Morgunblaðið - 04.05.1960, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.05.1960, Blaðsíða 8
8 MORCUNRT AÐIÐ Miðvik'udagur 4. mai 1960 NÝTT leikhús frumsýndi í Fram- sóknarhúsinu fyrir skömmu fram angreindan gamanleik. Um höf- undana veit ég ekkert að segja, fremur en forráðamenn leikhúss- ins, því að í leikskránni er þeirra að, engu getið. — Leikurinn ger- ist í fjallahóteli í frönsku ölpun- um og er í þremur þáttum. Per- sónur leiksins eru fimm: Maja Miller, Humpy Miller eiginmað- ur hennar og Clive Norton, fyrr- verandi eiginmaður hennar. Þéir eru í sóttkví í sama herbergi, haldnir, að talið er, af hlaupa- bólu, sem þó ekki reynist rétt að vera, en það vitnast ekki fyrr en undir leikslok. Þessir ágætu menn verða þegar mestu mátar, enda sameinar þá ástin á Maju. Þá er það hótelstjórinn. Victor, sem einnig verður ástfanginn af frúnni. Veldur hann eiginmönn- unum miklum áhyggjum og af- brýðisemi, enda er hann frans- maður og því stórhættulegur í kvennamálum. Og loks er það Nanny, hjúkrunarkonan, sem stundar þá bólusjúklingana af mikilli kostgæfni og myndug- leika. Hún tekur þá eins og ó- þekka stráka, neyðir ofan í þá meðulunum og rekur þá í rúmið þegar þeir eru að striplast. Reyn ir hún mjög á taugar sjúkling- anna, en við liggur að þeir fleygi henni á dyr. Og þó er það hún, sem leysir allan vandann að lok- um. Leikstjóranum, Flosa Ólafssyni hefur tekist að halda leiknum þannig að aldrei slaknar á og meðferð leikendanna er allgóð og býsna jöfn. Elín Ingvarsdóttir, sem leikur Maju, fer vel með hlut verkið en er ekki vel förðuð, lit- laus og allt að því guggin, en það á ekki við þarna í hinu hressandi fjallalofti. Baldur Hólmgeirsson leikur Clive Norton af fjöri og öryggi og Jón Kjartansson fer laglega með hlutverk Humpy Sumorbnðir á Löngumýri IMýtt leikhús: Ástir í sdttkví gamanleikur eftir Harold Brooke og Kay Bannerman Leikstjóri: Flosi Ólafsson verður svo annað starfsfólk. Hver dagur hefst með fánahyll- ingu og morgunbænum, en að öðru leyti er deginum varið til þess að kynnast ungum vinum Jesú í Biblíunni, fara í leiki og synda, sýsla við alls konar fönd- ur, syngja undir handleiðslu kennara, kynnast jurtum og trjám, og verður m. a. eitthvað gróðursett af trjáplöntum. Þá verður einnig farið í ferðalög um Skagafjörð, komið að Hólum í Hjaltadal og víðar. Aðsókn að Sumarbúðunum hefur verið ttijög góð undanfar- in ár og er foreldrum því ráðlagt að tilkynna þáttöku barna sinna sem fyrst, en þátttökutilkynning- um er veitt móttaka í Biskups- skrifstofunni ,sími 15-0-15, í Æskulýðsráði Reykjavíkur, síma 15937 og hjá öllum sóknarprest- um úti á landi. EINS og undanfarin ár mun verða efnt til sumarbúða fyrir börn að Löngumýri í Skagafirði, Hófst þessi starfsemi á vegum þjóðkirkjunnar sumarið 1954 og þótti þá strax gefa góða raun, svo að starfinu hefur verið hald- ið áfram. Millers. Jakob Möller, sem leikúr Victor hótelstjóra er léttur í hreyfingum og ör í skapi, svo sem hæfir ástfangnum frans- manni og Nina Sveinsdóttir, sem leikur Nanny hjúkrunarkonu, túlkar hlutverkið með sínum gamla og góða „húmor“. í leikriti þessu, sem er farsa- kenndur gamanleikur, er margt smellið ,enda var auðheyrt að áhorfendur skemmtu sér prýðis vel, því að mikið var hlegið. Sigurður Grímsson. <S- Að þessu sinni munu verða fjórir flokkar í Sumarbúðunum, tveir fyrir drengi og tveir fyrir telpur. Sá fyrsti hefst 28. júní og er fyrir drengi, stendur hann til 11. júlí, næsti drengjaflokkur hefst svo 13. júlí og stendur til 26. júlí. Fyrri telpnaflokkurinn hefst 29. júlí og er til 11. ágúst, en síðari telpnaflokkurinn hefst 13. ágúst og sumarbúðun- um lýkur þá 26. ágúst. Sumarbúðastjóri verður að þessu sinni séra Lárus Halldórs- son, en með honum til aðstoðar Dáin ■ 15mín NÚ ORÐIÐ þykir það ekki furðu gegna þótt menn látist andartak á skurðarborðinu, ef læknar eru til taks og geta komið hjartanu í gang aftur svo að segja samstundis. En að manneskja snúi aftur til lífsins eftir nær stundarfjórðung, mun vera alveg einsdæmi. Þetta gerðist fyrir skömmu í Frakklandi. Anne-Marie Leroy heitir 11 ára gömul telpa. Hún er efst í sínum bekk og í alla staði fyrirmyndarbarn, en fyrir mánuði framdi hún sitt fyrsta heimskupar, gleypti 20 hylki af ormalyfi. Hálftíma seinna missti hún sjónina, líkaminn stirðnaði og hún missti með- vitund. — Heimilislæknirinn flutti hana eins hratt og auðið var á Saint-Cloud sjúkrahúsið, en á leiðinni hætti hjartað að slá. Skurðlæknar sjúkrahúss- ins umkringdu telpuna, dældu í hana súrefni og opnuðu brjóstkassann, til að nudda hjartað. Það annaðist læknir frá Vietnam, sem aldrei hafði reynt það áður. Hjartað byrj- aði að slá, en stanzaði svo aft- ur, og það var ekki fyrr en 14 mín. eftir að það hafði hætt fyrst að það tók aftur að slá eðlilega. Þrjár blóðgjafir los- uðu ieifarnar af eitrinu úr æð unum. — Hún mun aldrei framar geta talað, sögðu læknarnir. En eftir að hafa legið meðvit- undarlaus í 36 stundir, opnaði Anne-Marie augun og sagði „pabbi“. Fyrir viku fékk hún í fyrsta skipti að fara út á grasflötina framan við sjúkrahúsið, og voru þessar myndir þá teknar. H afa ekki haft af vetri að segja Fréttabréf úr Borgarfirbi eystra BORGARFIRÐI eystra, 21. apríl. Vetur sá, er nú var að líða, hef- ur verið einhver sá bezti og mild- asti vetur, sem menn hér muna. Fyrir áramót kom eitt snjóáfelli snemma í nóvember, að vísu hart en það stóð stutt. I febrúar og' fram í fyrstu daga marzmánað- ar, eða um þrjár vikur, var alger vetrarveðrátta, frost og töluverð snjókoma, þannig að í byrjun marz var kominn allmikill snjór, einkum til fjalla. í byggð var snjórinn laus og fór fljótt, þegar hlýnaði aftur. Annars er ekki hægt að segja að hér hafi menn haft af vetri að segja, þó að dag og dag hafi kastað úr éli eða frosti á polli. Úrfelli hefur verið töluvert, sérstaklega rigndi mik- ið framan af vetrinum. Jörð byrjuð að grænka. Jörð er nú byrjuð að grænka og hafa nýræktir og ræktarbeztu túnblettir þegar tekið á sig græn an lit. Víða er búið að vinna á túnum að miklu leyti fyrir nokkru, þar sem viiiinukraftur hefur verið fyrir hendi, en nú er víða mjög fáliðað á bæjum, þar til vertíðarfólk kemur heim. Sums staðar aðeins konurnar með ung börn, og hafa þær hirt gripina á meðan bændurnir hafa verið í vertíð í Vestmannaeyj- um. Fyrstu vertíðarmennirnir eru væntanlegir heim næstu daga, en flestir verða lengur eða allt til loka vertíðarinnar, ef fiskur veiðist, annars koma þeir um mánaðamótin. Geldfé og síðbærum ám sleppt. Ekki er enn farið að sleppa fé nema nokkru var sleppt strax í marz til Brúnavíkur og eins var sleppt í Húsavík um svipað leyti. En næstu daga mun al- mennt farið að reka geldfé og síðbærar ær á víkurnar hér í kring, ef ekki kólnar upp úr sumarmálunum. Jörð hefur ver- ið hér í nær allan vetur, en al- mennt hefur verið gefið með henni af heyi, enda hefur fóður bætisgjöf ekki verið teljandi. Einnig hefur allvíða borið á ó- hreysti í fé og orðið að fara bet- ur með það þess vegna. Hey munu vera með meira móti um þetta leyti og vel verk- uð. Ám mun víða verða gefið lengi enn með beit, hvernig sem viðrar, svo óvíst er að fyrning- ar verði miklar, þrátt fyrir góð- an vetur. Fiskihlaup kom hér síðari hluta marz og fengu þær þrjár trillur, sem settar voru á flot eina tvo ágæta róðra og reitings- afla í nokkra daga, sem fór smá minnkandi. -Lítilsháttar hefur veiðzt af hrognkelsi og loðna kom hér í marz og var lítilsháttar veidd til beitu og gerð var til- raun með að vinna mjöl úr henni í fiskimjölsverksmiðjunni hér. Læknislaust hefur verið hér um mánaðartíma og ekki er vitað hvenær rætist úr því. Vegurinn til Héraðs var opn- aður snemma í þessum mánuði og er það óvenju snemmt. I. I.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.