Morgunblaðið - 13.03.1960, Page 5
Sunnudagur 13. mar? 1960
Monr.Tnvnrjnifþ
5
Þessi mynd er af einu málverka þeirra, sem Veturliði Gunnarsson sýnir á vegunj listkynningar
Morgunblaðsins um þessar mundir. Nefnist hún „Haustmorgun“. — Hann hefur þessa dagana
einnig sýningu á verkum sínum í listverzlun Guðmundar Árnasonar að Túsgötu 1.
MFNN 06
= mŒFNl =
Cm þessar mundir er 10
ára afmæli sinfóníu-
hljómsveitarinnar og á
þeim árum hafa 22 menn
stjórnað tónleikum
hljómsveitarinnar.
Flestum tónleikum hef
ur Róbert A. Ottósson
stjórnað og jafnframt
flutt flest verk. En sá
hljómsveitarstjóri, sem
oftast hefur stjórnað op-
inberum tónlistarflutn-
ingi hljómsveitarinnar
er Victor Urbancic, sem
látinn er fyrir nokkrum
ánum, einn allra stjórn
enda sveitarinnar.
Aðrir innlendir menn,
er stjórnað haf* á tón-
Ieikum eru: Dr. Páll fs-
ólfsson, Jóhann Tryggva
son, Páll Pampichler, AI
bert Klahn og Ragnar
Björnsson. Auk þess
hafa Jón Leifs og Dr.
Hallgrímur Helgason
stjórnað við sérstök tæki
færi.
Af útlendum stjórn-
cndum hefur Olav Kiel-
land verið hér lengst og
oftast, en hann var fast
ur stjórnandi hljómsveit
arinnar um þriggja ára
skeið.
Aðrir erlendir stjórn-
endur, sem komið hafa
oftar en einu sinni eru:
Hermann Hildebrandt,
Dr. Thor Johnson, Wil-
helm Schleuning, Dr.
Vaclav Smetacek og
Jussi Jalas.
Þrír erlendir stjórn-
endur hafa komið til að
stjórna óperuflutningi
hjá hljómsveitinni: War
wick Braithwaite, Wil-
helm Brúckner Rúgge-
berg og Rino Castagníno.
Hafa þeir einnig allir
stjórnað sinfóníutónleik-
um.
Aðrir erlendir stjórn-
endur hafa verið: Aram
Katchaturian, Eaigcne
Goosens, Hans Zanotelli
og Hans Antolitsch.
— Jæja Hansen, hvaða afsök-
un hafið þér nú fyrir því að
koma of seint?
Karsten nokkur kom á veitinga
hús og fékk sér kaffi.
— Segið mér, sagði Karsten við
veitingaþjóninn, hvar kastið þið
kaffikorginum, þegar þið lagið
kaffi?
f sorpfötuna auðvitað, svaraði
þjóninn, hvers vegna spyrjið þér?
— Já, mér datt í hug að þið
hentuð honum í brunninn, mér
fannst hálfgert kaffibragð af
vatninu, sem þér færðuð mér.
Föstudaginn 4. marz voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Dag-
ný Þóra Ellingssen og stud. oecon
Garðar V. Sigurgeirsson. Heimili
ungu hjónanna er að Hjarðar-
haga 40.
(Ljósm.: Stúdíó).
Laugardaginn 5. marz voru gef
in saman í hjónaband af séra
Árelíusi Níelssyni, ungfrú Auður
Anna Konráðsdóttir, Langholts-
vegi 128 og Guðjón Mar Jónsson,
Langholtsvegi 12. Heimili þeirra
verður að Goðheimum 11.
Fimmtugar verða mánudag-
inn 14. marz tvíburasysturnar
Olga Laufey Þorbjörnsdóttir
Suðurgötu 10, Hafnarfirði og
Dagmar Hulda Þorbjörnsdóttir
Laufási, Vogum.
Læknar fjarveiandi
Snorri P. Snorrason, fjarv. 3—4 món-
uði frá 22. febr. — Staðgengill: Jón
Þorsteinsson.
Kristján Þorvarðarson læknir verður
fjarverandi til 17. marz. Staðg.: Eggert
Steinþórsson.
Sigurður S. Magnússon læknir verð-
ur fjarverandi frá 14. marz um óákv.
tíma. Staðg.: Tryggvi porsteinsson.
V esturbæ j arapóteki.
• Gengið •
Sölugengi
1 Sterlingspund ........ kr. 106.84
1 Bandaríkjadollar ...... — 38.10
1 Kanadadollar .......... — 40.07
100 Danskar krónur ........ — 551.95
100 Norskar krónur ........ — 533.25
100 Sænskar krónur ........ — 735.75
100 Finnsk mörk ........... — 11.93
100 Franskir Frankar ...... — 776.30
100 Belgiskir frankar ..... — 76.40
100 Svissneskir frankar ... — 878,65
100 Gyllini ............... — 1010.40
100 Tékkneskar krónur ..... — 528.45
H.f. Eimskipafélag íslands: Dettifoss
kom til Lysekil 12. marz. Fjallfoss er
í Rvík. Goðafoss er í Rvík. Gullfoss
er væntanlegur til Rvíkur í kvöld.
Lagarfoss er á leið til Rvíkur. Reykja-
foss er á leið til Hull frá Amsterdam.
Selfoss er á leið til Amsterdam. Trölla
foss er á leið til New York. Tungu-
foss er í Keflavík.
Hafskip hf.: Laxá fór 11. þ.m. frá
Gautaborg áleiðis til Vestmannaeyja.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: —
Katla er á leið til Keflavíkur. Askja
er í Fredrikshavn.
Hf. Jöklar: — Drangajökull er á leið
til landsins. Langjökull er á leið til
Ventspils. Vatnajökull er í Rvík.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er á
Akureyri. Arnarfell er í Arósum. Jök-
ulfell er í Vestmannaeyjum. Dísarfell
er væntanl. til Hornafjarðar á morg-
un. Litlafeli er í olíuflutningum i
Faxaflóa. Helgafell er í Þorlákshöfn.
Hamrafell er á leið til Aruba.
Loftleiðir hf.: — Hekla er væntan-
leg kl. 7:15 frá New York. Fer til Oslo,
Gautaborgar, Khafnar og Hamborgar
kl. 8:45. Leifur Eiríksson er væntanleg
ur kl. 22:30 frá Amsterdam og Glas-
gow. Fer til New York kl. 24:00.
Hleypidómar eru börn fáfræð-
innar. (William Hazlitt)
Sá, sem ekki vill rökræða, er
kreddumaður — sá, sem ekki get-
ur, er heimskingi og sá sem ekki
þorir, er þræll.
(Sir William Drummond)
Guð sér okkur fyrir skyld-
mennum, en við getum, guði sé
lof, valið okkur vini.
'Addison Mizner)
Gummígólfdúkur
í v msum litum.
ff. Benediktsson ht,
— Sími 11228 —
Jarðýta
Til sölu er International jarðýta TD-14. Upplýsingar
í síma 2-26-76.
Piltur eða stúlka
óskast nú þegar til afgreiðslustarfa.
ÍUUbUZUí,
Langholtsveg 49 — (Uppl. í búðinni á mánud.)
Keflavík — Atvinna
Rafveita Keflavíkur vill ráða mann til álesturs og
innheimtustarfa. Laun samkvæmt X launaflokki.
Umsóknir sendist til skrifstofu Rafveitunnar fyrir
20. þ.m.
RAFVEITUSTJÓRI
Afgreiðslustúlka
Dugleg afgreiðslustúlka óskast til afgreiðslustarfa
í kjötverzlun okkar að Grettisgötu.
Nápari upplýsingar veitast á skrifstofu okkar á
Skúlagötu 20.
Sláturfélag Suðurlands
Stulkur og unglingar
óskast til verksmiðjuvinnu
nú þegatr.
hiampiðjan hf.
Stakkholti 4 — Sími 24490.
Skrifstofuhusnæði
Höfum til leigu skrifstofuhúsnæði og geymslupláss
í húsi voru við Ingólfstræti, samtals um 700 ferm.
Sænsk ísl.-frystihúsið h.f.
Vantar vana
flatningsmenn
til Grindavíkur.
Upplýsingar í síma 34580.