Morgunblaðið - 29.03.1960, Page 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. marz 1960
Úr dagbók aðstoðarmanns Tals:
aráttan hafin
BLAÐIÐ birtir hér fyrsíu
g;reinina í greinarflokki um
keppnina um heimsmeistara-
titilinn í skák, sem aðstoðar-
maður Mikails Tals, sovézki
skákmeistarinn og þjálfarinn,
A. Koblenz, sendir Freysteini
Þorbergssyni til birtingar fyr-
ir íslenzka skákvini. Aðstoðar-
maðurinn hefur alið Tal upp
í skákinni frá blautu barns-
beini, en Koblenz hefur, sem
kunnugt er um langt skeið
haft skákskóla í Riga. Er ekki
að efa, að Koblenz hefur góða
yfirsýn yfir gang kcppninnar
úr sætisínuáleiksviðinuíPúsk
ínleikhúsinu. Freysteinn Þor-
bergsson þýðir athugasemd-
irnar úr rússnesku. Fyrstu
þrjár skákirnar töfðust vegna
misfara símskeytis, en fram-
haldið er væntanlegt reglu-
lega.
Þess má geta hér, að á skák-
kvöldi í Silfurtunglinu í
kvöld mun Freysteinn Þor-
bergsson meðal annars flytja
nýjustu fréttir af heimsmeist-
arakeppninni. Kvöldið hefst
klukkan níu og er aðgangur
öllum heimill.
Fyrir yfirfullu Púskínleikhús-
inu hófst þá að lokum hin lang-
þráða barátta tveggja sterkustu
skámkanna nútímans, Botvinniks
og Tals.
Þegar Tal í fyrstu skákinni lék
sínum uppáhaldsleik, kóngspeð-
inu fram um tvo reiti — heyrðist
í salnum hálfkæfður kliður eftir-
væntingarfullra radda. Nokkrar
mínútur liðu, og Botvinnik lék
svarleik sínum — kóngspeðinu
fram um einn reit. Frönsk
vörn! Hinir skynugu áhorfendur
Moskvuborgar vissu þegar í stað
hvað þetta þýddi — að þeir yrðu
nú vitni að þrotlausri og misk-
unnarlausri baráttu „til síðasta
blóðdropa." Augu Mikails Tals
skutu gneistum af ánægju, ekki
vegna þess að honum hafði tek-
izt að veiða andstæðing sinn í
ákveðna snöru, heldur auðsjáan-
lega sökum þess, að hann fékk nú
að berjast við hugrakkann bar-
áttumann.
Eftir næstum brjálkenndar
flækjur endaði skákin, sem kunn
ugt er, með sigri Tals. Hin djarfa
tilraun heimsmeistarans til að
fella andstæðinginn með hans
eigin vopnum fór þannig út um
þúfur. Lítum á skákina:
Hvítt: Tal. — Svart: Botvinnik
1. e4, e6; 2. d4, d5; 3. Rc3, Bb4;
4. e5, c5; 5. a3, Bxc3; 6. bxc3, Dc7;
7. Dg4, f5; 8. Dg3, Re7; 9. Dxg7,
Hg8; 10. Dxh7, cxd4; 11. Kdl!
Þessi sakleysislegi leikur Euzæ
er ekki allur þar sem hann er
séður. 11. — Bd7. Staðan, áður en
þessum leik var leikið, kom upp
í skákinni Gligoric — Petrosjan i
áskorendamótinu. Þar lenti svart
ur í ógöngum eftir 11. — Rc6.
I þessari skák reynir Botvinnik
að endurbæta leiðina fyrir svart-
an, en strax næsti leikur hvíts
leggur torleysanleg verkefni fyr-
ir hann. 12. Dh5, Rg6; Það er ekki
ánægjulegt að þurfa að leyfa
leppun manna sinna, en eftir
12. — Kd8 ætti svartur erfitt með
að koma hróknum á a8 í leikinn,*
en það er einmitt á dagskipan
svarts i þessu varnarkerfi að
koma drottningarmönnunum sem
fyrst í víglínuna. 13. Re2! Eins og
Botvinnink tiíkynnti eftir skák-
ina, hafði hann vanmetið styrk-
leika þessa leiks í heimarann-
sóknum sínum. 13. — d3; Eftir
13. — dxc3 næði hvítur sterkri
sókn með 14. Rf4! Ef 13. — Ba4,
þá 14. Rf4, Dxc3; 15. Ha2, Kf7;
16. Bd3, og svartur yrði að
reikna með slíkum hót-
unum sem Bxc5! Þessi leið
er í rauninni ákaflega mikilvæg,
þar sem það er einmitt ætlun
svarts að reyna að ná sókn á
c-línunni. 14. exd3, Ba4t 15. Kcl,
Dxe5; Fjöldi stórmeistara álítur
að þetta sé allt að því afgerandi
afleikur, og mæla þeir með á-
framhaldandi liðskipan, 15. —
Rc6; 16. d4, 0-0-0; en eftir 17. Bd2
hefur svartur enga fullnægjandi
bót fyrir hin fórnuðu peð.
16. Bg5! Ótrúlega sterkur leikur,
sem torveldar liðskipan and-
stæðingsins. 16. — Rc6; 17. d4,
Dc7; Eftir 17. — De4 væri bezta
Framtíðaratvinna
Ungur reglusamur maður óskast til starfa við hrein- •
legan iðnað. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir mið-
vikudagskvöld, merkt: „Reglusamur —
Atvinna
Danskur maður af íslenzkum ættum, með stúdents-
próf og nokkurra ára nám í læknisfræði, óskar eftir
atvinnu í vór. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 2.
apríl merkt: „4323“.
Til sölu og sýnis
I D A G
Ford vörubíll ’54 lengri gerðin selst mjög ódýrt,
Pontiac ’54 station í góðu standi fæst fyrir skulda-
bréf, Pontiac ’55 fæst fyrir skuldabréf eða góðar
mánaðarg reiðsiur.
BIFREIÐASALAN
Bergþórugötu 3 — Sími 11025.
Myndia er frá Júgóslavíu. Mikhael Tal í hópi aðdáenda.
svarið 18. Hcl! 18. h4, e5!? Það
er svörtum ljóst, að rólegir leikir
munu brátt leiða í Ijós liðsyfir-
burði andstæðingsins, hann reyn-
ir því að skapa flækjur. Eftir t. d.
18. Df7 19. Rf4, Rce7; 20. Be2,
hefði hvítur peð yfir og betri
stöðu. 19. Hh3, Df7; 20. dxe5,
Rcxe5; 21. He3, Kd7; 22. Hbl, b6;
Hér hefði svartur getað veitt
seigari mótspyrnu með 22. —
Bc6, og hefði þá framhaldið getað
orðið 23. Rd4, Í4; 24. Rxc6, KxcS;
25. Bb5f, Kc5; 26. Hxe5 (Ekki
26. He2, sökum 26. — Hh8) Rxe5;
í GÆR var lagt fram á Al-
þingi frumvarp til laga um
ferskfiskeftirlit. Er það ríkis-
stjórnin, sem leggur frum-
varpið fram, en það var boðað
í frétt, sem birtist hér í blað-
inu sl. sunnudag um lélegt
hráefni fiskverkunarstöðv-
anna.
1 frumvarpinu segir m. a. á þá
leið, að stofnun, er nefnist Fersk-
fiskeftirlitið, skuli komið á fót
og annist hún eftirlit með með-
ferð og gæðum nýs og ísaðs
fisks, sem landað er til vinnslu,
frá því hann kemur í skip og þar
til hann er tekinn til vinnslu.
Eftirlitið tekur enn fremur til
búnaðar og þrifa fiskiskipa, að
því er varðar geymslu fiáks í
veiðiför, svo og útbúnaðar og
þrifa fiskmóttökuhúsa á landi.
Þá skal Ferskfiskeftirlitið fram-
kvæma gæðaflokkun á fiski, sem
ætlaður er til vinnslu, þegar
tímabært þykir.
Yfirstjórn Ferskfiskeftirlitsins
skal vera í höndum 6 manna
Fiskmatsráðs, er ráðherra skip-
ar í fjóra menn, eftir tilnefningu
ýmissa aðila er þessi mál snerta.
Fimmti maður ráðsins skal vera
fiskmatsstjóri og hinn sjötti for-
stöðumaður Rannsóknarstofu
Fiskifélags tslands, sem jafn-
framt er formaður ráðsins.
Verkefni Fiskmatsráðs
Verkefni Fiskmatsráðs, auk
þess sem áður getur, eru:
Að enduskoða á næstu tveimur
árum lög og reglugerðir um
fiskmat.
Að úrskurða um ágreining, er
rísa kann vegna framkvæmd
ar fiskmats, meðan fyrrnefnd
lagaendurskoðun stendur yf-
ir.
Að vinna að aukinni fræðslu um
Ifiskverkun og meðferð afla,
og skipuleggja og fram-
kvæma hvers kyns áróður,
27. Ddf7, Rxf7 og þrátt fyrir allt,
er endataflið hvítum í hag. Eftir
leikinn í skákinni eykur hvítur
yfirburði sína. 23. Rf4 Hótar
24. Rxg6, Rxg6; 25. He7f! 23. —
Hae8; 24. Hb4, Bc6; 25. Ddl!,
Rxf4; 26. Hxf4, Rg6; 27. Hd4,
Hxe3; Ekki 27. f4, sökum 28. Dg4t
28. fxe3!, Kc7; 29. c4 dxc4; Það
er ekki hægt að halda punktinum
d-5, þar sem eftir leikina 29. —
Re7; 30. cxd5, Rxd5; 31. Bc4 er
leppunin afgerandi. 30. Bxc4,
Dg7; 31. Bxg8, Dxg8; 32. h5 og
Botvinnik gafst upp.
til þess að auka skilning á og
tilfinningu fyrir vöruvöndun.
Að skipuleggja í samvinnu við
Rannsóknarstofu Fiskifélags
íslands og láta framkvæma
tilraunir og rannsóknir, er
miða að bættri meðferð
sjóvarafla.
Til að standast straum af
kostnaði við framkvæmd laga
þessara, skal stofnaður sjóður, er
sé í vörzlu og undir stjórn Fisk-
matsráðs. Tekjur sjóðsins skulu
vera útflutningsgjald af sjávar-
afurðum, er nemi 1 %c af fob-and-
virði þeirra.
í greinargerð frumvarpsins er
skýrt frá því, hve nauðsyn á
ferskfiskmati hafi aukizt við til-
komu nælonnetanna sem eru
miklu veiðnari en bómullar- og
hampnetin. Þá hafi eftirspurn
eftir vinnslufiski verið meiri en
framboðið og alltof lítill verð-
munur gerður á fiski eftir gæð-
um og tíðast enginn verðmunur
á tveggja nátta netafiski og
bezta línufiski.
Afmælis-
tónleikar
TÍMINN líður furðuhratt og
þokar öllu áleiðis, nokkuð á leið
— eða kannski aftur á bak. —
Sinfóníuhljómsveit Islands, óska
draumur allra góðra manna í
þessu landi, á um þessar mund-
ir 10 ára afmæli. Tilvist hennar
ó sér langan aðdraganda, en
stöðugt hefir þó þokazt í óttina,
og enn er langt í land — og
raunar aldrei náð því landi, sem
hugurinn eygir á sínum fleyg-
ustu stundum, það þokar stöð-
ugt undan. Tveir fyrstu hátíða-
tónleikarnir munu þó hafa sann-
fært flesta sanngjarna menn um
það, að markvisst hefir verið
unnið og merkum áfanga náð.
Það þarf engum að koma á óvart
þó raddir heyrist stundum í þá
átt að aðra leið hefði átt að
fara, fara hraðar, leggja sveit-
inni meira fé. Eflaust eru þess-
ar raddir frá velviljuðum mönn-
um, sem fest hafa augu á öðr-
um möguleikum og er það mann-
legt. Sá sem þetta ritar hefir
við mörg tækifæri átt tal við
heimskunna tónlistarmenn, sem
hlustað hafa á sveitina spila og
undrazt hve góð hún væri, og
þann menningarbrag er væri á
íslenzku tónlistarlífi yfirleitt.
Það er nauðsynlegt að sjá van-
mátt sinn og vanþroska, en hitt
ekki síður að missa ekki kjark-
inn. Á fyrri tónleikunum voru
að undanteknu einu verki flutt
hin sömu og á fyrstu tónleikum
hennar fyrir 10 árum, og stjórn-
andinn Róbert Ottósson hinn
sami. Þeir einir sem heyrðu báða
tónleikana gátu gert samanburð,
og vissulega var sá samanburð-
ur ánægjulegur. Flutt var nú
einnig nýtt verk eftir dr. Pál
ísólfsson. Upphaflega mun Páll
hafa skrifað þetta verk — raun-
ar fyrir áratugum — fyrir píanó
og nú frumflutt í hljómsveitar-
búningi. Verkið var mjög fallegt.
Síðari hljómleikarnir voru í
þessari viku og var þá auk for-
leiksins að Brúðkaupi Figaros og
píanókonserts í d-moll eftir Moz-
art, flutt eitt stórverk, Sinfónía
nr. 4 eftir Bruckner. Hér kom
það afgerandi í ljós hvílíkum
feiknaframförum hljómsveitin
hefir tekið hin síðustu árin. Sin-
fónía Bruckners er stórfenglegt
verk og óvenjulegt að það sé flutt
af svo fámennri sveit. En flutn-
ingurinn var framúrskarandi og
var það vitanlega ekki sízt að
þakka stjórnandanum, Róbert
Ottóssyni, þeim manni, sem
sveitin á ákaflega mikið að
þakka og er mjög miklum stjórn-
andahæfileikum gæddur. Einleik
lék Gísli Magnússon, mjög fal-
lega. —
Það er ástæða til að óska
landsmönnum til hamingju með
hljómsveitina og það sem hún
hefir afrekað fyrstu tíu árin.
Vikar.
Skíðakeppni milli barnaskólo
SKAGASTRÖND, 25. marz: — I
fegursta veðri fór hér fram í dag
skemmtileg skíðakeppni milli
nemenda úr barnaskóla Blöndu-
óss og barnaskóla Skagastrandar.
Keppnin fór fram í Hörfelli hér
skammt innan við þorpið. Kepp-
endur voru 50 talsins.
Sigurvegarar í einstökum grein
um voru þessir: 1 bruni stúlkna
sigraði Magðalena Axelsdóttir,
Skag., í svigi Margrét Sveinbergs
dóttir Bl., í göngu Kristín Lúð-
víksdóttir Skag. og í stökki Helga
Guðmundsdóttir, Skag.
í bruni drengja sigraði Jón
Þorsteinsson Bl., í svigi Jón Þor-
steinsson, Bl., í stökki Birgir
Júlíusson Bl. og í göngu Arsæll
Ragnarsson Bl.
Stigahæstir einstaklingar voru:
Margrét Sveinbergsdóttir Bl. 35
stig, Helga Guðmundsdóttir,
Skag. 25 stig og Ida Sveinsdóttir
Bl. 19 stig. Drengir: Birgir
Júlíusson, Skag. 62 stig, Jón Þor
steinsson Bl. 50,5 stig og Lýður
Rögnvaldsson Bl. 49 stig.
Keppnina vann Barnaskóli
Blönduóss og hlaut 351,5 stig.
Skagstrendingar hlutu 236,5 stig.
Páll Jónsson, skólastjóri á Skaga
strönd, hafði gefið fagran bikar
til að keppa um. Aðalhvatamað-
ur að keppni þessari var Ingólfur
Arnason, en hann hefur haft á
hendi skíðakennslu fyrir báða
skólana nú um tíma. Skólastjórar
beggja skólanna lýstu mikilli
ánægju yfir þessari skíðakeppni
og vona fastlega að framhald
verði á henni næstu ár. — Þ.J.
Ferskfiskeftirliti
skal^ komið á fót
Frumvarp jbess efnis á Alþingi