Morgunblaðið - 13.03.1960, Blaðsíða 11
Sunnudagur 13. marz 1960
MOKCrNBLAÐIÐ
11
n
Héðinshöfði, fyrsta húsið, sem reist var fyrir ræðismann í Reykjavík.
Kidson, þegar við hittum
hann á dögunum.
— Starf mitt hér á stríðsár-
unum var að fara með ís-
lenzku tollþjónunum út í
skipin, sem hingað komu.
Annars hafði ég aðsetur í
Hafnarhúsinu og hafði mikið
samband við íslendinga.
Margir Bretar töluðu íslenzku
sæmilega á styrjaldarárunum.
En það voru ekki allir, sem
kunnu jafnvel við íslenzka
matinn. Þú hefur heyrt um
hermennina, sem reyndu að
steikja skyrið. Mér fellur hins
vegar vei við íslenzka mat-
inn. Mér finnsc, að einhver Is-
lendingur ætti að taka sig til
og setja upp íslenzka matsölu
i London. Þar eru allra þjóða
veitingahús, sennilega vantar
aðeins það íslenzka.
Hefur ekki komizt upp
á lagið
Það bregzt varla, að út-
lendingar nefni skyrið fyrst,
þegar rætt er um íslenzkan
mat. Það gerði líka David
Timmins, annar sendiráðsrit-
ari bandaríska sendiráðsins,
þegar við hittum hann:
— Konan mín verður veik,
ef ég kem ekki heim með
skyr á hverju kvöldi, sagði
hann og brosti. — Ég hef hins
vegar aldrei komizt upp á lag
ið með að borða skyrið. En
hangikjötið og osturinn ykkar
finnst mér góður. Við banda-
rísku sendiráðsmennirnir er-
um hins vegar í þeirri sér-
stöku aðstöðu að geta keypt
allt í bandarískri sölubúð hér,
þ. e. a. s. suður á Keflavíkur-
velli. Þó er það margt sem við
kaupum í Reykjavík, aðallega
nýmetið.
Eru friðhelgir
Starfsmenn annarra sendi-
ráða flytja töluvert af nauð-
synjum sínum frá útlöndum,
því að tolla- og skattfrelsi
sendiráða til skrifstofu- og
heimilishalds eru meðal gagn-
kvæmra sérréttinda erlendra
sendimanna. Þeir bera sér-
stakt vegabréf og þeir njóta
eins konar friðhelgi, því m. a.
má ekki handtaka þá nema
þeir séu staðnir að éinhverj-
um ólöglegum verknaði. Það
vakti t. d. miklar umræður í
dönskum blöðum fyrir nokkru
er bandarískur sendiráðsmað-
ur í Kaupmannahöfn ók á veg-
faranda með alvarlegum af-
leiðingum. Danska lögreglan
ætlaði að taka manninn og
færa hann til blóðrannsóknar,
en þegar hann framvísaði
vegabréfi sínu' gat lögreglan
ekkert aðhafzt.
Venjulega leiðin til þess að
fjarlægja „óæskilega“ sendi-
menn er sú að krefjast brott-
farar þeirra innan ákveðins
tíma og hefur slíkt gerzt all-
oft í samskiptum austurs og
vesturs. Hins vegar mun það
aldrei hafa gerzt hérlendis né
varðandi sendimenn íslands
erlendis.
Rússunum gengur hetur
David Timmins sagði, að
Bandaríkjamönnunum gengi
ekki jafnvel með íslenzkuna
og kunningjum þeirra í
brezka sendiráðinu. Enginn
bandarísku diplómatanna tal-
ar íslenzku sem Bretarnir, en
nokkrir lesa eitthvað. Banda-
ríkjamennirnir hafa samt ís-
lenzkukennara og tvær
kennslustundir í viku.
Rússunum gengur heldur
skár, því þar eru tveir, sem
tala íslenzku. Þeir hafa haft
íslenzkukennara öðru hvoru
TASS-maðurinn Kugujenko
hefur verið hér síðan 1956,
talar íslenzku sæmilega og
þar að auki hefur kona háns
fætt honum son á Fæðingar-
deild Landsspítalans. Reche-
tov hefur verið hér skemur,
en hann hafði lært undir-
stöðuatriði íslenzkunnar í
Moskvu áður en hann kom
hingað.
Siggi og Bjössi tala ensku
Kugujenko er ekki einn er-
lendra sendimanna, sem eign-
azt hefur erfingja á fslandi:
Þeir eru fjölmargir og m. a.
fæddust tvö börn bandaríska
sendiherrans Muccio hér. —
Böm bandarískra sendiráðs-
manna eru það mörg, að þeir
hafa komið á fót skóla fyrir
þau yngstu, en eldri börn
sendimanna eru yfirleitt í
skólum í heimalandinu. Yngri
bömin eiga að sjálfsögðu
marga leikfélaga hér meðal
íslenzkra barna. Og engin
hætta er á því, að börnin skilji
ekki hvert annað þó móður-
málin séu ólík. Mark litli
Timmins, sem er sex ára,
sagðist m. a. leika sér mikið
vjð Sigga, Bjössa og Jóhann
á Ægissiðunni — og líka einn
stóran strák, sem á reiðhjól.
Mark sagðist ekki tala ís-
lenzku, en sagði, að Siggi og
þeir hinir töluðu ensku.
Bardot ekki sú sama og áður
Verkefni erlendra sendiráða
er alls staðar það sama: Að
koma fram sem fulltrúi lands
síns, reka upplýsingastarf-
semi, bæði um heimalandið og
fyrir það — og veita ýmsa
fyrirgreiðslu í sambandi við
viðskipti. ferðalög og annað
slíkt. Samgangur mun vera
töluverður milli vestrænu
sendiráðanna í Reykjavík, en
minni milli þeirra og hinna
austrænu, eins og að líkum
lætur. Sendiráðsfólk ver frí-
stundum yfirleitt mikið á eig-
in heimilum eða í sameiningu
með löndum sínum og ferðast
mikið um landið á sumrin.
Sækir líka töluvert ýmsar
skemmtanir í Reykjavík, svo
sem hljómleika, leiksýningar
og kvikmyndahús. Rússnesk-
ur sendiráðsmaður sagði t. d.
eitt sinn við mig:
— Jerry Lewis og Dean
Martin eru uppáhalds kvik-
myndaleikararnir mínir. Ég
hef líka mjög gaman af Brig-
itte Bardot, þó ekki jafnmikið
eftir að hún giftist.
Var í Kóreu
Það er hægt að finna
skemmtilegar hliðar á öllum
málum. Danski sendiherrann
hér, Bjarne Faulson er t.d. af
íslenzkum ættum og þekkti
hér marga áður en hann kom
hingað sem sendiherra. Og
hann var m.a. einn þeirra, sem
áttu þátt í að upplýsa Blech-
ingbergsmálið svonefnda í
Bonn þar sem hann starfaði
áður. Dóttir norska sendiherr-
áns, Bjame Börde er gift Har-
aldi Kröyer, forsetaritara, Frú
in hafði áður farið víða, verið
í Japan og San Francisco, þar
sem faðir hennar var aðalræð-
ismaður. — Muccio, sem hér
var sendiherra Bandaríkjanna
um skeið, var sendiherra í S-
Kóreu, þegar stríðið stóð þar
og mun næst fara til Guate-
mala. Sir Francis Shepherd,
sem var brezkur aðalræðis-
maður hér í stríðslok, var
sendiherra í Teheran, þegar
Mossadeq gerðiuppreisnina og
Shepherd kom þar mikið við
sögu. Kazemi, utanríkisráð-
herra Mossadeqs var um skeið
sendiherra í Stokkhólmi og
jafnframt á íslandi.
Austurlandafræðingur
Hent hefur verið gaman að
því að brezkum blöðum, að
Austurlandasérfræðingar veld
ust ætíð í sendiherrastöður
Breta á íslandi. Svo mikið er
víst, að Greenway, sem hér
var brezkur sendiherra, hafði
verið í Japan. Gilchrist, sem
hér var til skamms tíma, hafði
áður verið í Thailandi, og nú-
verandi sendiherra Breta,
Andrew Stewart, hefur líka
starfað í Austurlöndum.
Aðrir halda sig eingöngu
við norðlægar slóðir svo sem
núverandi sendiherra Banda-
ríkjanna, Tyler Thompson,
enda varð reykvískt skíðafólk
furðu lostið að sjá þau hjónin
fara braut svigmanna á skíða
móti ekki alls fyrir löngu. Þau
gáfu skíðagörpunum sjálfum
lítið eftir.
Nær 300 í Parísarsendiráði
Bandaríkjanna
Á alþjóðlegan mælikvarða
eru sendiráðin í Reykjavík
fáliðuð, en að líkindum sett-
um við enn eitt heimsmetið,
ef miðað væri við fólksfjölda
á íslandi. Sendiráð stórveld-
anna eru víða æði fjölmenn og
sem dæmi má- nefna, að í
bandaríska sendiráðinu í Lond
on, Upplýsingaþjónustu Banda
ríkjanna og öðrum þeim stofn
unum, sem sendiráðinu fylgja,
vinna yfir 250 manns. Þar er
að sjálfsögðu ekki meðtalið
skyldulið. — Og við sendiráð
Bandaríkjanna í París eru
starfsmennirnir enn fleiri.
Þetta er samt aðeins lítill
hluti alls þess fjölda, sem starf
ar í utanríkisþjónustu Banda-
ríkjanna heima og erlendis.
Og ef að líkum lætur eru hin
stórveldin engir eftirbátar
Bandaríkjamannna. Sum hafa
að vísu ekki jafnmarga menn
í þjónustunni, en öllum finnst
þeim kostnaðurinn við utan-
ríkisþjónustuna einum of mik
ill. Jafnan er rætt um að gera
ráðstafanir til að draga úr
kostnaðinum, en eins og banda
rískur sendiráðsmaður sagði:
Útgjöldin aukast jafnt og þétt
hvað sem öllum sparnaðará-
formum líður, því alltaf koma
ný verkefni, sem þarfnast
nýrra starfskrafta.
Sitt hvoru megin við Lækinn
Og víðar er rætt um að
draga saman seglin. í Kaup-
mannahafnarfréttum var m.a.
greint frá því á dögunum, að
þar væru menn að hugleiða
hvort ekki væri óhætt að kalla
heim sendiherrana á Norður-
löndum. Ástæðan fyrir þessum
bollaleggingum mun m.a. vera
sú, að ýmsir Danir telji nor-
Frú Unnur Börde Kröy-
er, dóttir norska sendi-
herrans.
rænt samstarf orðið það víð-
tækt og margþætt að hægt
yrði að komast af án sendiráð
anna.
En töluvert fölnaði borgar-
blærinn á Reykjavík, ef sendi
ráðin hyrfu eitt af öðru. Eins
og nú horfir er samt ólíklegt,
að öll sendiráð verði lögð nið-
ur í bráð, því að óbreyttu
heimsástandi munu Rússar
telja fulla nauðsyn á sendi-
mönnum í Yesturbænum og
Bandaríkjamenn á sínum í
Austurbænúm. — h. j„ h.
Petcr Kidson,
a n n ar ritari
brezka sendi-
ráðsins, v a r
hér á styrjald-
arárunum og
talar síðan ís-
lenzku, e n
eins og marg-
ir aðrir brezk
ir sendiráðs-
m e n n hefur
hann verið í
Austurlönd-
um, Japan og
Singapore.
TIL SÖLU
Hús og íbuðir í smíðum
Höfum til sölu allar stærðir ibúða í smiðum
frá 2ja herbergja upp I 7—8 lierbergja.
Hafið samband nú á meðan
verðið er hagstætt
Austurstræti 14. IH. hæð
Sími 14120 og 34933