Morgunblaðið - 13.03.1960, Page 24

Morgunblaðið - 13.03.1960, Page 24
61. tbl. — Sunnudagur 13. marz 1960 Reykjavíkurbrét er á bls. 13. Enginn Færeyingur kemur með Gullfossi UM hádegisbilið í gær var Gullfoss nærri Færeyjum og hefði siglt inn til Þórshafnar, ef þar hefðu verið farþegar, sem óskuðu eftir að fá far til íslands, en svo var ekki. Um- „Kolviðarhólsfélagið" fær Kolviðarhól «n endurbœfur verða að hefjast fyrir 1. júlí BÆJARRÁÐ hefir fyrir nokkru svarað nefnd þeirri, er var til kjörin á fundi hér í Reykjavík að gera ráðstafanir til að varð- veita Kolviðarhól. Telur bæjar- xáð að það geti fallizt á að gefa félagsskap áhugamanna kost á að fá húsin til varðveizlu, enda verði þegar í stað hafizt handa um endurbætur á því. í svari sínu til „Kolviðarhóls- vina-félagsins“, segir bæjarráð að ef félagsskapur þessi sýni það að ihann sé þess megnuugur að koma Ihúsunum í viðunandi ástand og sjái um að þau verði notuð í einhverjum þeim tilgangi er bæjarráð getur fallist á, sé þess og að vænta að húsin á Kolviðar- Ihóli verði afhent án endurgjalds ásamt hæfilegri leigulóð eða erfðafestulandi. í bréfi „Kolviðarhólsvinafé- 1 lagsins" til bæjarráðs fyrir i nokkru, var farið fram á að bær- i inn léti leggja hitaveitu og raf- L- magn heim að Kolviðarhóli. Þessu er vísað á bug.Slíkt myndi kosta bæjarfélagið miklar fjár- fúlgur. Þess skal getið, að áður hefur farið fram athugun á því að leggja raflínu heim að Kolvið- arhóli vegna annarar starfsemi sem þar var þá fyrirhuguð, og kom í ljós að slíkt fyrirtæki væri mjög kostnaðarsamt. Þá segir bæjarráð að félags- skapurinn geti ekki vænzt fram- lags frá bænum til varðveizlu húsanna, því svo mikið sé fram- undan er snertir varðveizlu sögu legar minja í Reykjavík. Að lokum er félagsskapnum svo settur ákveðinn frestur til að hefja endurbætur á Kolvið- arhóli. Fresturinn er fram til 1. júlí nk., en hafi félagið þá ekk- ert aðhafzt muni húsin verða brotin niður eins og bæjaryfir- völdþi hafa þegar ákveðið. Kappræðufundur um efnahagsmáíin HINN 11. febr. sl. sendi Æskulýðs íylkingin í Reykjavík Heimdalli félagi ungra sjálfstæðismanna í Keykjavík bréf, þar sem farið var fram á, að efnt yrði til kapp- ræðufundar milli félaganna um efnahagsmálafrumvarp ríkis- stjórnarinnar, sem þá lá fyrir AlþingL Fulltrúum Heimdallar var stefnt til samningafundar þrem dögum síðar. Á fundi þessum lögðu fulltrúar ; KEFL WIK ' SJÁLFSTÆÐISKONUR í Keflavík eru minntar á félags Nindinn í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 9. Ávörp, kaffidrykkja, félags- vist. — Góð verðlaun. AKRANES F. U. S. Þór heldur fund í Hótel Akranesi kl. 4 í dag. , Rætt verður um EFNAHAGSMÁLIN. Fra msögumenn: Pétur Sigurðsson, alþm. Már Elísson, hagfr. ' Allt Sjálfstæðisfólk velkomið. ÆFR til að fundurinn yrði hald- inn sem fyrst og áður en efna- hagsmálafrumvarpið yrði af- greitt frá Alþingi. Fulltrúar Heimdallar töldu frestinn of skamman og álitu að málið lægi ljósar fyrir fundinum að mánuði liðnum, þegar önnur boðuð frumvörp um efnahagsmál lægju fyrir Alþingi. Á fundinum náðist ekki sam- komulag um fundartíma, en báð- ir aðilar lýstu yfir vilja sínum til frekari viðræðna um væntan- legan fund. Skömmu síðar ritaði Heimdall- ur Æskulýðsfylkingunni bréf, þar sem þess var óskað að samn- ingaviðræður yrðu teknar upp að nýju um væntanlegan kappræðu- fund. Hófust þá sámningar að nýju og varð samkomulag um að fund- urinn yrði 15. marz. Síðar ósk- aði Æskulýðsfylkingin eftir því að fundinum yrði frestað og varð samkomulag um að hann yrði fimmtudaginn 24. marz í Sjálf- stæðishúsinu kl. 20.30. Heiti fundarins er: Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál um. Ræðumenn verða þrír frá hvorum aðila og ræðutíma skipt í 4 umferðir. Þetta er samkomulag fulltrúa beggja félaga um fyrstu tilkynn- ingu um fundinn. boðsmanni Eimskips þar hafði ekki borizt pöntun á fari frá einum einasta færeyskum sjó manni. Var þá ákveðið að Gullfoss sigldi áfram beint til Reykjavíkur. LÍÚ barst í gærmorgun frá ræðismanni íslands í Þórshöfn skeyti þar sem m. a. segir, að um leið og Fiskimannafélagið aflétti banninu muni stjórn þess gefa yfirlýsingu þess efnis að hún ráði félagsmönnum sínum frá því að fara til íslands. Margir ætla að koma I gær var aftur á móti vitað að margir sjómenn myndu ætla sér að koma hingað. LÍÚ mun um leið og Fiskimannafélagið hefur formlega aflétt banni sínu, gera ráðstafanir til þess að togarar sem eru í söluferðum komi við í Færeyjum til þess að taka þar færeyska sjómenn. Eins og stend ur a. m. k. er erfitt að fá stærri skip til flutnings á sjómönnum, ef til þess kemur að margir leggi leið sína í verið hér á landi. Séð inn í verzlunina Ný innréfting hjá Magnúsi Benjamínssyni ÚRSMÍÐAFYRIRTÆKIÐ Magn- ús Benjamínsson & Co. hefur ný- lega breytt húsakynnum sínum í Veltusundi 3 og endurbætt þau stórlega. Er innrétting verzlun- arinnar hin smekklegasta í hví- vetna, en að baki verzluninni hefur verkstæðisrými úrsmið- anna einnig verið aukið nokkuð. Húsið í Veltusundi reisti Magnús Benjamínsson 1887, en áður hafði hann rekið úrsmíða- fyrirtæki í steinhúsi við Hlíðar- húsastíg, þar sem nú er Vestur- gata 17. Þar stofnaði Magnús fyrsta úrsmíðafyrirtæki er stofn- að var hér á landi. Magnús Benjamínsson var óvenju listhagur maður. Bera þess vott margar klukkur, sem til eru eftir hann og prýða ýms- ar merkisbyggingar þessarar borgar, en auk þess smíðaði hann með eigin höndum sextant til að stilla klukkur sínar beint eftir sólinni. Myndin, sem fylgir, sýnir hina nýju innréttingu hjá Magnúsi Benjamínssyni & Co. Fegurstu hverir landsins friðlýstir Vidurlög v/ð skemmdum á Hveravöllum HVERIRNIR og hvermyndanirn- ar á/Hveravöllum á Kili hafa nú verið friðlýstir sem náttúruvætti, og varðar það hér eftir sektum að fremja á þeim hvers konar skemmdir, t.d. með því að kasta í hverina grjóti eða öðru því líku, svo og við að brjóta kísilmola úr hveraskálunum og yfirleitt allt jarðrask á hverasvæðinu. Þetta hefur verið tilkynnt í Lögbirt- ingablaðinu. I fréttatilkynningu frá Náttúru verndarráði um þetta segir svo: Það mun einróma álit allra. er til þekkja, að hverirnir á Hveravöll um á Kili séu fegurstu vatns- hverir íslands. Veldur þar mestu um hversu tært og fagurlitað vatn þeirra er, einkum í Bláhver og hvernum rétt austan við hann, svo og, að kísillinn, sem hvera- vatnið fellir út er hreinni og fag- urlegar mynstraður en við aðra hveri hérlendis. Eini hverinn, sem kemst nokkurn veginn til jafns við Hveravallahverina um þetta tvennt, er „Gleraugnahver- inn“, skammt frá Stóra Geysi, en Hveravallahverirnir eru þó feg- urri. A síðari árum hefur ferða- mannastraumur til Hveravalla farið sívaxandi einkum eftir að bílfært varð á sumrum milli Norður- og Suðurlands um Kjöl. Frá því bílfært verður á sumrin efnir Ferðafélag Islands til ferða á Hveravelli hverja helgi og hef- ur, sem kunnugt er, reist eitt af sæluhúsum sinum þar. Er það upphitað með hveravatni. A því befur borið allmikið síðari árin og farið í vöxt, að unnin væru skemmdarverk á hverunum, kastað í þá grjóti, járnarusli og öðrum óþverra. Hafa forráða- menn Ferðafélagsins hvað eftir annað orðið að hreinsa þetta drasl úr hverunum. Einnig brjóta menn kísilmola úr skálabörmun- um til minja og er það til lýta. Hafa verðir við sauðfjárverndar- girðingarnar á Hveravöllum reynt eftir getu að verja hverina, þar eð engin lög hafa náð yfir skemmdir á hverunum, er erfitt að beita sér við það. AUur umgangur frjáls Friðun Hveravalla á auðvitað ekki að verða í því formi að Borun við Leirár- laug AKRANESI, 11. marz: — Eftir nokkurt hlé er nú aftur byrjað að bora eftir heitu vatni við Leir- árlaug í Leirársveit. Og nú er borað á vegum Melsveitinga. Bú- izt er við að Akurnesingar taki þriðju atrennuna við að bora, í þeirri von að þarna fáist að lok- um nægilegt heitt vatn handa Akranesbæ. — Oddur. bannaður verði umgangur um hverasvæðið, heldur aðeins að settar yrðu af náttúruverndar- ráði reglur um umgengni á þessu svæði, sem viðurlög væru við að brjóta og að hafa yrði samráð við náttúruverndarráð og sam- þykki þess um alla mannvirkja- gerð á þessu svæði. Mikil fiskvinna á Siglufirði SIGLUFJÖRÐUR, 12. marz. — Bæjartogarinn Elliði landaði hér gær 24 Otonnum af fiski og einslkom vélskipið Bragi af veið- um með 35 tonn. Þessi 275 tonn af fiski fóru til vinnslu í hrað- frystihúsinu og skreið. Síðan um helgi hefur verið hér ágætisveður og sæmilegt sjó- veður á miðum hér fyrir utan og reytingsafli. BREIÐDALSVÍK 12. marz. — Hér hefur verið úrfellasamt að undanförnu og er jörð alauð á láglendi. Hafnarey er að landa I dag rúmum 30 lestum af fiski. Er það í annað skipti sem hún land- ar hér eftir netjaafla. —P. G. Sviplegt dauðsfall á Breiddalsvík BREIÐDAL’SVÍK, 12. marz: — Eftir komu Herðubreiðar í gær varð sviplegt dauðsfall hér við höfnina. Verkamenn voru komnir heim, nema Hallgrímur Eyjólfsson, sem var að lagfæra eitthvað við bryggjuhúsið, þegar Baldur Pálsson, bifreiðarstjóri, ók þar fram hjá eftir síðustu vörunum. Örfáum mínútum síðar, þegar Baldur kom til baka, lá Hall- grímur örendur við bryggjuhús- ið. Læknir hefur staðfest, að hann hafi dáið af hjartaslagi. Hallgrímur avr 45 ára, ókvænt- ur og barnlaus, en ól upp bróður- son sinn. Hann var vandaður dugnaðarmaður. —Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.