Morgunblaðið - 09.03.1960, Qupperneq 19
Miðvilcudagur 9. marz 1960
MORGTJTSBLAÐ1Ð
19
Guðni Þórðarson
skákmeistari
Akraness
AKRANESI, 3. marz: — Skák-
þingi Akraness er nú lokið. I
1. flokki voru 10 þátttakendur.
Skákmeistari Akraness 1960 varð
Guðni Þórðarson. Hlaut hann 8
vinninga og tapaði engri skák.
Annar til þriðji urðu Hjálmar
Þorsteinsson og Guðmundur
Ejarnason með 6Ms vinning hvor.
í 2. fl. voru 12 þátttakendur.
Efstir urðu Björn Lárusson og
Guðjón Guðmundsson með 9%
vinning. 3—4 urðu Skarphéðinn
Árnason og Sigvaldi Loftsson,
með 9 vinninga hvor.
Þeir flytjast upp í 1. fl. þar eð
þeir hafa hlotið 80% vinninga.
I unglingaflokki voru 12 þátt-
tekendur. Þar sigraði Guðlaug-
ur Þórðason frá Vegamótum, 11
ára. Vann hann alla sína keppi-
nauta og hlaut 11 vinninga.
•— Oddur
Skíðaskálinn
í Seljalandsdal
ISAFJÖRÐUR, 3. marz. —
Ákveðið er að skíðaskólinn á
Seljalandsdal taki til starfa nú
um helgina. Er nú kominn mikill
og góður Snjór á dalinn og skil-
yrði öll orðin hin ákjósanlegustu.
Skólastjóri hefir verið ráðinn
hinn kunni skíðakappi Haukur
O. Sigurðsson. Er gert ráð fyrir
að skólinn starfi í fjórar vikur
og hefir skólagjaldið verið ákveð
ið kr. 500 á viku, en kr. 100 á
dag fyrir þá, sem dvelja skemmri
tíma.
Virðist ætla að verða góð að-
sókn að skólanum. Sérstaklega
eru margir, sem hafa í hyggju að
dvelja á skólanum um tíma í
vetrarfríi sínu. Er það sérstak-
lega fó.'k, sem hefir miklar inni-
verur, enda fátt heilsusamlegra
en vera á skíðum upp á fjöllum
þegar fer að vora.
Hér hefir verið veðurblíða tvo
síðustu daga. Hefir skólafólkið
sérstaklega notað sér það til að
skreppa á skíði upp í Stórurðina.
Er nú kominn það mikill
snjór, að hægt er að vera á skíð-
um í Stórurðinni.
A sunnudaginn fer fram hin
árlega firmakeppni skíðaráðs Isa
fjarðar í svigi. Er gert ráð fyrir
að um 50 keppendur taki þátt í
keppninni. — J.
Nýr kaupfélags-
stjóri
FINNBOGASTÖÐUM, 4. marz —
Loksins er búið að ráða kaup-
félagsstjóra við Kaupfélag
Strandamanna, en staðan hefur
verið auglýst laus öðru hverju
síðan í vor. Þrír menn sóttu um
stöðuna síðastliðið vor, en stjórn
Kaupfélagsins líkaði enginn um-
sækjanda. Fyrir skömmu bað
stjórnm Gunnstein Gislason,
kennara hér í hreppnum, að taka
stöðuna, og varð hann við þeim
tilmælum.
Gunnsteinn hefur verið kenn-
ari við barnaskóla Árneshrepps
síðastliðin 5 ár og er hans mjög
saknað úr því starfi, og þá ekki
síður hans ágætu konu, Margrét-
ar Jónsdóttur, sem verið hefur
ráðskona skólans og eldað góðan,
mikinn og ódýran mat fyrir börn
in.
Fráfarandi kaupfélagsstjóri,
Sveinn Sigmundsson, tekur við
kaupfélagsstjórastarfinu á Skaga
strönd, af Birni Pálssyni, sem nú
'situr á alþingi. Flytur Sveinn
með fjölskyldu sína héðan um
mánaðarmótin maí og júní.
— Regína.
Allt ódýrar vörur
Sirz, léreft, tvisttau, poplín, strigaefni, ullar- og
gerfiullarefni, silki, nælon og perlonefni, rayonefni,
náttfataefni, fóður, fiúnnel, flauel, lakaléreft, dún-
heit léreft, damask, giuggatjaldaefni. —
Einnig blússur, síðbuxur, sokkar, náttföt, undirföt,
ullargarn, baðmottusett.
Verzlunin Osk
Laugavegi 11
Starfsmannafélag Reykjavíkurbœjai
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í kvöld kl. 20,30
í Tjarnarcafé (niðri).
Dagskrá samkvæmt 11. gr. félagslaga
Félagsmenn sækið fundinn réttstundis.
Stjórnin
Skákþing Islands 1960
fer fram um páskana og er áætlað að það hefjist 14.
apríl (skírdag) en Ijúki 23. apríl. Teflt verður í
meistaraflokki og landsliði, eftir Monrad-kerfi, ef
þátttaka verður mikil. Tilkynningar um þátttöku
skulu hafa borizt stjórn Skáksambands Islands fyrir
1. apríl n.k.
AÐALFUNDUR SKAKSAMBANDSINS verður hald-
inn meðan á skákþinginu stendur, og verður fundar-
tími nánar auglýstur síðar.
Stjórn Skáksambands Islands
Opinn fund
(útbreiðslufund) halda góðtemplarastúk-
urnar Einingin, Minerva og Sóley í G.T.-
húsinu í kvöld (miðvikudag 9. marz) og
hefst hann kl. 8,30.
Ræðumenn:
Páll Jónsson, verzlunarmaður,
Hendrik Ottósson fréttamaður og
Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri.
Til skemmtunar verður:
Leikþáttur, upplestur, og svo syngur
Guðmundur Guðjónsson, óperusöngvari
við undirleik Skúla Halldórssonair tón-
skálds..
Á eftir skemmtiatriðum, fara fram frjáls-
ar umræður um áfengis og bindindismál,
og verður utan-reglu-mönnum gefin kost-
ur á að koma þar fram með sín sjónarmið.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur meðan
húsrúm leyfir, og er þeim, sem hafa hug
á að kynnast betur baráttu Góðtemplara-
reglunnar gegn áfengisbölinu, ráðlagt að
koma á þennan fund.
Undirbúningsnefndin
Þórscafé
II. Danskynning
Dansleikur
í kvold kL 9
sextettinn
Söngvarar:
ELLÝ og ÖÐINN
Rock — Jitterbug
Cha — Cha
kl. 9,30—11
Hópur dansara kennir
GULLI og HEIÐA
sýna
Allir í Þórscafé
Dansstjórl :
HELGI EYSTEINS
Gönilu dansarnir
í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Árna ísleifssonar
Söngvari Sigrún Ragnarsd.
Aðgöngumiðasala hefst kl. 8
Sími 17985
Breiðfirðingabúð
Vetrargarðurinn
Dansleikur í kvöld kl. 9
Stefán Jónsson
og Plúdó-kvinntettinn skemmta.