Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
81. tbl. — Miðvikudagur 6. apríl 1960
LISTAHÁTÍÐ
í Reykjavík. — Sjá bls. 6.
Lögregluþjdnn
í varðhaldi
Talinn standa að líflátshótunar-
bréfi til lógreglustjóra
EINN af lögregluþjónum Reykjavíkurlögreglunnar hefur
verið úrskurðaður í varðhald af öryggisástæðum. Er hér um
að ræða þátt í rannsókn á kærumáli, sem hófst með því að
Magnús Guðmundsson lögregluþjónn kærði varðstjóra
sinn í liðinu, Magnús Sigurðsson. Var þessari kæru hans
svarað með kæru frá Iögreglustjóranum, Sigurjóni Sigurðs-
syni. Er Magnús kærður fyrir að hafa sent lögreglustjór-
anum hótunarbréf þess efnis að lögreglustjórinn yrði tek-
Inn af lífi von hráðar.
Tvö hótunarbréf í janúar
Rannsókn máls þessa hófst á
xnánudaginn. Þá hafði dómsmála-
ráðuneytinu borizt kæra frá
Magnúsi Guðmundssyni lögreglu
þjóni á hendur varðstjóra sín-
um, sem fyrr greinir. Bar hann
á hann ýmsar vammir og skamm
ir: persónulegar ofsóknir, aug-
ljósa mismunun í starfi og ann-
að þess háttar. — Hafði ráðu-
neytið sent þessa kæru til um-
sagnar lögreglustjórans. Svar
hans var að leggja fram mót-
kæru á hendur lögregluþjónin-
um þess efnis, að hann hefði
skrifað sér tvö hótunarbréf í
janúar sL þess efnis að hann
(lögreglustjórinn) yrði tekinn af
lífi.
Við rannsókn málsins, sem er
í höndum Guðmundar Ingva
Sigurðssonar hefur þegar verið
leitt vitni, sem unnið hefur eið
að því að hafa séð hjá Magnúsi
vélritað hótunarbréf til lög-
reglustjórans, sams konar að efni
til og um ræðir í þessu saka-
xnálL
/ Neitaði — kærði vitni
f A mánudagsmorguninn, er
Magnús Guðmundsson kom fyr-
ir réttinn, neitaði hann eindreg-
ið að hafa sent þetta hótunar-
bréf. Við það tækifæri sagði
hann að vitni, sem leitt hefði
verið fyrir dóminn (lögreglu-
þjónninn), hefði undir höndum
birgðir af smygluðu áfengi. Sam-
stundis lét rannsóknardómarinn
senda á heimili þessa manns og
gera þar húsleit að hinu smygl-
aða áfengi, en leitin varð árang-
urslaus og lögregluþjónninn
neitaði þessari ákæru.
Skammbyssa fannst
Vegna rannsóknar málsins var
Magnús um hádegið á mánudag-
inn úrskurðaður í varðhald. —
Þegar hann var færður í gæzlu-
varðhald, var gerð á honum
leit, svo sem venja er. Fannst
þá í vasa hans lítil skammbyssa
óhlaðin. Skot fundust ekki í föt-
unum, en við frekari ieit fund-
ust kúluskot í þessa byssu. —
Byssan virtist mjög slitin og
vafasamt er að hún sé virk. —
Trúnaðarlæknir sakadómara-
embættisins var kallaður til og
ræddi hann við Magnús. Að
þessu samtali loknu og í sam-
ráði við lækninn, var Magnús
úrskurðaður í varðhald af ör-
yggisástæðum.
Þá er Magnús Guðmundsson,
sem er þritugur maður vestan frá
Patreksfirði og méð alllangan
starfsferil í Reykjavíkurlögregl-
unni að baki, grunaður úm að
standa að baki ærumeiðandi
blaðaskrifum í Þjóðviljanum og
Tímanum um yfirstjórn lögregl-
unnar, en þær greinar hafa birzt
undir dulnefni.
Rannsókn málsins verður hald-
ið áfram.
Friðrik vann
SKÁKMÓTIÐ í Mar Del Plata í
Argentínu, sem Friðrik Ölafsson
tekur þátt í, var sett 28. marz og
1. umferðin tefld dagnn eftir.
Þátttakendur eru 16 talsins og
meðal þeirra sovézku stórmeistar
arnir Spasski og Bronstein, banda
riski meistarinn Bobby Fischer
og argentíski skákmeistarinn
Eliskaskis.
í 1. umferð tefldi Friðrik við
Carlos (Argentínu) og vann þá
skák. Hann hafði svart. Spasski,
Bronstein og Fischer unnu allir
sinar skákir, en Eliskaskis gerði
jafntefli.
Veiði í Mývatni og
fugladauðinn þar
áhyggjuefni
í SÍÐASTA Dýraverndara er
grein um silungsveiðina og fugia-
lífið við Mývatn. Segir þar að
náttúruverndarráð og veiðimála
stjóri hafi þungar áhyggjur af
málum þessum. Fuglalifinu við
vatnið er hætta búin vegna
hinna miklu netalagna Mývetn?
inga.
Segir Dýraverndarinn, að tekj
ur Mývetninga af silungsveiðinni
sé um ein milljón á ári. Bændurn
ir geti ekki lifað mannsæmandi
lífi nema þeir hafi tekjur af sil-
ungsveiðinni í Mývatni, svo fjöl-
býlt er orðið þar í sveitinni. Segir
blaðð hér vera mikið vandamál.
Eigi að síður vilja náttúru- og
dýraverndunarmenn fá netaveiði
bannaða í Mývatn með öllu yfir
ungatímann, — einkum þó í júlí-
mánuði. Slíku banni verður þó
ekki við komið nema að til komi
samþykki tveggja þriðju allra
bænda, sem veiðirétt eiga í vatn-
inu, sagði Dýraverndarinn. Blað-
ið getur þess að lokum, að raun-
verulega gildi engar reglur um
Gunnar Helgason
Stjórnmálanám-
skeið Óðins og
verkalýðsráðs
SÍÐASTI fundurinn á stjórn-
málanámskeiði Óðins og
verkalýðsráðs verður haldinn
í Valhöll við Suðurgötu í
kvöld kl. 8,30.
Gunnar Helgason talar um
verkalýðsmál.
BHndhríð vestra
í GÆR var komin hrið á Vest-
f jörðum, einkanlega norðantil,
en undanfarið hefur verið þar
sem annars staðar á landinu
fádæma gott veður. Hér sunn-
anlands hefur einnig kóinað
nokkuð og snjóað í fjöll.
1 gær átti blaðið tal við
fréttaritara sinn í Bolungar-
vík. Sagði hann að undanfarið
hefði verið þar sumarveðrátta
og sólskin á daginn, en allt í
einu í gærmorgun hefði verið
komin blindhríð, sem hafði
staðið allan daginnv Var kom-
inn talsverður snjór á göturn-
ar í gærkvöldi, en áður sást
ekki snjór í fjöllum. Bátarnir
voru ailir í landi.
Á Vestfjörðum mun hafa
verið um 3 stiga frost, snjó-
koma norðantil og hvasst en
minni úrkoma sunnantil.
veiði í vatninu, en að veiðimála-
stjóri vilji beita sér fyrir að bann
við allri veiði í því skuli vera frá
27. sept. til 31. jan. ár hvert, —
auk þess 24 klst. í viku hverri
frá miðvikudagskvöldi til fimmtu
dagskvöld á tímabilinu 1. apríl til
26. október.
Ennfremur upplýsir blaðið að
í ráði sé að nota net úr garni,
en slík net eru talin hafa álíka
yfirburði og nælonnetin yfir hin
gömlu baðmullarnet.
Veiðimálastjóri leggur til í til-
lögum sínum, að samanlögð lengd
lagneta í vatninu megi ekki fara
fram úr 7000 metrum. Þá leggur
hann til að dráttarveiði verði
bönnuð frá 1. febr.— 30. apríl.
Varðandi þetta mál segir Dýra-
verndarinn að lokum, að mikil
bót yrði að því ef þessar veiði-
reglur næðu fram að ganga.
Varðandi fuglalífið upplýsti
blaðið, að að því sé nú unnið að
fá fé úr vísindasjóði eða ríkissjóði
til að kosta náttúrufræðing til
rannsókna á fuglalífi á Mývatni
og fugladauða af völdum silunga-
neta.
í gærmorgun kom danska
skipið Klipperen, sem fyrir
rúmri viku tók niðri hjá Ól-
afsvik, til Reykjavíkur og fór í
Slipp. Höfðu komið þrjú göt
á skipið, eitt á stefni og tvö
minni á stjórnborðshlið, og
fylltust botntankar skipsins af
sjó. Var því hleypt á land í
Ólafsvík.
Skipið þurfti því viðgerðar
hér til þess að komast utan.
Var steypt svolítið í það að
innan þar sem það var á ÓI-
afsvík, og komst það þá af
sjálfsdáðum til Reykjavíkur.
Ljósmyndari blaðsins tók
þessa mynd af danska skipinu
í Slippnum í gær. Viðgerð á
því mun taka um viku.
Nýr þingmaður
INGVAR Gíslason lögfræðingur
á Akureyri tók í gær sæti á þingi
í veikindaforföllum Garðars
bónda Halldórssonar á Rifkels-
stöðum í Eyjafirði, 4. þm. Norð-
uxlandskjördæmis eystra. Kjör-
bréf hins nýja þingmanns lá ekki
fyrir fundinum en kjörbréfa-
nefnd mælti með að tekin yrði
gilö símsend staðfesting for-
manns yfirkjörstjórnar kjördæm-
isins á kosningunni og féllst þing
hemur á það. Þingmaðurinn und
irritaði síðan eiðstaf þingmanna.
Hrapoði 300 m.
í íjalli
f GÆR flaug Gunnfaxi, Douglas
flugvél Flugfélagsins, til Græn-
lands og sótti þangað slasaðan
mann. Sagt var að um innvortis
blæðingu myndi vera að ræða
og fór dr. Friðrik Einarsson
læknir með flugvélinni, en þetta
er þriðja Grænlandsflug hans á
skömmum tíma í sömu erindum.
Gekk ferðin vel, og lenti flug-
vélin á Reykjavíkurflugvelli
laust fyrir kl. 10 í gærkvöldi.
Flugstjóri í förinni var Ingi-
mundur Þorsteinsson.
í gærkvöldi átti blaðið tal við
Ingimund. — Sagði hann að
maðurinn, sem sem er ung-
ur Dani, mundi hafa hrapað í
fjalli, en jörð var gaddfreðin og
var sagt að hann hefði hrapað
300 m vegalengd. Væri guðs-
mildi að hann skyldi ekki slas-
ast meira. Taldi dr. Friðrik, að
hann væri rifbrotinn og mjaðm-
arbrotinn ,en gat ekki gengið
úr skugga um það fyrr en við
myndatöku, sem áformuð var
strax og komið yrði með mann-
inn í sjúkrahúsið. Ungur íslend-
ingur, Sverrir Georgsson, lækna
nemi, annaðist manninn á Græn-
landi, en hann er nú læknu í
Meistaravík.