Morgunblaðið - 29.03.1960, Side 24
V ED RIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
ótgstttM&fttii
74. tbl. — Þriðjudagur 29. marz 1960
Ferskfiskseftirlit
Sjá bls. 8.
V.
Unglingarnir fylgjast af áhuga með upplýsingum um prentlistina.
Gera verbur starfsfrædsluna
Greiðsluafgangur
rúmar 600 þús.
að
namsgrem
Yfir 3500 sóttu starfsfræðsludaginn
OLAFUR Gunnarsson, sálfræð- anförnum 5 árum. Þegar skólinn
ingur, forstöðumaður starfs-
fræðsludagsins, skýrði blaðinu
svo frá í gær, að meiri aðsókn
hefði orðið að starfsfræðsludeg-
inum í Iðnskólanum á sunnudag-
inn var, en nokkurn tíma á und-
Enn fundur
KlöKKAN 11 í gærkvöldi sat
sáttasemjari rikisins, Xorfi Hjart-
arson tollstjóri, á samningafundi
með deiluaðilum í togaradeilunni
b-e.as. fuiitrúum togaraeigenda
«g fulltrúum yfirmanna af tog-
araflotanum. Sáttasemjari varð-
ist allra frétta af árangri þessa
fundar
var opnaður var talið að um 900
manns hefði beðið við dyrnar.
Þegar kvöld var komið og starfs-
fræðslunni hætt, kom í ljós að
3546 manns, að sjálfsögðu nær
undantékningarlaust unglingar,
höfðu átt tal við 100 fulltrúa
hinna fjölmörgu starfsgreina er
kynntar voru.
Nokkurn veginn má fullvíst
telja að ekki hafi verið eins mikil
aðsókn að neinni einni deild, sem
fíugmáladeildinni, en þangað
komu um 1000 unglingar.
Forsetahjónin komu í stutta
heimsókn. Einnig kom þangað
Auður Auðuns borgarstjóri og
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri.
Ölafur Gunnarsson sagði Mbl.
að ljóst væri af þessum gífur-
lega áhuga æskunnar fyrir starfs-
Barnfóstran fór drukkin
í ökuferð, og.....
íræðslu, að óumflýjanlegt er að
koma henni í fasta form og hrein
lega gera starfsfræðslu að náms-
grein. Ekki er hægt að ætlast til
þess að slík fræðsla sé leyst af
hendi með starfi sjálfboðaliða.
Þriðja umræða um
FJÁRLAGAFRUMVARP fyrir
árið 1960 var tekið til 3. umræðu
í sameinuðu Alþingi í gær. For-
maður fjárveitinganefndar, Magn
ús Jónsson, tók fyrstur til máls
um frumvarpið og gerði grein
fyrir breytingartillögum, frá
nefndinni í heild og meirihluta
hennar. Kvað hann nefndina hafa
tekið frv. til meðferðar milli 2.
og 3. umræðu og fjallað um óaf-
greidd erindi og önnur, sem fram
hefðu komið. Rakti síðan einstak
ar breytingar.
Magnús Jónsson sagði, að meiri
hluti fjárveitinganefndar legði til
að tekjur af leyfisgjöldum væru
áætlaðar einni milljón kr. hærri
en gert hefði verið í frv. Ef þær
hækkunartillögur, sem nefndin í
heild og meirihluti hennar legðu
til, yrðu samþykktar svo og til-
lögur frá samvinnunefnd sam-
göngumála yrði greiðsluafgang-
ur fjárlagafrumvarpsins að lok-
inni 3 .umr. 643.688,00 kr.
Að ræðu Magnúsar lokinni töl-
uðu þingmenn fyrir einstökum
breytingartillögum sínum og stóð
fundur fram á kvöld. Var áform-
Talsamband við fiski-
flotann opnað í Keflavík
A LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
Varð 17 ára stúlka gripin óstöð-
vandi löngun til þess að aka bíl,
sem hún hafði lyklavöldin að. —
Aksturskunnátta hennar var ekki
mikil, og ekki bætti úr skák að
að hún hafði fengið sér ofur-
lítið neðan í því og fór sem fór:
Tveir bílar nær því eyðilagðir.
Hún hafði á laugardagskvöldið
tekið að sér að vera hjá 10—11
ára telpu, því móðir hertnar hafði
farið út að skemmta sér.
Hin 17 ára gamla stúlka hafði
átt lögg af víni og drakk það.
Þá mundi hún allt í einu eftir
því að kona hafði beðið hana að
taka við lyklunum að jeppan-
um, sem hún var á. Þessi kona á
heima utan við bæinn og jeppinn
tilheyrir búinu þar og konan er
þar ráðskona.
Þegár unga stúlkan tók lykl-
ana og fór í „bíltúrinn" eins og
það er kallað, tók hún 11 ára
telpuna, sem hún átti að gæta,
með sér. Þær óku um nokkrar
götur, unz stúlkan missti stjórn
á bíLnum og ók á stóran amerísk-
an bíl, sem einn af starfsmönnum
bandaríska sendiráðsins á.
Svo harður var áreksturinn að
litla telpan skall á framrúðuna
og skarst í andliti, braut tennur
í munni sér og hlaut fleiri áverka
Svo þungt var höggið að ameríski
bíllinn kastaðist 4 metra, lenti
á Ijósastaur og braut hann. Jepp-
inn, sem stúlkan ók, stórskemmd-
ist einnig en hana sakaði ekki
sjálfa svo teljandi sé. — Stúlkan
hai'ði ekki ökuleyfi.
Ungir Sjól'stœð'smenn
Munið kappræðufund Heimdallar og
Æskulýðsfylkingarinnar í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld. — Sjá bls. 2.
KEFLAVÍK, 25. marz: — Radíó-
stöð var opnuð í Keflavík í dag
og verður hún fyrst um sinn op-
in frá kl. 1 á daginn til 12 að
kvöldi, nema sérstaklega standi
á, þá verður stöðin opin lengur
og opnar fyrr.
Aukið öryggi
Mjög mikl þægindi og öryggi
er að þessari stöð, því áður varð
að ná sambandi við Reykjavíkur
Radíó gegnum landssímann, en
Reykjavíkur Radíó sendir á ann-
arri bylgjulengd en talbylgju
bátanna og er sjaldan hlustað á
þeirri bylgju,. Bátarnir notuðu
því það ráð að tala sín á milli um
það, sem þurfti að koma til lands
í þeirri von að einhver hlustaði
i útvarpstækjum sínum.
Þörf á fyrsta degi
Á fyrsta degi komu boð til stöð
varinnar um að hafa lækni og
sjúkrabíl til reiðu fyrir slasaðann
mann, sem væri á leið að landi.
Talsstöðin — Radíó Keflavík —
veitir einnig almenningi alla þá
þarfa þjónustu, sem óskað er, svo
sem að koma boðum á milli
þeirra, sem á sjó og landi eru
og veita aðrar upplýsingar um
bátana. Simi Talstöðvarinnar er
2277.
Rekið fyrir samtök 3ja aðila
Keflavíkur Radíó er rekið af
samtökum útgerðarmanna og
með styrk frá Keflavíkurbæ og
Njarðvíkurhreppi. Starfrækslu
stöðvarinnar annast Albert
Bjarnason, skipstjóri og Karl
Guðjónsson útvarpsvirki, sem
einnig annast viðgerðir talstöðva
og eftirlit með öðrum Radíótækj-
um flotans. — Helgi S.
fjárlög i gær
að að ljúka umræðunni en at-
kvæðagreiðslan mun fara fram í
dag.
Skipsstrand
í Ólafsvík
í GÆR á fimmta tímanum, tóku
Ólafsvíkurbátar eftir því hvar
lítið flutningaskip sigldi hér inn
óvenju grunnt, enda kom að því
að skipið tók niðri á svonefndum
Fögum, vestur af norðurgarðin-
um hér í Ólafsvíkurhöfn. En
skipið náði sér strax út aftur, því
aðfall var, logn og glampandi
sólskin.
Mikill leki kom að skipinu.
Var því rennt upp með bryggj
unni hér, í strand og stóð skip
ið alveg á þurru um fjöru í
gærkvöldi. Hér var um að
ræða danska flutningaskipið
Clipperen. Er það um 400 DW
tonna skip og var með salt-
farm, sem afferma átti í
Grundarfirði.
Hér var strax hafist handa um
að losa saltfarminn úr skipinu,
bjarga því af saltinu sem bjargað
varð. Skemmdir munu hafa orðið
allmiklar á botni skipsins, en þær
hefur þó ekki verið mögulegt að
kanna til fulls því skipið situr
í sandi. — Skipið er aðeins 2 ára
gamalt. — K.G.
Tregtir afli
SANDGERÐI, 28. marz. Tregur
afli hefir verið hjá Sandgerðis-
bátum undanfarna tvo daga. Á
laugardaginn komu 14 bátar með
62 lestir. Afli var frá 1,5 lest upp
í 9,5 lestir. í gær komu 13 bátar
inn til Sandgerðis með 104 lest-
ir. Hæstur var Mummi með 19,6
lestir og næst Guðbjörg með 16,1
lest. — Allir Sandgerðisbátar eru
á sjó í dag. — Axel.
Slasaður maðui
frá Grænlandi
NOKKRU fyrir miðnætti á
sunnudagskvöldið lenti einn
af Föxum Flugfélagsins á
Reykjavíkurflugvelli, að
loknu sjúkraflugi til Meist-
aravíkur í Grænlandi.
Slys hafði orðið í nám-
unni þar. Ungur maður
hafði slasazt mjög á hægri
hendi, hafði hún kramist og
brotnað. Friðrik Einarsson,
yfirlæknir fór með flugvél-
inni til Grænlands til þess
að sækja hinn slasaða.
Eftir því sem Mbl. frétti
i gærkvöldi mun nokkur
von um að hendi mannsins
verði bjargað, en hvort tak
ast muni að bjarga öllum
fingrum handarinnar var
ekki vitað.
Úrskurður um áfengisleit i bíl
til Hæstaréttar
ÞEGAR lögreglumenn gerðu
skyndileit að áfengi í allmörg
um leigubílum Borgarbíla-
stöðvarinnar á laugardags-
kvöldið, á stæði við stöðina í
Hafnarstræti, neitaði einn bíl-
stjóranna, Arnljótur Ólafsson
Pálsson, að leyfa áfengisleit í
bílnum. Þá um nóttina var
úrskurðuð leit í bílnum. Þess-
um úrskurði hefur Arnljótur
nú áfrýjað til Hæstaréttar.
Mun slíkt mál sem þetta ekki
fyrr hafa komið til kasta
Hæstaréttar.
Ekki eiginn bíll
Fleiri bílstjórar neituðu einnig
í fyrstu að leyfa lögreglumönn-
unuin að leita áfengis í bílum
sínum. Féllu þó allir, nema Arn-
ljótur, frá neitun sinni.
Arnljótur er ekki eigandi
leigubíls þess, sem hann ekur.
Eigandi bílsins ekur einnig á
Borgarbílstöðinni og á þar ann-
an bíl, sem hann ekur. Við
skyndileitina fannst áfengi í bíl
þessa manns.
Um klukkan 2.30 aðfaranótt
sunnudagsins hafði Ármann
Kristinsson kveðið upp úrskurð
í máli þessu, þess efnis, að lög-
reglunni væri heimilt að gera
leit að áfengi í bílnum sem Arn-
ljótur ók. Við vínleitina fannst
ekkert áfengi í bíl hans.
Áfrýjaði í gær.
Arnljótur, sem strax taldi lög-
regluna ekki hafa neina heim-
ild til að gera leit að áfengi í
bílnum, kom aftur fyrir dóm í
gærdag. Þá ákvað hann að skjóta
úrskurðinum til Hæstaréttar
með það fyrir augum að honum
verði efnislega hrundið.