Morgunblaðið - 13.04.1960, Page 17

Morgunblaðið - 13.04.1960, Page 17
Miðvik'udaerur 13. aprí! 1960 nrnncTnvnr 4fílÐ 17 Sigríður Snæbjarnardóttir f DAG fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík útför gagn- merkrar konu, Sigríðar Snæ- bjarnadóttur ekkju Þórarins B. Þorlákssonar listmálara. Það varð hlutskipti þessarar ágætu konu að binda á unga aldri tryggð við þann mann, sem varð itii þess fyrstur íslendinga að helga málaralistinni starf sitt og krafta og gerast brautryðjandi á því sviði. Með þessu brautryðjendastarfi sínu, listrænni túlkun á fegurð lands vors, vakti Þórarinn af dái listrænt eðli þjóðarinnar. Með listaferli sínum kveikti hann fyrsta neistann 1 brjósti mannanna, sem nú um áratugi hafa með snilligáfu sinni á þessu sviði varpað bjarma á þjóð vora og aukið hróður henn- ar bæði heima og heiman. Þórarinn maður Sigríðar hóf ungur prentnám í Reykjavík og lauk prófi í þeirri iðngrein. Starf þetta lék í höndum þessa mikla hagleiksmanns. Hafði Þórarinn því markað sér verksvið þar sem honum lá greið gata til mikils frama og öruggrar fjárhagsaf- komu. Allt þetta var gott og blessað á almennan mælikvarða. En Þor- arni fullnægði það ekki. Köllun sú, sem hann var borinn til að sinna í lífinu var á öðru sviði. Þetta skýrðist því betur fyrir honum sem lengra leið. Frá barn æsku hafði Þórarinn óvenju næmt auga fyrir fögrum litum. Fegurð og tign lands vors og hið fjölbreytilega litskrúð blómanna endurspeglaðist í sál hans. Þeg- ar hér var komið tók Þórarinn skjóta ákvörðun. Hann sneri baki við prentiðninni og hélt ótrauð- ur og heilshugar inn á listabraut- ina. Hann lagði leið sína í Lista- háskólann í Kaupmannahöfn, þar sem listagáfa hans tók skjótum þroska. Skólagangan varð hon- um hamingjubraut. En samtímis því, sem þetta gerðist -éll Þór- arni í skaut önnur hamingja, sem stráði geislum á líf hans til hinztu stundar. Um þessar mundir var Sigriður Snæbjarnardóttir við nám á hús mæðraskóla í Kaupmannahöfn. Það var á þessum erlendu slóðum sem leiðir þeirra Sigríðar og Þór- arins lágu fyrst saman. Þar bundust þau tryggðaböndum og nokkrum árum síðar, eftir heim komu þeirra til Reykjavíkur, voru þau gefin saman í hjóna- band. Löng og erfið skólaganga í fjar lægu landi er efnalitlum nem- anda sjaldan blómum stráð braut Þótt námið ganga vel og allt leiki í lyndi um framför og þroska er baráttan fyrir daglegum þörf- um oft harla ströng. Þannig var það fyrir Þórarni. Og eigi gat hann heldur gert sér glæstar von- ir um listamannslaunin að námi loknu eins og málum í þessum efnum horfði þá við hér heima. Þetta var Þórarni, sem var að eðlisfari raunsæismaður, ofur ljóst. Eigi er að vita hver áhrif þessar aðstæður og framtíðar viðhorf kynnu að hafa haft á hinn unga listamann, ef honum hefði ekki borizt sá andlegi styrk ur og uppörfun sem ástmey hans lét honum í té. Hún skildi vel eðli og þrá listamannsins. Hún kunni vel að meta náðargáfu hans og þá fegurð og unað sem listmálarinn hefur á öllum öldum lagt í fang framtíðar sinnar með ódauðlegum verkum sínum. Hinni ungu stúlku var hér bú- ið mikið hlutverk að standa á erfiðum tímum við hlið þessa gáfaða hugsjónamanns og braut- ryðjanda á frumbýlingsárum mál aralistarinnar í landinu. Og þetta hlutverk innti Sigríður af hendi með mikilli prýði bæði á náms- árum unnusta síns og eins og ekki síður eftir að þau hjónin hófu búskap. Sigríður var að eðlisfari kona hlédræg um íhlutun og afskipti Minningarorð opinberra mála. En því fastari og ákveðnari voru tök hennar á viðfangsefnum þeim er hugur hennar beindist að innan þess verkahrings er hún hafði markað sér. Heimilsforsjá hennar var frá bær og fyrirhyggja um allt er til gagns og prýði horfði. Hún bjó manni sínum og börnum gott, að- laðandi og ánægjulegt heimili. Slíkar húsmæður sem Sigríður var, eru beztu æðingar lands vors. Þeim er sú list lagin að beita á fjármálasviðinu þeim hyggindum sem að gagni koma. Og enginn er betur til þess fall- inn að móta barnssálina og beita farsælum uppeldisáhrifum en góð, raunsæ og víðsýn móðir. Sigríður var kona fríð sýnum, svipmikil, góðum gáfum gædd, vel menntuð me' ríkum fegurðar smekk og unni föt,rum listum, sem maður hennar. Mann sinn missti Sigríður 9- júlí 1924. Dvöldu þau hjónir, Sigríður og Þórarinn þá í sumar- bústað sem Þórarinn hafði látið reisa á désamlega fallegum stað við Laugarvatn. Ber sumarbú- staðurinn og umhverfi það, sem hann er reistur í gott vitni um fegurðarsmekk snillingsins. And- lát Þórarins bar brátt að, hann lézt af hjartaslagi og varð blóm- E L L E F T A apríl átti Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík 40 ára afmæli. Fyrstu 11 árin hét það Sveinaíélag járnsmiða, en 1931 var nafninu breytt í Félag járniðnaðarmanna. Stofnendur félagsins voru 17 járnsmiðir, allir búsettir í bæn- um, og fyrsta verkefni þess var að semja um kaup við vélsmiðju- eigendur. Ýmislegt hefur drifið á daga félagsins á þessum 40 ár- r Agætur árangur borana í Leirár- sveit AKRANESI, 8. apríl. — Nú hefur verið borað við Leirárlaug í Leir ársveit í 3 vikur á vegum Akur- nesinga. Boruninni þarna hafa stjórnað frá því fyrsta bræður tveir, Guðni og Guðmundur Jóns- synir. 1 dag átti ég tal við Guðna og sagði hann að við mælingu í morg un hefði vatnsmagn reynzt 8 sek undulítrar og vatnið verið 80 stiga heitt, en borholan orðin 134 m djúp. Aðspurður sagði Guðni, að þetta væri ágætur árangur. Vatnsmagnið hefði t. d. aukizt sl. viku um nærri hálfan sekundu- lítra. Guðni sagði og að nú mundi verða hætt að bora þarna í bili og borinn fluttur eitthvað annað. — Oddur. um slkreytt fjallshlíðin, bana- beður hans. Við hið skyndilega fráfall Þór- arins á miðjum aldri var konu hans og börnum sár harmur kveð inn. Ástríki mikið ríkti innan fjölskyldunnar og má fara nærri um það hverjum . .,-brigðum það olli á heimilinu að hinn ást- sæli listamaður var kallaður á Brott. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið og eru þau öll á lífi: 1. ^óra gift Gesti Pálssyni lög- fræðingi og leikara. 2. Guðrún gift séra Sigurjóni Guðjónssyni prófasti í Saurbæ. 3. Björn skrifstofumaður í Hag stofu íslands. Þau hjónin, Sigríður og Þórar- inn, bjuggu lengst af búskap sín- um í húsinu nr. 45 við Laufásveg. Byggði Þórarinn það hús i félagi við svila sinn, Jón Aðils sagn- fræðing, en hann var kvæntur Ingileifu systur Sigríðar. Sigríður var fædd 19. ágúst 1876 á Akranesi. Hún var dóttir Snæbjarnar kaupmanns þar Þor- valdssonar prests í Saurbæ Böðv arssonar, og konu hans Guðrúnar Teitsdóttur. Sigríður ólst að nokkru upp hjá móðurömmu sinni, Margréti Jónsdóttur í Guðrúnarkoti og seinni manni hennar Hallgrími Jónssyni hrepp stjóra og alþingismanni. Áður en Sigríður fór til Kaupmannahafn- ar tij náms hafði hún lokið prófi við Kvennaskólann í Reykjavík. Síðustu árin hafði Sigríður kennt nokkurs heilsubrests sem ágerðist eftir því sem árin liðu. Dvaldi Sigríður á þessu tímabili um nokkurt skeið á heimili Dóru dóttur sinnar og tengdasonar, en síðustu árin, eftir að sjúkleik- inn ágerðist, í sjúkradeild Elli- heimilisins Grund í Reykjavík, þar sem hún lézt 6. þ. m. Með Sigríði Snæbjarnardóttur er til moldar gengin kona sem vér stöndum í mikilli þakkar- skuld við fyrir þann hlut, sem hún átti í hinu gagnmerka starfi manns síns, með þeirri hvatningu er hún lét honum í té, er hann bjó sig undir að klífa erfiðasta hjallann í framþróun skapandi myndlistar með þjóð vorri. Pétur Ottesen. um, en saga þess kom út árið 1955 í tilefni af 35 ára afmælinu. Nú eru í félaginu 450 meðlimir og hefur það ráðið sérstakan starfsmann, til að annast dagleg störf, Guðjón Jónsson rennismið. Á sl. ári festi Félag járniðnaðar- manna kaup á fokheldri hæð í Skipholti 19 og hefur þar skrif- stofur sínar ásamt fleiri verka- lýðsfélögum. Stjórn félagsins skipa nú: Snorri Jónsson, formað ur; Hafsteinn Guðmundsson, varaformaður; Tryggvi Bene- diktsson, ritari; Guðjón Jónsson, fjármálaritari; Þorsteinn Guð- mundsson, vararitari og Ingi- mar Sigurðsson, gjaldkeri. 120 hnúta mótvindur KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 7. apríl. — Undanfarna 24 tlma hefir verið talsverð umferð um Keflavíkurflugvöll. Alls hafa haft hér viðkomu 12 farþega- og flutningaflugvélar á leið til Kanada og Bandaríkjanna. Far- þegar með flugvélum þessum voru 598 og þær fluttu 30038 kg. af farangri. Flugvélarnar hafa haft mót- vinda á leiðinni vestur um haf og náði vindhraðinn 120 hnútum i 18000 feta hæð á milli suður- odda Grænlands og Gander. — B.Þ. Félag jórniðnoðarmanna 40 óra Atvinna Dugleg stúlka óskast til verksmiðjustarfa. Upplýsingar í verksmiðjunni í dag. Nærfataefna- og prjónlesverksmiðjan h.f. BræðraborgcU’stíg 7. Byggingafélag verkamanna Keflavík Ein tveggja herb. íbúð í II. byggingaflokki er til sðlu. Félagsmenn sendi umsóknir fyrir 23. apríl til for- manns Hátúni 21, Keflavík. Einlit htrokkin ullarefni í dragtir og kápur 10 litir. Dömu og herrabuðin Laugaveg 55 — Sími 18890. Iiöntgenlampar og glóðarventlar fyrir lækningatæki og önnur rannsóknar- tæki hafa verið búnir til í 30 ár af sérverksmiðju vorri í Thiiring- en. Frægir læknar og tæknisér- fræðingar um allan heim nota hina framúrskarandi fram- leiðslu vora. Biðjið um upplýsingarit vor með mörgum skýringarmynd- um. VEB PHÖNIX RÖNTGEN- RÖHRENWERK RUDOLSTADT /Tiir.DDR. Upplýsingar veitir: Verzlunarsendinefnd Þýzka Alþýðulýðveldisins Austurstræti 10A II, Pósthólf 582, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.