Morgunblaðið - 29.03.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.03.1960, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. marz 1960 MORGVTSBLAÐIÐ 3 Fra Kefla- vík ÞESSA mynd tók ljósmyndari Morgunblaðsins, Ól. K. Magn- ússon, á Keflavíkurflugvelli á laugardaginn. Myndin er af Macmillan, forsætisráðherra Bretlands og Sir William Penney, þekktasta kjarnorku- fræðingi Breta, sem var í för með ráðherranum enda ræðir Macmillan fyrst og fremst við Eisenhower um síðasta gagn- tilboð Rússa um bann við kj arnorkuvopnatilr aununum. Á meðan viðræður þeirra Macmillans og Eisenhowers standa yfir í Camp David, verður gert hlé á kjarnorku- ráðstefnunni í Genf. Sir William er ráðunautur brezku stjórnarinnar í kjarn- orkumálum og í miklu áliti. Eins og lesendur Morgunblaðs ins muna, sagði brezki forsæt- isráðherrann brosandi, þegar hann kynnti kjarnorkufræðing sinn fyrir íslendingum: — Þetta er Sir William Penney, mesti maður heimsins. Á myndinni sjást þeir ræðast við á flugvallarhótelinu. Þegar komið var upp á loft, tók for- sætisráðherrann Sir William afsíðis og ræddi við hann stundarkorn einslega. Frétta- maður Morgunblaðsins heyrði óvart á tal þeirra. Macmillan skýrði kjarnorkufræðingnum frá tilhögun viðræðnanna við Eisenhower, hvernig ferðalag inu yrði háttað til Camp Dav- id og minntist á ýmislegt fleira þessu varðandi. Var þetta stutta samtal þeirra, með miklum alvörublæ, eins og á myndinni sést og hlustaði Sir William með athygli. Hann lagði lítið til málanna en játti því, sem forsætisráðherrann sagði. til Camp Oavid 1 gær ræddust þeir Mac- millan og Eisenhower við í Washington en síðan fóru þeir með þyrilvængju frá Hvíta húsinu til Camp David og í morgun hófust viðræður þeirra fyrir alvöru. Herter, ut- anríkisráðherra Bandaríkj- anna, kemur þangað á morg- un og einnig Sir William Penney. Skömmu eftir að þeir Mac millan komu til sveitarseturs- ins Camp David kom Eisen- hower út og á götunni fram- an við húsið las forsetinn sam eiginlega yfirlýsingu þeirra fyrir blaðámenn. Sagði þar, að leiðtogarnir tveir væru þess fullvjssir, að viðræðurnar mundu leiða til samkomulags um það hvernig þessi tvö bandalagsríki gætu framvegis leitazt sameiginlega við að tryggja heiminum réttlátan og sannan frið. í Reuters-skeyti segir, að búizt sé við því að Bandaríkin fallist á að ganga til samkomu lags um bann við ötlum kjarn orkutilraunum, enda þótt ekki sé hægt að hafa eftirlit með því að banninu sé framfylgt af ötlum aðilum, því litlar neð- anjarðarsprengjur mun vera hægt að sprengja á laun. Tal- ið er, segir ennfremur, að Bret ar séu fúsir til að samþykkja þetta fyrir sitt leyti og ganga þar með að síðustu gagntillögu Rússa. Bandaríkjamenn eru sagðir líklegir til að fallast á slíkt bann til bráðabirgða, meðan sameiginlegar athugan ir fara fram á heppilegu og virku eftirlitskerfi, segir Reut er að lokum. STAKSIEINÁR Macmillan og íslenzki bjórinn Macmillan, forsætisráffhenta Breta, fékk íslenzkan útflutn- ingsbjór, svokallaðan Egil sterka, aff drekka suffur á Keflavíkur- flugvelli er hann kom þar viff á leið sinni til Washington sl. laugardag. Macmillan kvað þetta vera prýðisbjór og hélt að hann vaeri danskur. Þessi ummæli vekja menn hér heima enn til umhugsunar um þaff, hversu frámunalega heimskulegt þaff er, að þjóff, sem leyfir sölu á hverskonar vínum og brenndum drykkjum skuli ekki leyfa sölu á svipuðum bjór og allar nágrannaþjóðir okkar neyta. Síðan áfengislöggjöf okkar var breytt og nokkru meira viti komið í hana fyrir fáum árum, hefur veriff leyft aff brugga hér sterkan bjór til útflutnings. Af því leiðir að erlend sendiráð hér á landi og varnarliffið á Kefla- víkurflugvelli mega kaupa hann. Óþörf gjaldeyriseyðsla Hins vegar fá íslenzk skip, sem sigla til útlanda, ekki aff kaupa Egil sterka. Er óhætt aff full- yrða aff kaupskipaflotinn ís- lenzki verji á ári hverju nokkr- um hundruff þúsunda króna til kaupa á erlendum bjór. Vitan- lega er hér um aff ræffa algerlega óþarfa gjaldeyriseyffslu. Ef í«- | lenzki kaupskipaflotinn mætti kaupa Egil sterka, væri hægt aff spara þessa gjaldeyriseyffslu. Þar aff auki fælist veruleg vörukynn- ing í sölu Egils sterka um borS í kaupskipaflota okkar, sem íjöldi útlendinga ferffast meff á ári hverju. Efflilegast væri að stíga sporiff heilt og leyfa sölu á sterkum bjór hér á landi, eins og tíðkast í öllum nágrannalöndum okkar. Ekkert bendir til þess, aff slíkur drykkur -nyndi fara verr meff ís- Iendinga en „Svarti-dauðinn" og annaff brennivín og sterkir drykkir, sem hér eru á áboffstól- um. Kreppustefna Framsóknar Sex milljónir i Mýrdalssand Frá Alþingi Fjárveitinganefnd leggur til við 3. umræðu fjárlaga, að ríkis- stjórninni sé heimilað að verja allt að sex milljónum króna til samgöngub'óta á Mýrdalssandi á þessu ári. Formaður nefndarinn- ar, Magnús Jónsson, gerði grein fyrir þessari tillögu á fundi sam- einaðs þings í gær. Skýrði hann svo frá, að vega- málastjóri hefði gert áætlun um viðgerð á veginum yfir Mýrdals- sand og samkvæmt þeirri áætlun mundi viðhlítandi endurbót kosta allt að sex milljónum. Væri þá gert ráð fyrir að byggja tvær brýr aðra 100 metra en hina 50 metra. Vegamálastjóri tæki það fram í greinargerð sinni fyrir þessari kostnaðaráætlun, að ekki væri að vita hvort þessar fram- kvæmdir kæmu að gagni eða yrðu nýjum náttúruhamförum að bráð. Magnús Jónsson kvað nauðsyn- legt að þetta mál yrði kannað til hlítar áður en ákvörðun yrði tek- ín um að verja þessum sex millj- ónum í Mýrdalssand. Enda þótt nefndin legði til að þessi heimild yrði veitt, væri vafasamt hvort rétt væri að nota hana á þessu ári. Hann skýrði einnig frá því, að nú væri unnið að athugun á kostnaði við að gera Fjallabaks- BANDARÍSKI fjallamaðurinn Nicholas Clinch, sem íslending- um er kunnur síðan hann var hér og kleif m.a. Hraundranga í Öxnadal ásamt tveimur íslenzk- um fjallamönnum, er staddur hér á landi og hefur hér nokkurra daga viðdvöl á leið sinni til Evrópu, en hann er nú að útbúa sameiginlegan leiðangur Banda- ríkjamanna og Pakistanbúa á hinn 25.600 feta háa Masther- brumtind í Himalayafjöllum, en þann tind hefur engum tekist að klífa hingað til. Árið 1958 fór Nicholas Clinch annan leiðangur í Himalayafjöll- in ,en þá tókst honum og félög- um hans að komast fyrstir á ellefta hæsta tind í heimi, Gas- herbum eða ,Falda tind“, sem er um 8000 m. hár. Ætlar Clinch að flytja erindi og sýna litskugga leiðirnar færar, en þar yrði þó naumast um að ræða nema sum- arleiðir. myndir frá þeim leiðangri á fundi Jöklarannsóknarfélagsins í Tjarnarkaffi í kvöld kl. 20.30. Sæmilegur afli í Eyjum í gær Vestmannaeyjum, 28. marz. — Afli Eyjabáta var yfirleitt tregur í gær. í dag hefur aftur heldur lifnað yfir veiðunum. Margir bát- ar eru með 1500 til 2000 fiska og allmargir hafa fengið 2000—3000 og nokkrir voru með afbragðs afla. Hæstu bátar sem vitað var um klukkan 9 í kvöld, voru Júlía með 5000 fiska, Sidon 4400 fiska, Vonin 4200, Gjafar sama, Sindri 4000 og Björg Ve með 3900. — Bj. Guðm. Mildur vetur á Austurlandi Skriöuklauasti á yngismanna- daginn. TlÐARFAR hefur verið mjög milt nú síðari hluta Góunnar. Lengst af hlákur. Má nú heita snjólaust í byggð og mjög snjólítið allt til heiðabrúna. Hér kom þriggja vikna vetrar- tíð síðari hluta febrúar og fyrstu viku marz. Voru þá hríðarveður, en snjókoma ekki mikil. Nokkuð hefur rignt undanfarið og er jörð mjög blaut og mikill aur á vegum. Síðustu sköflunum var rutt af veginum til Egilsstaða fyrir helg- ina. Leiðin var þó ekin á jeppum áður. Mjög er þessi vetur mildur, það sem liðið er, og með fádæm- um snjóléttur og frostalaus. — Ekki er þó öruggt að vorið sé komið, en það er von manna að vel vori. — J. P. Tímamenn tala nú mikiff un þaff, að stefna núverandi ríkis- stjórar sé kreppustefna. En hvaff hét þá sú stefna, sem vinstri stjórnin fylgdi? Sagffi ekki Hermann Jónasson 4. desember 1958, þegar vinstri stjórnin sagffi af sér, aff „ný verff- bólgualda væri risin“ og af henni steffjaffi mikil hætta aff þjóðinni. Var þaff ekki stefna vinstri stjórnarinnar, sem skapaði þessa nýju verffbólguöldu? Og hvaffa stefnu fylgdi hln fyrri vinstri stjórn Hermanns Jónassonar á árunum 1934—38? Þá gengu atvinnutækin saman, atvinnuleysi magnaðist, láns- traust þjóðarinnar út á viff þvarr, tollar og skattar voru hækkaðir og gengi íslenzkrar krónu féll. Var þetta ekki einmitt greinileg- asta „kreppustefna‘% sem íslend- ingar hafa nokkru sinni búiff við? Núverandi ríkisstjórn fylgir allt annarri stefnu. Stefna henn- ar er viffreisn. Hún segir þjóff- inni sannleikann um efnahags- ástand hennar og gerir raunhæf- ar ráffstafanir til þess aff rétta efnahag hennar við. Hún vill forða þjóffinni frá þvi að búa viff kreppustefnu um alla framtíð. f staðinn vill hún leggja grundvöll að áframhaldandi uppbyggingu og framförum i landinu. Flytur fyrlrlestur um Himalajaleiðangur sinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.