Morgunblaðið - 29.03.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. marz 1960 Kappræðufund urinn í kvöld Birgir Othar Pétur í KVÖLD kl. 20.30 hefst í Sjálfstæðishús- inu kappræðufundur milli Heimdallar og Æskulýðsfylkingarinnar, þar sem rætt verð- ur um efnahagsmál. Umferðir verða fjórar: 15, 10 og 10 mínútur. Ræðumenn verða þrír af hálfu hvors aðila. Æskulýðsfy Ikingarmenn byrja fundinn, en Heimdallarmenn enda. — Fundarstjóri verður Æskulýðsfylkingarmaðurinn Sigurð- ur Guðgeirsson, en honum til aðstoðar af hálfu Heimdallar verður Jóhann J. Ragn- arsson. Ræðumenn Heimdallar verða Birgir ísl. Gunnarsson, stud. jur., Othar Hansson, fiskvinnslufræðingur, og Pétur Sigurðsson, alþingismaður. Ræðumenn Æskulýðsfylkingarinnar verða Eysteinn Þorvaldsson, blaðamaður, Guð- mundur J. Guðmundsson, skrifstofumaður, og Ingi R. Helgason, lögfræðingur. Eins og kunnugt er hefur fundur þessi verið allengi á döfinni, en honum hefur verið frestað hvað eftir annað að beiðni kommúnista. Þess er að vænta, að Sjálfstæðismenn fjölmenni á fund þennan og sýni kommún- istum, að Reykvíkingar eru þess albúnir að standa vörð um viðreisnaraðgerðir ríkis- stjórnarinnar. Húsið verður opnað kl. 20.00. 0K0 0 0 0 0 0 0-0 0 0 0 0 0..0<0 0 0 00000000 ** * 0 * 0 * Skyndileit að áfengi í um 30 bílum Á brúarvæng Þórs, er hann kom til Vestmannaeyja á laugar- daginn. Á brúnni stendur milli tveggja manna forstöðumaður Landhelgisgæzlunnar. í brúarglugga Þórarin Björnsson skip- herra. Maðurinn í dökku fötunum á brúarvæng er Guðbjartur Ólafsson, forseti SVFl. (Ljósm.: Sigurgeir J., Vestmeyjum) Setið í góðum fugnuði í Þór MILLI kl. 10 og 11 á laugardags- kvöldið lét lögreglustjórinn hér í Reykjavík gera skyndileit að áfengi í leigubílum, þar lem þeir stóðu á bílastæðum við Borgar- bílastöðina í Hafnarstræti og á aðalstöð Hreyfils við Kalkofns- veg. Til embættisins hafa undanfar- ið borizt mjög ítrekaðar kvart- anir varðandi meinta ólöglega áfengissölu. Nokkrum klst. áður en lögreglan var látin hefja skyndileitina, höfðu lögreglu menr staðið leigubílstjóra einn að því að afhenda 16 ára ungl- ingi áfengi í bíl sínum. Þetta kvöld var svo gerð skyndileit í um 30 leigubílum á tveim fyrrnefndum bílastöðvum í sumum bílanna fundust 1—2 flöskur, í allmörgum fundust 3—4, en mest í einum bíl fundust 9 flöskur af áfengi. — Átök Frh. af bls. 1. málaforingjar mótmælt stefnu S-Afríkustjórnar. Nehru sagði m. a. í dag, að ef stjórnin héldi áfram sem nú horfði væri ekki annað sýnt en í S-Afríku væru að hefjast kynþáttaofsoknir og útrýming sams konar og kennd hefði verið við Hitler. í London kom til átaka yfir helgina á Trafalgar-torgi í sambandi við mótmælafund gegn S-Afríku- stjóm og blóðsúthellingunum þar. — Dagskrá Alþingis DAGSKRÁ sameinaðs Alþingis í dag kl. 2: Fjárlög 1960, frv. — Frh. 3. umr. (Atkvgr.). Dagskrá efri deildar Alþingis í dag að loknum fundi í samein- uðu þingi: Alþjóðasamningur um fiskveiðar á norðausturhluta At- lantshafs, frv. 1. umr. 1 gærdag varð verið að vinna úr skýrslum og lá þá ekki fyrir hve margir bilstjóranna myndu verða kærðir fyrir leynivínssölu. — Vestmannaeyjum, 28. rharz. SVO sem getið var í blaðinu á sunnudaginn, kom varðskipið Þór til Vestmannaeyja í tilefni af 40 ára afmæli Björgunarfélagsins hér. Hafði Landhelgisgæzlan boð inni um borð í skipinu fyrir nokkra gesti á laugardagskvöld. Við það tækifæri voru margar ræður haldnar. Pétur Sigurðsson, forstjóri bauð gesti velkomna og gat tilefnia þessa mannfagnaðar. Að ræðu hans lokinni talaði Karl Einarsson fyrrum sýslumaður hér. Var Karl einn þeirra manna, sem mest kom við sögu við stofn un Björgunarfélags Vestmanna- eyja. Gat Karl í ræðu sinni á skemmtilegan og látlausan hátt, um ýmislegt varðandi félagsstofn unina og rifjaði upp gamlar end- urminningar í sambandi við hana. Jóhann Þ. Jósefsson, fyrr- um ráðherra, sem einnig var með al stofnenda og fyrsti fram- kvæmdastjóri félagsins, talaði einnig um ýmislegt viðvíkjandi stofnun félagsins og rakti sögu þess. Ýmsir fleiri tóku til máls, og sátu menn í góðum fagnaði fram eftir kvöldi. — Bj. Guðm. - SH Frh. af bls. 1. . veitinganefndar, gerði grein fyr- ir þessari tillögu í framsöguræðu sinni fyrir breytingatillögum við frumvarpið við 3. umræðu. Kvað hann alla fulltrúa fjárveitinga- nefndar nema Karl Guðjónsson standa að henni. Þessari hrað- frystistöð væri ætlað það hlut- verk, að greiða fyrir sölu ís- lenzkra fiskafurða á Vestur-Ev- rópumarkaði og væri talið nauð- synlegt að koma henni á fót, ef þar ætti að vinnast verulegur markaður fyrir hraðfrystan fisk. Hliðstæðri hraðfrystistöð hefði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna þegar komið upp í Bandaríkjun- um og hefði hún gefið mjög góð- an árangur. Stofnkostnaður við þessa hraðfrystistöð væri áætlað ur 525 þús. dollarar, en Sölumið-. stöðin þyrfti á 400 þús. dollara láni að halda til framkvæmd- anna og teldi meiri hluti fjárveit- inganefndar sjálfsagt að leggja til að ríkisábyrgð yrði veitt fyxir þessu láni. Mbl. spurðist fyrir um það hjá forvígismönnum SH í gær hvað þessu máli liði. Yar því svarað, að það væri enn á algeru byrjun- arstigi, en á síðasta aðalfundi hefði verið samþykkt að koma upp aðstöðu í Hollandi. Umbeðin ábyrgð væri nauðsynleg vegna möguleika á væntanlegu láni. I 1 DAG eru fáar línur á kort- s inu, enda er veður stillt og ) meinlaust á öllu svæðinu. Lit- ^ ið regnsvæði er á Grænlandi, S en leysist sennilega upp að í mestu leyti áður en það nær • hingað. í gærmorgun olli það ( s'æmu skyggni í Angmagsalik, S rvo að ,,Sólfaxi“ varð að fresta • biottför héðan í 5 klst. ( Yfir sunnanverðu Frakk- S landi er grunn lægð. enda er | rakin NA-átt á breiðu svæði i frá Eystrasalti til Azoreyja og S hiti 4—12 stig. A Labrador- \ skaga er kalt og bjart vetrar- Neyðarsími við Keflavíkurhöfii KEFLAVÍK, 25. marz. ■— Neyðarsíma hefur verið komið upp við Keflavíkur- höfn. Síminn er staðsettur miðsvæðis við höfnina, utan á skrifstofubyggingu hafn- arinnar. Ætlast er til að brjóta rúðu og opna kassann sem síminn er í og er þá hægt að ná sambandi við Slökkvilið, lögreglu, sjúkra- hús og sjúkrabíl og hverja aðra hjálp sem nauðsynleg er. Helztu símanúmer, sem nota þarf sjást inni í kass- anum þegar opnað er, en þau eru: Slökkvistöðin 03, Lögregla 1110, Sjúkrahús 1401. Síma þennan er að- eins ætlað að nota í neyðar- tilfellum og er að honum mikið öryggi, fyrir þá sem við höfnina vinna og í bát- unum eru, því engin tiltæk- ur simi er í nálægð við höfnina að nóttu til. Eggert Jónsson, bæjarstjóri beitti sér fyrir uppsetningu þessa síma í samráði við hafnar- stjóra og símastjórann í Keflavík. Castro olsobor sig HAVANA, 28. marz: — Castro, forsætisráðherra Kúbu, sagði í ræðu í gær, að hann mundi láta jafna allar sykurmyllur Kúbu við jörðu, „ef einhver erlend árásar- öfl“ réðust gegn stjórn sinni. Dró hann enga dul á, að þar átti hann við Bandaríkin, sem hann sagði að væru að reyna að grafa undan stjórn sinni. Castro hefur nú afsakað óbeint árás sína á Bandaríkjastjórn, í sambandi við sprenginguna í vopnaflutningaskipinu í Havana- höfn. Sakaði hann Bandaríkja- menn um að hafa staðið að sprengingunni, sem kostaði 70 menn lífið, en síðar lýsti hann því yfir, að hann hefði engin sönnunargögn, en væri líklega heimilt að draga sínar ályktanir. Jafnframt tilkynnti. hann, að Kúbustjórn hefði ekkert á móti því að bandaríski sendiiherrann kæmi aftur til Havana. veður með 34 stiga frosti víða , (í Goose Bay er 24 st. frost).s s i Veðurhorfur kl. 22 í gær- j kvöldi: ■ Suðvesturland til Vestfjarða ^ og miðin: Hægvirði, úrkomu- s laust að mestu, léttskýjað með i köflum. Norðurland til Aust-( fjarða, norðurmið og norð- s austurmið: Hægvirði létt skýj- i að í dag. Austfjarðarmið: Hæg £ virði, þoka til hafsins. Suður- s land og miðin: Stillt og bjart i veður: • Skip til síldarflutninga frá bátum í verksmiðjur FJÁRVEITINGANEFND hefur lagt til að ríkisstjórninni verði heimilað að ábyrgjast allt að 500 þúsund kr. lán fyrir síldarverk- smiðjur ríkisins í Krossanesi og á Hjalteyri vegna leigu á skipum til síldarflutninga frá fjarlægum miðum. í framsögu fyrir tillögu þessari gat formaður fjárveitinganefnd- ar, Magnús Jónsson, þess, að hér væri um tilraun að ræða til að tryggja rekstur þessara stóru verksmiðja, sem undanfarin ár V-Þjóðverjar fá stöðvar í Belcfíu BRUSSEL, 28. marz: — Stjómir Belgiu og V-Þýzka lands hafa gert með sér gagnkvæma samninga um birgðastöðvar fyrir heri sína í löndunum, v-þýzki herinn fær stöðvar í Belgíu og sá belgíski í V-Þýzka- landi. Samningarnir voru undirritaðir í dag og segir í tilkynningu þar að lút- andi, að í stöðvum v-þýska hersins í Belgíu verði að- eins fáeinir þýzkir yfir- menn, aðrir starfsmenn verði belgískir. Þessi samn- ingur er gerður innan ramma Atlantshafsbanda- hefðu fengið sáralítinn afla til vinnslu því síldin hefði veiðzt á miðum svo fjarri þessum verk smiðjum. Ef tilraun þessi bæri góðan árangur ynnist tvennt. Rekstur þessara stóru verksmiðja yrði tryggður og jafnframt yrði síldarskipunum auðveldari veið in, þar sem aflinn væri hverju sinni ef þau gætu losnað við síld armagn sitt þegar í stað en þyrftu ekki að bíða dögum sam- an eftir löndun á stöðum, þar sem aðeins eru afkastalitlar verk smiðjur. Þá leggur fjárveitinganefnd ennfremur til, að ríkisstjórnin á- byrgist gegn þeim tryggingum, sem hún tekur gildar allt að 10 millj. kr. lán til endurbóta á síldarverksmiðjum á Austur- landi, enda verði umbæturnar gerðar í samráði við ríkisstjórn- ina. AKRANESI, 28. marz. — Laugar dagsaflinn af 21 bát reyndist vera 175 tonn. Engan sjómann hef ég hitt að máli síðustu daga, sem hallmælt hafa þeim ráðstöfunum, sem tal- ið er nauðsynlegt að gera til að vanda sem mest alla meðferð fisksins. Af þessum samtölum ræð ég það að Akurnesing- um muni Ijúft að leggja stolt sitt og manndóm sem fyrr í það að vanda útflutningsvöru sína. í dag eru 20 bátar á sjó. Á sunnudaginn var yfirleitt heldur tregur afli hjá flotanum. — 0.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.