Morgunblaðið - 13.04.1960, Qupperneq 22
22
M O R C T1 N n T 4 n 1 Ð
Miðvikudagur 13. apríl 1960
97 keppendur á Skíða-
landsmóti er hefst í dag
Siglufirði, 12. apríl.
SKÍÐAMÓT fSLANDS verður sett við Skíðafell á morgun kl. 1.30
e. h. Helgi Sveinsson setur mótið og Hermann Stefánsson flytur
ávarp. Lúðrasveit Siglufjarðar mun leika við setningarathöfnina,
en að henni lokinni hefst keppnin með göngu í öllum fiokkum og
einnig í svigi.
Göngukeppnin fer fram við
Skíðafell og flokkasvigið í Skútu
dal. Á fimmtudag (Skírdag)
verður keppt í bruni og fer sú
keppni fram við Innviðrishnjúk.
Þá verður ennfremur keppt í
stökki sem sérgrein og í Nor-
rænu tvíkeppninni. Sá þáttur
mótsins fer fram í nánd við
Sigluf j arðarskarð.
Á föstudag hefst skíðaþingið
kl. 10 f. h., en kl. 2 e. h. ganga
skíðamenn til messu í Siglu-
fjarðarkirkju og að guðþjónust-
unni lokinni, mun skíðaþingið
halda áfram. Engin keppni
verður á föstudaginn. Á laugar-
daginn heldur keppnin aftur á
móti áfram og verður þá keppt
í stórsvigi karla og kvenna og
ennfremur í boðgöngu. Á sunnu-
dag verður keppt í 30 km göngu
og einnig í svigi kvenna. Á mánu
dag verður svo keppt í svigi
karla.
Mótsslit og verðlaunaafhend-
ing verða að Hótel Höfn, á mánu-
dagskvöld.
Keppendur í Skíðamótinu
verða 97. Flestir eru keppendur
í stórsvigi karla eða 50 talsins.
í bruni eru 46 keppendur og svigi
karla 48 keppendur.
í svigi kvenna eru 4 keppend-
ur, 5 í stórsvigi, 5 í bruni og 5
í stökki kvenna eru 14 og í tví-
keppni 9 keppendur.
I flokkasvigi verða þrjár sveit-
ir, en þær eru frá Reykjavík,
ísafirði og Siglufirði. í boðgöng-
unni verða 5 sveitir. Tvær frá
Sigiufirði, en Fljótamenn, fs-
firðingar og Þingeyingar senda
eina sveit hver. í 30 km göngu
eru keppendur 17, í 15 km göngu
18 og í 10 km göngu eru kepp-
endur 11.
Skíðakeppendur komnir
Flestir skíðakeppendur eru
komnir til Siglufjarðar og búizt
við allir verði komnir til bæjar-
ins í dag.
Keppendur mótsins eru frá eftir
farandi aðilum. Skíðafélagi Ak-
ureyrar 7, Skíðafélagi Fljóta-
manna7, Skíðaráði ísafjarðar 10,
Skíðaráði Reykjavíkur 22, Skíða-
borg, Siglufirði 41, H. S. Þ. 8 og
UMSE 2 keppendur.
f mótstjórn Skíðamóts íslands
eiga sæti: Helgi Sveinsson, for-
maður, Aðalheiður Rögnvalds-
dóttir, Baldur Ólafsson, Ófeigur
Eiríksson, Bragi Magnússon, Jón
Þorsteinsson og Gunnar Jörgen-
sen. Yfirdómari verður Hermann
Stefánsson frá Akureyri.
Stefán Kristjánsson, Reykja-
vík sér um lagningu allra brauta
í Alpagreinum. Baldur Ólafsson
sér um lagningu gSngubrauta og
Jón Þorsteinsson, fyrrv. skíða-
kappi leggur stökkbrautina.
Mikíð um skemmtanir
Mikið verður um skemmtanir
meðan Skíðamótið stendur yfir.
í kvöld verður dansleikur að
Hótel Höfn. Á morgun verður
kvöldvaka í Nýja Bíó og dans-
leikur að Hótel Höfn. Á fimmtu-
dag sýnir Leikfélag Siglufjarð-
ar gamanleikinn „Forríki flæk-
ingurinn“. Á laugardag og á
sunnudaginn verður kvöldvaka
og dansleikur eftir miðnætti. Á
mánudagskvöldið verður mikil
skíðahátíð að Hótel Höfn, þar
sem úrvals skemmtikraftar frá
Víkingur
vann KR
ÞEIR aðilar, sem hug hafa á að
standa íyrir íslandsmótinu í úti-
handknattleik kvenna og karla
n k. sumar eru beðnir að tilkynna
það skriflega til HSÍ fyrir 1.
maí n.k. Mótið mun fara fram í
ágústmánuði n.k.
MEISTARAFLOKKUR Víkings
og KR léku æfingaleik á sunnu-
daginn. Leikurinn fór fram á KR-
vellinum og vann Víkingur leik-
inn, 1:0. — Fjóra leikmenn vant-
aði í KR-liðið: Hörð Felixsson,
Garðar Árnason, Heimi Guðjóns-
son og Ellert Schram. — En í
stað þeirra léku fyrstu varamenn
meistaraflokksins frá í fyrra.
Víkingur skoraöi markið, er 10
mín. voru af leik, og þó KR væri
í sókn meirihluta leiksins, tókst
þeim ekki að skora mark. — Má
segja að þetta geti verið mjög
alvarleg aðvörun til vissra leik-
manna KR, því enginn, sem til
þekkir efast um leikni piltanna
Knatt-
spyrnan
að byrja
FYRSTA knattspyrnumótið
í ár hefst 21. apríl n.k. með
Ieik Vals og Víkings í meist-
araflokki Reykjavíkurmóts-
ins. Leikurinn hefst kl. 5
e.h. á Melavellinum.
Næsti leikur verður
næsta sunnudag og keppa
þá Fram og Þróttur, og
þriðji leikurinn verður háð-
ur 1. maí n.k. en þá keppa
KR og Valur. Eftir 1. maí
munu leikirnir fara fram á
sunnudögum og mánudög-
um
Bæjarkeppnin Reykjavík
Akranes í knattspyrnu,
verður háð 12. maí n.k. og
19. maí verður Pressuleik-
ur háður.
Siglufirði og Reykjavík skemmta
á samkomunum.
Upplýsingaskrifstofa
Mótstjórnin hefir sett upp upp-
'lýsingaskrifstofu í Aðalgötu 28.
Sími skrifstofunnar er 233 ■ og
verða þar gefnar allar upplýs-
ingar um Skíðamótið.
— Stefán.
Mennirnir, sem raða niður knattspyrnuleikjum sumarsins sjást
hér á myndinni. Talið frá vinstri: Jón Birgir Pétursson, Jón
Magnússon, Friðjón Friðjónsson og Sigurgeir Guðmannsson.
Þrír nefndarmannanna eru fulltrúar KRR, en Jón Magnússon
er fulltrúi KSÍ í nefndinni. Nefndin hefur starfað undanfarna
daga og hefur nú lokið störfum og sent tillögur sínar til KRR
og KSÍ til endanlegrar staðfestingar.
Yngri ftokkarnir sterkari
en nokkru sinni fyrr
Fram tapaði tveim úrslitaleikjum fyrir
Hafnfirðingum með eins marks mun
og eftir framlengdan leik
LAUGARDAGURINN var sannkallaður dagur Hafnarfjarðar
I handknattleiksmótinu. Eftir að keppni var lokið höfðu Hafnar-
fjarðarfélögin, FH og Haukar, unnið fjóra flokka mótsins, en alls
var keppt í 6 flokkum um kvöldið. — FH vann 3 flokka, Haukar 1,
KR 1 og Víkingur 1 flokk.
Yngri flokkarnir sterkir:
Úrslitaleikir yngri flokkanna
færðu á það ótvíræðar sönnur að
þeir eru sterkari, leiknari og
sýna yfirhöfuð fullkomnari hand
knattleik, en jafnaldrar þeirra
hafa nokkru sinni fyrr sýnt á fs-
landsmótinu.
Það er t.d. álit flestra, sem til
þekkja að 2. fl. FH í dag, sé mun
sterkari flokkur, en flokkur sá
er hratt sigurgöngu FH af stað
1954, en í þeim flokki voru höfuð
kempur meistaraflokksins í dag,
og þeir sem mestan þátt eiga í
sigurgöngu FH.
1. fl. kv. KR—Víkingur 8:3
KR skoraði 4 mörk áður en
Víkingur fékk við nokkuð ráðið
og við leikhlé stóð 5:1. — í síðari
hálfleiknum héldu KR-stúlkurn-
ar áfram að ráða gangi leiksins
og lauk honum með sigri þeirra
8:3. — í leiknum var aldrei nein
veruleg keppni, og leikurinn því
rólegur og fjörlítill.
2. fl. kvenna FH—Fram 11:0
Flestir bjuggust við fjörugum
og skemmtilegum leik, því bæði
liðin eru skipuð liðlegum og efni-
legum leikkonum. Leikurinn var
að vísu allfjörlegur, en tvísýnuna
vantaði algerlega, — því þótt
Fram léki vel úti á vellinum og
væri næstum eins mikið með
knöttinn og F.H., þá vantaði all-
an sóknarþunga og ógnun í leik
Fram, þar til smuga opnaðist að
að skora mark. Við leikhlé hafði
FH skorað 4 mörk og í síðari
hálfleiknum náði FH einum sín-
um bezta leik bæði í sókn sem
vörn. Sérstaklega var leikur
stúlknanna áferðarmikill, er þær
voru að skapa sér marktækifæri.
Með hröðum og öruggum sam-
leik léku þær fyrir framan vörn
Fram, þar til smuga opnaðist að
tækifærið var notað og mark
skorað. Þetta er eitt dæmi af
■mörgum, sem sýnir að þótt stúlk
urnar séu ungar, þá kunna þær
ótrúlega mikið hvað leik og
leikni snertir.
Sigurlína Björgvinsdóttir og
Sylvía Hallsteinsdóttir skiptu
með sér að skora. Sigurlína skor-
aði 7 mörk og Sylvía 4 mörk.
Markvörðurinn Kristín Pálsdótt-
ir átti og mjög eftirtektarverðan
leik. — Þetta er í fyrsta sinn,
sem flokkur frá FH sigrar í ís-
_ landsmótinu í kvennaflokki. —
Þjálfari flokksins er fyrirliði
meistaraflokks FH, Birgir Björns
son.
3. fl. K. h. Haukar—Fram 11:10
Þessi leikur var mest spenn-
andi og jafnasti leikur kvöldsins.
Haukar náðu strax þriggja marka
forskoti, en Fram stöðvaði þessa
sókn smá saman og er flautað
var til leikhlés, var markatalan
orðin jöfn 4:4. — Spenningurinn
eykzt strax á fyrstu sek. síðari
hálfleiksins, er Ólafur Ólafsson
skorar fimmta mark Fram. Allan
hálfleikinn skiptast félögin á um
að leiða með eins marks mun eða
eru jöfn að markatölu og er venju
legum leiktíma var lokið var
markatalan jöfn 7:7. — Fram-'
lengt var og þegar fyrrihluta
hennar var lokið var markatal-
an 7:9 Haukum í vil. Á fyrstu
mínútum síðari hluta framleng-
ingar tímans skora Frammarar
tvö mörk 9:9. Haukar náðu aftur
yfirhöndinni 10:9 og Fram jafnar
10:10, en Haukar skoruðu síðasta
markið í þessum hörkuspennandi
leik, er aðeins nokkrar sekúntur
eru eftir og vinna leikinn 11:10.
— Dómari í þessum leik var
Daníel Benjamínsson og kom
hæfni hans sem dómara sérlega
vel fram í þessum hraða og jafna
leik. Þjálfari Haukanna er FH-
ingurinn Hörður Jónsson.
3. fl. K.a. Víkingur—ÍR 11:7
Þessi leikur var jafn, en óþarf-
lega harður. Víkingur hafði oft-
ast eitt mark yfir og var hinn
virki sækjandi allan leikinn út.
Við leikhlé var markatalan 4:3,
en Víkingur sigraði leikinn með
11:7.
2. fl. K. a. FH—Ármann 19:13
FH-ingar byrjuðu með leiftur-
hraða, sem Ármann fékk ekkert
við ráðið og innan stundar stóðu
leikar 5:0 fyrir FH. Þar skoraði
örn Hallsteinsson 3 mörk. Ár-
menningar svöruðu þessari sókn
arlotu með að gera tilraun til að
draga úr hraða leiksins með að
halda knéttinum, sem lengst með
samleik, og tókst þeim þetta í
nokkrar min., og var hlutur
þeirra beztur er leikar stóðu 5:2
fyrir FH. — En þá tóku FH-ingar
aftur til við að skora og er nú
Kristján Stefánsson helzt að
verki. Og við leikhlé er staðan
orðin 13:7 FH í vil.
í síðari hálfleik skora Ármenn-
ingar fyrsta markið. Leikur
þeirra varð ákveðnari og meira
ógnandi og vörnin þéttari, en þó
tókst Ármanni ekki að minnka
markamuninn. f lok leiksins var
markatalan 19:13 FH í vil, sem
gefur ótvírætt til kynna að Ár-
mann hefði átt að geta veitt FH
meiri mótspyrnu, Leikurinn í
heild var ekki dæmi um áferðar
mikinn leik, til þess var of mikið
kapp í leiknum. En óneitanlega
eru bæði þessi lið afar sterk, og
jafnvel að vart hafi sézt sterkari
lið í þessum aldursflokki. —
1. fl. K. FH—ÍR 19:8
FH mætti að mestu með nýtt
lið í þessum flokki. Og kom þar
bezt fram hve FH hefir mikla
vídd hvað leikmenn snertir. ÍR
byrjaði að skora, en fljótlega
kom í ljós að FH myndi ráða
gangi leiksins, því um miðjan
fyrri hálfleik var staðan orðin 6:1
fyrir FH. — Við leikhlé var
markatalan 8:3. —- í síðari hálf-
leik varð munurinn enn meiri og
FH-ingarnir alls ráðandi og unnu
leikinn með yfirburðarsigri 19:8.
Þetta FH-lið lék oftast stórkost-
lega vel, og atriði í sendingum
og útfærslu markskota voru oft
snildarlega framkvæmd. SigT
urður Júlíusson, Sverrir Jónsson,
og Ólafur Þórarinsson sáust nú
aftur á leikvellinum, en þeir
skipuðu vörn meistfl. FH, er hún
var talin sterkust. Ásgeir Þor-
steinsson sýndi sér í lagi skemmti
legan leik bæði í skotum og send
ingum
2 fl K b FH—Fram 9:8
Keppnin á sunnudagskvöldið
byrjaði með leik FH og Fram í
2. fl. K.b. — Leikur þessi varð
einn jafnasti og mest spennandi
leikur mótsins. Um leið sá örlaga
ríkasti fyrir Fram, því að í ann-
að sinn varð Fram að láta í minni
pokann fyrir Hafnfirðingum í út-
slitum. — Við leikhlé stóðu leik-
ar 2:3 fyrir Fram og í leikslok
var markatalan 6:6. — Fram-
lengja varð því leikinn og er
leikið hafði verið 3 mín. á hvort
mark, var markatalan enn jöfn
7:7. — Fram varð fyrr til að
skora 7. markið, en FH kvittaði
á síðustu sekúntu tímans. Nokkr-
ar deilur urðu um hvort þetta
hafi verið löglegt mark, því það
var álit flestra, nema dómarans,
að knötturinn hafi ekki verið
kominn í mark, þegar tímavörð-
urinn gaf merki, með flautu sinni
um að tíminn væri búinn. £n
dómarinn dæmdi mark. Fram-
lengja varð því að nýju. Fram
byrjaði aftur að skora — 8:7 —
en í síðari hluta framlengingar-
innar jafnaði F H8:8 og á síðustu
sekúntunni skoraði FH sigur-
markið og vann þennan hörku-
spennandi leik 9:8. — Á.Á.