Morgunblaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 16. marz 1960
MORCVNBLAÐIÐ
19
Búnaðarþing
Á FUNDUM Búnaðarþings und-
anfarna daga hafa mörg mál
verið afgreidd.
Á laugardag var samþykkt
með samhljóða atkvæðum erindi
dýravemdunarnefndar um að
hafa eftirlit með því að gamlar
girðingar séu fjarlægðar, svo að
búfé stafi ekki hætta af þeim.
í»á var gerð ályktun um að mæla
með breytingu á jarðræktarlög-
um, þannig að túnrækt í sand-
jörð njóti sama styrks og hlið-
stæð ræktun í öðrum jarðvegi.
Framsögumaður var Jóhannes
Davíðsson.
Styrkir vegna votheysturna
Varðandi styrkbeiðni Einars
og Bjarna Eiríkssona til Alþingis
til tilrauna með nýja gerð vot-
heysturna, var afgreidd eftirfar-
andi ályktun: í tilefni af umsókn
bændanna í Miklaholtshreppi um
styrk frá Alþingi til bygginga á
votheysturnum úr Deborin-efni,
mælir Búnaðarþing með því að
Alþingi veiti ákveðna upphæð á
fjárlögum til tilrauna varðandi
byggingar í sveitum og ráðstafi
ráðgefandi nefnd um húsbygg-
ingar í sveitum fé þessu til ríkis-
búa og þeirra bænda, er stofna til
nýjunga í byggingamálum, sem
nefndin telur ástæðu til að
styrkja. — Framsögumaður var
Sveinn Guðmundsson.
í fyrri umræðu voru tvö mál,
erindi Sigurgrims Jónssonar
varðandi auknar rannsóknir bú-
fjársjúkdóma og lög Búnaðarfé-
lags íslands. — Framsögumaður
Gunnar Guðbj artsson.
Ályktun um silungsrækt
Á fundi Búnaðarþings á mánu-
dag flutti Pétur Gunnarsson, til-
raunastjóri, erindi um heyverk-
un. —.
Þessi mál voru tekin fyrir til
fyrri umræðu: Erindi Kvenfé-
lagasambands íslands varðandi
samstarf um heimilisráðunauta
við Búnaðarfélagið. Erindi Bún-
aðarsambands Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu varðandi leið-
beiningar um meðferð dráttar-
véla. Erindi Búnaðarsambands
S-Þingeyinga um almannatrygg-
ingar.
Silungsrækt og fiskeldi
Eftirfarandi ályktun var gerð"
varðandi erindi Gísla Indriða-
sonar um styrkbeiðni vegna sil-
ungsræktar: Búnaðarþing telur
sér ekki fært að veita styrk í
þessu skyni, en mælir með því
að Gísli Indriðason fái þá fyrir-
greiðslu, sem gert er ráð fyrir í
lögum um lax- og silungsveiði,
vegna stofnunar eldisstöðva.
Þá var afgreitt erindi veiði-
málastjóra varðandi fiskeldi með
eftirfarandi ólyktun: Búnaðar-
þing mælir eindregið með tillög-
um veiðimálastj óra til landbún-
aðarráðuneytisins um að ríkið
reisi fullkomna tilraunastöð fyrir
lax og silung.
Rannsóknir á Hvanneyrarveiki
I gær, þriðjudag, var enn rætt
samstarf Kvenfélagasambands ís
lands og Búnaðarfélagsins, út-
flutningur á stóðhestum til
Kanada, leiðbeiningar um með-
ferð dráttarvéla og reglugerð um
kosningar til Búnaðarþings, og
auknar rannsóknir á búfjársjúk-
dómum.
Var síðasttalda málið afgreitt
með ályktun: Þótt upplýst sé, að
nú standa yfir rannsóknir á
Hvanneyrarveiki (Listeroldosis)
í sauðfé í Tilraunastöðinni á
Keldum og við Búnaðardeild At-
vinnudeildar Háskólans, vill
Búnaðarþing leggja áherzlu á að
þessum rannsóknum verði haldið
áfram og þær auknar eftir föng-
um.
Bráðapest I sauðfé
Til fyrri umræðu var erindi
Búnaðarsambands Austurlands
varðandi innflutning holdanauta
og erindi Búnaðarsambands Eyj-
arfjarðar um innflutning sæðis
holdanauta og svína. Einnig er-
indi Rannsóknarstofu Háskólans
varðandi bráðapest í sauðfé og
var það afgreitt með eftirfarandi
ályktun:
Þar sem á sl. hausti voru ó-
venjumikil brögð að fjárdauða úr
bráðapest eða öðrum líkum sjúk-
dómi, bæði í bólusettu fé og
óbólusettu, einkum á Suðurlandi,
beinir Búnaðarþing því til stjórn
ar Búnaðarfélags íslands, að hún
hlutist til um við yfirdýralækni
og Rannsóknarstofu Háskólans
við Barónstíg, að sjúkdómur
þessi verði rannsakaður ýtarlega
og framleitt öruggt bóluefni gegn
honum, ef unnt er.
Að lokum var rætt um heyverk
un. Klemenz Kristjánsson hafði
framsögu.
Margir dúína-
ungar „munaðar-
lausir44
LÍTILL drengur 10 ára, dúfna-
vinur mikill og dúfnaeigandi,
varð fyrir barðinu á dúfnaþjóf-
um í fyrrinótt. Drengurinn sem
heima á að Sogamýrarbletti 43,
kom í gærmorgun að dúfnakofan
um sínum og varð þess þá strax
var að dúfunum hafði fækkað.
Er hann kom að hurðinni á kof-
anum voru almargir dúfnaungar
orðnir „munaðarlausir“. Höfðu
dúfnaþjófarnir stolið 8—10 dúf-
um og voru sumar þeirra með
unga sína í hreiðrum.
Telur drengurinn víst að þeir,
sem stálu dúfunum hans, haldi
þeim innilokuðum, því ella
myndu þær fljúga beint heim
aftur í sinn góða kofa. Kveðst
drengurinn ekki trúa öðru en að
þeir, sem tóku dúfurnar, sleppi
þeim er þeir heyra um litlu ung-
Með yfir 30 lestir
AKRANESI, 15. marz. — 20 bát-
ar eru á sjó héðan í dag. I gær
bárust 322 lestir á land af 17 bát-
um. Aflahæstir voru Sæfari 32,6
lestir, Sigurvon 31,7 lestir og Sig-
rún 30,1 lest. Afli bátanna var
ákaflega misjafn. — O.
Verzlunarfélag
Austurlands stofnað
Aðsetur v/ð Lagarfljótsbrú
MIÐVIKUDAGINN 9. marz
sl. var haldinn stofnfundur
verzlunarfélags að Helga-
felli í Fellnahreppi, N-Múl.
—• Fundarstjóri var Sveinn
Einarsson, bóndi, Miðhúsa-
seli. —•
Helgi Gíslason, bóndi, Helga-
felli, mælti fyrir stofnun félags-
ins og var samþykkt einnróma
að stofna félagið og hefja eins
fljótt og auðið er byggingu slát-
urhúss að Hlöðum við Lagar-
fljótsbrú. Heimili félagsins og
varnarþing verður í Fellna-
hreppi, Norður-Múlasýslu.
Mikill áhugi með féiags-
stofnunina
Margir fundarmenn tóku til
máls og var mikill áhugi með fé-
lagsstofnunina. Félaginu var gef-
ið nafnið Verzlunarfélag Austur-
lands.
í fundarlok var kjörin stjórn
félagsins en hana skipa: Helgi
Gíslason, bóndi, Helgafelli, Sig-
urbjörn Brynjólfsson, kaupm.,
Hlöðum við Lagarfljótsbrú, Þrá-
inn Jónsson, bóndi, Gunnhildar-
gerði, Þórður Benediktsson,
skólastjóri, Egilsstöðum, og Þór- |
ólfur Sölvason, bóndi, Snjóholti.
í varastjórn: Sveinn Einarsson,
bóndi, Miðhúsaseli, Ari Björns-
son, kaupmaður, Egilsstaðakaup-
túni. —
Mikil snjókoma
UM klukkan 7 í gærmorgun var
rigning hér í Reykjavík. —
Tveim tímum síðar var talsverð
snjókoma. Það var um klukkan
7,30, sem skyndilega breytti úr
rigningu í snjókomu. Snjóaði
mjög mikið fram til klukkan lið-
lega 10, en þá birti upp, gerði
glaðasólskin og hið fegursta veð-
ur, og hélzt það í allan gærdag.
Mikið krap var á götunum og
leiðindafæri fyrir gangandi, en
bílarnir ösluðu elginn
Vegna jarðarfarar
Aðalbjargar Sigfúsdóttur verða sölubúðir okkar
lokaðar allan daginn á morgun (fimmtudag).
Kjötborg h.f.
Búðargerði.
Kjötborg h.f.
Háaleitisvegi.
Skrifstofa mín
verður lokuð eftir hádegi í dag, vegna jarðarfarar.
JÓN N. SIGURÐSSON
hæstaréttarlögmaður.
Lokað
verður í dag eftir liádegi vegna jarðarfarar
Davíðs Jóhannessonar.
Magnús Th. S. Blöndahl hf.
Sendisveinn
óskast nú þegar.
Uppl. í skrifstofunni
Friðrík Bertelsen & Co hf.
Slipphúsið — (vesturendi)
Útför
HELGU JAKOBSDÓTTUR
Sturlu-Reykjum.
fer fram frá Reykholtskirkju fimmtud. 17. marz kl. 2 e.h.
Vandamenn.
Jarðarför
GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR
Grjótagötu 12,
fer fram fimmtud. 17. þ.m. kl. 3 e.h. frá Fríkirkjunni.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Fyrir hönd ættingja og vina.
Ólafur Jónsson.
Eiginmaður minn
DANDEL SIGURÐSSON
frá Kolmúla við Reyðarfjörð,
andaðist í Landsspítalanum 13. þ.m. Minningarathöfn fer
fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. þ.m. kl. 1,30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðný Jónsdóttir.
Frænka mín
Frk RAGNHILDUR JAKOBSDÓTTIR
frá Ögri,
andaðist í Bæjarsjúkrahúsi Reykjavíkur 13. þ.m. Kveðju-
athöfn fer fram í Dómkirkjunni föstudaginn 16. þ.m. og
hefst kl. 1,30. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Bálför
verður gerð í Fossvogi.
Jón Auðuns.
Systir mín
ELINBORG ÖSSURARDÓTTIR
sem andaðist 10. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtud. 17. marz kll 10,30. Blóm afþökkuð.
Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd móður og systkina.
Sigurvin Ossurarson.
Útför,
KRISTlNAR J. HAGBARÐ
fyrrver .kaupkonu
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 17. þ.m. kL
10,30 f.h.
Fyrir hönd aðstandenda:
Jóhanu Bernhard, Ragnheiður S. Jónsdóttir
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför dóttur okkar
INGIGERÐAR MAGGY
Fjóla Magnúsdóttir, Benedikt Guðmundsson,
Bolungarvík.
Innilega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns,
föður okkar og tengdaföður
GUÐMUNDAR ÞÓRÐARSONAR
frá Hól.
Ingibjörg Filippusdóttir,
Ingibjörg Ingvarsdóttir, Þórður Guðmundsson,
Guðrún G. Faaberg, Harald Faaberg,
Sigríður Guðmundsdóttir, Pétur O. Nikulásson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu við fráfall og
jarðarför
GUÐRÚNAR H. SCHEVING
Aðstandendur.