Morgunblaðið - 13.04.1960, Side 2
2
MORCVNBTAÐ1Ð
MiðviKudagur 13. apríl 1960
Atkvæðagreiðsla
hefst í Gent i dag
Genf, 12. apríl.
Einkaskeyti frá fréttaritara
Mbl. — Þ. Th.
FULLTRÚI Argentínu bar í
morgun fram breytingartillögu
við hina sameiginlegu tillögu
Bandaríkjanna og Kanada.
Er tillaga Argentínu á þann
veg, að í stað þess að ríki öðlist
sögulegan rétt með því að hafa
veitt í fimm ár innan mark-
anna, þurfi ríki að hafa veitt þar
samfeilt í 30 ár.
Þá er því baett við, að strand-
riki skuli alltaf hafa forgangs-
rétt á hafinu utan einkafiski-
svæðis.
Fulltrúi Grikkja kvaðst harma,
að Bandaríkin skyldu gefa eftir
og gera samkomulag við Kanada.
Þó sagðist hann styðja tillögu
þeirra.
Fulltrúi Ghana talaði mikið um
nauðsyn á sáttum og sagði, að
Kirkjudagur
á Húsavik
HÚSAVÍK, 12. apríl: — Svonefnd
ur kirkjudagur var haldinn á
Húsavík sl. sunnudag og hófst
með guðsþjónustu kl. 2 og predik-
aði sr. Friðrik A. Friðriksson. Að
henni lokinni flutti formaður
sóknarnefndar, Sigurður Gunn-
arsson, ávarp og kirkjukórinn
söng irákall”, lofsöng eftir próf-
astinn. Um kvöldið var sýndur
helgileikurinn „Bartimeus
blindi“, sem saminn er af sr.
Jakobi Jónssyni út af frásögn í
biblíunni. Kirkjan var fullsetin
og þótti helgileikur þessi bæði
fagur og áhrifamikill.
75 ára afmæli
ÞORSTEINN Jónasson, bóndi að
Ytri-Kongsbakka í Helgafellssv.,
er 75 ára í dag. Hann er fæddur
að Helgafelli í sömu sveit og
hefir átt alla sína ævi heima þar
í sveitinni. Kona hans var Þór-
leif Sigurðardóttir, ljósmóðir og
er hún látin fyrir nokkrum ár-
um Þorsteinn hefur gengt mörg-
um trúnaðarstörfum fyrir sveit
sína og er vinmargur enda hinn
bezti'drengur í hvívetna.
Stúdentoi
dnægðir með
sjóðinn
VEGNA þess skilnings á
högum stúdenta og nauð-
synlegri aðstoð þeim til
handa, sem fram hefur kom
ið hjá hæstvirtu Alþingi,
samþykkti stúdentaráð sam
hljóða eftirfarandi ályktun
á fundi sínum sl. laugardag:
Um leið og Stúdentaráð
Háskóla íslands minnir á
samþykkt almenns stúd-
entafundar, sem haldinn
var í hátíðasal háskólans
17. febrúar síðastliðinn, lýs-
ir það ánægju sinni yfir
þeirri hækkun, sem Alþingi
hefur samþykkt að veita til
Lánasjóðs stúdenta á fjár-
lögum þessa árs.
Sömuleiðis fagnar stúd-
entaráð setningu laga um
Lánasjóð íslenzkra náms-
manna erlendis og þvi
myndarlega framlagi, sem
Alþingi hefur ákveðið að
veita til hans.
(Frá SHÍ)
bezt væri að reikna dæmið á ein-
faldan hátt og ákveða níu mílna
landhelgi og tíu ára uppsagnar-
frest milli níu og tólf mílna.
Fulltrúi Austurríkis sagði, að
þeir hefðu alltaf viljað sem
minnsta landhelgi.
Fulltrúi Pakistans hélt uppi
miklum áróðri gegn Afríku og
Asíuþjóðum og sagði, að þeim
væri fyrir beztu, að siglingar
væru sem frjálsastar.
Síðdegis í dag töluðu þeir
Dinh frá Vietnam, Amador frá
Kúbu, Riphagen, Hollandi, Pec-
hote, Tékkóslóvakíu og Pazos frá
Guatemala.
Atkvæðagreiðsla hefst kl. 3
síðd. á morgun og ef fulltrúar
vilja gera grein fyrir atkvæði,
verður kvöldfundur kl. 8,30 um
kvöldið.
„Fyrsta dags-
umslög66 RKÍ
HINN 7. apríl sl. gaf póststjórnin
út flóttamannafrímerki og í til-
efni af því gaf RKÍ úf sérstök
„fyrsta dags umslög", sem seld
voru til ágóða fyrir flóttafólk.
Þann dag bárust til RKÍ pantan-
ir á þessum umslögum, með frí
merkjum og lét RKÍ útbúa nokk
ur slík umslög með útgáfudags-
stimpli. Verða þau til sölu í skrif
stofunni á nafnverði.
Gott heilsufar
FRÁ skrifstofu borgarlæknis hef
ur Mbl. borizt yfirlit um heilsu-
far bæjarbúa. Þar kemur það enn
á ný fram, að inflúenzan er afar
væg hér í bænum og útbreiðsla
hennar ekki teljandi. Voru í vik-
unni 20.—26. marz skrásett 38
inflúenzutilfelli á móti 33 vikuna
á undan. Sem fyrr eru það kvef
og hálsbólga sem einkum hrjá
höfuðstaðarbúa. Af yfirlitinu
verður það ráðið að heilsufarið
í bænum er gott um þessar mund
ir.
Frá Sjálfstæðiskvennafélaginu
Eddu í Kópavogi: — Spilakvöld
er í Valhöll við Suðurgötu kl. 21
i kvöld.
Bruni
gœr
r
I
í GÆRKVÖLDI brutust
brunaverðir inn í risíbúð
í litlu timburhúsi að
Grettisgötu 34. Var þar all-
mikill eldur, svo að eld-
tungur teygðu sig út í gegn
um eldhúsgluggu íbúðar-
innar. Heimilisfólkið var
ekki heima. Brunaverðir
telja að kviknað hafi í út-
frá einhverju hitunartæki
í eldhúsinu. Eldurinn flögr-
aði um alla íbúðina og
brenndi og skemmdi allt.
Var talsvert tjón af eldi.
Á neðri hæð hússins býr
eldra fólk. Var það í svefni
er nágranni vakti það, en
hann hafði einnig gert
slökkviliðinu aðvart um
eldinn. Slökkvistöðinni var
ekki kunnugt um nafn íbú-
anna í rishæðinni í gær-
kvöldi.
íslandskyiming
Vilhjálms Finsen
MEÐ óþreytandi áhuga vinnur
Vilhjálmur Finsen, fyrv. sendi-
herra í Bonn, að því að kynna
ísland. Nýlega hefur hann skrif-
að grein um íslenzka hestinn.
Hefur grein þessi með myndum
komið í nokkrum stærstu blöð-
unum á Fjóni og Jótlandi og í
14 norskum blöðum. Samtals er
upplag þessara blaða h.u.b. 375
þús. — Nú er Finsen að skrifa
grein um íslenzka skógrækt, og
mun hún koma í sömu blöðum.
600-700 manns d aðal-
fundi mjólkurbúsins
FLÚÐUM, 12. apríl: Aðalfundur
Mjólkurbús Flóamanna hófst hér
í félagsheimilinu að Flúðum
Varnarliðið vann
64:61
I GÆRKVÖLDI fór fram kapp-
leikur milli úrvals körfuknatt-
leiksmanna úr Reykjavík og úr-
vals varnarliðsmanna á Kefla-
víkurflugvelli. Leikurinn fór
fram að Hálogalandi og var afar
spennandi og jafn frá byrjun til
enda Varnarliðsmenn unnu leik-
inn 64:61, en það er bezti árangur
sem íslenzkt úrvalslið hefir náð
i keppni gegn úrvalsliði varnar-
liðsmanna.
A ttndan leik úrvalsliðanna
kepptu röskir og skemmtilegir
strákar úr Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar gegn Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar, sem vann leikinn
31:23.
klkukan 1 í dag. Milli 600—700
manns sitja fundinn.
Mjólkurbússtjórinn Grétar Sím
onarson, gerði grein fyrir reikn-
ingum sem lagðir voru fram á
fundinum. Síðan talaði formaður
stjórnarinnar Egill Thorarensen
og að ræðu hans lokinni hófust
almennar umræður um reikning-
ana og rekstur búsins í heild.
Auk þess voru rædd ýmis önnur
hagsmunamál bænda. í þessum
umræðum hafa allmargar tillög-
ur komið fram og verið ræddar.
Meðal fundarmanna er Ingólfur
Jónsson landbúnaðarmálaráð-
herra, og var til hans beint fá-
einum fyrirspurnum sem ráð-
herrann svaraði. Þegar þetta er
skrifað um klukkan 23 standa
umræður enn yfir og eru all-
margir á mælendaskrá, svo sýnt
þykir að aðalfundurinn muni
standa fram á nótt. Egill Thor-
arensen formaður MBF sem átti
að ganga úr stjórn var endur-
kjörinn og til vara Ágúst Þor-
valdsson alþingismaður. — Ó. E.
Nýr bátur til
Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI: — t gærmorg-
un kom hingað nýr batur, sem
smíðaður var í Frederikssund i
Danmörku fyrir hlutafélagið
Stefni. Heitir hann Fram, og er
þs.ð sama nafn og var á bát, sem
félagið átti, en strandaði í Grinda
vík fyrir rúmu ári. Hinn nýi
bátur er 85 lestir að stærð og
hinn fallegasti. I honum er Alfa-
dieselvél, öll helztu siglinga- og
veiðitæki, og annar útbúnaður,
sem þörf er á.
Með bátinn verður Stefán Þor-
björnsson og sigldi hann honum
heim. — Framkvæmdastjóri
Stefnis h.f. er Guðmundur Guð-
mundsson. — Fram verður nú
gerður út á net. — G.E.
Vaxmynd af dr.
Banda
LONDON, 11. apríl. (Reuter): —
Dr. Hastings Banda, leiðtogi Þjóð
frelsishreyfingar Njassalands,
heimsótti í dag vaxmyndasafn
Tussauds og dvaldist þar þrjá
stundarfjórðunga. — Var tekið
rnál af honum og hann ljósmynd-
aður — en fyrirhugað er að gera
af honum vaxmynd fyrir safnið.
Talsmaður safnsins sagði, að
mynd Banda yrði sett meðal
mynda þekktra stjórnmálamanna
— og yrði hann við hlið Nkruma,
forsætisráðherra Ghana.
Slys d Hafnai-
fjaiðurvegi
KUNNUR Hafnfirðingur Sesselja
Helgadóttir, systir Arna ræðis-
manns í Cicago og þeirra syst-
kina meiddist mikið í gærmorgun
á Hafnarfjarðarveginum við
Silfurtún. Sesselja var að koma
úr strætisvagni og ætlaði yfir
götuna. Er hún kom úf á göt-
una, bar þar að bíl og skipti eng-
um togum, að Sesselja varð fyr-
ir bílnum,. Sesselja, sem er 71
árs, skall í götuna og hlaut þá
við það mikinn áverka á höfuð.
Ekki missti hún þó meðvitund,
en hafði kvartað um þrautir í
hægri öxl. Kom í ljós er hún
hafði verið flutt í sjúkrahús í
Hafnarfirði, að auk hins mikla
áverka á höfði, hafði hún geng-
ið úr liði um hægri öxl. Síðdegis
í gær hafði Sesselja verið flutt
til Reykjavíkur í sjúkrahús þar.
Kona ók bíl þeim, er Sesselja
vaið fyrir, og fékk hún mikið
taugaáfall á slysstaðnum.
— Verwoerd
Frh. af bls. 1.
fastur. Mun ríkisstjómin fram-
kvæma fyrirmæli hans undir for
ystu Paul Sauer, varaforsætis-
ráðherra.
Tilræðismanninum, David Pratt
mun verða haldið í fangelsi fyrst
um sinn án þess að mál hans
verði tekið til meðferðar fyrir
rétti. Er það gert samkvæmt lög
um varðandi neyðarástand í land
inu. v
Um 150 lögreglumenn réðust í
dag með stuðningi brynvarðra
bifreiða, inn í tíu þorp blökku-
manna suðvestur af Jóhannesar-
borg. Er það liður í aðgerðum
lögreglunnar til að hafa upp á
vopnum og eigendum þeirra.
Verður að læra að vinna
Ríkisstjórn Suður Afríku hét
í dag miklum breytingum á skipu
lagi vinnumála þar í landi. Hing
að til hafa hvítir menn verið háð
ir hinu ódýra vinnuafli blökku-
manna, en í dag sagði Franoois
Erasmus, dómsmálaráðherra, að
„nú verður hvíti maðurinn að
læra að vinna á sama hátt og
feður okkar og mæður unnu“.
Um leið sagði Erasmus, að með
al annarra, sem sök ættu á ástand
inu í landinu væru iðjulausir
blökkumenn í borgunum. Þyrfti
að senda þá til blökkumanna hér
aðanna og neyða þá til að vinna.
tJA /5 hnúior X Snjóíomo (7 Siúrir KuUaakil \ H Hml
SV 50 hnutor • ún K Þrumur /y//t,lv HitaakH \L L*aL
A- og IMA- átt næstu daga
VÍÐATTUMIKIÐ lægðar-
svæði yfir norðanverðu
Atlantshafi veldur NA-átt á
Grænlandshafi og víða hér á
landi, en hins vegar SV-átt
um Bretlandseyjar og hvassri
V-átt á hafinu milli írlands
og Nýfundnalands. Hér á
landi er 3—6 stiga hiti, en á
Bretlandseyjum er 8—12 stiga
hiti.
Sennilega verður A- og
NA-átt ríkjandi næstu daga
hér á landi.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi:
SV-land og SV-mið: Austan
hvassviðri eða stormur og
rigning í nótt, en allhvass SA
og skúrir á morgun.
Faxafl., Breiðafj., Faxafl.-
mið og Breiðafj.mið: Allhvass
austan í nótt en SA á morgun,
rigning með köflum.
Vestfj., Norðurl., Vestfj.-
mið og norðurmið: Vaxandi
NA-átt, allhvass og víða rign-
ing með morgninum.
NA-land til SA-lands, NA-
mið til suðausturmiða: Vax-
andi austanátt, hvassviðri
þegar líður á nóttina, rigning.