Morgunblaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 20
V E Ð R I Ð Sjá veðurkort á bls. 2. 63. tbl. — Miðvikudagur 16. marz 1960 Menntun iðnaðarmanna. — Sjá bls. 11 Héldu allir a Færeyja-miö Stutt samtal við Jón Jónsson skipherra á Ægi KLUKKAN að ganga níu í gær- kvöldi sigldi varðskipið Ægir hér inn á lygna Reykjavíkurhöfn, en hið gamla og trausta sikp hafði verið á verði við síðasta lögbrota svæði Breta hér við land. Frá stjórnpalli á Ægi horfði Jón Jóns son skipherra og menn hans á Jón Jónsson, skipherra á Ægi síðustu brezku togarana halda undan. Var síðasti togarinn kom- inn út fyrir línu klukkan 8,45 á mánudagskvöldið. Halda á Færeyja-mið Tíðindamaður Mbl., er skauzt sem snöggvast um borð í Ægi í gærkvöldi, spurði Jón Jónsson skipherra hvert hinir brezku togarar hafi farið, þá er her- skipin hættu að verja þá. • — Við heyrðum að togararnir myndu allir með tölu yfirgefa miðin hér við land, líka djúp- miðin, sjáðu til, sagði Jón, og þeir ætluðu ekki að kasta vörpunni aftur fyrr en þeir væru komnir suður til Færeyja. Áður hafði „commandörinn" á HMS Undine skýrt þeim frá því, að er vernd herskipsins ekki nyti lengur við, yrði það skip, sem halda vildi á- fram veiðum á fslandsmiðum, að gera það algjörlega á eigin á- byrgð. — Svarið frá togurunum var sem sé, að þeir myndu halda til Færeyja-miða. 140 körfur í hali Það var enginn fögnuður meðal skipstjóranna brezku, því á lög- brotasvæðinu, sem var út af Ing- ólfshöfða, komst aflinn upp í 140 Dómsmálaráð- herra til Gesiíar BJARNI Benediktsson dóms- málaráðherra, fer í dag utan tii þess að sitja ráðstefnuna í Genf. Utanrikisráðherra, Guð- mundur í. Guðumndsson, fór utan í gær, ásamt Hermanni Jónassyni, fyrrverandi forsætis- ráðherra. Áður voru farnir þeir Hans G. Andersen sendiherra, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri og Jón Jónsson fiskifræðingur. Lúðvík Jósefsson, fyrrv. sjáv- arútvegsmálaráðherra, sem er fulltrúi Alþýðubandalagsins í sendinefnd fslands á Genfar- ráðstefnunni, mun hins vegar ekki fara utan fyrr en í næstu viku. Ráðstefnan verður eins og kunnugt er sett á morgun. körfur af fiski í hali. Einn tog- aranna, sem var 17 mílur undan landi, bað um að fá frestinn lengdan, því svo mikil væri veið- in þar. En hann var ekki veitt- ur. Á þessum miðum var hvasst orðið um miðjan dag, svo að margir hinna minni togara og eldri, urðu að hætta veiðum. En meðal þeirra, sem lengst voru að var Churchill, og síðasti togar- inn, er fór út fyrir 12 mílna mörk in var Lord Montgomery. Hann er annar tveggja brezkra togara sem teknir hafa verið síðan Bretar hófu ofbeldisað- gerðir sínar hér við land 1. sept. 1958, — Skipzt á kveðjum — Og þið heyrðuð litið sem ekkert í brezka herskipinu svona undir lokin? — Jú, sagði Jón skipherra. Þeir sendu okkur kveðju á sunnudagsmorguninn. Loftskeyta maður herskipsins sendi okkur á ljósmerkjum kveðju „comman- dörsins“, þar sem hann bar fram ósk um að árangur mætti verða á Genfar-ráðstefnunni — og svo bætti hann við: — Ég vona að þú fáir orlof. Ég svaraði þessu með skeyti um að við væntum þess að commandörin fengi frí þegar hann kæmi heim. Gat orðið enn alvarlegra — Jón, en áður en ég fer, sagði blaðamaðurinn, var þetta ekki talsvert alvarlegt brot vestur við Jökul, þegar þið komust í kast við þann, sem eyðilagði netin fyrir Óiafsvikurbátum? — Jú, það var ljót aðkoma, og ég veit að „commandörinn" á herskipinu, sem verndaði lög- brjótinn, leit alvarlegum augum á þetta brot, þó „kallinn“ á tog- aranum reyndi á eftir að gera lí'ið úr þessu. Það hefði getað orðið miklu alvarlegra, því tog- ararnir voru það margir á þessu iögbrotasvæði. 1 sömu svipan og blaðamaður- inn var að kveðja skipherrann, kom skeyti um að brezka her- skipið „Undine“ myndi koma til Færeyja fyrir hádegi í dag. Námskeið um atvinnu- og verkalýðsmál NÆSTI fundur á stjórnmálanám- skeiðinu um atvinnu og verka- lýðsmál, verður í Valhöll í kvöld kl 8,30. Gunnar Thoroddsen, ráðherra, flytur fyrirlestur um fjármál. Þessar myndir, sem tekn- ar voru úr flnigvél Land- helgisgæzlunnar, Rán, síð- degis á mánudag, sýna tvo brezka togara sigla á fullri ferð út af lögbrotasvæðinu við Eldey — en þaðan voru þeir allir horfnir fyrir kvöld. /<S>- Kosningu í Frama í lýkur kvöld Beðið fyrir góðum árangri í TILEFNI hinnar alþjóðlegu ráð- stefnu í Genf um réttarfar á höf- unum og fiskveiðilögsögu, hefur biskup íslands ritað öllum þjón- andi prestum og próföstum þjóð- kirkjunnar bréf og hvatt þá til að minnast íslenzku fulltrúanna í bænum sínum. í bréfinu segir svo: „Vér Is- lendingar eigum mikið undir því að þar verði góðum, sanngjörn- um og viturlegum ráðum ráðið. Fulltrúar vorir á þessari ráð- stefnu eiga vandasömu hlu(verki að gegna. Ég vil því hvetja presta og söfnuði þjóðkirkjunnar til þess að minnast þeirra í bænum sínum, og mælist til þess, að við messur sunnudaginn 20. þ.m. verði beðið fyrir ráðstefnunni og réttlátum lyktum þeirra málefna hennar, sem sérstaklega snerta lífshagsmuni þjóðar vorra“ D----------------n Tal vann fyrstu skákina Moskva, 15. marz: FYRSTA skákin í einvígi þeirra Botvinniks og Taís um heims- meistaratililinn var tefld í dag. Fóru leikar þannig að Tal sigraði. — Næsta umferð verður tet'ld á fimmtudag. □--------------------□ STJÓRNARKOSNINGU í Bifreiðastjórafélaginu Frama heldur áfram í dag. Kosið er í skrifstofu félagsins, Freyjugötu 26, og hefst kosningin kl. 1 e. h. og stendur til kl. 9 e. h. og er þá lokið. TVeir listar eru í kjöri — A-listi lýðræðissinna og B-listi kommúnista. Bifreiðastjórar! Vinnið ötullega að sigri A-Iistans og tryggið sigur hans. X—A-LISTINN. r g Jumbo — ný barnasaga MORGUNBLAÐIÐ hefir undanfarið birt með mynd- skreytingum ýmis af hinum heimskunnu ævintýrum danska skáldsins H. C. Andersen, og hafa þau orð- ið vinsæl meðal barna, sem vænta mátti. — En nú er þeim lokið, og í dag hefst ný myndskreytt framhalds- saga fyrir börn, sem við vonum, að verði einnig hin- um ungu lesendum til ánægju, Sagan er um litla fílinn Júmbó, daglegt líf hans og ýmis ævintýri, sem hann og félagar hans lenda í. — Júmbó litli er í skóla hjá herra Leó, sem er hvorki meira né minna en kon- ungur dýranna — stórt og myndarlegt ljón. Hann er auðvitað ekkert lamb að leika sér við, ef í það fer, en yfirleitt er hann ákaf- lega góður við litlu nem- endurna sína. Af skólafélögum Júmbós koma þau rnest við sögu, r-T 1 I n sprelligosinn Teddi og Mikkí litla, sem er bezta vinkona Júmbós og hug- hreystir hann, þegar á móti blæs. Myndirnar hefir franski listamaðurinn J. Mora gert, og vonum við að þær — eins og sagan af honum Júmbó, sem er mesta gæðablóð, en stundum dá- lítill hrakfallabálkur — falli börnunum í geð. Júmbó litli hefir enn einu sinni orðið of seinn í skól- ann. — Hvað ætli kennar- inn, hr. Leó, segi nú? — Sjá bls. 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.