Morgunblaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.03.1960, Blaðsíða 22
22 MORCVWBLAÐIÐ Miðvikudagur 30. marz 1960 ÍR og KFR i úrslitum körfuknattleiksmótsins Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ voru undanúrslit leikin í Körfuknatt- leiksmóti Islands. Voru það úr- slitaleikirnir í riðlum, og léku fyrst Ármann og K.F.R. og sigr- uðu þeir síðarnefndu 55:42. Sið- ari leikurinn var milli ÍR og Há- skólans og sigraði ÍR 55:41. Sig- urvegararnir úr þessum leikjum mætast svo í úrslitaleik mótsins, 6. apríl n.k. K.F.R. — ÁRMANN Leikurinn var frá byrjun hrað- ur og áttu Ármenningar þar frum kvæðið, og sýndu auk þess stór- glæsilegan leik. Var oft engu lík- ara en atvinnumenn væru þar að verki. Á fyrstu mín. náði Ármann góðu forskoti og var bilið mest er leikar stóðu 23:15 Ármann í vil. — Fljótlega kom þó í ljós að Ármenriingarnir réðu ekki við hinn mikla hraða. Þeir fóru að missa sendingar og vörnin opn- aðist óþarflega mikið. K.F.R.- menn voru fljótir að notfæra sér þessa veilu, enda mun reyndari leikmenn. Rétt eftir miðjan hálf- leikinn höfðu þeir unnið upp stigamismuninn og náð yfirhönd- inni í leiknum. Var staðan í hálf- leik 27:28 KFR í vil. KFR byrjaði síðari hálfleik með að skora fyrstu körfuna og er 10 mín voru af hálfleiknum höfðu þeir skorað 44:32 og þgr með algerlega búnir að ná leikn- um í sínar hendur. Enda tókst Ármenningunum ekki að minnka bilið og lauk leiknum með sigri KFR 55:42. Liðin Ármannsliðið er skipað yngri, léttari og minni leikmönnum en KFR-liðið. Leikgeta þeirra er jafnari, en flesta skortir keppn- isreynslu á við K.F.R.-menn. — Birgir er langbezti maður Ár- Kemur rúss- nesk! knutt- spyrnulið ALLAR horfur eru á því að rússneskt knattspyrnulið komi hingað í byrjun maí. Það er knattpyrnufélagið Fram, sem er í samninga- umleitunum við hið rúss- neska knattspyrnulið. Fram barst skeyti um það að Rússarnir vildu koma hing- að og leika hér þrjá leiki, en koma þeirra var bundin því skilyrði að fyrsti leik- urinn yrði leikinn 9. maí. næstkomandi. Stjórn Fram var á fundi í fyrrakvöld til að athuga möguleika á því hvort fé- lagið gæti tekið tilboði Rússanna, en það er mörg- um erfiðleikum bundið, vegna þess hve snemma árs liðið myndi koma. Erfitt mun verða að fá inni fyrir Rússana, þar sem skólar eru ekki hættir og varla kemur til mála að keppa á Laugardalsvellinum s v o snemma sumars. En eitt er víst, að óneitanlega yrði þetta hagur fyrir íslenzka landsliðið, að fá jafngott lið til að leika við stuttu áður en það fer í landsleikinn við Noreg. manns en auk hans vann Lárus Lárusson mikið og margar send- ingar hans vel hugsaðar. Davíð Helgason og Ingvar Sigurbjörns- son eru báðir skemmtilegir og góð efni í körfuknattleiksmenn. Stærð K.F.R.-manna átti drjúg an þátt í sigri þeirra. Leikur þeirra var nokkuð þungur og byggðist á löngum sendingum til stærstu manna liðsins, sem stað- settu sig oft vel undir körfunni, Úr leik Ármanns og KFR. og gerðu sér þannig auðvelt með að skora. K.F.R. menn eru einnig öruggari á löngum skotum og er Ólafur Thorlacius þar snjallastur. Í.R. — Í.S. Er leikmenn félaganna komu inn á völlinn var það strax áber- andi hvað ÍR hafði hæðina fram- yfir stúdentana. Háskólinn skor- aði fyrstu körfuna og var Þórir Arinbjarnar þar að verki. ÍR jafnaði þó fljótlega og var leik- urinn nokkuð jafn framanaf, en einkenndist af taugaóstyrk leik- manna, sem orsakaði góðan leik á báða bóga. ÍR náði smátt og smátt forustunni, en þeir léku maður á mann leikaðferð, en stúdentarnir léku svæðisvörn. ÍR hafði lengst framan af 4—6 stig yfir, en eftir því sem á leikinn leið var munurinn meiri. I byrjun síðari hálfleiks sóttu stúdentarn- ir mjög á, en ÍR svaraði þeirri sókn með því að biðja um leik- hlé. Eftir hléið var festa aftur kominn í ÍR liðið og juku þeir stigamuninn til leiksloka að stað an var 55:41 ÍR í vil. — Liðin: Leikur stúdentanna var mun daufari, en þeir hafa sýnt að und áhförnu, en einmitt hraði og frisk leiki hefir einkennt liðið. Krist- inn Jóhannsson ,sem oft hefir verið þeirra sterkasti maður virt ist ekki vera eins frískur og und- anfarið. Hin sterka vörn ÍR gerði og stúdentunum erfitt fyrir með að koma knettinum frá sér, er þeir voru við körfuna. Bezti mað ur .stúdentanna í þessum leik var Þórir Arinbjarnarson, sem barð- ist allan leikinn af miklum móði. ÍR-ingarnir voru öruggari. Ragnar Jónsson, hinn kunni hand knatrtleiksmaður FH er mikill styrkur fyrir liðið. Stjórnaði hann oft leiknum utan af vellin- um og dreifði leiknum með hröð- um sendingum, sem urðu til að draga vörn stúdentanna fram og skapa þannig aðstöðu fyrir fram- herjana til að komast að körfunni og skora. — Einn bezti maður ÍR var Hólmsteinn Sigurðsson og koma kostir hans sérstaklega í ljós undir körfunni. Þorsteinn Hallgrímsson er eftirtektarverð- ur leikmaður, fjaðurmagnaður og hefir mikinn stökkkraft. - Á. Á. Myndin hér að ofan er frá leik milli Aston Villa og Wolverhanvpton í undan- úrslitum ensku bikarkeppn innar. Markvörður Úlfanna, Finlayson, slær knöttinn frá miðherja Aston Villa, Hitchens. Leikmaðurinn til hægri, er hægri framvörð- ur Úlfanna, Flowers. Harka í undanúrslitum bikarkeppninnar Leikurinn milli Wolverhampt on og Aston Villa sem háður var á leikvelli W. B. A., var mjög spennandi en ekki sérlega vel leik inn. Völlurinn var harður og frekar ósléttur og áttu leikmenn því oft erfitt um vik, en við þetta sköpuðust mörg mjög spennandi augnablik. Úrslitin eru talin rétt lát enda höfðu leikmenn Woiver hampton nokkra yfirburði þótt þeim hafi aðeins tekizt að setja ,Litlu-OlympíuIeikarnir' í sundi GAUTABORG, 28 .marz. — Al- þjóðamót í sundi var haldið hér í borg um helgina og voru kepp- endur frá átta löndum og allt líklegir fulltrúar þjóða sinna á Olympíuleikjunum í Róm í sum- ar. Löndin ,sem sendu keppend- ur voru: Pólland, Rússland, Finn land, Danmörk, Noregur, Ítalía, England og Svíþjóð. Helztu úrslit á laugardag voru. 200 m bringusund karlar: 1. Pekka Lairola, Finnlandi 2:36,8 (millitími 1:14,0) 2. Klopotowski Póll. 2:39,2 mín. 200 m. bringusund, konur: 1. Christine Godsen, Englandi 2:52, 5 mín. 2. Barbro Eriksson, Svíþj. 2:56,4, sem er nýtt sænskt met. 200 m flugsund karlar: 1. Fred- erico Dennerlein, ftalíu 2:21,0. 2. Hakan Bengtson, Svíþj. 2:26,4. 400 m. skriðsund, karlar: 1. L. Bengtson, Svíþj. 4:36,0. Nordwall Svíþj. fékk sama txma. 3. Toni Milton, Engl. 4:37.0. 100 m. baksund, karlar: 1. Christian Schollmeier, Ítalíu 1:05 8 og annar á sama tíma varð So Grenner, Finnlandi (1:05,8). 100 m. boðsund (skriðsund) kvenna vann England, en Sví- þjóð fékk sama tíma 4:23,4. 100 m. skriðsund, konur: 1. Nat Héraðsþing UMSK HÉRAÐSÞING U.M.S.K. 37. í röðinni var háð í félagsheimili Kópavogs nýlega. Fulltrúar voru mættir frá öllum ungmennafélög- um á svæðinu, en þau eru 5 — norðan úr Kjós og suður á Álfta- nes. Héraðsstjórinn Páll Ólafsson Brautarholti, setti þingið með ræðu og skipaði forseta, fundar- ritara og kjörbréfanefnd. Ýms á- hugamál ungmennafélaganna voru rædd og ályktanir samþykkt ar. Helztu áhugamál félaganna eru nú t.d. frjálsíþróttir, starfs- íþróttir, handknattleikur, skák, bridge og knattspyrna. Merkasta ályktunin var um það að sam- bandið tekur þátt í slysatrygg- ingum íþróttamanna. Það mál er verið að undirbúa bæði hjá ÍBR og ÍSÍ. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Sambandsstj. Páll Ólafsson. Meðstjórnendur: Sig. Gunnar Sigurðsson, Mosf., Sam- úel Guðmundsson, Kópavogi, Steinar Ólafsson, Kópavogi og Stefán Eyþórsson, Álftanesi. Þingið stóð í rúma 12 tíma og var viðurgerningur fulltrúa fé- lögum í Kópavogi til sóma. Þingforsetar voru Jón M. Guð- mundsson og Ármann Pétursson, en ritarar Birgir Ás og Björgvin Guðmundsson. —- J. alie Stewart, Englandi 1:04,6. 2. Bibbi Segerström, Svíþj. 1:05,8. Helztu úrslit síðari daginn urðu þessi: 400 m. skriðsund, konur: Jane Cederqvist, Svíþjóð 4:56,8. 2. Bibbi Segerström, Svíþjóð 5:03,2. 3. Judy Samuel, England 5:03,2. 4x200 m. boðsund (frjáls að- ferð) karlar: 1. Svíþjóð 8:32,8. — Þetta er nýtt sænskt met. Gamla metið var 8:38,2. Svíar hafa unn- ið þarna stór sigur, því að Ítalía varð nr. 2 á 8:40,5. 100 m. flugsund, konur: 1. Christine Godsen, Englandi 1:14,2 2. Kristina Larsson, Svíþj. 1:14.7. 100 m. baksúnd, konur: 1. Nat alie Stewart, England 1:12,6. 2. Gullbritt Jönson, Svíþj. 1:14,2. 100 m. skriðsund, karlar: Po Lindberg, Svíþjóð 56,8 sek. 2. Bengt Nordwall, Svíþj. 57,0. 3. Giorgio Perondini, Ítalíu 57,4. — G. Þ. P. Sundmót KR í kvöld Keppendur eru 52 HIÐ árlega sundmót KR verður haidið í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld og hefst kl. 8,30. Sjö að- ilar senda keppendur til móts- ins, íþróttabandalag Akraness (6), íþróttabandalag Keflavíkur (8), Sundfélag Hafnarfjarðar (9f, Ármann (18), Ægir (11), ÍR (5), og KR (4). — f 100 m bringu- sundi karla koma til með að berjast um sigurinn Sigurður Sigurðsson ÍA og Hörður Finns- son ÍBK. — í 200 m bringusundi kvenna er Hrafnhildur Guð- mundsdóttir ÍR, líklegust til sig- urs. — Hörður Finnsson ÍBK, kemur til með að veita Guðmundi Gislasyni keppni í 200 m skrið- sundi karla og í 100 m skriðsundi kvenna keppa nöfnurnar Hrafn- hildur Sigurbjörnsdóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir við methafann Agústu Þorsteins- dóttur, A. — eitt mark. Mark Aston Villa komst oft í mikla hættu, en mark vörðurinn Sims varði vel og bjargaði oft snilldarlega þegar öll von virtist úti. Vörn Wolverhampton var að venju aðalstyrkur liðsins með þá Flowers, Slater og markvörðinn Finleyson sem beztu menn. Tókst vörninni að einangra Peter Mc Parland, útherja Aston Villa, sem af mörgum er álitinn einn bezti útherji Bretlands um þessar mundir. Var eins og framlína Aston Villa kæmist aldrei í gang enda hefur McParland ver- ið þar helzta driffjöðrin. Framlína lyolverhampton lék vel, en tókst þó ekki að nýta allar sendingar, sem komu frá vörninni. Broadbent útherji T"lf- anna átti einn sinn bezta leik í vetur og átti hann mikinn þátt í markinu. Hann fékk boltann um miðbik vallarins og lék síðan á nokkra andstæðinga, brunaði upp kantinn og gaf mjög vel fyr- ir markið til Murray sem skaut viðstöðulaust á markið. Skotið var það fast, að Sims, markvörð ur Aston Villa, hélt ekki boltan- um og hrökk hann frá honum til Deeley, vinstri útherja úlfanna, sem ekki var seinn á sér að senda hann í netið og komst Wolver- hampton þannig verðskuldað á Wembley í 8 .sinn. Leikurinn milli Sheffield Wednesday og Blackburn var einnig mjög spennandi en þar að auki var hann vel leikinn. Fyrri hálfleikurinn var jafn og skipt- ust liðin á góðum og vel skipu- lögðum upphlaupum. Á 12. mín. skoraði Dougan fyrir Blaekburn og var staðan þannig í hálfleik. f síðari hálfleik skipti um, Sheff ield Wednesday náði smám sam- an tökum á leiknum og á 55. mín. lá knötturinn í marki Blackburn eftir gott skot frá Finney. Dóm- arinn var ekki alls kostar ánægð- ur með markið og dæmdi rang- stöðu, en áhorfendur og leik- menn Sheffield-liðsins mótmæltu kröftuglega, en allt kom fyrir ekki. Blackburn notaði sér þetta tækifæri og áður en andstæðing arnir höfðu jafnað sig hafði Dou gan skorað annað mark. Sheffi- eld-liðið tók nú leikinn alger- lega í sínar hendur og nokkrum mínútum fyrir leikslok tókst þeim að skora, og þrátt fyr- ir ákafa sókn síðustu mínúturnar tókst ekki að jafna. Ekki er hægt að segja að sigur Blackburn hafi verið verðskuldaður en liðinu er þó hrósað fyrir fallega knatt- spyrnu. Þetta er einnig í 8. sinn sem Blackburn kemst á Wemb ley, en sá er munurinn að Black burn hefur sigrað í keppninni 6 sinnum en Wolverhampton þrisv ar. — Úrslitaleikurinn fer fram 7. maí n.k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.