Morgunblaðið - 29.03.1960, Side 22
22
MORCVNTtLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. marz 1960
Það þarf að styrkja skrokkinn.
Óvíst að Ríkarður geti
leikið í landsliðinu
Skemmtileg en erfið œfing á laugardag
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN,
Óli B. Jónsson, hafði fyrstu
æfinguna með hinum „út-
völdu“ á laugardaginn. Æfing
in fór fram á Mela- og Há-
skólavellinum. Má segja að
vel hafi verið mætt. Þó vant-
aði fjóra. Frá Akranesi mætti
ekki Þórður Jónsson og frá
Reykjavík vantaði Árna
Njálsson, Val, Helga Jónsson,
KR, og Heimi Guðjónsson,
KR, en hann er til sjós.
— Alvarleg veikindaforföll
munu þó ekkí vera orsökin
fyrir fjarveru piltanna. Menn
söknuðu Ríkarðs Jónssonar,
en hann hefur ekki enn náð
sér eftir meiðsli í fæti. Er alls
óvíst að hann geti verið með
í sumar.
★ 1 stúkunní
Æfingin fór fram I þrennu
lagi. Fyrst var Óli B. með menn
sina í allskonar krafta- og þol-
æfingum á túninu sunnan við
knattspyrnuvöllinn. Síðan fór
hann með þá upp í áhorfenda-
Landsflokkaglíman í kvöld
LANDSFLOKKAGLÍMAN fer
fram að Hálogalandi í kvöld og
hefst kl. 20:30. Þetta er í 13.
skiptið sem Landsflokkaglíman
fer fram, en hún var fyrst haldin
28. marz 1947.
Fimm félög senda keppendur
að þessu sinni: Glímufélagið Ar-
mann (6), Ungmennafélag Bisk-
upstungna (2), Ungmennaféiag
Reykjavíkur (13), Ungmennafé-
lagið Samhygð (2) og Ungmenna
félagið Vaka (3).
1 fyrsta flokki keppa menn sem
eru 80 kg. að þyngd, og eru fjórir
keppendur í flokknum. í öðrum
flokki keppa menn sem eru 72
til 80 kg. a@ þyng og eru sjö
keppendur í ílokknum. í þriðja
flokki keppa menn undir 72 kg.
að þyngd og eru þrír keppendur
í flokknum. Drengjaflokkurinn
miðast við 16 til 19 ára aldur og
þar eru skráðir sex keppendur.
Unglingaflokkurinn er fyrir
drengi innan 16 ára aldurs og
glíma þar sex keppendur.
Sigurvegari í hverjum þyngd-
arflokki hlýtur íslandsmeistara-
tign í glímu í sínum þyngdar-
flokki.
Ungmennafélag Reykjavíkur
sér um mótið og hefur gefið út
smekklega leikskrá, en í henni
má m. a. finna kvæði Gríms
Thomsens, Bændaglíman, auk
upplýsinga um mótið og kepp-
endur.
stúkuna og lét þá hoppa þar
fram og aftur og lauk þeim leik
með mjög erfiðri æfingu við
grindverkið fyrir framan stúk-
una. —
Af Melavellinum héldu svo
kapparnir niður á Háskólavöll
og var þar skipt liði og leikið í
rúma klukkustund.
if Sveinn sprækastur
Eftir því sem bezt var séð
tóku menn hinum erfiðu æfing-
um með mestu þolinmæði og
píndi sig hver sem hann gat. —
Augljóst var þó að menn voru
nokkuð misjafnlega vel undir-
búnir fyrir slíkar þrekraunir og
því farnir að þyngjast er líða
tók á æfinguna. Margir voru þo
jafnsprækir í lokin og er þeir
byrjuðu. Fremstan í flokki
þeirra myndi ég telja Svein
Teitsson, sem er þegar kominn í
góða úthaldsæfingu, léttur og
sprækur. —
5 kg. á 20 dögum
Til gaman mætti skýra frá
því að miðframvörður landsliðs-
ins frá því í fyrra, Hörður Felix-
son, KR, viktaði sig eftir æfing-
una og sýndi vigtin 89.5 kg.
Hörður sagðist hafa létzt um 5
kg. á 20 dögum. — Næsta æfing
landsliðsins verður nk. laugar-
dag. — Á. Á.
ÍR mótíð gefur
góðar vonir
FYRSTA úti-frjálsíþróttamótið í
ár fór fram á Melavellinum sl.
iaugardag. Var það innanfélags-
mót á vegum ÍR, en þátttaka var
opin öllum sem vildu.
Keppt var í kúlu-, sleggju- og
kringlukasti. Kalsaveður var og
raki í lofti meðan keppnin fór
fram, og þvi aðstæður langt frá
því að vera góðar.
Helztu úrslit voru sem hér
segir:
Kúluvarp: Gunnar Huseby KR
14.65 m, Friðrik Guðmundsson
KR 14.39 m. Kringlukast: Þor-
steinn Löve IR 46.91 m, Friðrik
Guðmundsson KR 45.80 m. —
Sleggjukast: Þórður B. Sigurðs-
son KR 50.40 m. Þórður Sigurðs-
son átti ógilt kast yfir 53 metra. 1
Er Þórður í greinilegri framför. I
ÞÆR fréttir hafa borizt af Ingv- (
ari Hallsteinssyni (FH), sem nú
dvelst við nám í Los Angeles í
Bandarikjunum, að hann æfi
mjög vel með skólaliðinu og á
æfingu fyrir nokkrum dögum
kastaði hann spjóti 62.81 m. —
Skólaliðið er nú í fjögra daga
keppnisferðalagi í Arizona.
Handknattleiksmóiið:
iírslit nálgust - og keppni harnar
KEPPNI Handknattleiksmótsins
hélt áfram á laugardags- og
sunnudagskvöldið. Mest spenn-
andi leikurinn var leikur Hauka
og Fram í 3 fl. karla A.b. Leik-
urinn var frá byrjun jafn og
harður og lauk með jafntefli 9:9.
— Úrslit annarra leikja á laug-
ardag voru þessi: 3. fl. karla A.b.
Valur — KR 13:5. 2. fl. karla A.a.
ÍR — Ármann 9:16. — 2. fl. karla
B.b. Fram — Þróttur 6:4 og 1. fl.
karla A. Þróttur — Fram 11:25.
Fyrsti leikur sunnudagskvölds-
ins var KR — Valur í 3. fl. karla
A. a. og sigraði Valur með yfir-
burðum, 19:6. — Næsti leikur var
milli 1. deildar liða KR — Vals.
Leikurinn var daufur. ■ Og þó
markamunur væri aldrei meiri
en 1—3 mörk, var leikurinn
aldrei spennandi, vegna þess hve
lítill hraði var í honum. KR vann
leikinn 18:16. — Síðasti leikur
kvöldsins var einnig í 1. deild
milli iR og Aftureldingar. Strax
á fyrstu mínútunum náði IR
nokkru forskoti, sem Aftureld-
ing tókst smám saman að jafna
með sterkum og kraftmiklum
leik. Og er 17 mín. voru af leik
stóðu leikar 9:9. — Tveim mín.
síðar standa leikar 11:10 Aftur-
eldingu í vil, en er 23 mín. eru
af leik, var markatalan aftur orð-
in jöfn 11:11. — Og það sem eftir
var hálfleiksíns tóku iR-ingar
smátt og smátt forustuna, þó Aft-
urelding héldi vel við og í leik-
hléi stóðu leikar 17:13 IR í vil.
Síðari hálfleikurinn var mun
ójafnari. IR hélt stöðugt áfram
sókninni og tryggðu sér sigur-
inn þegar í upphafi hálfleiksins.
Brá oft fyrir mjög skemmtilegum
skiptingum hjá ÍR þó Ieikið væri
nokkuð hratt. Flestir leikmanna
ÍR hafa góð grip og eru öruggir
í sendingum og með markvissum
leik var oft skemmtilega unnið
að mörkunum, en leiknum lauk
með sigri Í/R. Styrkur ÍR er
mestur við mark mótherjanna,
þar verður leikur liðsins fjöl-
breytilegur og skemmtilegur, en
varnaleikur liðsins er ekki að
sama skapi sterkur.
Nú um nokkurt skeið hefir
Birgir Björnsson (FH) annast
þjálfun hjá Aftureldingu, og má
þegar sjá handbrögð hans á lið-
inu. Leikur liðsins er allur ann-
ar. Skipulag er komið í leikinn
og liðið í heild virðist allt miklu
léttara en áður. Ásbjörn Sigur-
jónsson lék ekki með Aftureld-
ingu, og er ekki að efa að liðið
hefði veitt ÍR meiri keppni ef
Asbjörn hefði vérið með félög-
um sínum. Á.Á.
Hægri útherji Wolwerhampton, Broadbent, átti mikinn þátt
í sigrinum yfir Aston Villa. Myndin hér að ofan sýnir hann
í harðri baráttu um knöttinn, en Broadbent stekkur hæst og
nær að skalla að marki. Myndin er frá leik milli Wolver-
hampton og Arsenal fyrr í vetur.
Blackburn og Wolver
hampton í úrslit
UNDANÚRSLIT ensku bikar- i arkeppninni og urðu úrslit þeirra
keppninnar fóru fram sl. laug- þessi;
ardag og urðu úrslit leikjanna I
þessi: 1. deild
Aston Villa — Wolverhampt. 0:2
Sheffield Wednesd. — Blackb. 1:2
Einnig fóru fram leikir í deild
84 bjóðir
í Róm
ALLS hafa nú 84 þjóðir til-
kynnt þátttöku í Ólympíu-
leikunum í Róm í sumar.
Síðustu tilkynningarnar eru
frá Burma, Bolivíu, Guate-
mala, San Marinó og Vene-
zúela — en þessar þjóðir
hafa nú staðfest sína fyrri
lausiegu þátttökutilkynn-
ingu.
Arsenal — Leeds 1:1
Blackpool — W.B.A. 2:0
Bolton — Tottenham 2:1
Fulham — Manchester U. 0:5
Luton — Birmingham 1:1
N. Forest — Preston 1:1
2. deild:
Brighton — Rotherham 0:0
Bristol Rovers — Hull 1:0
Huddersfield — Middlesb. 2:0
Ipswich — Sheffield U. 2:0
Leyton Orient — Derby 3:0
Lincoln — Plymouth 0:1
Portsmouth — Bristol City 2:0
Stoke — Scunthorpe 1:3
Sunderland — Charlton 1:3
Swansea — Cardiff 3:3.
Nánar verður sagt frá leikjun-
um í undanúrslitum bikarkeppn-
innar í íþróttasíðunni á morgun.