Morgunblaðið - 04.05.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.05.1960, Blaðsíða 24
Kristján Albertsson ritar grein á bls. 6. 100. tbl. — Miðvikudagur 4. maí 1960 Guinea sjá bls 11. Danskt skip ferst Bíllinn eyðilagðist í höndum björgunarmanna ” *■ ^ «> Hanne S. í Egedesminnde í Grænlandi. Koma Leifs Eiríkssonar til OTTAZT er að Grænlands- farið Hanne S. frá Svendborg hafi farizt á leið frá Græn- landi. Á skipinu er fimmtán manna áhöfn og þrír farþeg- ar, þar af tvær konur. Ekkert hefur til skipsins heyrzt frá því á föstudags- morgun en þá var það statt á sömu slóðum, sem Græn- landsfarið Hans Hedtoft, er það fórst. Skip og flugvélar hafa leit- að farsins og í gær fannst brak á reki, sem menn ótt- ast að hafi verið úr Hanne S. Stormar við Hvarf Hanne S. fór frá Ivigtut 27. apríl á leið til Kaupmannahafn- ar með 800 lestir af kryoliti. — Síðastl. föstudagsmorgun til- kynnti skipið veðurfar, þar sem það var statt, um það bil 60 sjó- mílur suðsuðvestur af Hvarfi. Var veður þar mjög slæmt, stormur, er síðar snerist í fár- viðri. Þess var vænzt, að annað veð- urskeyti bærist frá skipinu dag- inn eftir, en það brást. Gerðu menn sér vonir um að loftskeyta- tæki skipsins hefðu bilað. Var þó hafin leit að skipinu af sjó og úr lofti og tóku meðal annars þátt í leitinni bandarískar og kanadískar flugvélar og danska korvettan Thetis. í dag fannst nokkurt brak á reki, ölkassar og brot úr báti og er alvarlega óttast að það sé úr Hanne S. Ólafur Bjömsson, loftskeyta- maður á togaranum Úranusi skýrði Morgunblaðinu svo frá í gær, að í Grænlandi haldi menn enn í þá von, að loft- skeytatæki skipsins hafi bilað. Hann hafði samband við Juli- anehaab, og var þar tillcynnt, að brak hefði fundizt á 58.12 N og 46.40 V. Laust fyrir hádegi í gær hélt ílugbátur frá Keflavíkurflug- velli til þátttöku í leitinni. Kom flugvélin aftur nokkru fyrir miðnætti í gærkvöidi, án þess að leit hans hefði bor- ið nokkurn árangur. ★ Skipstjóri á Hanne S. er Erik Petersen frá Svendborg og far- þegamir þrir voru eiginkona Galster Bach, læknis í Góðvon, Ella Mortensen, skrifstofustúlka í Grænlandsmála ráðuneytinu og Jens Erik Jensen, skrifstofu- maður hjá Grænlandsverzlun- inni. Skipið var byggt árið 1952 og hefur verið í Grænlandsferðum í mörg ár. SANDGERÐI, 3. maí. — 14 bátar voru á sjó í gær frá Sandgerði og fengu 125 lestir. Helga var hæst með 16,3 lestir, Muninn með 12,7 og Steinunn gamla 12,5. Dínu báturinn Jón Gunnlaugs hafði rétt 7 tonn. — Axel. Á SUNNUDAGINN gjöreyðilagð- ist bíll suður við Krísuvík, þegar verið var að bjarga honum upp á þjóðveginn eftir veltu. Slys varð ekki á fólki, er bíllinn vait né heldur þá er hann eyðilagð- ist. Þetta gerðist kippkorn frá Krisuvíkurbúinu um klukkan 5. Ekki vissi heimildarmaður blaðs ins, hvenær bíllinn valt, en á þessu svæði er vegurinn sléttur og breiður. Hér var um að ræða brezkan bíl, R-10673. Fólkið sem í honum, var m. a. börn, hafði sloppið ómeitt. 19. skákin 19. SKÁKIN í einvígi þeirra Botvinniks og Tals um heims- •neistaratitilinn í skák var ;efld í Moskvu í gærkveldi. — Skákin fór í bið og hafði Tal þá peð yfir og betri stöðu. Biðskákin verður tefld í dag. Frh. af bls. 1. í Grimsby seldu í gær og í dag: Þorkell máni 3796 kit (241 tonn), (þar af 115 ónýt) fyrir 14,222 sterlingspund og Bjarni Ólafsson 3258 kit (207 tonn), (470 ónýt) fyrir 11,803 sterlings- pund. — Þar seldu einnig brezk- ir togarar, sem að vísu höfðu minni afla en íslenzku togararn- ir en mun betri, svo og þýzkur togari, sem kom af veiðum við ísland og Grænland einnig með betri afla, en belgiskur togari, sem einnig seldi þar afla sinn var með lakari fis'k en íslenzku togararnir. Hafði hann fengið hann á íslandsmiðum. Biöskraði Ég talaði við Basil Parkes, eig- anda Saint Andrew-togarafélags ins, sem á tugi togara í Bret- landi, Belgíu, Þýzkalandi, Kan- ada og Suður-Afríku. Hann ann- aðist löndun og fyrirgreiðslu tveggja íslenzku togaranna i Hull. Hann sagði: JÉg er sleginn yfir því, hve mikið af afla ís- lenzku togaranna er ónýtur. Einn minna togara kom um daginn með 1800 kit. Þar af voru 900 ónýt, og ég rak 1. stýrimann, sem bar ábyrgð á ísuninni. Ef þetta hefði stafað af því að togarinn hefði verið of lengi úti þá hefði ég rekið skipstjórann. Þetta var þó ekki sagt til að rýra álit íslenzku skipstjóranna, sem gátu ekki komið fyrr vegna „kvótans". Vill alþjóðalögTeglu á hafinu Parkes vildi sem minnst segja um landhelgisdeiluna vegna fund arins í London: — Úr því að Bíllinn lá 2—3 m. fyrir neðan vegbrúnina og hafði farið alveg á hvolf. En jarðvegurinn þarna er mjúkur, og ekki að sjá telj- andi skemmdir á bílnum. Kviknar í bílnum Þegar hér var komið, var krana bíll kominn á staðinn og var hann að reyna að „þræla“ bílnum upp á veginn er óhappið varð. Var bíllinn kominn á öll 'hjólin upp undir vegbrúnina. Þar stóð hann í miklum halla. — Allt í einu sást hvar eldur blossaði út frá bílnum, og var hann svo magnað- aður, að svo virtist sem hann myndi læsa sig í sjálfan björg- unarbílinn. Var vír sá, sem var á milli bílanna losaður í snatri og kranabílnum ekið af hættu- svæðinu. Það voru engin tök á því þarna á staðnum að ráða niðurlögum eldsins því ekki var björgunar- bíllinn búinn neinum slökkvi- tækjum. Á svo sem hálftíma gjör eyðilagðist bíllinn. Eigandinn varð sjálfur sjónarvottur að því er bíllinn hans brann í höndum björgunarsveitarinnar. Meðan bíllinn var að brenna bar að Bandaríkjamann í jeppa af Keflavíkurflugvelli. Hann kvaðst hafa komið að er „björg- unin“ var að byrja og kvaðst hann árangurslaust hafa bent mönnunum á, að undir slíkum kringumstæðum gæti það bein- línis verið hættulegt að rjúfa ekki strauminn á rafkerfi bíls- ins. ,Eitf lauf' í 8. sinn REVÍAN „Eitt lauf“ verður sýnd í Sjálfstæðishúsinu í 8. sinn í kvöld kl. 8,30. Revían hefur hlotið miklar vinsældir meðal bæjarbúa og æ verið uppselt á fyrri sýningarnar sjö. Koma Leifs Eiríkssonar til Helsingfors HELSINGFORS, 2. maí. Fán- ar íslands og Finnlands blöktu við hún á flugvellinum í Hels ingfors, þegar Leifur Eiríks- son lenti hér á laugardags- Kvöldið. Lukka, innanríkisráðherra Finna, bauð islenzku flugvél- xna velkomna með stuttri ræðu á flugvellinum. Ingólf- ur Jónsson, flugmálaráðherra þakkaði móttökurnar og lét í ijós ánægju Islendinga með pennan áfanga í flugsamgöng um Norðurlanda. Á laugardagskvöld höfðu Loftleiðir boð inni fyrir Finna og íslendinga, þar sem fagnað rar bættum samgöngum milli Finnlands og íslands. Voru par m. a. staddir sendiherra íslands í Stokkhólmi og Moskvu ásamt Juuranto, aðal ræðismanni íslands í Helsing. fors. ■—SBJ. gerðist í landhelgisdeilunni á næstunni. Strangt gæðamat Ég talaði við marga fiskkaup- menn í Hull og sögðu þeir, að allmargir íslenzkir togarar hefðu komið með ágætan fisk að und- anförnu, en sumir hefðu gert miklu betur í því að hætta veið- um einum til tveimur dögum fyrr en þeir gerðu. Fiskur hér væri metinn af því opinbera, en Guðmundur Guðmundsson stýri- maður á Þorsteini þorskabít sagði að gæðaeftirlitið væri miklu strangara en áður og fullyrti að Bretar væru nú farnir að dæma sæmilegan fisk ónýtan. Annars var Guðmundur ánægður með lífið, því Þorskabítur kom við í Færeyjum og fékk færeyskan matsvein, sem kann margar ekki ómerkar kokkabækur utanbókar. Þórarinn Olgeirsson sagði mér að Hallveig Fróðadóttir mundi landa í Grimsby á morgun (mið- vikudag) og Norðlendingur í Hull, en Karlsefni og Narfi mundu landa í Grimsby á fimmtu dag. Mjólkin hækkar F R Á og með deginum í dag hækkar mjólk og mjólkurvörur. Mjólk í lausu máli hækkar úr kr. 2,95 í kr. 3,20. Flöskumjólk hækkár úr kr. 3,15 í kr. 3,40. — Rjómi hækkar úr kr. 37,70 í kr. 39,45 í lausu máli. Skyr hækkar úr kr. 8,60 í kr. 9,00 í smásölu. Gæðasmjör hækkar úr kr. 47.65 í kr. 52,20. — Lélegum togarafiski landað í Bretlandi Genfarráðstefnan var árangurs- laus, sagði hann, er bezt að semja um alþjóðlega möskvastærð til þess að koma í veg fyrir ofveiði, og auk þess legg ég til að komið verði á fót alþjóðlegu lögreglu- liði til þess að fylgjast með fisk- veiðum á hafinu, til dæmis þann- ig, að íslenzk varðskip gæti land- helgi Norðmanna, norsk varðskip séu á íslandsmiðum, Bretar gæti Spánverja o. s. frv. Þá kvrr Parkes hafa meiri áhuga á x. ríkisráðherrafundinum í Ty ■ — landi en Lundúnafundinum, því Dean og Drew munu báðir sækja utanríkisráðherrafundinn eftir því sem blöðin í Bretlandi herma. Ekki fékkst hann til að tala um herskipavérnd Breta á íslands- miðum. Við Woodcock, fiskiráðu nautur ísl. sendiráðsins, borðuð- um með honum í dag og reyndi ég þá að ræða við hann um land hélgisdeiluna milli Breta og ís- lendinga, en hann færðist enn undan, reis skyndilega á fætur og sagðist hafa gleymt því að hann ætti tíma hjá tannlæknin- um sínum! Fyrsta sporið Ég átti einnig tal við Ross, framkvæmdastjóra St. Andrews- félagsins. Hann sagði að 150—160 brezkir togarar yrðu komnir á Íslandsmið eftir 2—3 vikur. Hann fagnaði sakaruppgjöfinni, og sagði að hún væri fyrsta sporið, sem íslendingar hefðu stigið til sátta í mörg ár. Þá sagði hann að mörg brezk skip, sérstaklega þeir togarar, sem sæktust eftir flat- físki höenuðust á bví. að veiða innan 12 mílna fiskveiðilögsögu íslands undir herskipavernd þó erfitt væri. Þess vegna væri nú ekki jafngóð veiðivon eftir að togurunum hefði verið bannað að fara inn fyrir 12 mílna mörk- in. Þá lagði hann áherzlu á að sakaruppgjöfin hefði haft mikil áhrif á Hull-búa. Hún hefði kom ið í veg fyrir átök, þegar ís- lenzku togararnir lönduðu þar. -*r syndir, engar syndir -r-að er gott að geta farið með sjúka menn til hafnar á íslandi, sagði hann, án þess að eiga von á að ryfjaðar væru upp gamlar syndir, sem þó væru engar synd- ir, eins og hann komst að orði. Þá sagði hann að það hefði einn- ig haft mikil áhrif í Hull, að Bjarni Hddari og Þorsteinn þorskabítur hefðu verið látnir bíða á Humberfljótinu í einn dag, því annars hefðu þeir hindr- að tvo brezka togara í að landa. Það hefði tvímælalaust hleypt illu blóði í sjómenn og löndun- armenn, sem líta forréttindi ís- lenzkra togara fram yfir aðra út. lenda togara hornauga, en for- réttindi þessi, sagði hann, að ís- lendingar hefðu fengið með Parísarsamningunum á sínum tíma. Sagði hann að þessi bið hefði verið viturlegt herbtagð af hálfu íslendinga. Ég spurði hvort þetta gæti haft þau áhrif á togaramenn og löndunarmenn, að þeir myndu framvegis hóta átökum, ef íslendingar gættu þess ekki ávallt að ýta ekki burt brezkum togara af markaðnum, en hann taldi það mundi hafa minni áhrif en úrslit Lundúna- fundarins og annað það, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.