Morgunblaðið - 09.03.1960, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 09.03.1960, Qupperneq 5
Miðvikudagur 9. marz 196ð MORGUNBLAÐ1Ð 5 Það er þó alltaf eitt gott við karl menn — að þeir eru karlmenn. ★ Rússi nokkur hafði náð í banda riskt auglýsingablað og sagði við félaga sína: — Sjáið hér, félagar, hér er heilmargt, sem við eigum eftir að finna upp. ★ H. C. Andersen, sem eins og kunnugt er var ótrúlega ímyndun arveikur á stundum, var haldinn hræðilegum ótta við að verða kviksettur. Á hverju kvöldi áður en hann fór að hátta, skrifaði1 hann eftirfarandi orð á miða. — Eg er ekki dauður, ég sýnist að- eins vera það. Þennan seðil lagði hann á teppið fyrir framan rúmið sitt, og þar hirti þjónninn hans miðann og las á hverjum morgni, henti honum síðan í ruslakörfuna. ★ Læknirinn sagði reyndar að ég ætti að halda mér frá kökum, sagði frá Hansen og andvarpaði létt. En hann kállaði mig allt.af frú Ólsen, svo hann getur ekki hafa átt við mig. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Árelíusi Níelssyni ungfrú Margrét Lúð- vígsdóttir, símastúlka á Selfossi og Þorfinnur Valdimarsson, stúd ent, sama stað. S.l. laugardag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Ragnheiður Stefánsdóttir frá Fagraskógi, klin ikdama, Fornhaga 24 og stud. polyt. Haraldur Sveinbjömsson frá Ófeigsfirði, Ströndum, Gamla Gaiði. Jt — Við vorum að tala um mat- argerð móður minnar, en ekki meltingartruflanir föður míns. MENN 06 = MALEFN! Sem kunnugt er var séra Þórir Stephensen kjörinn prestur á Sauð- árkróki um s. 1. helgi. Séra Þórir er fæddur í Reykjavík 1. ágúst 1931. Foreldrar hans eru Þóra Daníelsdóttir og Ólafur Stephensen, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þórir varð stúdent frá Menntaskólanum í Rvík vorið 1951 og lauk guð- fræðiprófi frr. Háskóla islands í janúar 1954 eftir aðeins tveggja og hálfs árs nám. Hann var settur sóknarprestur í Staðarhólsþingum 19. júní 1954 og vígður árið eftir. Þórir átti sæti í fræðsluráði Dalasýslu og skólaráði Staðarfells- skóla frá 1955. Á stúdentsárum sínum var Þórir formaður Bræðralags kristilegs fé- lags stúdenta. Hann er kvæntur Dagbjörtu Gunnlaugsdóttur frá Sökku í Svarfaðardal. ÍFYRIR NOKKRU varð ægi- legt námuslys í kolanámum í Zwickau í Austur-Þýzkalandi. Yfir 100 manns fórust, þegar sprenging varð í námunum og eldur logaði næstum 1000 m niðri í jörðinni. Mynd þessa tók Jón Gauti, rafmagnsfr., suður við Zwick- au-námu fyrir um 30 árum. Var hann þá á ferð þar með dönskum stúdentum, sem fengu að kynna sér þessar frægu námur. Þegar myndin var tekin fyrir þrem áratugum voru námugöngin komin niður í 600 metra dýpi en hafa síðan haldið áfram að dýpka. — Zwickau-námumar voru löng- um alræmdar fyrir slæma að- búð verkamannanna, sem unnu niðri í miklu dýpi. Mun sú aðbúð lítt hafa batnað og eru námuvinnslutækin úrelt og gömul. H.f. Eimskipafélag ísiands: — Detti foss fór frá Amsterdam í gær til Töns berg. Fjallfoss er á leið til Rvíkur. Goðafoss fer frá Akureyri í kvöld til Raufarhafnar. Gullfoss er á leið til Leith og Rvíkur. Lagarfoss er á leið tii Rvíkur frá New York. Reykjafoss fer frá Rotterdam 10. þ.m. til Antwerp en. Selfoss fór frá Flateyri 7. þ.m. tU Vestmannaeyja og þaðan til Amster- dam. Tröllafoss fer frá Rvik í kvöld U1 New York. Tungufoss er i Rvík. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fór frá Rvík í gær vestur um land 1 hringferð. Herðubreið er á Austfjörð- um á norðurleið. Skjaldbreið fer frá Reykjavík á morgun vestur um land til Akureyrar. Þyrill er á leið frá Vopnafirði tU Fredrikstad. Herjólfur er væntanlegur til Rvíkur í dag frá Vestmannaeyjum. Eimskipafélag Reykjavikur hf.: — Katla er á leið til Vestmannaeyja. Askja er í Frederikshavn. Hafskip hf.: Laxá er i Gautaborg. H.f. Jöklar: — Drangajökull er á leið tU Islands. Langjökull lestar á Breiða firði. Vatnajökull er í Reykjavík. Skipadeild SÍS: — Hvassafell kemur til Húsavikur i dag. Arnarfell er á leið til Arósa. Jökulfell er á Akureyri. Dís- arfell er á leið til Hornafjarðar. Litla- fell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er á Húsavík. Hamrafell er á leið tU Aruba. ☆ Flugfélag Islands hf.:— Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar kl. 8:30 í dag. Væntanleg aftur til Rvíkur kl. 16:10 á morgun. Innanlandsflug: I dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur og Vestmannaeyja. A morgun: til Akur eyrar, Egilsstaða, Kóoaskers, Vest- mannaeyja, Þórshafnar. Loftleiðir hf.: — Edda er væntanleg kl. 7,15 frá New York. Fer til Stavang- er, Khafnar og Hamborgar kl 8:45. Leifur Eiríksson er væntanl. kl. 22:30 frá London og Glasgow. Fer til New York kl. 24:00. Verkamenn óskast í byggingavinnu. Upplýsingar gefur Þórarinn Þórarinsson, sími 1-55-77. Þýzkur ungbarnafatnaður Drengjaföt Kjólar Sokkabuxuir Peysur Ungbarna-nærföt Tvíofnar bleyjur Laugavegi 70 Sími 14625 Ú tsa I a KVENSLOPPAR. Verð frá kr. 117.— KVENPEYSUR. Verð kr. 129.—. BARNAPEYSUR með löngum og stutt- um ermuni. — Verð frá kr. 20.—. SOKKABUXUR. Verð kr. 65.—. (Smásala) — Laugavegi 81 Atvinna Dugleg stúlka getur fengið atvinnu við iðnaðarstörf Upplýsingar í verksmiðjunni í dag kl. 10—12 og 3—5. Nærfataefna- og prjönlesverksmiðjan Bræðraborgarstíg 7 Seelgœtis- og tóhaksverzl un til Ieigu í fullum rekstri á góðum stað. Þeir sem hefðu áhuga, leggi tilb. inn á afgr. Mbl. merkt: „Verzlun—9623“. A gamla verðinu Báruplötur og þakhellur úr aspest-sement. illarz Trading & Co. Klapparstíg 20. Sími 17373 FONN SAKJUM-QFWUM •A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.