Morgunblaðið - 13.03.1960, Side 1
24 siður
Takast samn-
ingar í
Vestmannaeyjum, 12. marz.
SAMNINGAFUNDUR hófst
hér á föstudagskvöldið kl.
8,30. Á þeim fundi voru lagð-
ar fram kröfur háseta og vél-
stjóra á bátaflota Vestmanna-
eyinga.
Rökstuffningur þeirra krafna
Eilíft sumar
LONDON, 12. marz. Reuter
Tassfréttastofan vitnaði í
dag í grein, sem vísinda-
maðurinn Valentin Cheren-
kov ritaði í vísindablaðið
„Izobretatel“, þar sem hann
heldur því fram, að „ryk-
hringur“ umhverfis jörðu,
gerður af manna höndum,
gæti gert það að verkum,
að eilíft sumar ríkti á norð-
ur hveli jarðar.
Vísindamaðurinn sagði,
að eldflaugar, sem færu á
braut um jörðu gætu dreift
470 þúsund lestum af fin-
gerðu „ryki“ og myndað
þannig sams konar hring
um jörðina eins og er um-
hverfis Satúrnus. — Telur
hann, að með þessu móti
mætti safna ljósi og orku
til þess að ylja og lýsa hnött
okkar á hinum norðlægu
breiddargráðum ár og síð.
Eyjum?
var sú, að sjómenn á neta-
bátum hér í Eyjum hefðu lak-
ari kjör en sjómenn á neta-
bátum í verstöðvum við Faxa-
flóa. Kom þegar fram ágrein-
ingur milli samningnefndar
sjómanna og útgerðarmanna
um, live sá munur væri mikill.
Um miðnætti urðu samninga-
nefndirnar sammála um að
Ieggja fram málamiðlunartillögu
sem fela í sér samræmingu á kjör
um Eyjasjómanna og Faxaflóa-
sjómanna á netavertíð bátanna.
Útvegsmenn munu halda fund
um þessa tillögu síðdegis í dag
og standa vonir til þess að úr
því fáist skorið fyrir miðnætti
í nótt, hvort á miðlunartillöguna
verður fallizt eða ekki. Verkfall
hefur verið boðað frá og með
miðnætti á sunnudagskvöld.
Bretar
unum á
London, 12. marz. (NTB-AFP)
ALLIR brezkir togarar verða
farnir af fiskimiðunum við
strendur íslands fyrir mið-
nætti hinn 14. marz (mánu-
Bandaríkjamenn stolt-
ir af Frumherja V.
Washington og Jodréll Bank,
Englandi, 12. marz. (Reuter)
BANDARÍSKIR vísinda-
menn, sem eru í sjöunda
himni yfir hinu velheppnaða
„geimskoti“, er „sólarplánet-
unni“ Frumherja V var skot-
ið á loft í gær, skýrðu frá því
í morgun, að allt virtist ganga
samkvæmt áætlun um ferðir
gervitunglsins. — Þetta er af
flestum talið merkasta afrek
Bandaríkjamanna í geimrann
sóknum til þessa.
□--------------------------□
Sunnudagur 13. marz:
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Sr. Óskar J. Þorláksson: Trú
siðgæði og MRA-hreyfingin.
Svarti kardínálinn.
— €: Úr verinu, eftir Einar Sigurðss.
— 8: Karamanlís og asninn, eftir
Sigurð A. Magnússon.
— 10: Sitt hvað um erlenda sendi-
menn í Reykjavík.
— 12: Ritstjórnargreinar: Vinnufrið-
ur — Moldin.
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 17: Rætt við Bárð G. Tómasson,
skipaverkfræðing 75 ára.
— 22: Fólk I fréttunum.
□--------------------------D
• Hljóðmerkin greinileg
Vísindamenn í Jodrell Bank-
rannsóknarstöðinni munu áfram
fylgjast með ferðum Frumherja
V. Hljóðmerki hans eru mjög
greinileg, og búast þeir við að
heyra þau í 4—-5 mánuði, eða þar
til hann er kominn allt að 80
millj. km. frá jörðu — og ná síð-
an sambandi við hann á ný, er
hann kemur aftur í svipaða fjar-
lægð frá jörðu — en það verður
ekki fyrr en 1963.
• Kominn í 400 þús. km.
fjarlægð.
Enn sem komið er he'fir aðeins
verið notaður 5 vatta sendir, en
þegar gervihnötturinn er kom-
inn nokkrar milljónir km. á leið
sinni frá jörðu, verður hinn
sterki Í50 vatta sendir hans „opn
aður“ með merkjasendingu frá
Jodrell Bank, en þaðan verður
útsendingunum stjórnað. — Þeg-
ar gervihnötturinn kom upp yfir
sjóndeildarhringinn í morgun
var hann kominn 240 þús. km.
frá jörðu, og vísindamennirnir í
Jodrell Bank töldu, að þegar
hann „gengi undir“ í kvöld, hefði
hann farið um 400 bús km. vega-
lengd.
hverfa
morgun
dag), að því er tilkynnt var
í London í dag.
— 'k —
Þá gerist það í fyrsta sinn sið-
an fyrstu brezku gufutogaramir
voru smíðaðir fyrir 80 árum, að
ekki verður ein einasta brezk
fleyta á þessum fengsælu fiski-
miðum. — Jafnvel á stríðsárun-
um, bæði í fyrri og síðari heims-
styrjöldinni, héldu brezkir tog-
arar áfram að fiska á þessum
slóðum.
af mið-
— til þess að stuðla að betra
„andrúmslofti" á hafréttarráð-
stefnunni í Genf, sem hefst hinn
17. þ. m. — Búist er við, að ráð-
stefnan standi um það bil mánuð.
Síðastliðinn hálfan mánuð
hafa brezku togararnir, sem eru
yfirleitt frá útgerðarbæjunum
Fleetwood, Grimsby og Hull,
smám saman fært sig frá íslandi
til miðanna undan Grænlandi og
til Bjarnareyjar og Noregs. —
Vanalega er hvað bezti veiðitím-
inn á íslandsmiðum einmitt um
þessar mundir.
Blaðinu hefir borizt þessi
skemmtilega mynd frá
Vestmannaeyjum. — Sést
er verið er að koma flök-
unarvél inn í hraðfrystihús
Vestmannaeyja. Er þetta
fjórða vélin þessarar teg-
undar, sem komið er fyrir
í frystihúsinu. — Vélin var
dregin upp brúna, sem sést
á myndinni, en hún var
smíðuð á einni nóttu, vegna
þess að kranar bæjarins
voru bilaðir. Vestmannaey-
ingar deyja greinilega ekki
ráðalausir. Viðstaddir köll-
uðu mannvirki þetta til
gamans „Brúna yfir Kwai“-
fljótið.
- ★ ~
Brezka togaraeigendasamband
ið ákvað fyrir nokkru, að togar-
arnir skyldu hverfa af miðunum
Viðrœður þjóðaleiðtoga
Vill lialda stjórn-
málasambaíidi
CONAKRY, Gíneu, 12. marz. —
(NTB/AFP) — Sekou Toure,
forseti Gíneu sagði í dag í sam-
tali við fréttamann frá AFP-
fréttastofunni, að Gínea vildi
halda stjórnmálasambandi sínu
við Vestur-Þýzkaland. Það yrði
báðum þjóðum í óhag, að því
væri slitið.
PARlS og Bonn, 12. marz: (Reut-
er) — Macmillan, forsætisráð-
herra Breta, kom ásamt konu
sinni til'Parísar í dag, og verða
þau gestir de Gaulle Frakklands-
forseta um helgina — halda heim
annað kvöld. — Hér er ekki um
opinbera heimsókn að ræða, en
talið er, að þeir de Gaulle og
Macmillan muni m. a. ræða við-
horfin í sambandi við heimsókn
Krúsjeffs, forsætisráðherra Sovét
ríkjanna til Frakklands. Hann
kemur til Parísar á þriðjudag.
— ★ —
Dr. Adenauer, kanslari Vestur-
Þýzkalands, hélt til Washington
í dag, en hann mun dveljast í
Bandaríkjunum um 10 daga skeið
og ræða við Eisenhower forseta,
varaforsetann, Nixon, og Herter
utanríkisráðherra. — Frá Banda-
ríkjunum mun Adenauer halda
til Japans, þar sem hann dvelst
nokkra daga. — Talið er að „her-
stöðvar“ Þjóðverja á Spáni verði
m. a. til umræðu í Washington.
Fleiri fórnarlömb landskjálftans
- Enrr einn finnst
Rabat, Marokkó, 12. marz.
— (Reuter) —
HINGAÐ bárust fréttir í morgun
um það, að enn einn maður hefði
verið dreginn lifandi úr rústum
Agadir. Þetta var bifvélavirki —
og hann var heppnari en flestir
hinna, sem grafizt hafa lifandi,
því að þar sem hann lá voru
matarbirgðir nokkrar í seilingar-
lengd frá honum, svo að hann
var tiltölulega vel á sig kominn,
lifandi i Agadir
er honum var bjargað. — Síð-
ustu fimm dagana hafa fundizt
16 manns lifandi í rústunum, en
landskjálftinn mikli varð hinn
1. þ. m.
—®—
Nú hafa borizt fregnir af því
að landskjálftinn hafi einnig
valdið miklum skaða og mann-
tjóni í fjórum afskekktum þorp-
um inni í landi, alllangt frá Aga-
dir. í þorpum þessum munu sam-
tals hafa farizt 279 manns og 145
slasazt. Verst lék landskjálftinn
þorpið Ait Ourir, um 25 km norð
austur af Agadir. Þar fórst 221,
og 45 hafa fundizt slasaðir. í hin-
um þrem þorpunum, Ait Accoub,
Ano D’Feg og Teddert, fórust
samtals 58 manns, en 100 hlutu
meiri og minni meiðsl.
—®—
Hafa nú verið gerðar ráðstaf-
anir til þess að senda hinu nauð-
stadda fólki nauðsynlega hjálp.
•v