Morgunblaðið - 13.03.1960, Side 6
6
MORGVNBL4Ð1Ð
Sunnudagur 13. marz 1960
........ báturinn er búinn öllum nýjustu og fullkomnustu
siglingatækjum", segir í hverri fréttinni á fætur annarri af
nýjum bátum — og hér hafið þiff þau. Lengst til vinstri er
sjálfvirkt fiskleitartæki, Asdic, þá er sjálfritandi dýptarmælir,
simrad og loks vélstjórnartæki.
Togararnir
Fyrri hluta vikunnar gerði suð-
austanrok og frátök hjá togurun-
um, en síðari~hluta vikunnar hef-
ur verið gott togveður.
Skipin haldá sig aðallega á
svæðinu frá Selvogsbanka að
Víkurál, flest eru út af Breiða-
firði og Víkurál.
Aflinn hefur verið glompóttur,
sum skipin fengið góðan afla, en
aðrir lítið. Sem dæmi upp á góðan
afla má geta þess, að Fylkir og
Egill Skallagrímsson sigldu út í
vikunni áleiðis til Englands með
um og yfir 200 lestir af fiski.
Hér við land er nú þó nokkuð af
þýzkum togurum, og halda þeir
sig aðallega fyrir sunnan land.
Einnig er hér slangur af Englend-
ingum, og eru flestir djúpt og
grunnt út af Jökli.
Fisklandanir s.l. viku:
Jón Þorláksson .. 1431. 11 dag.
Neptunus .......... 165 t. 12 dag.
Pétur Halldórsson 143 t. 13 dag.
Hvalfell .......... 611. 8 dag.
Marz .............. 190 t.
saltfiskur 17 t. 13 dag.
Ingólfur Arnarson 145 t. 12 dag.
Fisksölair erlendis:
Geir............. 1641. £ 10.325
Keilir .......... 1631. £ 7.500
Reykjavík
Róið var alla daga vikunnar
nema þriðjudaginn, þá var land-
lega, suðaustanstórviðri. Veður-
reyndin hefur verið suðaustan og
austanátt alla vikuna.
Allir bátar eru nú búnir að
taka net, en afli hefur verið
mjög misjafn, en þó reytingur hjá
öllum og ágætt hjá sumum. T.d.
fékk Víkingur einn daginn 30
lestir 2ja nátta. Afli var yfirleitt
góður upp úr miðri vikunni, al-
gengt 15—25 lestir.
Útilegubátar hafa komið inn 4
í vikunni með góðan afla. Hlut-
skarpastur þeirra var Guðmund-
ur Þórðarson með 95 lestir, Rifs-
nes með 70 lestir og Helga og
Hafþór með 50 lestir. Afla sinn
fengu bátarnir undan Jökli.
• Reknir út í
mc»rgunkuldann
Þ. F. E. segir á þessa leið í
bréfi:
— Hvers vegna er verið að
þessu brauki með klukkuna?
spyrja menn hver annan þeg-
ar þeir eru úti að vinna, ýmist
niðri við höfn, í götum, uppi
á vinnupöllum eða þökum.
Menn eru búnir að þreyja af
skammdegið og fagna hækk-
andi sól, en svo kemur vit-
lausa klukkan og rekur þá öf-
uga út í morgunkuldann.
Heyrt hef ég, að þetta sé
gert fyrir skrifstofufólk, en
áreiðanlega ekki allt, því
heyrt hef ég sumt af því láta
óánægju í ljós. Og ekki þarf
það að vera úti í kulda.
Meiri hluta sumarsins er
bjart allan sólarhringinn, og
hvað er þá unnið við þetta?
Og nær er mér að halda, að
þeir sem stunda næturrölt láti
sig klukkuna litlu varða.
Væri nú ekki hægt að kippa
þessu í lag svo við gætum
verið réttir menn með rétta
klukku árið 1960 og framveg-
is.
— Þ. F. E.
Keflavík
Línubátar reru alla vikuna, en
netabátarnir voru í landi á þriðju
daginn.
Reytingsafli hefur verið á línu
og fór vaxandi, eftir því sem á
vikuna leið, og var ágætur í viku
lokin, almennt frá 10 og upp í 15
lestir hjá bát. Beitt var loðnu alla
vikuna.
í netin hefur verið misjafnt.
Fimmtudagurinn var bezti afla-
dagurinn, þá komst einn bátur
upp í 28 lestir, og annar var með
24 lestir, en svo var aflinn líka
niður í 5 lestir, en almennt var
hann þennan dag í netin 10—15
lestir.
Línubátar eru einn af öðrum
að skipta yfir á netin þrátt fyr-
ir sæmilega góðan afla á línuna,
þó munu nokkrir bátar róa áfram
með línu eftir helgina og sjá bet-
ur, hverju fram vindur með neta-
fiskinn.
Akranes
Alla daga vikunnar var róið
nema þriðjudag.
Afli hefur verið mjög misjafn
og allgóður hjá þeim, sem enn
eru með línu,'allt upp í 16 lestir,
Ásbjörn.
Hjá netabátunum hefur verið
mjög misjafn afli, komst hæst í
vikunni upp í 34 lestir hjá tveim-
ur bátum, Sigrúnu og Ólafi
Magnússyni.
Aflahæstu bátarnir frá áramót-
um:
Sigrún ............. 350 lestir
Sv. Guðmundsson .... 312 —
Böðvar.............. 295 —
Sigurvon ...........291 —
Ólafur Magnússon .... 263 —
Vestmannaeyjar
Alla vikuna var hvöss austan-
átt og algjör landlega á þriðju-
daginn og fáir á sjó á miðviku-
daginn, aðra daga var almennt
róið, en þó voru aldrei allir á sjó.
Afli hefur verið mjög lítill í
netin, enn sem komið er, allt nið-
ur í 1 lest. Bátarnir eru nú að
færa sig frá sandinum dýpra.
Hafa þeir þar orðið lítils háttar
• Lélegur
barnaleikvöllur
Móðir skrifar:
Kæri Velvakandi!
Mig íangar til að biðja þig
að koma á framfæri miklu
vandamáli, sem við mæðurnar
í mínu hverfi eigum við að
stríða. Ég bý við Miðtún og
við þá götu á að heita að sé
barnaleikvöllur, sem er ætlað
ur öllum Túnunum og Höfða-
borgarhverfinu.
Því miður lítur helzt út fyr-
ir, að þeir, sem hafa umsjón
með leikvöllum bæjarins, hafi
gleymt tilveru þessa leikvall-
ar, og virðist hann vera hafð-
ur útundan. Girðingu hefur
enn ekki verið komið upp í
kringum völlinn, en meðfram
honum liggur mikil umferðar-
gata, Nóatún. Þá eru leiktæki
vallarins í ólestri.
Af þessu leiðir, að við, mæð
urnar hér í hverfinu, höfum
hvergi friðland fyrir börnin
okkar, en lifum í stöðugum
ótta um að þau kunni að fara
sér að voða, er þau eru að leik
á þessum leikvelli. Vil ég
leyfa mér að beina því til
bæjaryfirvaldanna, hvort þau
varir við fisk. Einn bátur, Leo,
fékk á föstudaginn 21 lest í net-
in.
Undanfarin ár hafa bátarnir
fengið góðan afla í netin út af
Hjörleifshöfða og þaðan af aust-
ar, fyrst eftir að loðnan hefur
gengið, en nú brá svo við, að
þetta brást alveg, og nú eru allir
þeir, sem þangað fóru, farnir
vestur aftur með netin að und-
anskyldum einum bát, Gullborgu.
Nokkrir bátar eru enn með
línu, og hefur aflinn hjá þeim
verið 6—8 lestir í róðri.
Þessir 8 bátar hafa fengið yfir
300 lestir af fiski frá áramótum:
Stígandi . 423 lestir
Gullborg . 360 —
Leo . 324 —
Kári . 316 —
Dalaröst NK . 313 —
Reynir . 309 —
Snæfugl SU . 308 —
Eyjaberg . 300 —
Einfaldir effa tvöfaldir hnútar
Norðmenn nota við 60% af sín-
um netum með einföldum hnút
og 40% með tvöföldum. Hér er
algengast að nota einfaldan hnút,
ef nokkuð er orðið notað af tvö-
földum.
Rannsóknarstofa norska ríkis-
ins á veiðarfærum telur, að net
með tvöföldum hnút séu 10%
sterkari og minni hætta á drag-
möskvum. Slík net eru líka við
sjái sér ekki fært í náinni
framtíð, að gera hér úrbætur
á og losa okkur við nagándi
ugginn.
— Konan, sem á börn.
• Dularfullt hvarf á
póstpoka
í desembermánuði sl. sendi ég
böggul (jólagjafir) í pósti frá
Eskifirði til Reykjavíkur. —
Nú, er ég er stödd hér af til-
viljun í Reykjavík, kemst ég
að því fyrst mér til mikillar
undrunar, að umræddur bögg-
ull hefir aldrei borizt viðtak-
enda í hendur, — Er ég lét
gera fyrirspurn til bögglapóst-
stofunnar hér, hvernig á þessu
stæði er þá tjáð að hvorki
meira né minna en ellefu
böggla hafi vantað í þessari
ferð frá Eskifirði — Önnur
svör voru ekki fyrir hendi —
Getur það verið að póststjórn-
in hafi ekki látið fara fram
rannsókn í þessu máli — eða
skyldi það vera meiningin að
þegja þetta í hel og láta
fjölda fólks verða fyrir miklu
tjóni. Máske vill háttvirt póst-
stjórn svara þessu.
N. G., Eskifirði.
10% dýrari.
Þar sem mest reynir á veiðar-
færi í Noregi, við Andenes í Vest-
urálnum, vegna mikils straums og
harðra veðra, eru næstum ein-
göngu notuð net með tveimur
hnútum.
Yfirburffir skuttogara
1) Veiðin gengur betur. Skuttog-
arinn togar til muna betur.
Hann dregur undan og á móti
vindi.
2) Áhöfnin vinnur neðan þilja,
og býður það upp á betri
vinnuskilyrði, auk þess sem
það er betra upp á gæði fisks-
ins.
3) Skuttogararnir geta veitt í
verra veðri en önnur fiskiskip.
4) öryggið er meira en hjá venju
legum togurum, vegna þess að
þeir eru borðhærri og á þeim
er minni hætta á yfirísingu.
Færeyingar til Kanada?
Sagt er, að færeyskir sjómenn,
sem vilja ekki fara til íslands,
leiti nú fyrir sér að komast á
kanadisk skip.
Rán Breta
í landhelgi fslendinga hefur nú
kostað þá sem svarar 50 milljón-
um króna.
„Ævintýralegur afli“
Þjóðverjar segja frá ævintýra-
legum afla í janúar og febrúar
við Grænland og Labrador.
Ódýrt hráefni
Perú greiðir 25—30 aura fyrir
kg. af fiski ,sem fer til fiskimjöls-
vinnslu og nú veldur íslendingum
mestum erfiðleikum á heims-
markaðinum. Er þetta lægra verð
en hér er greitt fyrir hráefni í
fiskimjöl.
Eru verksmiffjutogarar þaff,
sem koma skal?
Nýjasti skut- og verksmiðjutog
ari Breta, Fairtry III., hefur nú
nýlega verið afhentur í Leith.
Hann er 2500 lestir að stærð með
2000 ha. diselrafknúinni aðalvél.
Hægt er að frysta um borð 30
lestir af flökum á sólarhring, þ.e.
1200 kassa. Mannaíbúðir eru fyrir
95 menn.
Það virðist greinilegt, að togara
smíði erlendis er að snúast yfir í
tveggja þilfara verksmiðjutogara
með skutlagi. Þannig hafa nú 11
slíkir togarar verið pantaðir í
Þýzkalandi.
Freðfiskinnflutningur til USA
1959 1958
Kanada .. 34 þús. tn. 46 þús. tn.
ísland .... 17 þús. tn. 14þús.tn.
Noregur .. 5 þús. tn. 3 þús. tn.
Danmörk .. 6 þús. tn. 4 þús. tn.
Þýzkal..... 1 þús. tn. 2 þús. tn.
Athyglisverffur dómur
Margur maðurinn hefur oft og
einatt borið sig illa út af veltu-
útsvarinu og það ekki að ástæðu-
lausu. Ranglátari skattur er ekki
til í þjóðfélaginu, nema ef vei-a
skyldi stóreignaskatturinn, sem
frægur er orðinn af endemum,
hvernig sem á hann er litið.
Nýlega er genginn dómur í
hæstarétti, sem Skeljungur h.f.
höfðaði gegn bæjarsjóði Reykja-
víkur, um endurgreiðslu á veltu-
útsvari, tæpum 900 þúsundum
króna. Skeljungur tapaði málinu
fyrir báðum réttum.
Athyglisverðast við dóm þenn-
an er það, að niðurjöfnunarnefnd
um virðist heimilt samkvæmt
landslögum að taka upp allar
eignir manna eða félaga með
veltuútsvári á fáum árum. Hvar
eru nú ákvæði stjórnarskrárinn-
ar um friðhelgi eignaréttarins?
Skeljungur sýndi fram á undir
rekstri málsins, að með sama á-
framhaldi í útsvarsálagningu yrði
svo komið innan fjögurra ára, að
allt stofnfé félagsins væri gengið
til þurrðar.
í þjóðfélagi, sem lögverndar
slíkt, er ekki unnt að búast við,
að heilbrigður atvinnurekstur
þrífist til lengdar. Það er verið
að setja ýmis lög, reglur og fyrir-
mæli, sem miða eiga að því að
efla traust manna á eignaréttin-
um og krónunni og hvetja menn
til sparnaðar, en svo á sér stað
óátalið slíkt rán sem veltuút-
svarið. Það er ekki von, að vel
fari. Hver reynir eftir beztu getu
að koma sér undan refsivendi
slíkra laga og reglna, þótt margir
séu ofurseldir og eigi sér enga
undankomu. Allir þekkja hin
ranglátu skattalög í þessum efn-
um og hvernig skattarnir og út-
svörin, svo ekki sé talað um veltu
útsvarið, geta hirt tekjur manna
100% og gott betur, þegar því er
að skipta. Nú er að vísu verið að
gera nokkra leiðréttingu í þess-
um efnum, en af hverju er verið
að hanga í þeim slitrum, sem eftir
eru að tekjuskattinum? Af hverju
er skrefið ekki stigið til fulls,
þegar eftir eru sjálfsagt ekki
nema 20—30% af skattinum, en
það hefur þó í för með sér að
halda við skriffinnskunni. Fullt
afnám tekjuskattsins myndi örva
allt atvinnulíf í landinu og
færa þjóðfélaginu margfaldar
tekjur á við það, sem ríkið fær
með því, sem eftir er af tekju-
skattinum, og losa töluvert af
starfskröftum, sem full þörf er
fyrir á mörgum sviðum.
Yeltuútsvarið er einhver mesta
meinsemd í þjóðfélaginu, ef hér
á að þrífast heilbrigður atvinnu-
rekstur, og því fyrr sem það
verður afnumið því betra.
HAFNARFJÖRÐUR
ABCBEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
28. Dxf6t — Gefiff.
Hafnfirðingar þakka Keflvík-
ingum fyrir skákina — og síðast.
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
AKRANES
25. Df3—í4.
skrifar úr
daglegq lífin*