Morgunblaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 16. marz 1960 Húsið nær alelda er fjölskyldan bjargaðist UM klukkan 11,30 í fyrrakvöld kom upp eldur í íbúðarhúsinu Vesturbær í Höfnum. Varð hús- ið alelda á svipstundu og bjarg aðist fjölskyldan sem þar bjó, klæðlítil út úr brunanum. Húsið brann og stendur nú kolsvört tóftin uppi. Heimilisfólkið var í svefni er eldurinn kom upp. Drengur í Garðbæ, Helgi Páll, 13 ára, sá er eldurinn gaus upp í húsinu. Hafði hann hlaupið yfir að Vest- urbæ og barið upp. Fleiri komu rétt á eftir, og var þá Konráð Ólafsson, er þar bjó, að koma út úr húsinu méð tvö börn sin fá- klædd upp úr rúmunum. Börn- unum var komið fyrir inni x bíl. Kona Konráðs hafði gripið slopp er hún hljóp út úr húsinu. Ein- hverju af fötum tókst Konráði að bjarga áður en eldurinn var orð- inn svo magnaður að ógerning- ur var að komast inn í húsið. Þegar slökkviliðið í Keflavík kom á vettvang, um miðnætti, var þakið fallið inn í tóftina. Eitt hús var í hættu vegna hins mikla neistaflugs, sem var frá Vestur- bænum, en það tókst að verja þetta hús fyrir skemmdum. Tjón Konráðs Ólafssonar, en Áfengi hækkar í GÆRMORGUN þegar vínbúð- ir ÁVR opnuðu, var komið nýtt verð á allar tegundir áfengis — og það hækkað í verði. Áka- vítið kostar 175 krónur, var áð- ur á 145 kr. Brennivín hækkaði um 30 kr., — upp í 170. Algeng- ustu tegundir af „Skota“ hækk- uðu úr 265 krónum í 315. — Dýrasta skozka wiskýið Black Label fór upp í 405 kr. — Ekki hafði franskt koníjak hækkað hlutfallslega jafnmikið. í gærmorgun var Tóbaks- einkasalan lokuð og mjxn hún ekki opna aftur fyrr en á föstu- daginn. Mun tóbak þá hækka í verði. Einar Thoroddsen y fii hafnsögu- maður Á FÖSTUDAGINN var hélt hafnarstjórn Reykjavíkurhafnar fund, en þar var ráðinn nýr yfir- hafnsögumaður fyrir höfnina, því Þorvarður Björnsson, núv. yfirhafnsögumaður, lætur af störfum 1. júlí n. k. er hann nær hámarksaldri opinberra starfs- manna. Um starfið sóttu aðeins starfandi hafnsögumenn Reykja- víkurhafnar, þeir: Einar Thor- oddsen, Kolbeinn Finnsson, Theodór Gíslason og Magnús Runólfsson. Hafnarstjórnarmenn, sem eru sex, gengu síðan til atkvæða og féllu þau þannig, að Einar Thor- oddsen hlaut 4 atkv. en Theódór Gíslason eitt. hann vinnur á Keflavíkurflug- velli, og konu hans, er mjög til- finnanlegt. Þau fluttu inn í húsið um síðustu áramót, áttu það sjálf. Innbú þeirra, sem allt bjann til ösku, var tryggt í íbúð í Reykjavík og hafði tryggingin ekki verið færð yfir í þetta nýja heimili þeirra. Um eldsupptök er ekki vitað. Húsbruni mun ekki hafa orðið í Höfnum síðan árið 1934 eða ’35. Tómas Guðmunds- son forseti PEN- ldúbbsins AÐALFUNDUR Pen-klúbbsins var haldinn sl. sunnudagskvöld. Gunnar Gunnarsson ritliöfundur, sem verið hefur farseti kiúbbsins sl. tvö ár eða frá upphaf', baðst undan endurkosningu og var Tómas Guðmundsson, skáld, kos- inn forseti í hans stað. Var Gunn ar Gunnarsson gerður heiðurs- forseti félagsins. Aðrir í stjórn Pen-klúbbsins eru Kristján Karlsson, Svanhild ur Þorsteinsdóttir, Steingrímur Þorsteinsson, Lárus Sigux-björns son og Matthías Johannessen. Sl. sumar var Kristján Alberts son, fulltrúi fslands á alþjóða- þingi Pen-klúbbanna í Frankfurt og flutti hann skýrslu um þingið á aðalfundinum. Árið áður sat Tómas Guðmundsson alþjóða- þing samtakanna í Tokyo, en Pen klúbburinn hér hóf störf fyrir tveimur árum. Félagið heldur reglulega fundi yfir veturinn. /\ NA iS hnúiar y SV50hnutar Snjókomo t OSi • V Stcúrir K Þrumur Kuklaskil Hitaski) H HotS L * LotgS UM sjö leytið í gærmorgun fóru skilin, sem á kortinu sjást að nálgast landið og tók þá að snjóa í Reykjavík, og snjóaði stanzlaust fram að há- degi. Var þá snjórinn orðinn um 10 sm, en mæld úrkoma var 11 mm á sama tíma. Má af því sjá að nýfallinn snjór er um það bil tíu sinnum fyr- ir ferðarmeiri en vatn. Á eftir skilunum kólnaði veðrið með éljagangi. Yfir Grænlandshafi er grunn lægð, xem þokast aust- ur. Austur af Nýfundnalandi er víðáttumeiri lægð, einnig á hreyfingu norð-austur. Veðurhorfur í dag: Suð- vesturland til Vestfjarða og miðin: Vaxandi suðaustanátt. Norðurland til Austfjarða og xniðin: Léttir til með SV-golu. Suðausturland og miðin: Vest an kaldi, slydduél. Veðdeild Búnaðar- bankans verbi efld Tillaga á Búnaðarþingi STJÓRN Búnaðarfélags fslands hefur á Búnaðarþingi lagt fram svohljóðandi þingsályktimartil- lögu um eflingu veðdeildar Bún- aðarbanka íslands: Búnaðarþing ályktar að skora á ríkisstjórn og Alþingi að stuðia að því að tekið verði á þessu ári Fékk netin í skrúfuna Fanney aðstoðar Eyjabát Friðrik Ólafsson skákineistari SKÁKÞINGI Reykjavíkur er ný- lokið með sigri Friðriks Ólafsson- ar, sem vann allar skákir sínar og hlauí 7 vinninga. Ingi R. Jóhanns son varð annar með 514 vinning. Þriðji varð Benóný Benediktsson með 4*4 vinning, 4.—5. Jónas Þorvaldsson og Bragi Þorbergs- son, 3 vinn. hvor 6. Guðmundur Lárusson 2*4 vinn., 7. Halldór Jónsson IV2 vinn. og 8. Björn Þorsteinsson, 1 vinning. Sjö efstu mennirnir eru nú all- ir í landsliðsflokki. Bragi og Guð mundur eru þar nýir menn. Vestmannaeyjum, 15. marz. SÍÐASTLIÐNA nótt gerði mjög hart veður að Vestmannaeyjabát um, sem voru á miðunum bæði norður og vestur af Eyjunum. Veðrið stóð fram eftir nóttu og fóru bátarnir ekki út á ný fyrr en undir hádegi í dag, en venju- lega fara þeir milli kl. 3 og 4 að nóttu. Þeir bátar, sem höfðu lagt net sín upp undir landi, höfðu þar gott veður í gær, en þeir, sem dýpra voru lentu í austan-veðr- inu. M.b. Sindri var staddur á miðum Vestmannaeyjabáta vest- - Togaraeigendur Frh. af bls. 1. Á fundi sem haldinn var í dag, þar sem mættir voru fulltrúar togarasjómanna og togaraeigenda héldu sjómennirnir því fram að fiskmagnið ætti að dreifast milli Grimsby, Hull, Fleetwood og Aberdeen, en togaraeigendur neituðu að fallast á nokkrar breytingar frá því sem nú er. Dennis Weleh, formaður félags yfirmanna á togurum, sagði á fundinum, að ef Islendingar ætl- uðu sér að selja allt hið umsamda fiskmagn í Bretlandi meðan Genfarráðstefnan stendur yfir, gæti það haft alvarlega árekstra í för með sér. Dagskrá Alb'mgis í DAG er boðaður fundur í sam- einuðu þingi kl. 1,30. Tvö mál eru á dagskrá: 1. Rannsókn kjörbréfs. 2. Fjárlög 1960, frv. Frh. 1. umr. ur af Eyjunum og var langt kom- inn með að draga trossur sínar, er hann fékk netin í skrúfuna. Við það stöðvaðist vélin og gat hann ekki af sjálfsdáðum komizt til lands. Náði báturinn sambandi við Fanneyju, sem er hér um þess ar mundir við gæzlu. Kom hún taugum yfir í Sindra og dró hann x áttina til Vestmannaeyja, og var komin undir Eyjar um kl. 4 sl. nótt. Veðurhæð var hér í gær og fram eftir kvöldi 11 vindstig og meiri undir miðnætti. Var veðr- inu lítt tekið að slota, er Fanney kom með Sindra að Eyjunum. Var því ekki talið fæit að draga bátinn inn í Vestmannaeyjahöfn fyrr en klukkan níu í morgun. — Fréttaritari. Hættulegur leikur unglingspilts BORGARNESI, 15. marz: I gær fór ungur piltur héðan á bát- skrifli í smásiglingu. Ætlaði hann að leika sér á grynningunum hér fyrir utan, en lenti of langt frá landi. Þegar hann hugðist snúa við var vindur og straumur það mikiil að hann gat ekki róið á móti. Sá hann sitt óvænna og réri undan og þvert og komst þannig yfir í sker, sem er vestan- megin í firðinam upp við land skammt frá Þursstöðum. Komst hann þaðan á ís til lands. Til drengdns sást úr landi og fóru tveir menn á árabát á eftir tionum Sáu þeir hann lenda á skerinu og fóru þangað, en iiann var þs á Jeið til lands eít- ir xsspöng. Var mesta mildi að ekki hlauzt veira af, en vel sóst n- e hættuiegar ieikur þetta get- ur orðið. — H. allt að 50 millj. króna erlent lán handa veðdeild Búnaðarbankans, og veiði ríkisábyrgð veitt fyrir láninu og lánstíminn ákveðinn eigi skemmri en 30 ár. Þá verði og svo ákveðið í sam- bandi við lántöku þessa, að ef gengisbreyting yrði á lánstíman- um, þá skyldi sá halli, sem af því kynni að leiða fyrir veðdeildina, jafnaður með fjárframlagi úr ríkissjóði.. Pétor Ottesen, fyrrum alþing- xsmaður, hafði framsögu fyrir til- iögunni af hálfu stjórnar búnað- arfélagsins, en auk hans talaði Asgeir Bjarnason, alþm. Sama og oð beita Framh. af bls. 1 arhraun. Það orsakaðist hins*veg ar á íslandi, Færeyjum og Græn landi ef fiskveiðitakmörkin fást ekki færð út. Ekki er hægt að vænta þess að skynsemi og sann- girni sigri af sjálfu sér, eins og sést bezt á framkomu Breta gagnvart íslendingum. önnur lönd virða tólf mílna fiskveiði- takmörkin við ísland, þótt þau hafi ekki verið samþykkt. En fiskifloti Breta hélt áfram að- gerðum í íslenzkri landhelgi undir herskipavernd. Þessi vald- beiting gagnvart smáþjóð, sem meira að segja er aðili ásamt Bretum í Atlantshafsbandalag- inu, er ekki barátta fyrir háleit- um hugsjónum Breta, eins og bezt kemur fram í aðgerðarleysi hins sterka Bretlands gagnvart tólf mílna lögsögu Sovétríkj- anna, sem eru sterkari. Samvinna nauðsynleg Ekki verður auðvelt að leiða til lykta sanngjarna kröfu Dan- merkur, íslands og fleiri þjóða á ráðstefnunni í Genf. Nauðsyn- legt er að hafa öfluga samvinnu við önnur lönd eins og Kanada, Sovétrikin og Arabalöndin, sem hafa sömu skoðun og við. Slík samvinna getur orsakað nýjar móðganir, en ekki er hægt að komast langt í alþjóða-stjórn- málum með því að viðhalda hefðbundnum tepruskap. Söluskatturinn ræddur í neðri deild SÖLUSKATTSFRUMVARPIÐ var tekið til 1. umræðu í neðri deild Alþingis í gær, en 3. um- ræðu um það lauk í efri deild nóttina áður. Gunnar Thorodd- sen, fjármálaráðherra, fylgdi frumvarpinu úr hlaði með ræðu. Að henni lokinni hófust langar ræður stjórnarandstöðunnar. — Talaði Eysteinn Jónsson, 1. þm. Austurlands, fyrstur, en næstur Einar Olgeirsson, 3. þm. Reyk- víkinga. Þá talaði Einar Sigurðs- son, 3. þm. Austurlands, og flutti jómfrúræðu sína á þingi. Að máli hans loknu kvaddi Lúðvík Jós- efsson, 4. þm. Austurlands, sér hljóðs. Áformað var að ljúka um- ræðunni í nótt. Nýir þingmenn TVEIR nýir þingmenn tóku sæti á Alþingi í gær, þeir Unnar Stef- ánsson, viðskiptafræðingur í Hveragerði, og 1. varauppbóta- þingmaður Alþýðuflokksins, og Bjarni Guðbjörnsson, bankastjóri ísafirði, 1. varaþingmaður Fram- sóknarflokksins í Vestfjarðarkjör dæmi. Tekur Unnar sæti Guðmundar I. Guðmundssonar, utanríkisráð- herra, en Bjarni tekur sæti Her- manns Jónassonar, 2. þm. Vest- fjarða, en Guðmundur I. Guð- niundsson og Hermann Jónasson eru farnir á landhelgisráðstefn- una í Genf. Kjörbréf varaþingmannanna beggja voru tekin til rannsóknar og samþykkt á fundi sameinaðs þings : gær. Vantar mest á togarana EKKI einn einasti hinna stærri báta í vélbátaflotanum liggur nú bundinn vegna mannekiu. Hefur nú, þegar framundan er aðal- veiðitími vetrarvertíðarinnar, margt manna, sem ekki hafa stundað sjóinn jafnvel árum sam- an, farið í skiprúm. Þá hafa margir ungir menn, sem ekki hafa lagt fyrir sig sjómennsku, gerzt bátasjómenn. Mun því eins og er a. m. k. ekki vera mikil þörf fyrir færeyska sjómenn á bátaflotann. Öðru máli gegnir um togarana. Erfiðlega hefur gengið að manna þá sem kunnugt er, og myndu færeyskir sjómenn, ef þeir fást, verða ráðnir á togarana að lang- samlega mestu leyti. Hvöt SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Hvöt heldur árshátíð sína í Sjálfstæðis húsinu í kvöld. Hefst hún með sameiginlegu borðhaldi kl. 7,30. Árshátíðir félagsins enu alltaf mjög ánægjulegar, og verður svo vafalaust einnig nú. Ýmislegt er til skemmtunar og dans á eftir. Félagskonur eru velkomnar með gesti sína. Garðahrfippur SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ í Garðahreppi heldur spila- kvöld í samkomuhúsinu á Garðaholti annað kvöld, fimmtudag, kl. 8,30. Spilakvöld | HAFNARFIRÐI. — Félagsvist Sjálfstæðisfélaganna er í Sjálf- ' stæðishúsinu í kvöld og hefst kl. 8,30. — Verðlaun eru veitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.