Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 5
Þriðjudagur 29. marz 1960
MORCVTSELAÐIÐ
5
Búðarmaðurinn: — Hvernig
passa skórnir, frú?
Frúin: — Ágætlega — en þeir
meiða mig anzi mikið, þegar ég
fer að ganga á þeim.
„Hvað borðar guð um hádeg-
ið mamma?“ spurði Villi litli.
„Uss, þú mátt ekki spyrja
svona“, anzaði mamma hans. —
„Guð borðar engan hádegismat,
Villi minn“.
„Nú, borðar hann þá kjötið um
kaffið?“
MENN 06 í
= MALEFN!=
I KVÖLD verður flutt tón-
Iist eftir dr. Pál ísólfsson í
útvarpinu og flytur hann á-
varp í tilefni þess, að hann
hætti störfum við útvarpið
um áramótin síðustu. Flutt
ar verða tvær leikhússvítur:
„Myndabók Jónasar Ilall-
grímssonar“ og „Veizlan á
Sólhaugum". Auk þess Int-
roduktion og Passacaglía
fyrir orgel, píanólög og kór-
lög.
Dr. Páll er á förum til út-
landa.
Sextug er í dag frú Katrín
Markúsdóttir. Hún verður stödd
að Köldukinn 30, Hafnarfirði.
Gefin voru saman í hjónaband
26. þ.m. af sr. Jóni Auðuns, ung-
frú Guðmunda Jónsdóttir, Mið-
skógi, Miðdölum, Dalasýslu og
Einar J.H. Kristinsson Bústaða-
vegi 63. Heimili þeirra verður
fyrst um sinn að Bústaðavegi 63.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sr. Jóni Þorvarðar-
syni ungfrú Sigrún Sigurðardótt
ir, Mávahlið 26 og Clyde Wilson,
Keflavíkurflugvelli.
Hvað varð
um þá ?
ENSK húsmóðir Winifred Wilson
var á leið í rúmið er henni varð
litið út um gluggan og sá tvo
menn úti, er hegðuðu sér á all-
an hátt grunsamlega. Hún
hringdi í snatri í Scotland Yard
og næstu fimm mínúturnar lýsti
hún fyrir þeim jafnóðum, er
mennirnir rændu í verzlun á hæð
inni fyrir neðan íbúð hennar. —
Nú brutu þeir gluggann, sagði
frú Wilson í símanum. — Nú eru
þeir að flytja sjónvarpstæki út í
bílinn — nú koma þeir með út-
vörp ...
Þegar þjófarnir óku brott með
150 sterlingspunda verðmæti i
fórum sínum ,sagði hún lögreglu
mönnunum frá númeri bifreiðar-
innar og lýsti mönnunum ná-
kvæmlega.
Daginn eftir var hringt til
hennar og henni þökkuð aðstoð-
in.
— En hvað varð um mennina?
spurði frúin.
— Við erum ennþá' að leita
þeirra, var svarið.
Læknar fjarveiandi
Guðmundur Björnsson fjarv. frá 27.
marz, óákveðið. Staðg.: Skúli Thor-
oddsen, Austurstr. 7, viðtalst. kl. 10—
11 og 4—6.
Sigurður S. Magnússon læknir verð-
ur fjarverandi frá 14. marz um óákv.
tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson,
Vesturbæjarapóteki. Viðtalstími 3,30—
4 alla virka daga nema laugardaga.
Sími 1-53.40.
Snorri P. Snorrason, fjarv. 3—4 mán-
uði frá 22. febr. — Staðgengill: Jón
Þorsteinssos.
Myndin hér að ofan er af
þotuflugmanninum Major
Frank Forsyth þar sem hann
situr í stjórnklefa flugvélar
sinnar og lýsir því er hann
flaug vélinni frá Kaliforníu
til Florida án þess að snerta
n~kkru sinni við stýrisút-
búnaðinum.
Leiðin var meira en 3000
km. löng og tilraunin heppn-
aðist vel, en vélin var búin
elektróniskum útbúnaði og
fór öll stjórn vélarinnar
fram á jörðu niðri. Forsyth
tók aðeins þátt í stjórninni,
er flugvélin tókst á loft og
síðast í lendingunni.
Tilraunir sem þessar verða
eflaust mikilvægar í flugi
næstu ára, því að hraðinn er
að verða svo gífurlegur, að
viðbrögð flugmannsins ein
nægja ekki lengur til stjórn-
ar.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er í
hringferð vestur um land. Herðubreið
er á Austfjörðum. Skjaldbreið fór frá
Rvík í gær vestur til Akureyrar. Þyrill
er á Raufarhöfn. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 21 1 kvöld til
Rvíkur.
H.f. Jöklar.: Drangajökull er á leið
til Islands. Langjökull er í Vestmanna
eyjum. Vatnajökull er í Rvík.
Hf. Eimskipafélag íslands: — Detti-
foss er á leið til Rvíkur, einnig Fjall-
foss. Gullfoss er á leið til Leith og
Rvikur. Lagarfoss er á leið til Isa-
fjarðar. Reykjafoss er í Keflavík. Sel
foss er í Ventspils. Tröllafoss er á
leið til Rvíkur. Tungufoss er á leið
til Hull.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: —
Katla fer í dag til Spánar. Askja er á
leið til Italíu.
Hafskip hf.: Laxá er í Keflavík.
Loftleiðir hf.: Edda er væntanleg
kl. 7:15 frá New York. Fer til Glasgow
og London kl. 8:45.
Flugfélag islands hf.: — Gullfaxi er
væntanlegur til Rvíkur kl. 16:10 í dag
frá Kaupmannahöfn og Glasgow. Flug
vélin fer til Glasgow og Khafnar kl.
8:30 í fyrramálið. — Innanlandsflug:
I dag til Akureyrar, Blönduóss, Egils-
staða, Sauðárkróks og Vestmannaeyja.
A morgun til Akureyrar, Húsavíkur,
V estmannaey j a.
Reynið að nota skúmgúmmí í
botninn á eldhússkúfunum í
staðinn fyrir pappir. Það hefur
marga kosti, t. d. ruglast ekki
eins í skúffunum þegar þær eru
dregnar út, það situr fast í skúff-
unum, svo að ekki þarf að festa
það niður með teiknibólum, og
auðvelt er að halda því hreinu.
Starfsstúlkur
vantar á Hótel Botrg
Uppl. í skrifstofunni.
Verkamenn óskast
nú þegar.
Byggingafélagið Bru h.f.
Sími 16298.
Skrifstofumaður
óskast nú þegar til skrifstofustarfa við Banka-
stofnun.
Framtíðaratvinna
Upplýsingar um aldur, fyrri störf og
menntun sendist afgr. Mbl. merkt:
„Banki — 4324“.
Til sölu
Bökunarvél fyrir ísform. Hentug til aukavinnu.
Upplýsingar í síma 34555.
Stálfiskiskip
150 rumlestir
Getum útvegað 150 rúmlesta stálfiskiskip
frá Austur-Þýzkalandi til afgreiðslu á
næsta ári.
DESA h.f.
Hafnarhúsinu, Reykjavík.
Símar 13479 og 15401.
H úsbyggjendur
Húseigendur
Upplýsingar og sýnishorn frá 47 helztu
fyrirtækjum landsin.
Opið alla virka daga kl. 1—6
e.h. nema laugardaga kl. 10—
12 f.h.
Einnig miðvikudaga
kl. 8—10 e.h.
Byggingaþjónusta A í
Uaugavegi 18A — Sími 24344.