Morgunblaðið - 29.03.1960, Qupperneq 23
Þriðjudagur 29. marz 1960
MORGVNBLAÐIÐ
23
Un<!Ír sön«varar
endíirtaka hljóm-
leika
MIÐNÆTURSKEMMTUN sú,
sem haldin var í Austurbæjar-
bíói fyrir viku verðux endurtek-
in þar annað kvöld. — Skemmt-
unin tókst í heild. mjög vel. Góð-
ur rómur var gerður að söng
unga fólksins, þó bar sérstaklega
af 15 ára gamall piltur frá Kefla
vík, Einar Júlíusson. Hljómsveit
Svavars Gests annaðist undirleik
fyrir alla hina ungu söngvara og
lék ennfremur nokkur lög sjálf-
stætt ásamt söngvara hljómsveit
arinnar, Sigurdóri.
Nýtt atriði bætist inn í hljóm-
leikana annað kvöld, er það
munnhörpuleikarinn Ingþór Har-
aldsson, en leikur hans vakti
mikla hrifningu í útvarpsþætt-
inum „Nefndu lagið“ fyrir
nokkru.
— Geni
Framh. af. bls. 13.
það á síðustu ráðstefnu, hefði
það e.t.v dugað til að fá tillögu
þeirra samþykkta, en varla nú.
Þá vakti talsverða athygli við-
urkenning bandaríska fulltrúans
á sérstöðu þeirra, sem allt eiga
undir fiskveiðum. Hann lýsti því
sjálfur yfir á blaðamannafundi
skömmu síðar, að yfirlýsing þessi
væri miðuð við fsland. En eftir
er að sjá, hvort hægt verður að
gera þennan góða vilja að fram-
kvæmd, sem gagn sé að.
Þó að úrslit séu óviss, eins og
ég hef hér gréint frá, virðast
allir gera ráð fyrir því, að 12
mílna landhelgi (andstætt fiski-
svæði) muni ekki fá hér meiri
hluta.
Surningin er aðeins sú, hvort
samþykki fæst i gegn 12 mílna
fiskisvæði með minni almennri
landhelgi, án þess, að svokölluð
„söguleg réttindi" eyðileggi tólf
mílna fiskisvæði.
Menn hafa spurt hér: — Hvaða
áhrif hefur það, ef ráðstefnan
samþykkir með nægilegum.meiri
hluta einhverja ákveðna stærð
landhelgi og fiskisvæðis? Verður
það þá að alþjóðalögum, sem ÖU-
um þjóðum beri að fylgja?
Stavropoulos fulltrúi fram-
kvæmdastjóra S.Þ. svaraði þessu
á fundi með blaðamönnum. Hann
sagði: „Akvæðið um að % hluta
atkvæða þurfi á ráðstefnunni til
þess að tillaga sé samþykkt er í
fundarsköpum hennar, sem eru
samin eftir fundarsköpum Sam-
einuðu þjóðanna.
En þar með er ekki sagt að öll
þátttökuríkin á ráðstefnunni séu
fyrirfram skuldbundin til að
hlýða % meirihluti ákvörðun. Til
þess að verða skuldbundið að
hlýða samþykktinni verður ríkið
fyrst að undirrita samninginn um
það. Samþykkt hér þýðir því
ekki beina alþjóðlega skyldu.
Hinsvegar myndi slík samþykkt
og undirritun og staðfesting nógu
margra á henni verða talin mjög
ákveðin bending um að þetta
væri orðinn gildandi alþjóðleg
réttarregla.
Aðalfulltrúi Breta, Hare ráð-
herra lýsti því yfir fyrir nokkr-
um dögum í kokkteil-boði með
brezkum blaðamönnum, að Bret-
ar myndu hlíta ákvörðun ráð-
stefnunnar, en bætti þó við, að
þeir myndu taka afstöðu end-
anlega til slíkrar samþykktar eft-
ir öllum kringumstæðum. Slík
yfirlýsing gefin í kokkteilboði og
með slíkum fyrirvara hefur held-
ur lítið gildi.
Það var búizt við því í fyrstu
að landhelgisráðstefnunni yrði
lokið fyrir páska. Nú sjá menn
það fyrir víst, að slíkt er úti-
lokað. Hún verður að halda á-
fram eftir páska, líklega að
minnsta kosti viku í viðbót.
Skrifstofur vorar
verða lokaðar eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar.
Sölufélag Garðyrkjumanna
Lokað
frá kl. 12 í dag vegna jarðarfarar
Óiafs Bjarnasonar skrifstofustjóra.
Borgarþvottahúsið hf.
Lokað t dag
vegna jarðarfara Ólafs Bjarnasonar
skrifstofustjóra.
LOFTLEIÐIR
Lokað í dag
vegna jarðarfara Ólafs Bjarnasonar
skrifstofustjóra.
Terra Trading h.f.
Lokað
frá kl. 1—l í dag vegna jarðarfara
Ólafs Bjarnasonar skrifstofustjóra.
Verðandi h.f.
Innilegt þakklæti færi ég öllum vinum mínum og
vandamönnum nær og fjær, sem heiðruðu mig á marg-
víslegan hátt á 75 ára afmæli mínu 20. raarz s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Ólafur Guðmundsson, Skjólbraut 4.
Þökkum hjartaniega alla þá vinsemd á 50 ára afmæli
ókkar 14. marz með gjöfum, blómum og skeytum.
Olga og Hulda Þorbjörnsdætur.
Innilega þakka ég öllum sem auðsýndu mér vinsemd
með heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á sjötugs af-
mæli mínu 19. marz s.L
Ég bið Guð að launa og blessa ykkur ÖU.
Rósa Andrésdóttir, Hólmum A-Landeyjum.
Hjartans þakkir sendi ég ykkur öllum. sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum
á 70 ára afmæli mínu.
®jörg Guðmundsdóttir, Framnesveg 32.
Þakka símskeyti og kveðjur, er vinir mínir og kunn-
ingjar sendu mér á sextugsafmæii minu 14. þ.m.
Borgarnesi 26/3 1960.
Jón Steingrímsson.
Eiginkona min og móðir okkar
sigrCn guðlaugsdóttir
fyrrum húsfreyja, Árnarnesi, Dýrafirði,
andaðist í Landakotsspítala 27. marz.
Gísli Þ. Gíslason, dætur og tengdasynir.
Maðurinn minn og faðir okkar
ÍIAH.HII HJARTARSON
húsasmíðameistari, Sólvallagötu 63,
andaðist í Landakotrspítala laugardaginn 26. marz.
Ingveldur Gunnlaugsdóttir og synir
Þ. Th.
Systir mín og fóstursystir HALLA RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Smiðjuhóli, andaðist á sjúkrahúsi Hvítabandsins að kvöldi 25. þ.m. Fyrir hönd systra hennar. Sigríður Jónsdóttir, Þorsteinn Sveinsson.
Móðir okkar SIGRlÐUR HELGADÓTTIR Bústaðahverfi 2, andaðist að EUi- og hjúkrunarheimilinu Grund laugard. 26. þ.m. Sína, Magnús, Sigurbjörn.
Faðir minn, tengdafaðir og afi VILHJALMUR benediktsson andaðist 26. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Sigríður Villijáimsdóttir, Kari Þorfinnsson og böm.
Útför móður minnar ÞÓRU PÉTURSDÓTTUR fer fram frá Stokkseyrarkirkju fimmtud. 31. þ.m. kl. 2 e.h. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Pétur Daníelsson.
Útför móður minnar, SÓLVEIGAR EINARSDÓTTUR Kleppsvegi 34, Reykjavík fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 31. marz kL 2,30 e.fa. Einar Bjarnason
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfaU og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, FRIÐRIKS EGILSSON AR Guð blessi ykkur ölL Böra, tengdabörn og bamabörn
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinsemd við fráíall og jarðarför mannsins míns, föður, sonar og bróður okkar, SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR Hamarsbraut 10, Hafnarfirði Kristbjörg Guðmundsdóttir, Hreiðar Sigurjónsson, Sigurður Sigurjónsson, Margrét Ólafsdóttir. Sigurður Þórðarson og systkini.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, DANfELS SIGURÐSSONAR frá Kolmúla Guð blessi ykkur ÖU. Guðný Jónsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför konu minnar FRIÐGERÐAR SIGURÐARDÓTTUR Höfðaborg 35 Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna, heima og erlendis. » Eiríkur Magnússon, bókbindari
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna frá- falls og útfarar íöðursystur og fóstru okkar. HILDAR J. THORARENSEN Fósturböra
Þakka auðsýnda samúð við fráfaU og jarðarför, SIGRfÐAR PÉTURSDÓTTUR . frá Hrólfsskála Gunnar Óskarsson
Hjartans þakkir tíl allra þeirra er sýndu mér samúð við fráfall mannsins míns JÓNS ÓLAFSSONAR bankagjaldkera, Vestmannaeyjum, svo og öllum þeim er veittu honum hjálp og vinsemd í veikindum hans sérstaklega þakka ég f jölskyldu minni og mági mínum þeirra miklu hjálp. Innilegar þakkir færi ég einnig félagin uAkoges, íþróttafélaginu Þór og starfs- fólki Útvegsbankans í Vestmannaeyjum. Þórunn Sigurðardóttir.