Morgunblaðið - 29.03.1960, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.03.1960, Qupperneq 11
Þriðjudagur 29. marz 1960 MORCUNBLAÐIÐ 11 Ólafur Þ. Bjarnason skrifstofustjóri — minning ÁÐUR nótt fylgdi degi og raun- ar á hádegi ævi sinnar, kvaddi Ólafur Þorgeir Bjaranason, skrif stofustjóri hjá Loftleiðum h.f., þennan heim. Er hann harmdauði öllum, sem hann þekktu, en þeir voru margir. ’ Ólafur fæddist hér í Reykja- vík 10. janúar 1915 og var hann þanhig rösklega 45 ára er hann lézt. Faðir hans var Bjami Helga son frá Miðfelli í Hreppum, en hann og Einar myndhöggvari Jónsson og Bjarni Jónsson bió- stjóri vour bræðrasynir. Móðir hans var Júlíana J. Jónsdóttir, látin fyrir tveimur árum, en hún var systir Jónatans Jónssonar gullsmiðs hér í bæ. Voru þau systkin ættuð frá Stóra-Kálfa- læk í Mýrasýslu. Átti Ólafur þannig til góðra að telja í báðar ættir og bar það með sér. Óafur ólst upp hér í Reykjavík, en sem barn dvaldi hann tíðum á sumrum í Borgarfirði. Er hann hafði aldur til innritaðist hann í Verzlunarskólann, en hvarf Skjótlega frá námi og réðist í verzlunina Verðandi. Starfaði hann þár frá árinu 1930 til árs- ins 1945, er hann réðist til Loft- leiða og gerðist þar fyrsti fast- ráðni skrifstofumaðurinn. Má því segja að hann hafi fylgzt með allri þróun félagsins, en það gerði hann alla tíð af lífi og sál og gerþekkti þarfir þess og skyldur. Fyrir tæpum 20 árum keypti Ólafur ásamt Helga bróður sín- um, jörðina Stafholtsveggi í Stafholtstungum. Er þar jarðhiti nokkur og hófust þeir bræður þegar handa um framkvæmdir á henni, en þó einkum byggingu gróður- húsa. Stofnuðu þeir árið 1942 hlutafélagið Laugaland, sem á nú 2300 fermetra land undir gler þaki, en þar hefur verið rekin grænmetisverzlun í stórum stíl og eykst stöðgut. í>á hafa þeir einnig byggt íbúðarhús á jörð- inni, auk þess, sem fyrir var, en allt þetta er með snyrtibrag og af stórhug gjört. Hinn 28. ágúst 1937 kvæntist Ólafur ágætri konu, Ragnheiði Bjarnadóttur, ættaðri héðan úr bænum. Eignuðust þau fjögur börn, en þau eru Ámundi Gunn- ar, aðstoðarflugmaður, Lilja Ósk 15 ára, Guðlaug 10 ára og Júlíana 5 ára. Er mikill harmur kveðinn að konu hans og börnum og mik- ils er misst, enda var Ólafur góð- ur og umhyggjusamur heimilis- faðir. Heimili þeirra hjóna er fagurt og snyrtilegt, en án alls óhófs. Stóð það öllum vinum þeirra opið. Á síðasta afmælis- degi Ólafs, efndu þau hjónin til mikils gestaboðs, þar sem frænd- ur hans og vinir voru flestir sam ankomnir. Nokkru síðar fóru þau hjónin í ánægjulega ferð til út- landa, og var ekki vitað að Ólaf- ur kenndi sér nokkurs meins, þótt dauðann bæri síðar bráðan að. Atvikin höguðu því svo, að það var engu líkara, en að hann væri að kveðja vini sína og konu á viðeigandi hátt. Ólafur tók virkan þátt í starfi Oddfellowa. Var það í samræmi við mannúð hans, og naut hann þar mikils trúnaðar. Við stjórnendur og starfsmenr Loftleiða hf., söknum vinar í stað, og virðist okkur skarð eftir Ólaf „ófullt og opið standa“. Ólafur var hár maður að vallarsýn og þrekinn að sama skapi. Hann var fríður maður og vel á sig kominn um alla hluti. Hann var gleðimaður ef svo bar undir, en í rauninni alvörumaður, sem skildi vel að æðsta takmark líf- ins er að láta gott af sér leiða og gera í engu á annara hlut. — í starfi sínu reyndi hann að greiða úr öllum vanda og allra vanda, og gerði sér ekki mannamun. Hefi ég engan mann hitt, sem ekki minnist Ólafs með hlýjum hug, en alla átti hann að vinum hjá félagi sínu. Ólafur átti sæti í stjórn Loft- leiða h.f. frá árinu 1953 og alít til dánardægurs. Hann lagði hverju góðu máli lið og lét sér í einu og öllu svo annt um hag félagsins, sem sjálfs hans hagur væri. Hann gat verið þéttur fyrir, ef því var að skipta, en hófsamur og friðsamur að eðlisfari, enda í einu og öliu ágætasti drengur.. Ólafi var það kappsmál að fé- lagið eignaðist bættan flugvéla- kost og ekkert mun hafa glatt hann meir, en flugvélakaup fé- lagsins síðasta ár og afhending þeirra véla á þessu ári. Svo vildi til að við stjórnend- ur félagsins vorum vestan hafs er Ólafur veiktist, en vorum staddir í Kaupmannahöfn er hann lézt, 22. þ. m. Hefur okkur sjaldan brugðið verr, en er þær fréttir bárust, enda vorum við orðnir vongóðir um, að hann myndi fá bót meina sinna. Við höfum misst einn af okkar trygg- ustu vinum og félag okkar eina af sínum styrkustu stoðum, en hvað er það móts við missi konu hans og barna. Við viljum votta þeim innilega samúð okkar og hluttekningu, um leið og við þökkum liðin ár. Kristján Guðlaugsson. Kveðja VERALDARSAGA góðs drengs, sem nú er allur: Ljúfur og eft- irlátur foreldri sínu, umhyggju- samur og ástríkur heimilisfaðir, greiðvikinn ogvinsæll samstarfs- og samferðamaður, gagnsamur þjóð sinni og ættarlandi. Allt þetta má ég mæla allshugar, eftir ævilöng kynni og vináttu, sem aldrei bar skugga á. Og nú er ferðin farin til fyrir- heitna landsins, yfir móðuna miklu, veg vor allra. Hryggðin heltekur hugann, átakanlegri en mæld verði og vegin, sökum skyndibreytinga milli jarðlífs og líkamsdauða manns á léttasta aldurskeiði. En þegar tíminn hef- ur slævt sárustu brodda sorgar- innar og saknaðarins, er hugg- un, guði sé lof, tiltæk og augljós: Kristaltærar myndir minning- anna, ótæmanlegur fjársjóður ástvinum, og djúpgreyptur í sálarsýn hins óvenjustóra vina- hóps, sem hann aflaði sér á skammri lífsævi. — Með hinztu kveðju og þökk fyrir allt. Far vel. Far vel. Kveldúlfr Grönvold. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að augiýsa J Morgunblaðinu en í öðrum blöðum. — Tjarnargötu 5. Sími 11144. Fiat 600 ’60, óekinn Ford Taunus ’58, Skipti koma til greina. Volvo Amazon ’59 Opel Rekord ’58—’59 Volks wagen ’55, ’56, ’58, ’59 — Moskwitch ’55, ’57, ’58, ’59 Ford Taunus Station ’59 Skipti á nýlegum 4ra til 5 manna bíl möguleg. Plymouth Station ’49 Skipti á 4ra manna bíl koma til greina. Volvo Station ’55 Einnig ýmsar fleiri tegundir og gerðir bifreiða. LITLA |4<<Z íÁ Tjarnargötu 5. Sími 11144 B I L L I IM l\l SlMI 18833. HÖFUM TIL SÖLU flestar tegundir bifreiða. Bifreiðar með afborgunum. Bifreiðar við allra hæfi. — BÍLLIIMN Varðarhúsinu Sími 18833. B I L L I IM IM Varðarhúsinu Til sýnis og sölu í dag: Ford 1958 Skipti koma til greina á Chevrolet 1955 eða Ford 1955. — Falcon 1960 Skipti á eldra koma til greina. — B í L L I IM IM Varðarhúsinu, sími 18833 B I L L I IM IM Varðarhúsinu, sími 18833 Til sölu og sýnis í dag: Ford 1955 sendiferða. Nýkominn til landsins. Samkomulag.- — Skipti koma til greina. Fiat Multipla ’59 Samkomulag. — Keyrður: 7 þúsund km. B í L L I IM IM Varðarhúsmu. — Simi 18833. Volvo Amason '5 9 4ra dyra einkabíll, til sýn- is og sölu í dag. Verð hag- kvæmt. MalBÍLASAUN Aðalstræti 6. Sími 19181. Bifreiðasala. Bergþórugötu 3. Simi 11025. 7/7 sölu Volkswagen frá ’59—’54 Moskwitch ’59, ’58, ’57, ’55 Ford ’58 Glæsilegur einkavagn. — Skipti á Chevrolet ’55-’56. Ford ’55 Góður bíll. — Útborgun að- eins 40 þúsund. Chevrolet ’55 góður bíll. Útb. aðeins 40 þúsund. Mercury ’57 4ra dyra Station, með öllu. Sérlega glæsilegur bíll. — Alls konar skipti. Willy’s Station ’46 Fæst með góðum kjörum. Ford Prefect ’46 Fæst með góðum kjörum. Austin 8 og 10 ’47 Mjög góðir bílar. Höfum Renault fólks- og sendiferðabifreið ir, minni gerðina með mjög góðum skilmálum. Taunus ’58 lítið keyrður. AIls konar skipti koma til greina. Zodiac ’58 mjög lítið keyrður. Er al- veg sem nýr bíll. Dodge ’57 mjög lítið keyrður og glæsi legur bíll. — Chevrolet ’52 sendiferðabíll, lengri gerð in, í mjög góðu standi og fæst með góðum skilmál- um. Höfum mikið úrval af taxa bifreiðum og einn- ig sendiferða- og vörubif- reiðum. Leggið leið ykkar þar sem úr- valið er mest og bezt. Bifreiðasalan, Bergþórugötu 3 Simi 11025. Chevrolet ’49 sendiferðabíll, lengri gerð. Úrváls bíll. Fiat 1800 Station, nýr Hillman ’55, góður bíll Opel Capitan ’54 Skipti á minni bíl. Moskwitch ’57 ágætur bíll. — Willy’s jeppi ’55 Allur ný yfirfarinn. Höfum flestar teg. bíla Góðir greiðsluskilmálar og skipti möguleg, Bílamiðstöðin VAGHI Amtmannsstíg 2C. Sími 16289 og 23757. Volksv/agen '57 til sölu og sýnis í dag. Bíll inn er með útvarpi og í ágætu standi. Bi IasaIan Klapparstíg 37, sími 19032 Chevrolet vörub freið ’55 í mjög góðu standi. Chevrolet vörubifreið ’53. Skipti æskileg á ’57— ’58 model af Ford eða Chevrolet vörubifreið. Studebaker vörubifreið 1955, með tvískiptu drifi og 5 gíra kassa. I.F.A. diesel vörubifreið 1957, í mjög góðu standi Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Austin 12 1946, 4ra manna í skiptum fyrir ódýrari bíl óskast. Opel Record 1955, keyrð- ur 41 þús. km- Skipti óskast á ódýrum sendi- ferðabíl. Opel Caravan 1955. Góð- ir greiðsluskilmálar. Laugavegi 92. Sími 10650 og 13146. Nash. '51 2ja dyra, í fyrsta flokks standi, nýkomin til landsins. Til sýnis og sölu í dag. Biiamiðslöðin VAGN Amtmannsstíg 2C. Simi 16289 og 23757. BÍLmilNN við Vitatorg simi 12500 Chevrolet ’53 og ’55 Ford ’55 Fiat ’60 Taunus ’60 Volkswagen ’54, ’56, ’58 Moskwitch ’55—’60 Opel Caravan ’55 og ’60 Höfum kaupendur að vörubifreiðum. BÍL ASALINN við Vitato.g. Simi 12-500 Ope/ Kapitan '5 6 Mjög fallegur einkabíll, til sýnis og sölu. Skiþti á litl- um bíl möguleg, t. d. Mosk witch. Aðal BÍLASALAN Aðalstr. Sími 15014 og 19181.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.