A Norður- Faxaflói, Breiðafj., Breiða-
löndum er kaldara. Þar er fj mið og vestfj.mið: Austan
svalt loft komið austan fyrir stinningskaldi, skýjað en víð-
járntjald. I Kaupmannahofn asf ýrkomulaust
var t.d. 4 stiga frost um ha- yestf A norður.
daginn og gekk a meí eljuœ. mið Qg NA.mig. SA® la eða
I Þyzkalandi var lika íro«t og kaldij viða léttskýjaðg
sums staðar snjokoma, einmg
í norðausturhluta Frakklands. SA-land, Austfj.mið og SA-
Veðurspáin kl. 10 í Sær- mið: SA-stœningskaldi, skýj-
kvöldi: SV-land, SV-mið og að og víða dálítil rigning.