Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 6. apríl 1960 MORGVTVLL AÐIÐ 5 Einhleyp kona óskar eftir lítilli íbúð, helzt í mið- eða Austurbæ. — Sími 14956. við vorum i gær. Þér getið ekki ímyndað yður hvað það var | hræðilega leiðinlegt. — Ó, jú, svaraði daman. — Það get ég vel, þér voruð heima hjá ] mér í gær. MENN 06 = AtíÆFMm Flóttamannastofnun Sam einuð'u Þjóðanna hefur á- kveðið að reistur verði nýr iðnskóli handa flóttamönn- um frá Palestinu fyrir fé sem safnazt hefur i ýmsum Iöndum í sambandi við al- þjóðlega flóttamannaárið. Er hér um að ræða fjórða skóla sinnar tegundar fyrir þessa flóttamenn og fyrsta skólann, sem byggður er fyrir f járframlög í sambandi við flóttamannaárið. Mun þessi væntanlegi skóli auka möguleika þessarra flótta- manna á iðnmenntun um 25%. Mun skólinn rúma 225 nemendur, og eiga þeir að dveljast í heimavist meðan þeir eru að Ijúka námi í trésmíði, vélvirkj- un, járnsmðíi, pípulagning- um og fleiri iðngreinum. Kostnaður við byggingu skólans er áætlaður 350. 000 dollarar og kostnaður- inn á hvern nemenda áætl- aður 650 dollarar á ári. Heppilegt að flytja tré BLÖÐIN mættu benda fólki á að j nota nú veðurbííðuna til þess að hreinsa til í görðum sínum eftir veturinn, jafnvel taka trjáklipp urnar fram í dag og klippa trén [ eftir því sem þurfa þykir. Það var einn af forystumönn- um skógræktarinnar, sem þannig I hefur komizt að orði við Mbl. Hann sagði að meðal skógræktar j manna væri sú von almenn að einmitt nú komi hið árvissa | kuldakast, — áður en brum- knapparnir á trjánum taka að I opna sig. — Trén eru nú að vakna af hinum vetrarlanga ] svefni sínum. Það er ekki ofmælt að vor- kuldarnir séu árvissir, því hver skyldi eiginlega muna nokkurt vor að ekki hefur komið kulda- kast með frostum og hríð öðru- hvorumegin við páskana. Nei, það væri mjög æskilegt að fá nú kuldakast með frosti og snjó, sem slotaði eftir páska. — Láta hann ljúka sér af. En um leið og við ræðum um ] trjágróðurinn, þá má benda á að nú fer að verða heppilegur tími | til að flytja tré. Stúlkan sem auglýsti í Mbl. 9. marz, og óskar að kynnast manni, er beðin að vitja um bréf á afgr. Mbl., merkt: „Kynning — 3005“. — 1—2 herb. og eldhús vantar nú þegar eða 14. maí. — Upplýsingar í síma 16390. — Silfurarmband með grænum steinum, tap- aðist. Góð fundarlaun. — Simi 32529. — Húseigendur Smíðum handrið, hliðgrind ur o. fl. — Upplýsingar í sima 33626. Ódýrt Þakskífa til sölu á Suður- landsbraut 104, selst ódýrt. Söngmenn Kirkjukór Laugarneskirkju óskar eftir söngmönnum. (bössum), vinsaml. hafið samband við söngstjóra. — Sími 19054. íbúð Yfirmatsveinn vantar 2—3 herb. íbúð 1. maí eða fyrr. Uppl. í sima 17682, kl. 3—6. Gott píanó eða pianetta, óskast til kaups. — Sími 17895. Til sölu lítil steypuhrærivél á gúmmíhjólum. Benzinvél. Upplýsingar í síma 50655. Til sölu Sjálfvirk þvottavél. Mjög lítið notuð. Upplýsingar í síma 13341. Rafsuðukapall 80 m. af 70-q. rafsyðukap- all, til sölu. Upplýsingar í síma 15004. DIESELMÓTOR Höfum til sölu dieselmótor litið keyrðan. — Einnig bílsturtur. Pípuverksmiðjan h.f. Sími 12551. Bíll óskast Vil kaupa Volkswagen model 1951 eða 1952 í góðu ásigkomulagi. Tilb., er greini verð og greiðsluskil mála, sendist afgr. blaðsins fyrir laugardag, merkt: „B — 13 — 3002“. Útgerðarmenn, vélstjóri reglusamur fjölskyldumað- ur með 900 HK vélapróf og reynslu í starfi, óskar eftir plássi á nýl. báti. Tilb. send ist Mbl., f. 14. þ.m, merkt: „Kraft — Síld — 3003“. Stína litla, sem var aðeins sjö ára gömul, horfði lengi með áhuga á unga manninn, sem var í heimsókn hjá stóru systur henn ar. Loks gekk hún til hans og spurði: — Má ég koma og sitja á hnján um á þér Óli. — Hvers vegna, spurði Öli, undrandi — ætli þú ætlir ekki að rífa í hárið á mér eða kannske reyna að ná mér frá stóru syst- ur þinni. — Nei, nei, svaraði Stína sann- færandi, ég ætla bara að reyna að finna orðið. — Hvaða orð . . . ^ — Jú þegar við vorum að borða miðdagsmatinn í dag, sagði syst- ir, að ef nokkur maður í heim- inum hefði orðið ASNI skrifað á fésinu á sér, þá væri það þú. ★ Yfirhjúkrunarkonan: Afsakið herra yfirlæknir — en þér eruð með hitamæli bak yið eyrað. Yfirlæknirinn: — Þakka yður kærlega fyrir — en hamingjan góða, hvað skyldi hafa orðið af lindarpennanum mínum. ★ Sextugsafmæli á í dag Ásmund ur Árnason, verzlunarmaður hjá Járnvöruverzlun Jes Zimsen. Nlræð verður í dag frú Ingi- björg Sigurðardóttir frá Kirkju- hvammi, nú til heimilis að Löngu 'hlíð 11. Gamla konan er við góða heilsu og er hress vel. Ný’lega voru gefin saman í 'hjónaband af séra Þorsteini Björnssyni, ungfrú Guðrún Kristín Skúladóttir frá Hnífsdal og Karl A. Bergmann úrsmiður, Ljósvallagötu 24. Bókasafn Hafnarfjarðar OdIS alla virka ciaga kl. 2—7. Mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga einnig kl. 8—10 síðd. Laugardaga kl. 2—5. — Lesstofan er opin 4 sama tíma. — Sími safnsins er 30790 Bæjarbókasafn Keflavíkur Utlán eru á mánudögum, miðviku- <iögum og föstudögum kl. 4—7 og 8—10 ennfremur á fimmtudögum kl. 4—7. Lestrarsalurinn opinn mánud., mið- vikud., fimmtud., og föstud. kl. 4—7 Bókasafn Lestrarfélags kvcnna, — Grundarstíg 10, er opið til útlána mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—6 og 8—9. Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 1—3. Minjasafn Reykjavíkur: — Safndeild in Skúlatúni 2 er opin alla daga nema mánudaga kl. 2—4. Arbæjarsafn er lokað. Gæzlumaður sími 24073. Náttúrugripasafnið: — Opið á sunnu- dögum k'L 13:30—15, og þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14—15. Listasafn ríkisins er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 1—3, sunnudaga kl. 1—4 síðdeg. Tæknibókasafn IMSÍ (Nýja Iðnskólahúsinu) Útlánstimi: Kl. 4.30—7 e.h. þriðjud., fimmtud., föstudaga og laugardaga. — Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mið- vikudaga. — Lesstofa safnsins er opin á vanalegum skrifstofutíma og út- lánstima. Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: — Katla er á leið til Spánar. Askja er á leið til Italíu. H.f. Jöklar: — Drangajökull er í Rvík Langjökull er á leið til Ventspils. Vatnajökull er í Rvík. Hafskip hf.: — Laxá er í Lysekil. H.f. Eimskipafélag íslands hf.: — Dettifoss er í Rvík. Fjallfoss er á leið til Grimsby. Goðafoss er á leið til Abo og Rvíkur. Gullfoss er í Rvík. Lagar- foss er á leið til New York. Reykjafoss er á Eskifirði. Selfoss, Tröllafoss og Tungufoss eru á leið til Rvíkur. Loftleiðir hf.: — Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 6:45 frá New York. Fer til Amsterdam og Luxemburg kl. 8:15. Edda er væntanleg kl. 9 frá New York. Fer til Oslo, Khafnar og Hamborgar kl. 10:30. Hekla er væntanleg kl. 23 frá Stavanger. Fer til New York kl. 00:30. Flugfélag Islands hf.: — I dag til Akureyrar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja. A morgun til Akur- eyrar, Bíldudals, Egilsstaða, Isafjarð- ar, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vest- mannaeyja og Þórshafnar. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá Rvík í dag vestur um land til Akur- eyrar. Herðubreið er á leið austur um land. Skjaldbreið fer á morgun vest- ur um land til Akureyrar. Þyrill er á leið til Rvíkur. Herjólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja. Bakkabræöur nútímans — en botninn er sem betur fer ekki suður í Borgarfirði. Þarna eru þrír ungir sjó- menn, sem gera sér lífið ævintýralegt. Myndin er tekin í Vestmannaeyjum. Ef til vill eiga^. pattarnir þrír einhverntíma eftir að róa stærri fleytum frá Vest- mannaeyjum. á vertíð. Læknar fjarveiandi Arinbjörn Kolbeinsson fjarverandi frá 4. apríl til 12. apríl. Staðg. Borg- þór Smári. Bergþór Smári fjarv. frá 4. apríl til 11. apríl. Staðg.: Arni Guðmundsson. Guðmundur Björnsson fjarv. frá 27. marz, óákveðið. Staðg.: Skúli Thor- oddsen, Austurstr. 7, viðtalst. kl. 10— 11 og 4—6. Sigurður S. Magnússon læknir verð- ur fjarverandi frá 14. marz um óákv. tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson, Vesturbæjarapóteki. Viðtalstími 3,30— 4 alla virka daga nema laugardaga. Sími 1-53.40. Snorri P. Snorrason, fjarv. 3—4 mán- uði frá 22. febr. — Staðgengill: Jón Þorsteinsson. • Gengið • Sölugengi 1 Sterlingspund ........ kr. 106,93 1 Bandaríkjadollar ..... — 38.10 1 Kanadadollar ......... — 39,86 100 Danskar krónur ....... — 552,85 100 Norskar krónur ....... — 534,60 100 Sænskar krónur ....... — 736,60 100 Finnsk mörk .......... — 11.93 100 Franskir Frankar ..... — 776.30 100 Svissneskir frankar .. — 878,00 100 Belgískir frankar .... — 76,47 1 Kanadadollar ......... — 40,03 100 Gyllini .............. —1009,60 100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45 100 Vestur-þýzk mörk ..... — 913.65 100 Pesetar .............. — 63,50 1000 Lirur ............... — 61,38 100 Austurrískir schillingar — 146.55 Söfnin BÆJARBÓKASAFN REYKJAVlKUR Sími 1-33-08. Aðalsafnið, Þingholtsstræti 39A: — Útlánadeild: Alla virka daga kl. 14—22, nema laugard. kl. 14—19. Sunnud. kl. 17—19. — Lestrarsalur fyrir fullorSna: Alla virka daga kl. 10—12 og 13—22, nema laugard. kl. 10—12 og 13—19, og sunnudaga kl. 17—19. Leikari nokkur var í ferðalagi og lék sem gestur í nokrum bæj- um. Á einum staðnum var hon- um boðið í veizlu til málaflutn- ingsmanns bæjarins og leiddist óskaplega. Næsta dag var boð hjá borgarstjóranum í hinum sama bæ, og sú veizla tókst afar vel og allir skemmtu sér prýði- lega. Leikarinn sagði hinn ánægð asti við borðdömuna sína. — Já, hér er ógurlega gaman í kvöld, en þér hefðuð átt að vita hvað okkur leiddist þar sem Útibúið Hólmgarði 34: — Útlánadeild fyrir fullorðna: Mánudaga kl. 17—21, aðra virka daga nema laugard. kl. 1.— 19. Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn: Alla virka daga nema laugardaga kl. kl. 17—19. Útibúið Hofsvailagötu 16: — Útláns- deild fyrir börn og fullorðna: Alla virka daga, nema laugardaga, kl. 17.30—19.30. Útibúið Efstasundi 26: — Útlánsdeild fyrir börn og fullorðna: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17—19. Gamall hárbursti úr næloni vill oft slíta hárið, því að nælon hárin í burstanum klofna í end- ann með aldrinum. Þá er ágætt ráð að klippa svo sem hálfan centimeter af þeim með beittum skærum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.