Morgunblaðið - 30.03.1960, Side 24
V EÐ RIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
tittMiriHfr
Alsír
Sjá blaðsíðu 13.
75. tbl. — Miðvikudagur 30. marz 1960
Kappræðufundurinn i gærkveldi:
Æskan mun fylkj
viðreisnarstefnu
ríkisstjórnarinnar
„Látum landið allt loga / mótmælum
og átökum" var boðskapur kommúnista ^Tétílnd
a ser um
um. Allir vildu þeir halda í visi-
töluskrúfuna, töldu frjálsa verzl-
un háskalega en alls kyns höft til
blessunar. Að vonum fann þessi
málflutningur lítinn hljómgrunn
meðal fundarmanna. Athyglis-
vert var að allir ræðumenn
kommúnista hvöttu til verkfalla
og viðhafði Guðmundur J. þessi
ummæli: „Látum landið allt loga
Á KAPPRÆÐUFUNDI Heimdall
ar og Æskulýðsfylkingarinnar í
gær kom greinilega í Ijós, að ís-
Ienzkur æskulýður mun fylkja
sér um viðreisnarstefnu ríkis-
stjórnarinnar og fordæmir hafta-
og uppbótastefnu vinstriflokk-
anna.
Um kl. 7 tóku menn að safnast
við dyr Sjálfstæðishússins og kl.
8 þegar húsið var opnað voru
þar fyrir mörg hundruð ung-
menna og troðfylltist húsið á
3—4 mínútum.
Ræðumenn af hálfu Heimdall-
ar voru þeir Birgir ísl. Gunnars-
son, stud. jrrr., formaður félags-
ins, Othar Hansson, fiskvinnslu-
fræðingur og Pétur Sigurðsson,
alþm. Röktu þeir í ágætum ræð-
um framvindu efnahagsmálanna
í tíð vinstri stjórnarinnar og lýstu
Koma ört inn
AKUREYRI, 29. marz. — Togar-
arnir hafa komið inn nokkuð ört
nú um helgina, og mun það af
einhverju leyti standa í sam-
bandi við yfirvofandi verkfali.
Á laugardaginn landaði Kald-
bakur 130 tonnum eftir 8 daga
útivist. í gær landaði Harðbakur
150 tonnum eftir 9 daga útivist
og í dag landaði Svalbakur 120
tonnum eftir 7 daga útivist. Fisk-
urinn er frekar smár og hefur
ýmist verið unninn í frystihúsi
útgerðarfélagsins eða farið í
skreið. — S.
Málfundur í kvi'dd
NÁMSKEIÐ verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins og Óðins heldur
áfram í kvöld kl. 8,30 í Valhöll.
Verður þá málfundur.
Crettis-saga
i myndum
ÞANN 16. marz sl. hófst í
Lesbók barnanna mynda-
saga úr Grettissögu og birt
ist hún nú í þriðja sinn í
blaðinu í dag. Þættirnir úr
Njálssögu, sem nýlega er
lokið í Lesbók barnanna,
urðu mjög vinsælir meðal
barna og unglinga, og raun
ar einnig fullorðinna.
Það er ástæða til að hvetja
alla til að fyigjast með sög
unni um Gretti, kappann
gæfulausa, sem lengst var í
útlegð alira sekra manna á
íslandi. Jafnóðum og
myndasagan birtist ættu
menn að lesa Grettissögu
sjálfa, þar sem með mynd-
unum er aðeins útdráttur.
En myndirnar munu aftur á
móti gera börnUm og ungl-
ingum auðveldara með að
skilja og meta söguna en
ella.
Halldór Pétursson teiknar
myndirnar, en Kristján J.
Gunnarsson, ritstjóri Les-
bókar barnanna, velur text
ana.
i
helztu þáttum viðrejsnaráforma
ríkisstjórnarinnar. Hlutu ræður
þeirra afbragðsgóðar undirtektir
fundarmanna og var greinilegt að
mikill meirihluti á fundinum var
fylgjandi hinni nýju efhahagslög-
gjöf.
Ræðumenn kommúnista voru
þeir Ingi R. Helgason, Guðmund-
ur J. Guðmundsson og Eysteinn
Þorvaldsson. Ræður þeirra voru
sami söngurinn og þeir hafa á-
vallt kyrjað á kappræðufundun-
armenn þá óspart í ljós andúð
sína.
Spilak\öld
HAFNARFIRÐI. — Félags-
vist Sjálfstæðisfélaganna er í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 8,30. — Eins og
venjulega verða verðlaun
veitt og síðar heildarverð-
laun.
Fjárlög 1960 afgreidd í gær
Greiðsluafgangur 623 þús. kr.
FJÁRLÖG 1960 voru af-
greidd frá Alþingi í gær að
loknum þremur umræðum í
sameinuðu þingi. Lauk þriðju
umræðu í fyrrinótt, en at-
kvæðagreiðsla stóð yfir frá
2,30 til 7 e. h. í gær. Úrslit
atkvæðagreiðslunnar urðu
þau, að samþykktar voru til-
lögur frá fjárveitinganefnd í
heild og tillögur frá meiri
hluta fjárveitinganefndar og
frá samvinnunefnd samgöngu
Tólf ára telpa
slasast
GJÖGRI, 29. marz: — Um tólf
leytið í dag vildi það slys til að
tólf ára telpa, Heiðrún Svein-
'björnsdóttir frá Valgeirsstöðum
slasaðist á fæti. Atvik voru þau,
að verið var að flytja þungavöru
á dráttarvagni frá Kaupfélaginu
á Norðurfirði til Valgeirsstaða. A
leiðinni var ekið hægt, og sat
Heiðrún á vagninum við hjólin.
Mun hún hafa stokkið af honum,
hrasað og lent með fótinn undir
hjóli vagnsins.
Sækja átti lækni til Djúpavík-
ur, en svo heppilega vildi til, að
Skjaldbreið var á undan áætlun
bingað í dag og var stúlkan flutt
með henni til Djúpavíkur. Er
líklegt talið að telpan hafi fót-
brotnað, en fóturinn var illa far-
inn og blár upp að hné. — Regina.
mála. Auk þessara tillagna
var samþykkt breytingartil-
laga frá forsetum Alþingis o.
fl. um að veita Helga Hjörvar
20.000 kr. til ritstarfa og við-
urkenningar fyrir störf í
þágu Alþingis um nær 50 ára
skeið. Tillögur stjórnarand-
stöðunnar voru allar felldar.
Dráttarbraut á ísafirði
Af þeim breytingartillögum,
er samþykktar voru i gær og
ekki hefur verið getið hér í blað-
inu, má nefna heimild handa
ríkisstjórninni til að ábyrgjast
allt að 3 millj. kr. lán fyrir skipa
smíðastöð M. Bemharðsson hf. á
Isafirði vegna byggingar nýrrar
dráttarbrautar, við þeim láns-
kjörum og gegn þeim trygging-
um, sem ríkisstjórnin metur gild
ar.
Bókasafn séra Helga
Ennfremur var samþykkt
heimild til handa ríkis-
stjórninni að kaupa bóka-
safn séra Helga Konráðsson-
ar prófasts fyrir allt að 250 þús.
kr., enda náist samkomulag við
aðila í Skagafirði um að greiða
allt að % hlutum af andvirði
safnsins og um ráðstöfun þess til
fræðiiðkana á þann hátt, sem
ríkisstjórnin telur viðunandi.
Framkvæmdir á Rafnseyri
, Þá var samþykkt að verja 500
þús. kr. til framkvæmda á Rafns
eyri. Er þar verið að byggja skóla
hús og prestssetur og vantar um
1 milljón króna til þeirra fram-
kvæmda.
30 aurar í Landgræðslusjóð
Einnig var samþykkt að heim-
ila ríkisstjórninni að leyfa Tó-
bakseinkasölu ríkisins að ^etja
merki Landgræðslusjóðs á vindl-
ingapakka, eftir nánari ákvörð-
un fjármálaráðuneytisins, og
greiða sjóðnum allt að 30 aurum
af hverjum vindlingapakka, er
hpn selur með merki sjóðsins.
Báturinn lenti
upp á bryggju
MYNDIN, sem hér fylgir,
er af vélbátnum Hörpu SH
9 frá Stykkishólmi. Hann
rær héðan frá Reykjavík og
kom í fyrrakvöld um sex-
leytið með ágætan netaafla.
Er búið var að Ianda og
báturinn að taka frá, lenti
hann upp á endann á Lofts-
bryggjunni og sat þar. Var
að falla út og hallaðist bát-
urinn jafnt og þétt.
Hafnsögumenn aðstoðuðu
eigendur bátsins við að
koma honum af bryggjunni.
Náðist hann út í annarri til-
raun og virtist óskemmdur.
Bifreið finnst gereyðilögð
Óðu upp í mitti
ÞAÐ bar við í gærdag, að nem-
endur í Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar voru í gönguferð á leið út
í Örfirisey með tveim kennurum
sínum. A leiðinni yfir Granda-
garð tóku nokkrir piltar sig út
úr hópnum og hlupu út í Hólm-
inn, hinn forna verzlunarstað,
framundan Ánanausti, sem nú
mun nefndur Selsker. Liggur
grandi þar út og má ganga þar
yfir þurrum fótum á fjöru.
Kennararnir hlupu til og ætl-
uðu að koma drengjunum í land
aftur, því skammt var til flóðs.
En þá elti allur unglingaskarinn
hátt í hundrað krakkar.
Fyrr en varði tók að flæða yfir
grandann og varð þá mikill
handagangur að komast yfir. Þeir
sem seinastir urðu fyrir, máttu
vaða upp í mitti til að komast
yfir og nokkrir rrrðu þar haus-
blautir. Var kallað á lögregluna
og gerðar ráðstafanir til að koma
unglingunum til aðstoðar, en þeir
komust allir yfir heilu og höldnu
og voru fljótir að hraða sér á
brott.
UM fimmleytið í gærmorgun var
lögreglunni tilkynnt, að fundizt
hefði mjög skemmd bifreið við
Suðurlandsveginn á móts við
Rauðhóla.
Er komið var á vettvang, sást
að hún mundi hafa endastungizt
og komið niður á hjólunum. Var
grindin öll bogin og yfirbygging-
in skemmd. Er talið að bifreiðin
sé með öllu ónýt. Ekki voru sýni-
leg merki þess, að slys hefði orð-
ið á mönnum, en má furðulegt
teljast ef svo hefur ekki verið.
Eigandi bifreiðarinnar, sem er
af Kaiser-gerð, R-3633, árg. 1954,
er Guðmundur Guðmundsson,
Gnoðarvogi 82. Hefur hann til-
kynnt lögreglunni ,að bifreiðin
hafi verið fyrir utan hús hans
kl. 12 á miðnætti í fyrrakvöld.
Hefur atburður þessi því orðið
IMý lögreglu-
bifreið á
Akureyri
Akureyri, 29. marz.
LÖGREGLAN á Akureyri
mun nú á næstunni taka í
notkun nýja og fullkomna
lögreglubifreið. Er bifreið-
in af Fordgerð, árgerð 1960,
og búin öllum fullkomnustu
tækjum, sem slíkar bifreið-
ir hafa. Er m. a. í henni
sendi- og móttökutæki,
sem gera lögreglumönnum
kleift að hafa samband við
lögreglustöðina hvar sem
þeir eru í bænum svo og úr
nærliggjandi sveitum.
— S.
á tímabilinu kl. 12—5 um nóttina
og eru menn, sem kunna að hafa
orðið varir við ferðir bifreiðar- ‘
innar á þeim tíma, vinsamlega
beðnir að gera rannsóknarlög-
reglunni aðvart.
Mjólkurbílstjóri
slasast
AKRANESI, 29. marz: — Bíl-
stjórinn á mjólkurbílnum hér ut-
an Skarðsheiðar, Böðvar Þor-
valdsson, marðist illa á hægri
síðu í fyrradag. Hann hafði lagt
bílnum við mjólkurpall bænd-
anna á Þaravöllum í Innri Akra-
neshreppi. Böðvar var kominn út
á pallinn og stóð með stóran
mjólkurbrúsa í fanginu, þegar
ein fjöl í pallinum brotnaði und-
an fæti hans. Kastaðist hann þá
á staur, er stóð upp úr pallinum
og marðist svona við það.
— Oddur.
Afli Sandgerðis-
báta
SANDGERÐI, 29. marz. — 17 bát
ar voru á sjó í gær og fengu
159 lestir. Víðir II. var hæstur
netabáta með 18 lestir, Hamar
með 15,5 og Helga með 14,6. Aðr-
ir bátar voru með allt niður í 4
lestir. Af línubátum var Jón
Gunnlaugs hæstur með 15 lestir.
Allir bátar voru á sjó í dag.
— Axel.