Morgunblaðið - 13.04.1960, Side 23
Miðvik'udagur 13.apríl 1960
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Ræða
utanrlkisráðherra
Framh. af bls. 1
Þriðja atriðið í þessu sambandi
okkar í fjórar milur 1952 og í
12 mílur 1958 hefur haft þau
hagnýtu áhrif, að friða hrygning
ar og uppvaxtarstöðvar, og þess
háttar ráðstafanir hafa ávallt í
för með sér aukna veiði allra.
er það að í tillögu okkar tölum , Sannleikurinn er sá, að hefðum
við ekki gripið til þeirra ráðstaf-
ana, sem við gerðum og sætt okk
við aðeins um forréttindi, sem
þýðir það að við erum ekki að
reyna að fá ráð yfir meiru en
við getum notað, heldur forgangs
rétt þegar svo stendur á að tak-
marka verður heildarafla í frið-
unarskyni. Loks er fjórða atriði
það, að nefnd óháðra sérfræðinga
myndi kveða upp lokaúrskurð-
inn.
Hagsmunir stórveldanna
í ræðu minni um daginn, sagði
ég að sú væri skoðun stjórnar
minnar, að svonefnd „söguleg
réttindi", væru, ef ekki hin sömu,
þá að minnsta kosti sambærileg
við nýlenduréttindi. Ég hygg að
það sé vel kunn staðreynd, að
ástæða þess að þriggja mílna
mörkin voru sett og framkvæmd
svo lengi, var sú að hin valda-
miklu ríki, sem stunduðu fisk-
veiðar. á fjarlægum miðum, sáu
sér hag í því að fiskimenn þeirra
gætu komizt sem næst ströndum
annara þjóða og þá, og þar til nú
fyrir skemmstu, gátu þeir þröngv
að þessu upp á máttarminni þjóð-
ir. Til allra hamingju fyrir þaer
verður þessu ekki lengur komið
við. Hingað til hafa þessar mátt-
arminni þjóðir verið þær sem
fórnirnar færðu og þegar loksins
er verið að bæta úr þessu órétt-
læti, virðist það ekki sérlega
sannfærandi er þeir, sem hagn-
azt hafa af þessu svo langan tíma,
halda því fram, að það séu þeir
sem fórnirnar færi. Auðvitað er
sanngjarnt að viðurkenna það að
útfærsla fiskveiðimarka snertir
þá menn sem fiskað hafa á ein-
hverju tilteknu svæði og verða að
hverfa burt af hluta þess. En
það sem við erum að tala um hér
á þessari ráðstefnu er ekki fjár-
hagur einstaklinga heldur þjóð-
arhagur. Ef litið er á þetta sem
mál er varði þjóðarhag, kynni að
vera gagnlegt að rifja upp hlut-
fallslegt mikilvægi fiskveiðanna
í þjóðarefnahag þeirra ríkja sem
fiskveiðar hafa stundað á ís-
landsmiðum. Ég vék ekki að
þessu í fyrri ræðu minni, en þar
sem ég hefi heyrt hér margt sagt
um fórnir og hartleikna meðferð
vildi ég vekja athygli á gréinar-
gerð við tillögu nefndar minnar.
Þar segir að þær hagfræðitölur er
almennt sýni hlutfallslegt mikil-
vægi fiskveiða í þjóðarbúskap
hinna ýmsu ríkja, séu þær hver
hluti af þjóðartekjum þeirra sé
fenginn frá fiskveiðum. I skýrslu
sem Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu Þjóðanna
gerði fyrir sjóréttarráðstefnuna
1958, eru tölur er sýna þessa stað-
reynd. Af þeim sézt að hjá þeim
þjóðum, sem fiska á íslandsmið-
um og sem hafa á þessari ráð-
stefnu fjölyrt um hörkulega með-
ferð til að sýna áhrifin af því ef
fiskimenn þeirra yrðu að fara út
fyrir 12 mílna fiskveiðibeltið, eru
heildartekjur af fiskveiðum
minna en einn af hundraði af
þjóðartekjunum og að einungis
hluti af heildarafla þeirra kom af
Islandsmiðum og enn minni hluti
af svæðinu milli 6 og 12 mílna —
reyndar mjög lítill hluti.
Ekki fiskheldur varnarveggur
Einnig er gengið framhjá öðru
meginatriði í þessari rökfærzlu
og það er eins og ég hef þegar
útskýrt, að 12 mílna fiskveiði-
mörkin umhverfis Island, útiloka
alls ekki erlenda fiskimenn frá
fiskveiðum á íslandsmiðum. 12
mílna mörkin eru ekki neinn fisk
heldur varnarveggur; fiskurinn
getur farið út fyrir þau og gerir
það Staðreyndin er sú, að mest
af afla togara á íslandsmiðum,
eftir stríð, hefur komið af svæð-
um sem eru lengra en 12 mílur
frá ströndinni. Þótt samþykkt sé
tillaga okkar um forréttindi utan
12 mílna, myndu erlendir menn
enn geta stundað arðgæfar fisk-
veiðar umhverfis strendur Is-
lands. Stjórn mín hefur marg-
sinnis vakið athygli á þeirri stað
reynd að útfærsla fiskveiðimarka
ur við þriggja mílna kerfið þá
myndu fiskstofnar á íslandsmið-
um hafa verið eyðilagðir á til-
tölulega fáum árum. Þannig var
þegar komið á sumum svæðum
og við gátum með engu móti
fy'gt þeirri reglu að gera of lít-
ið og of seint.
Vernd á stríðstímum.
Meðan heimsstyrjaldirnar tvær
geysuðu, nutu fiskstofnar á Is-
landsmiðum mikilvægrar vernd-
ar þar eð þá voru næstum eng-
ir erlendir togarar á miðunum.
Árangurinn varð sá að fiskstofn
arnir náðu aftur fullri stærð.
Hefði þetta ekki komið til svo og
þær ráðstafanir sem ríkisstjórn
Islands hefur gert, myndi ástand-
ið vera hörmulegt í dag.
Frekari aukning fiskveiðanna,
að því er þorskstofninn snertir,
myndf vera skaðleg og hafa of-
veiði í för með sér. Þorskstofn-
inn gefur nú næstum því þann
hámarksafla, sem stofninn þolir
og við getum ekki búizt við því,
að geta aukið að neinu verulegu
ieyti heildaraflann. Takmörkun
heildaraflans er því á næsta leiti.
Þessi niðurstaða er byggð á
meira en 30 ára vísindalegum
rannsóknum á þessari fiskteg-
und. Tillaga okkar byggist á þess
ari þekkingu, og sannarlega vilj-
um við nota vísindalega þekk-
ingu okkar til að koma í veg
fyrir eyðileggingu þessa verð-
mæta fiskistofns.
Eyðileggja veiðarfæri
Enn er eitt sem ekki má
gleyma o,g öllum er Ijóst sem
hagnýta reynslu hafa á þessu
sviði og þekkja ástand á fiski-
miðunum. Ég á við hið óþolandi
ástand ,þegar botnvarpa er not-
uð á miðum, þar sem önnur veið
arfæri, svo sem línur og net,
eru notuð samtímis. Reynsla okk
ar í þessu efni hefur sýnt það
ljóslega, að nauðsynlegt er að
veita litlum bátum, sem nota
þessi veiðarfæri, vernd, því að
þeir eru varnarlausir í samkeppn
inni við togarana. Togararnir
eyðileggja veiðarfæri þeirra og
hallarekstur verður á bátunum.
Að því leyti veita 12 mílna mörk
in, auk fiskverndar, mikilvæga
vernd smábátaútgerðinni. Auð-
vitað myndi hið sama gilda utan
12 mílna markanna. Þótt ljóst sé
að 12 mílna mörkin eru að miklu
gagni að þessu leyti, eins og seg-
ir í greinargerð með tillögu okk-
ar, þá verður möguleiki á frekari
ráðstöfunum að vera fyrir heftdi.
Tölurnar sanna ekkert
Háttvirtur fulltrúi Bretlands
nefndi í ræðu sinni í gær nokkr-
ar tölur, sem áttu að sanna að
núverandi afli á íslandsmiðum
hefði nýlega minnkað svo mikið,
að menn kunna að hafa skilið
þetta þannig að hrun vofði yfir
brezka fiskiflotanum. En við
veittum því auðvitað eftirtekt,
að tölur þessar voru aðeins fyrir
eina viku, fyrstu vikuna eftir að
brezkir togaraeigendur ákváðu
að kalla burt togara sína af öll-
um íslandsmiðum, og þessar töl-
ur sanna bókstaflega ekki neitt
varðandi hina raunverulegu
spurningu, sem sé þá, hversu
mikið þeir myndu hafa aflað, ef
þeir hefðu gert hið sama og allir
erlendir fiskimenn aðrir, það er
að virða gildandi lög í okkar
landi og halda sig utan 12 mílna
.markanna. Frá því 12 mílna
mörkin tóku gildi, hafa erlendir
togarar fiskað utan 12 mílna
markanna og íslenzkir togarar
hafa að mestu gert það einnig.
Einmitt þegar brezkir togarar
fara af íslandsmiðum til að sýna
góðan vilja, hafa margir aðrir
togarar frá ýmsum þjóðum verið
að fiska á svæðinu fyrir utan 12
mílurnar og fengið góðan afla.
Þetta gætu brezku togararnir
einnig hafa gert, en togaraeig-
endurnir hafa heldur kosið að
láta togara sína fara brott af Is-
landsmiðum öllum á bezta fisk-
veiðitíma ársins og minnka þar
með afla sinn af eigin vilja um
allt að því 89%, eins og hátt-
virtur fulltrúi Bretlands sagði,
og leggja svo þessar tölur fyrir
ráðstefnuna sem röksemd gegn
12 mílna fiskveiðitakmörkum
okkar. Nefna má í þessu sam
bandi að á sama tíma og brezkir
togarar hafa fiskað undir vernd
brezka herskipaflotans innan 12
mílnanna umhverfis tsland, hafa
aðrar miklar fiskveiðiþjóðir, sem
virt hafa reglur okkar, varið til-
tölulega miklu fé til leitar að
fiskimiðum utan 12 mílna mark-
anna með þeim árangri að ný
mið hafa fundizt og þau hafa
þegar gefið góðan afla.
Fögnum ábendingum
Ég vona að athugasemdum
mínum verði tekið í sama anda
og þær eru settar fram. Það sem
við erum að reyna að segja í til-
lögu okkar er þetta: Að við eig-
um við sérstakt vandamál að
glíma sem leysa þarf og þetta
vandamál okkar nýtur skilnings
manna hvarvetna í heiminum.
Ég segi það hreinskilnislega, að
hafi nokkur einhverjar ábend-
ingar um það hversu þetta gæti
verið ljósar orðað, myndum við
fagna þeim.
Að lokum vildi ég nota þetta
tækifæri, herra formaður, til að
beina því enn einu sinni til allra
vina okkar hér á ráðstefnunni,
að þeir athugi tillögu okkar í
ljósi staðreyndanna og við von-
um einlæglega að samúð þeirri,
sem málstaður okkar vissulega
nýtur, verði fundinn farvegur í
áþreifanlegt form, því að aðeins
á þann hátt finnst lausn á þessu
vandamáli. Fögur orð um sam
úðarfullan skilning eru ágæt, en
vitaskuld leysa þau ekki vanda-
málið nema athöfn fylgi.
Rækju leitað fyrir
norðanlíka
EINS og skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu, hafa þingmenn
Austurlands flutt á þingi tillögu
um að á næsta sumri verði leitað
ræjkumiða úti fyrir Austurlandi.
Nú hefur verið lögð fram í þing-
inu breytingartillaga frá Jónasi
G. Rafnar um að rækju verði
einnig leitað fyrir norðan land.
Fyrir tillöguflytjendum vakir að
sjálfsögðu það, að efla atvinnu-
lífið í þessum landshlutum, en
nokkur ástæða er til að ætla, að
það megi verða með umræddu
móti, þar eð rækju hefur orðið
talsvert vart sums staðar við
strendur landsins.
Öllum þeim, er sýndu mér vináttu á 75 ára afmæli
mínu, sendi ég alúðarþakkir og beztu kveðjur.
W. Th. Möller.
Hjartaniega þakka ég öllum þeim sem glöddu mig á
sextugsafmæli mínu, með heimsóknum, gjöfum og heilla-
skeytum.
Ásmundur Árnason, Gnoðavog 36.
Innilegt þakklæti til allra sem hafa styrkt mig með
gjöfum, vegna eignatjóns míns við húsbruna í Höfnum.
Konráð Ölafsson.
Lokað
m
verður frá kl. 1—4 í dag vegna jarðarfarar
Elísabetar Kristjánsdóttur Foss.
Mlagnús Th. S. Blondahl h.f.
Sonur minn
GUÐMUNDUR ÞORLEIFSSON
frá Breiðholti við Reykjavík,
lézt á Landspítalanum föstudaginn 8. apríl. Jarðað verður
frá kirkjunni í Fossvogi þriðjudaginn 19. apríl kl. 3.
Jólianna Olafsdóttir.
Jarðarför föður míns, afa og tengdaföður
BJARNA GRlMSSON AR
Sólvallagötu 74,
fer fram frá Dómkirkjunni í dag miðvikudaginn 13. apríl
kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afbeðin.
Elín Bjarnadóttir, Aníta, Helen og Knud Larsen.
Það tilkynnist vinum og ættingjum að
HARRY LÖKSTAD
andaðist 7. þ.m. í Noregi. — Jarðarförin fer fram í dag.
Fyrir hönd eiginkonu og móður:
Vilborg og Einar Dyrset.
Hjarkær eiginmaður, faðir og stjúpfaðir,
SIGURSTEINN MAGNÚSSON
Skúlagötu 78
er andaðist á Bæjarsjúkrahúsinu 11. þ.m. verður jarð-
sunginn í Fossvogskirkju, þriðjudaginn 19. þ.m. kl. 1,30
eftir hádegi.
Jórunn Valdimarsdóttir, börn og stjúpböm
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR
Veggjum, Borgarnesi
Sérstaklega þökkum við læknum og starfsliði Sjúkra-
húss Akraness fyrir umhyggju og hjúkrun. Einnig þeim
mörgu sem veittu henni hjálp og vinsemd í veikindum
hennar. — Guð blessi ykkur öll.
Böm, tengdaböm og barnaböm.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við fráfall op
jarðarför móður, minnar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu
JÓNU ÁGÚSTlNU JÓNSDÓTTUR
Bjargi, Grindavík.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gyða Waage, Ragnar Jóhannsson.
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu
SIGURVEIGAR KETILSDÓTTUR
Hafnargötu 43, Keflavík.
Friðrik Gunnlaugsson, Friðrikka Friðriksdóttir,
Gunnfríður Friðriksdóttir, Janus Guðmundsson,
Lára Janusdóttir, Sigurveig Magnúsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Friðrik Magnússon.
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda S£unúð og vinarhug
við andlát og jarðarför föður mins
HJARTAR ÓLAFSSONAR
Fyrir hönd móður minnar, systkina og annarra vanda-
manna.
Anna Hjartardóttir.
Geirmundarstöðum
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við
andláf og jarðarför
ÁRNA SVEINSSONAR
frá Mælifellsá.
Vandamenn.