Morgunblaðið - 04.05.1960, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 4. maí 1960
MORCinSBLAÐIÐ
21
0 0 .0 0 0 00 0 0 » 0-.* 0 ++ *
0m 0H0H0 <0jfl
skrifar um:
KVIKMYNDIR
%\,0 0 0 * >t 1* 0 0 0 0 0 0 0 ****** 0 + ********* * + &* + + *& + * **
BÆJARBÍÓ
Pabbi okkar allra
ÞESSI ítölsk-fraaska mynd, sem
tekin er í Cinemascope, er all
sérstæð að efni og skemmtilega á
efninu haldið, enda hlaut myndin
1. verðlaun á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Berlín. Pabbi okk-
ar allra er ekki einstakur maður,
heldur margir pabbar, sem eiga
það sameiginlegt (eins og svo
ótalmargir aðrir pabbar) að þeir
fá engu tauti komið við dætur
sínar og syni og verða því grá-
hærðir og magaveikir út af öllu
saman. En slíkir pabbar geta mik-
ið lært af þessari ágætu mynd.
Meðal annars það, að unglingarn-
ir eiga sín vandamál, ekki síst
á þeim erfiðu árum þegar ástin
fer að ónáða þeirra ungu og við-
kvæmu hjörtu Þá er gott að
mæta skilningi foreldranna og
mega sýna þeim fullan trúnað.
Ef pabbinn skildi þetta og talaði
við börn sín um vandamál þeirra
í stað þess að þusa og þruma,
hóta og banna, þá mundi afstýrt
mörgu slysinu í lífi unglinganna.
Þetta er boðskapur myndarinnar
og því ættu flestir pabbar að sjá
fcana.
í myndinni leika margir af-
burða leikarar svo sem Vittorio
de Sica og Ruggero Marchi, sem
báðir eru hrjáðir pabbar, Mar-
cello Mashoianni o. fl. o. fl.
AUSTURBÆJARBÍÓ:
Herdeild hinna gleymdu
ÞETTA er frönsk mynd tekin í
litum. Leikstjóri er Robert Siod-
mak, en kvikmyndahandritið hef-
ur gert Charles Spaak, bróðir
Henri Spaak’s, sem um langt
skeið hefur verið áhrifamikill
stjórnmálamaður á alþjóða vett-
vangi. — Myndin segir frá ungum
lögfræðingi í París, Pierre að
nafni og ástmey hans Silvíu. Þau
lifa í óhófi og alsnægtum, og að
því kemur að Pierre verður ör-
eigi og neyðist til að flýja land.
Hann heldur til Algier og lofar
Silvia honum að koma til hans
skömmu síðar En fjögur ár líða
og Silvía kemur ekki. Pierre hef-
ur gengið í útlendingahersveitina
þar sem fyrir eru margir mis-
jafnir ævintýramenn, enda líf
manna þar rótlaust og mannslíf-
in ekki í háu gengi. Dag einn sér
Pierre ungri gleði-stúlku bregða
fyrir, sem líkist svo Silvíu að
hann trúir því að hún sé þarna
komin. Hann nær fundum stúlk-
unnar, sem nefnist Helena. Hún
neitar því eindregið að hún sé
Silvía, en hánn er samt á báðum
áttum. Það takast með þeim heit-
ai ástir, og þegar Pierre hefur
lokið herþjónustunni hyggst hann
taka Helenu með sér til Marseill-
es En rétt áður en skipið á að
leggja af stað, rekst Pierri skyndi
lega á Silvíu. Honum verður ljóst
að hann elskar hana jafn heitt og
áður, en Silvía vísar honum á
bug. Atvik þetta verður þó ör-
lagaríkt um líf hans og Heienar,
Helga aflahæst
Sand«;erðisbáta
SANDGERÐI, 2. maL — Afli
Sandgerðisbáta frá áramótum
til 30/4 nemur nú 10 904 lestum
í 1208 róðrum á 16 báta. Aflinn
í fyrra yfir sama tímabil nam
10.416 lestum í 1142 róðrum á
19 báta. Arið þar áður nam afl-
inn 8.810 lestum í 1203 róðrum
á 18 báta.
Aflahæstir bátar á vertíðinni
nú eru: Helga með 1001,6 lestir
í 87 róðrum, þá Víðir II með
967,5 lestir í 88 róðrum, þriðji er
Muninn með 913 lestir í 89 róðr-
um og fjórði er Pétur Jónsson
frá Húsavík með 896,3 lestir í 90
róðrum. — Axel.
sem hefur unnað honum heitt og
innilega.------
Mynd þessi er efnismikil og
áhrifarík. ítalska fegurðardísin
Gína Lollobrigida leikur bæði
Silvíu og Helenu og er fögur og
glæsileg að vanda og leikur henn
ar góður. Hinn mikilhæfi franski
leikari Jean-Claude Pascal leikur
Pierre af mikilli prýði. Aukþeirra
má nefna hina frægu leikara
Raymond Pellegrin og Arbetty,
sem fara þarna með veigamikil
hlutverk.
NÝKOMNIR
amerískir kœliskápar
Notaðar innréttingar
fyrir matvörubúðir og bókabúðir til sýnis og
sölu kl. 3—6 , dag í
Bananasölunni
Mjölnisholti 12
Speglar
Framleiðum 1. fl. spegla í mörgum gerðum
t.d.: Fyrir baðherbergi, forstofur, kamínur,
húsgögn o. fl. — Til sýnis og sölu í búðinni,
Laugavegi 15.
Glerslípun & Speglagerð h.f.
Bóndi getur fengið stórt
jarð- og húsnœði
í næsta nágrenni Reykjavíkur frá næstu
fardögum (1. júní) gegn umsjón.
Tilboð merkt: „Pósthólf 355“, Reykjavík.
Búðarvikt
5 til 15 kíló óskast, einnig
Buðarkassi
Verzl. Halla Þórarins h.f.
Vesturgötu 17 — Sími 13447
BÍLSKIJR
Upphitaður bílskúr til leigu. Hentugur fyrir vöru-
geymslu. — Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt:
„Melhaga 66 — 3346“,
Vil kaupa góðan
hringnótabát
helzt nýjan. Upplýsingar í síma 3058.
ÓLAFUR LARUSSON, Keflavík
Gullnáma
af sérstökum ástæðum er til sölu vefnaðarvöru verzl-
un neðan til við Laugaveg. Lág húsaleiga. Nýr
vörulager. Tilboð óskast sent til afgr. Mbl. merkt:
„Gleðilegt sumar — 3299“.
Rennismiðir
Framtíðaratvinna. — Óskum eftir að ráða
vanan rennismið nú þegar.
Upplýsingar gefur verkstjórinn Grétar
Eiríksson (ekki í síma)
Egill Vilhjálmsson h.f.
Laugavegi 118
^ mAnufacturas de corcmo
(/VTmstrong
Soel.dtd Anónlm.
Einangrunarkorkur fyrirliggjandi
í eftirtöldum þykktum
1“, 1 2“ og 4“.
Borgartúni 7, — Sími 22235
I, • 4 . ;; I
Auglýsing
um umferð í Reykjavík
Samkvæmt ályktun bæjarstjómar Reykjavíkur hefír
eftirfarandi verið ákveðið:
1. Einstefnu&kstur um Þingholtsstræti frá Hellu-
sundi að Spít&l&stíg og fr» Bókhlöðustíg að
Bankastræti í norðurátt.
2. Bifreiðastöður bannaðar:
a. f Ingólfsstræti milli Spítalastíg og Amtmanns-
stígs austan megin götunnar, en ieyft vestan
megin, þó ekki í 20 m. fjarlægð frá næstu húsa-
línum Spítaíastigs og Amtmannsstígs.
b. Á Amtinannsstíg (utan bifreiðastæða).
c. f Þingholtsstræti frá Bókhlöðustíg að Spítalastíg.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 2. maí 1960
Sigurjón Sigurðsson