Morgunblaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 13. apríl 1960 MORCTJNnr AÐ1Ð 3 0 0 0 0 0 0 t 92 ára kenni- maður í stólnum Akranesi, 11. apríl. HINN ágæti æskulýðsleið- togi, sr. Friðrik Friðriks- son, sem verður 92 ára 25. maí í vor, kvaddi söfnuð- inn hér í Akranesskirkju sl. sunnudag. Sr. Friðrik hefur starfað mikið hér í bænum meðal æskulýðsins. Ekki sízt í prestsskapartíð sr. Þor- steins Briem og í forföll- um hans var sr. Friðrik þjónandi prestur Akurnes- inga, enda bjó hann þá í samkomuhúsi K.F.U.M., Fróni, á Vesturgötu 35. — Kom þá fyrir að hundrað drengir voru samtímis á fundi hjá sr. Friðrik þar. Menn geta mest markað af því hve starf hans hafði skotið djúpum rótum hér, að þá er sr. Friðrik hafði verið prestur í Danmörku á stríðsárunum, lét hann þau orð falla við heim- komuna, að hugur hans hefði jafnan verið hjá Ak- urnesingum. * Meðfylgjandi mynd var tekin af þessum mikil- hæfa, en nú aldurhnigna æskulýðsleiðtoga, er hann messaði í kirkjunni hér á sunnudaginn. Lagði séra Friðrið út af guðspjalli pálmasunnudagsins. Sókn- arpresturinn, sr. Jón M. Guðjónsson, þjónaði fyrir altari. — í messubyrjun ávarpaði hann sr. Friðrik, bauð hann velkominn til Akraness og flutti honum þakkir fyrir hans mikil- vægu störf fyrir kirkju og söfnuð Akraness. Kirkjan var yfirfull af ungum og eldri. Þrír af sálmum séra Friðriks voru sungnir. í NWW.* Í.V..S- I-I—*S Ágætur hindur ú Akureyri AKUREYRI, 12. apríl: í gær- kvöldi héldu Sjálfstæðisfélögin hér í bænum fund í Landsbanka- salnum. Hófst hann klukan 8.30. Formaður Sjálfstæðisfélags Ak- ureyrar, Árni Jónsson setti fund- inn og stjórnaði honum. Frum- mælendur voru alþingismennirn- ir Jón G. Rafnar og Magnús Jóns son. Ræddi Jónas, er fyrr tók til máls, noldkuð um efnahagsað- gerðir ríkisstjórnarinnar og sagði frá úrlausnum er mál Akureyrar hafa hlotið á þingi í vetur. Magnús Jónsson ræddi ítar- lega um áhrif efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar á fjárhags- kerfið, ræddi einnig nokkuð tekjuskattslögin og söluskattinn. Er alþingismennirnir höfðu lok- ið máli sínu urðu fjörugar um- ræður, tóku margir fundarmanna til máls og báru fram fyrirspurn- ir sem alþingismennirnir svöruðu að lokum .— Mag. HöfÖinglegar gjafir til Bolvíkinga Dimitant /or/ð '60 MIKILL fögnuður ríkti i gær meðal um 100 sjöttu- bekkinga úr Menntaskól- anum. — 1 góða veðrinu kvöddu þeir sinn gamla skóla, með menntaskóla- húrra og héldu síðan frá skólanum. Þetta heitir að „dimitera“. Hjá einstaka virtist þessi fögnuður hafa verið kvíðablandinn — upplestrarfri og stúdents- próf á næsta leiti. Höfðu sumir þeirra gripið til þess að ganga á vit Bakkusar, en lítt séð við þeim gamla og rugluðust gjörsamlega. Þannig fór fyrir þessum unga skólasveini. Á eystri bakka syðri tjarnarinnar lagðist hann til sunds. — Fjöldi fólks fylgdist með því er hann synti yfir. Var hann 15—20 mín. á sundi, en á vesturbakka Tjarnar- innar gripu hjálpfúsar hendur vina hans, kappann upp úr Tjörninni. Þessar myndir voru teknar af þessu atviki og þurfa ekki skýringar við. I Bolungarvík, 12. apríl. TIL viðbótar gjöf þeirra hjóna, Elísabetar Hjaltadóttur og Ein- ars Guðfinnssonar, til skóla- byggingarsjóðs Bolungarvíkur, kr. 100 þús. sem skýrt hefir verið frá í blaðinu, gáfu þau einnig kr. 25.000 í orgelsjóð Hólskirkju og vantar nú lítið á að safnazt hafi nægilegt fé, til að hægt sé að koma orgelinu fyrir í kirkjunni, en það er þegar komið hingað. í gærkvöldi héldu hjónin hóf í tilefni af sextugsafmæli frú Elísabetar. Skírði sóknarprestur inn, sr. Þorbergur Kristjánsson, þar frá gjöfinni til orgelsins, en Guðmundur Magnússon, skóla- nefndarmaður, frá gjöfinni til skólabyggingarinnar. — Sextíu manns sátu afmælishófið við góðan fagnað, söng og ræðuhöld og miklar og góðar veitingar. Kom glöggt í ljós hve mikilla vinsælda þau njóta í byggðar- laginu. Var þeim í ræðum margra manna þökkuð forysta þeirra í framfara- og menningarmálum héraðsins. Skeytafjöldinn til frú Elísabetar var á þriðja hundrað og var það einsdæmi í sögu sím- ans hér. Bolvíkingar flytja þeim hjón- um alúðarþakkir fyrir hinar höfðinglegu gjafir, sem sannar- lega komu sér vel og sýna þó bezt hug þeirra heiðurshjóna til málefnanna. — Fréttaritari. Ný stjórnarkreppa á Ítalíu Rómaborg, 11. aprll. — (Reuter) FERNANDO Tambroni, for- sætisráðherra, baðst í dag lausn- ar fyrir sig og ráðuneyti sitt — minnihlutastjórn Kristilega demókrataflokksins, sem setið hefur að völdum aðeins tvær vikur. — Þrír af ráðherrum stjórnarinnar höfðu þegar sagt af sér nú um helgina. Stjórn Tambronis fékk fyrstu traustsyfirlýsingu sína sl. föstu- dag — með fulltingi ný-fasista. Vinstri armur flokks hans gagn- rýndi hann þegar mjög fyrir að þiggja stuðning þeirra — og í dag skoraði framkvæmdanefnd flokksins á hann að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneytið. — Að því búnu var haldinn 1 klst. ráðuneytisfundur — síðan gekk Tambroni á fund forsetans og baðst lausnar. — Forsetinn féllst á lausnarbeiðnina. SmSIEINAR íslendingur 45 ára „íslendingur“, blað Sjálfstæð- ismanna á Akureyri, átti 45 ára afmæli hinn 8. apríl sl. Af því til- efni kom blaðið út 20 blaðsíður að stærð og jafnframt í breyttu broti. Stofnandi fslendings var Sig- urður E. Hlíðar, sem þá var dýra- læknir á Norður- og Austurlandi, en síðar alþingismaður Akureyr- inga og yfirdýralæknir. íslendingur hefur verið ágætt málgagn sjálfstæðisstefnunnar og átt sinn þátt í því að skapa það mikla fylgi og traust, sem Sjálf- stæðisflokkurinn nýtur á Akur- eyri óg mörgum öðrum byggðar- lögum norðanlands. Morgunblað- ið óskar honum til hamingju með 45 ára afmælið og framtíðina. Er það einhver ósvinna? Kommúnistar og Framsóknar- menn leggja nú mikla áherzlu á það að nefna dæmi um að ein- stakir pólitískir andstæðingar þeirra fái lækkaðan tekjuskatt og útsvar vegna skattalagabreyting- ar þeirrar, sem ríkisstjórnin hef- ur beitt sér fyrir. Það er rétt eins og það sé einhver ósvinna að einstaklingar fái skatta sína lækk aða!! Allur er þessi málflutn- ingur stjórnarandstæðinga eink- ar heimskulegur og yfirbprðs- legur. Úreltur skattstigi Eins og kunnugt er fellur nfð- ur tekjuskattur af almennum launatekjum, samkvæmt tillögu ríkisstjórnarinnar. Það þýðir að þúsiundir fjölskyldna, sem áður urðu að greiða verulega skatta, sleppa nú algerlega við tekju- skattinn. En vegna breytinga á hinum úrelta skattstiga lækkar tekjuskatturinn einnig töluvert á mörgu fólki, sem áður hefur orð- ið að greiða mjög háan tekju- skatt. 11 |HV gwo—qt W9V s Á það hefur verið bent að í hópi þessa fólks er til dæmis fjöldi iðnaðarmanna, yfirmenn á skipum, og jafnvel hásetar á vél- bátaflotanum. Það eru áreiðan- lega ekki margir, sem taka undir það með málgögnum kommún- ista og Framsóknarmanna, að , . ■ ; skattalækkanir þessara mann séu einhver glæpur gagnvart þjóðfé- laginu ,enda þótt einstaka stjórn- málamaður fái tekjuskatt sinn lækkaðan jafnhliða. Oftrúin á skattránið Sannleikurinn er sá, að Fram* sóknarmenn og kommúnistar lifa ennþá í hinum gamla heimi skattránsstefnu Eysteins Jónsson ar. Þessir menn geta ekki hugs- að sér að skattar lækki. Meðan þeir sátu í vinstri stjórn gerðu þeir ekkert annað en hækka skatta á öllum, bæði lágtekju- fólki og öðrum. Nú þegar tekjuskattur er af- numinn af almennum launatekj- um, þá ætla þeir vitlausir að verða vegna þess að hinir gömlu og úreltu skattstigar verða ekki látnir gilda óbreyttir áfram gagn vart þeim, sem hafa hærri tekj- ur. Þeir lifa og hrærast í of- trúnni á skattránsstefnunna. ___ Verði þeim að góðu. En þeir ættu að gera sér það ljóst, áður en það er of seint, að þá er að daga uppi eins og nátttröll fyr- t ir brún rísandi dags.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.