Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 1
24 síður 09 Barnalesbók
Lðgregluþjónn
stal 12 þús. kr.
Hirti hluta af skemmtanaskattinum
BÆJARFÓGETINN í Kefla-
vík staðfesti í gærkvöldi við
Morgunblaðið að fyrir nokkr-
um dögum hefði lögreglu-
manni í Keflavíkurlögregl-
unni verið vikið úr starfi
vegna misferlis, sem hann
gerðist sekur um. Hér er um
ungan lögreglumann að
ræða, sem starfað hafði í um
það bil 6 mánuði, er hann
varð uppvís að því að hafa
stolið peningum í starfi sínu
sem iögreglumaður.
Þannig er mál með vexti, að
skemmtanaskattur er innheimt-
ur strax sama kvöldið á dans-
leikjum, sem haldnir eru í lög-
sagnarumdæminu á laugardags-
kvöldum. Svo er farið með þenn-
an skatt og hann geymdur í hirzl
um lögreglunnar á lögreglustöð-
inni unz bæjarfógetaskrifstofan
opnar á mánudagsmorgnum. Ungi
lögreglumaðurinn mun ýmist
hafa farið í þessa hirzlu og stolið
peningum eða tekið þá er hann
átti að fara með þá í bæjarfógeta
skrifstofuna.
Stal 12 þús. kr. á sex mánuðum
Fjárhæð sú sem maðurinn hef-
ur stolið með þessum hætti nú
í vetur, því ekki hefur hann
starfað lengur í lögreglu Kefla-
víkurkaupstaðar en 6 mán., nem-
ur um 12 þús. kr.
Rannsókn þessa þjófnaðarmáls
mun vera lokið í Keflavík og
verður það nú sent dómsmála-
ráðuneytinu til umsagnar. En eft-
ir því sem blaðið hefur frétt, mun
grunur leika á því, að maður-
inn hafi átt hlutdeild í innbrot-
um á Keflavíkurflugvelli áður en
hann gerðist lögregluþjónn. En
rannsókn þess atriðis mun standa
yfir, og hann mun ekki hafa
viðurkennt að eiga neina hlut-
deild í því.
Robert Quentin-Baxter
fulltrúi Nýja Sjálands
Geysis slysib kvik-
myndað á íslandi
Kaupmannahöfn, 5. apríl. —
Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl.
KVIKMYNDAFÉLAGIÐ
Nordisk Film er nú að undir-
búa kvikmyndun af frásögn-
inni um Geysis-slysið á Vatna
jökli árið 1950 og björgun
áhafnarinnar, en frásögn
þessi birtist sem framhalds-
saga í danska vikuritinu
Familie Journal og var
síðar þýdd á íslenzku.
Israel viðurkennir
sérstöðu íslands
Genf, 5. apríl.
Frá fróttaritara Mbl. í>. Th.
RÆÐUHÖLD ganga mjög
seint hér á landhelgisráðstefn-
unni. Árdegis í dag tókst að-
eins tveim fulltrúum að ljúka
ræðum sinum, en það voru
þeir Baxter frá Nýja Sjálandi
og Corea frá Ceylon.
Álitið er vonlaust að at-
kvæðagreiðsla geti farið fram
í þessari viku í heildarnefnd-
De Gaulle fagnað í London
London, 5. apríl — (Reuter). —
DE GAULLE Frakklandsfor-
seti kom í dag í opinbera
heimsókn til Bretlands, og
mun dvelja þar í fjóra daga.
— Á Victoria járnbrautar-
stöðinni voru mætt til að taka
á móti honum Elisabet
drottning og maður hennar,
Macmillan forsætisráðherra
og fleira stórmenni. Er þetta
í fyrsta sinn að Elísabet kem-
ur fram opinberlega eftir að
Andrew prins fæddist.
De Gaulle og kona hans fóru
með Caravelle-þotu frá París til
Gatwick-flugvallar í Bretlandi og
fylgdu þotunni sex brezkar
orustuþotur. Frá Gatwick var
farið með járnbrautarlest til
Lundúna.
Þetta er í fyrsta sinn I 16 ár
að de Gaulle kemur til London,
en á stríðsárunum var hann sem
kunnugt er búsettur þar sem
leiðtogi Frjálsra Frakka. 1 fylgd
með forsetanum er utanríkisráð-
herra Frakka, Maurice Couve de
Murville.
Hundruð þúsunda Lundúnabúa
fögnuðu forsetanum er hann ók
ásamt Elisabetu drottningu í
opnum, skrautbúnum vagni frá
járnbrautarstöðinni til Bucking-
hamhallar. Alls staðar kváðu við
hrópin „Vive de Gaulle“ og „Vive
la France“.
Ræðir við Macmillan
Opinberlega er de Gaulle að
heimsækja Bretadrottningu, en
hann mun einnig eiga viðræður
við Macmillan forsætisráðherra
og brezku ríkisstjórnma og flytja
ávarp í brezka þinginu.
Búizt er við að de Gaulle noti
þetta tækifæri til að fara fram
á það að Frakkar fái aðgang að
kjarnorkuleyndarmálum Breta
og Bandaríkjamanna, með hlið-
sjón af því að Frakkar hafa nú
þegar sprengt tvær kjarnorku-
sprengjur.
Þá er gert ráð fyrir að de
Gaulle og Macmillan ræði undir-
búning undir væntanlegan
„topp“ fund Austur og Vesturs
í París, áhrif af heimsóknum
Krúsjeffs til Parísar og Mac-
millans til Washington og sam-
bandið milli Evrópumarkaðs-
landanna, sem Frakkland er að-
ili að, og Fríverzlunarsvæðisins
(EFTA), sem Bretland tilheyrir.
Skiptust á gjöfum
Franska fréttastofan AFP seg-
ir að de Gaulle hafi við kom-
una til Buckinghamhallar fært
drottningunni að gjöf úrvals
Aubusson-glitvefnað, en manni
hennar valin frönsk vín og líkj-
öra. Elísabet drottning þakkaði
fyrir sig með því að gefa for-
setahjónunum Colport postulíns-
borðbúnað.
Háskalegt fram-
ferði Tímans og
Þjóðviljans
Hefja brigzlyrði um svik og und-
anhald i landhelgismálinu!
I FORYSTUGREINUM Þjóð-
viljans og Tímans í gær eru
hafin brigzl og dylgjur um
það, að fyrir dyrum kunni að
standa svik og undanhald af
hálfu stjórnarflokkanna í land
helgismálinu!
Þessa háskalegu iðju hefja
blöð kommúnista og Frain-
sóknarmanna rétt í þann
mund, sem til úrslita er að
draga á sjóréttarráðstefnunni
í Genf, þar sem forystumenn
allra hinna íslenzku stjórn-
málaflokka skipa sendinefnd
Islands!
Um þetta atferli stjórnar-
andstöðunnar hér heima er
bezt að hafa sem fæst orð. Um
það er þó rætt nokkru nánar í
Staksteimim blaðsins í dag á
bls. 3.
inni um framkomnar tillögur
og talið sennilegt að ráðstefn
unni ljúki ekki fyrr en viku
eftir páska. Stöðugt fleiri rök
eru borin fram fyrir tímatak-
mörkuðum sögulegum rétti
eða uppsagnarfresti á veiði-
rétti innan 12 mílna, og flestir
ræðumanna farnir að minnast
á þann möguleika. Bæði
Ghana og Nýja Sjáland hafa
í ræðum áskilið sér rétt til
að bera fram slíka tillögu ef
aðrir geri það ekki. Heyrist
mér að orðrómur sé farinn að
ganga um það að Bandaríkin
beiti sér fyrir slíkri tillögu,
en ætlun þeirra sé að smáriki
fremur en stórveldi beri hana
fram. Ekkert er þó ákveðið
enn.
Langorðir
Fulltrúar Nýja Sjálands og
Ceylons, sem báðir studdu banda
rísku tillöguna á síðustu ráð-
stefnu, töluðu hvor um sig í þrjá
stundarfjórðunga og ræddu báð-
ir um tímatakmörkuð söguleg
réttindi.
Fulltrúi Nýja Sjálands, Robert
Quentin-Baxter, talaði mikið um
fórnir og erfiðleika fjarlægra
ríkja, sem þyrftu að gerbreyta
efnahagskerfi sínu vegna fisk-
veiðilögsögubreytinganna.
Fulltrúi Ceýlon ræddi einnig
mikið um tímatakmörkun, en var
henni mótfállinn. Taldi hann að
Bandaríkin hefðu þegar gengið
allt of langt til móts við strand-
ríkin, með því að bjóða takmörk-
un þess afla er taka mætti inn-
an tólf mílna. Útilokað væri að
ganga lengra. Þá kvaðst hann
algerlega mótfallinn því að
strandríki hefði einkarétt til
veiða utan sex mílna, en veita
mætti strandríkinu forgangsrétt-
indi.
Sérstaða íslands
Á síðdegisfundinum töluðu
Rafael frá ísrael og Lamani frá
Albaníu.
Gideon Rafel, fulltrúi fsraels,
vildi takmarka sem mest bæði
landhelgi og fiskveiðilögsögu, sem
tepptu frjálsar siglingar. Ekki
væri mikinn fisk að fá af botni
Miðjarðarhafsins, þess vegna
myndu þeir smíða togara til að
sækja miðin í Atlantshafi. Nauð-
synlegt væri að stuðla að því að
víðáttumikil fiskisvæði vær« öll-
um opin. Hins vegar kvaðst hann
fylgja bandarísku tillögunni til
Framhald á bls. 'i
Strax og frásögnin birtist,
tryggði Nordisk Film sér kvik-
myndaréttinn á henni, en marg-
ar umsóknir bárust um hann frá
þýzkum, brezkum og bandarísk-
um kvikmyndafélögum.
Kvikmyndin verður tekin á ís-
landi, sennilega sumarið 1961. —
Enn er ekki ákveðið hverjir leika
í myndinni ,en höfundurinn, Erik
Pouplier, er þegar farinn að
vinna að kvikmyndahandritinu.
Erik Balling, leikstjóri hjá Nord-
isk Film, mun stjórna mynda-
tökunni, og er gert ráð fyrir að
hann fari til íslands í sumar til
að undirbúa tökuna. Ráðgert er
að myndin verði gerð í alþjóða
útgáfu, ef til vill í samvinnu við
eitthvert hinna erlendu félaga,
sem sótt hafa um réttinn.
Nordisk Film félagið segir að
sérstakur óhugi ríki á Islandi
fyrir því að danskt félag ann-
ist tökuna, og hafin sé þegar
dönsk-íslenzk samvinna til að
koma þessu erfiða verki í fram-
kvæmd.
ísland
hefur
sérstöðu
Genf, 5. april. — Einka-
skeyti til Mbl. frá Þ. Th.
I D A G átti ég stutt
samtal við Dean, aðal-
fulltrúa Bandaríkjanna
hér á landhelgisráðstefn-
unni, og spurði hann
hvort fram færi að koma
málamiðlunartillaga um
tímabundinn sögulegan
rétt tii veiða á svæðinu
milli sex og tólf mílna.
Dean kvaðst ekki geta
sagt neitt ákveðið um
það, en sagði að sátta-
horfur hefðu farið mjög
batnandi. Þá sagðist
hann vona að hægt yrði
á einhvern hátt að varð-
veita rétt Islands, sem
hefði algjöra sérstöðu.
Dean kvað vonlaust að
ráðstefnunni lyki fyrir
páska.
□-
-□
Miðvikudagur 6. apríl.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Genf — íslenzkur sögustaður.
— 6: Listahátíð í Reykjavík.
— 8: Ef kærleikur er glæpur «
(rammi).
— 10: Hjarta Vestmannaeyja.
— 12: Forystugreinin: Auðhringurinn
kvartar.
Kastali Hamlets.
— 13: Miklabrautin í Reykjavík.
— 14: Búnaðarháskóli að Hvanneyrl.
— 15: Stofugullsópur (grænn rammi).
— 17: Fyrir unglingana.
— 22: íþróttir.
□-
)