Morgunblaðið - 30.03.1960, Side 17
Miðvikudagur 30. marz 1960
MORGVTSBLAÐIÐ
17
Hermóóur Guðmundsson:
Athuga-
semd
við svar
1 MORGUNBLAÐINU 18. þ.m.
birtir stjórn Landssambands ís-
lenzkra stangveiðimanna athuga-
semd við grein, sem ég skrifaði
í vetur og birtist í Mbl. 16. jan.
s. l. út af fundarsamþykkt aðal-
fundar Landssamb. ísl. stangveiði
manna frá 1. nóv. s.l. í raun
réttri er þessi fundarsamþykkt
Landssanmb. nægilegt svar við at
hugasemd þeirra sjálfra er Morg-
unbl. birti — svo berorð er álykt-
unin í garð þeirra er ekki vilja
lúta reglum og vilja samtakanna
gagnvart leigu á laxveiðiréttind-
um. Ég leyfi mér því að birta
fundarsamþykktina sem er svo
hljóðandi: „Aðalf. Landsamb. ís-*
lenzkra stangveiðim. haldinn
sunnud. 1. nóv. 1959 í Alþýðuhús-
inu í Hafnarfirði, samþykkir að
víta harðlega stjórn Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og
aðrar opinberar og hálf opinberar
stofnanir, sem nú eða áður bjóða
óheyrilega hátt verð í veiðirétt-
indi í ýmsum laxveiðiám, for-
dæmi, sem er stórhættulegt og
líklegt til að skaða stangveiði-
menn almennt og veiðiréttareig-
endur ekki síður, er fram líða
stundir, fordæmi, sem skoðast
verður sem bein árás á íslenzka
stangveiðimenn, þar sem þeim er
ómögulegt að greiða slíkar leigur,
fordæmi, sem algjörlega er óþarft
Og auðveldlega mátti komast hjá
þar sem aðrir möguleikar voru
nærtækari og sem hentað hefðu
t. d. S. H. miklu betur.
Vegna þess er hér kemur fram
væri ástæða til að óska eftir
svari við eftirfarandi:
7. Hvað er það sem Landssamb.
stangveiðim. telur „óheyrilega
hátt verð fyrir veiðiréttindi“?
2. Hvað telja samtök stang-
veiðimanna „stórhættulegt og lík
legt til þess að skaða stangveiði-
menn almennt og veiðiréttar eig-
endur ekki síður“?
3. Hvað er það sem stjórn stang
veiðisamtakanna telur „beina
árás á íslenzka stangveiðimenn"?
4. Hvernig ber að skilja eftirfar
andi niðurlagsorð tillögunnar:
„fordmi, sem algjörlega er óþarft
og auðveldlega mátti komast hjá,
þar sem aðrir möguleikar voru
nærtækari og sem hentað hefðu
t.d. S. H. betur“?
Mér er spurn hvernig var
hægt að komast hjá þessu
„óþarfa" „stórhættulega“ „for-
dæmi“ og „óheyrilega" háa verð-
tilboð í laxveiðiréttinn í Laxá i
Leirársveit er höfundar tillög-
unnar hneiksluðust svo mjög á —
nema án beinnar eða óbeinnar
þátttöku í félagsskap stangveiði-
manna?
Þetta er hverjum manni ljóst
og hér er ég kominn að merg
málsins —. þeim, sem ég vildi
vekja athygli á í grein minni.
Þetta mun stjórn íslenzkra stang-
veiðimanna hafa gramizt og því
þótt ástæða til að gera sína at-
hugasemd, sem er að langmestu
leiti lofsöngur um þeirra eigin
afrek á sviði fiskiræktar og fiski-
friðunar eftir alla ofveiði og rán-
yrkju erlendra stangveiðim. er
búnir voru að gera íslenzkar lax-
veiðiár „laxlitlar eða jafnvel
laxlausar“ eins og það er orðað.
Um þetta þarf ekki að fara mörg-
um orðum.
Mér dettur ekki í hug — og lét
heldur ekki að því liggja í grein
minni — að gera lítið úr því, sem
einstakir stangveiðimenn eða
stangveiðisamtök kunna að hafa
gert fyrir íslenzk veiðivötn. Ég
vil þó á það minna að í lang-
flestum — ef ekki öllum — til-
fellum hefur það fé sem kann
að hafa verið lagt fram til fiski-
ræktar eða til umbóta við veiði-
ár hér á landi verið lagt fram af
bændunum eða veiðiréttareigend
um sjálfum í gegnum árleigur en
ekki verið beint lagt fram af
stangveiðisamtökunum. Meðan
svo er er tæplega hægt að tala
um stórar fórnir af hálfu stang-
veiðimanna. —
Augljóst er einnig á „Athuga-
semd“ stjórnar Landssamb. ísl.
stangveiðim. að stjórnin leggur
aðra höfuðáherzlu á það að koma
mönnum til þess að trúa því, að
ekkert. se exns hættulegt fyrir
ísienzkar veiðiár og það að leigja
útiendingum þær. Meira öfug-
mæli er vart hægt að hugsa sér,
allir sem til þekkja vita að fátt
mundi verða íslenzkum veiðiám
til meiri friðunar en að þær yrðu
leigðar til erlendra sportveiði-
manna, sem fyrst og fremst veiða
sér til skemmtunar. Og því skildi
ekki íslenzka þjóðin sem alltaf
þjáist af gjaldeyrisskorti reyna
að afia sér gjaldeyris með því að
greiða fyrir komu erlendra ferða
manna til landsins, en aðstaða til
laveiða mundi greiða mjög fyrir
komu þeirra. Mörg undanfarin ár
hefur þetta verið ógerlegt þar
sem íslenzkar veiðiár hafa verið
svo umsetnar af Islendingum að
þar hefur engu verið hægt við að
bæta. Svörin hafa því alltaf verið
á einn veg, ef útlendingar hafa
gert fyrirspurnir um veiðiaðstöðu
hér — ekki hægt, allar veiðiár
leigðar. Eru þetta ekki óþarflega
mikil flottheit af þjóð sem þjáist
af gjaldeyrisskorti? Væri ekki
ástæða til að athuga möguleika á
árleigu, t.d. þó ekki væri nema á
einni laxveiðiá til erlendra stang
veiðimanna? Hið breytta gengi
skapar vissulega möguleika á
þessu sviði. Um „aðdróttanirnar”
.idylgjurnar" og „rógburðinn“
um íslenzka stangveiðimenn, sem
stjórn Landssamb. þykist geta
lesið útúr grein minni, get ég
< erið fáorður þótt ég nefni engin
„föÓurhús“ í því sambandi.
Ef það er í augum íslenzkra
stangveiðisamtaka óverðskuldað-
ar dylgjur og aðdróttanir að
vekja athygli á þeirra eigin opin-
beru samþykktum þá bera sam-
tök þeirra alla ábýrgð á því og
engir aðrir. I grein minni kom
hvergi fram að ég áfellist heil-
brigð samskipti bænda og ísl.
stangveiðim., sem í mörgum til-
fellum hafa verið og geta verið'
báðum aðilum til góðs. A meðan
íslenzkir bændur flestir eiga jarð
ir sínar ásamt meðfylgjandi veiði
létti verður stjórn Landssamb.
ísl. stangveiðim. og aðrir að
beygja sig undir það, að það sé
bændanna en ekki þeirra að
ákveða hvort þeir vilja leigja
veiðiréttindi sín eða ekki.
A sama hátt er hver einstakl-
ingur og fyrirtæki frjáls að því
— S. H. eins og aðrir — hvaða
réttindi hann vill kaupa á leigu
og á hvaða verði, það er þó aldrei
annað en eigna tilfærzla innan
lands.
Að gera opinbera athugasemd
við jafn sjálfsagðar viðskipta-
venjur er alltof bróslegt til þess,
að Landssamband íslenzkra stang
veiðimanna geti lagf nafn sitt við
slíkt.
IJermóður Guðmundsson.
TAL
US
Húsið kostar
Öryggisgrindur
á FERGUSOIM
dráttarvélar
Við höfum nú fyrirfSfeigjandi veltutrygg stálhús,
á eldri gerð Ferguson-
dráttarvéla. Húsið rúm-
ar 2 farþega auk öku-
manns. Sams konar hús
fyrir Ferguson ’35 verða
til afgreiðslu í vor.
Enn fremur verða til ör
yggisgrindur með fram-
rúðu og þaki, en við-
bótarhlutir, s.s. hliðar,
hurð, sæti ofl., má fá
síðar þegar óskað er.
kr. 7.900.00
— 5.300.00
Húsin hafa verið reynd af Öryggiseftirliti ríkisins og segir svo m.a. í skýrslu
þess:
„Húsið stóðst með prýði allar þær veltutilraunir, sem gerðar voru, og
kom úr þeim algerlega óbreytt og óskaddað".
Enn fremur hofum
við til sölu
stálhús á Ferguson, sem
framleidd eru á véla-
verkstæði Kaupfélags
Árnesinga, Selfossi. Hús
in eru ekki veltutryggð,
en þó mjög sterklega
byggð. Fljótlegt er að
koma þeim fyrir á drátt
arvélinn.
Verð kr: 3.800.00.
ÁRS HÁT
Málfundafélagsins
ÓÐINS
verður í Sjálfstæðishúsinu kl. 8:30. föstu-
daginn 1. apríl.
ÍÐ
Til skemmtunnar
Til skemmtunar:
1. Ávarp
2. Leikþáttur: Gunnatr Eyjólfsson og
Bessi Bjarnason
3. D a n s . .
Miðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu miðvikudag og
fimmtudag kl. 5—10 e.h.