Morgunblaðið - 13.03.1960, Side 22

Morgunblaðið - 13.03.1960, Side 22
22 MORCr/NBlAÐlÐ Sunnudagur 13. marz 1960 í fréttunum Skipakóngurinn frægi Onassis virðist vera hinn mesti kvenna- maður. Hann er skilinn við Tinu konu sína og ástarævintýri þeirra Maríu Callas er lokið, hún er komin aftur til eiginmanns síns. En um daginn sat hann á blóma- babinu í Monte Carlo við borð furstahjónanna, Rainiers og Grace, og á móti honum gömul vinkona furstafrúarinnar, leik- konan Ava Gardner. Og eins og sést á þessari mynd, höfðu þau ekki augun hvort af öðru Ava og Onassis. Þegar veizlan var búin, bauð Onassis um borð i „Christinu" og þaðan fóru fursta- hjónin og Ava ekki fyrr en undir morgun. Þetta þótti hin merkasta frétt og myndir af þeim hafa síð- an birst í blöðum á ítalíu, Frakk- landi, Danmörku og víðar. ★ Hugh Gaitskell, leiðtogi brezka verkamannaflokksins vill, þrátt fyrir mikla andstöðu í flokkn- um, draga úr þjóðnýtingarstefnu hans. Hann sagði fyrir skömmu efiirfarandi sögu: — Ákafur fylg ismaður okkar var að halda ræðu af sápukassa við Marble Aroh og lýsti blessunum þess sem við hefðum komið fram. Brátt kom hann inn á heilbrigðismálin, sem við höfúm óneitanlega skipulagt. Með ákafa hrópaði hann: — Nú eru í Englandi fleiri börn en nokkurn tíma áður. Hverju er það að þakka?, Og svarið kom um hæl utan úr áheyrendasalnum: — Einka- framtakinu! Það er engin smáábyrgð, sem fylgir því að taka á móti drottn- ingarbarni. Tveir af læknunum TAPAÐ AÐ EILÍFU er það fé sem ekki kemur inn í fyrúrtæki yðar í dag. TAPAÐUR ágóði kemur ALDREI aftur. Komið í veg fyrir ágóðatap, liggið ekki lengur með vöruna en frekast er unnt, vextir eru háitr og dýrir fyrirtækinu, umsetjið hraðar. Náið til kaupendanna á einfaldasta og ódýrasta hátt, auglýsið í VIKUNNI. V I K A N kemur V I K U eftir V I K U inn á flest heimili landsins og er lesin af flestum þeim sem kaupa vörur og þjónustu í landinu. og ljósmóðirin, sem tóku á móti barni Elísabetar, fengu líka fyrir það Viktoríukrossinn. Þau voru John Harold Peel, sem tekið hef- ur á móti um þúsund börnum áður (lengst til vinstri) og Vern- on Frederiok Hall, yfirlæknir við Kings Kollege Hospital í London. Einnig hlaut Helen Tow, hin sex- tuga ljósmóðir, sem líka tók á móti fyrri börnum drottnmgar (sjá mynd) Viktoríukrossinn. Hinir læknarnir sem viðstaddir voru, sjást til hægri á myndinni, Lord Evans, hinn 57 ára gamli heimilislæknir drottningar, og Sir John Weir, hinn áttræði líf- læknir hennar. Mikið er nú rætt um nýútkomn ar æviminningar Sir Anthony Edens. Eitt af því sem menn velta fyrir sér í því sambandi, er hve mikið hann hafi fengið fyrir hand r i t i ð. London l Times, sem fékkl fyrsta birtingar-1 rétt, fæst ekkil til að gefa uppl !ive dýru verðil blaðið hafi keypt| hann, en talaðl sr um minnstl 100 þús. pund.l A.ftur á móti< dregur bandaríska tímaritið sem birti minningarnar ekki dul á að það greiddi 300 þús. dali fyrir birtingarréttinn. Og þegar víð bætast ritlaun frá fjölda landa, er víst óhætt að álykta að Eden, sem hingað til hefur verið lítt efnum búin, sé að verða milljónari. Önnur spurning hefur vaknað í þessu sambandi: Hvernig fékk ráðherrann fyrrverandi leyfi til að nota svo mikið af leynilegum ríkisskjölum? Því án þeirra hefði bókin varla vakið aðra eins at- hygli. Véi'stjóra vantar á netabát frá Reykjavík. Upplýsingar í síma 34576.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.