Morgunblaðið - 07.05.1960, Page 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 7. maí 1960
Kona óskar eftir atvinnu
hálfan daginn, vön af-
greiðslu. Tilb. merkt: ,,Hálf
an daginn — 3290“, sendist
afgr. Mbl., fyrir mánudags-
kvöld.
Ribs-plöntur,
sólberja plöntur og stórar
greni-plöntur, til sölu —
Baugsveg 26, simi 11929. —
Afgr. eftir kl. 7 síðdegis.
Ráðskona
eða barngóð unglingsstúlka
óskast. — Upplýsingar í
síma 35141.
3ja herbergja íbúð
til leigu í Kópavogi, til 1.
október. Upplýsingar.í síma
23839, eftir kl. 13,00.
Gæðingur til sölu
Upplýsingar í síma 35452,
eftir kl. 6. —
Keflavík
Ung stúlka óskar eftir að
koma 3ja ára dreng í fóst-
ur. Þeir, sem vilja sinna
þessu, hringi í dag í síma
1849. —
1—3 herbergja íbúð
óskast til leigu nú þegar.
Einhver fyrirframgreiðsla.
Uppl. í sima 35584, eftir
kl. 2.
Gott herbergi óskast
til leigu í Austurbænum
fyrir reglusaman karl-
mann. Uppl. í síma 22672.
íbúð
2 til 5 herb. ibúð óskast til
leigu sem fyrst. — Sími
33694. —
Stúdínur!
Til sölu falleg svört dragt.
Uppl. í síma 33571.
Ráðskona óskast
Vantar ráðskonu í sveit á
Suðurlandi, má hafa með
sér barn. Tilb. merkt: —
„Framtíð — 3288“, sendist
Mbl., fyrir 15. þessa mán.
Góð íbúð 1—2ja herb.
og eldhús, óskast fyrir 15.
maí eða 1. júní, helzt ná-
lægt Miðbænum. Einhver
fyrirframgreiðsla. Uppl. í
sima 10348, næstu daga.
Atvinna
Laghent stúlka óskast strax
helzt vön sníðastörfum.
Prjónastofan IÐUNN h.f.
Sími 13547. .
Trésmiðir '
Vantar nokkra trésmiði
núna strax. Uppl. í síma
32997 kl. 12—1 og 7—8
næstu daga.
fbúð óskast til leigu
2—4 herb. og eldhús. Upp-
lýsingar í síma 35-2-98. —
í dag er laugardagurinn 7. maí
128. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 02.17
Síðdegisflæði kl. 14.51
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hríngmn. — Læknavörður L..R, (fyrir
yitjanír). er á sama stað kl. 18—8. —
Sími 15030.
Vikuna 7.—13. maí er næturvörður f
Vesturbæjar-apóteki, en sunnudaginn
8. maí í Austurbæjar-apóteki.
Vikuna 7.—13. maí er næturlæknir í
Hafnarfirði Kristján Jóhannesson, sími
50056.
Holtsapótek og Garðsapótek-eru opin
alla virka daga-kl. 9—7 og á sunnudög-
um kl. 1—4.
Kvenfélag Óháða safnaðarins: —
Böggla- og skemmtikvöld verður hald-
ið í Kirkjubæ á mánudagskvöldið nk.
Konur mega taka með sér gesti.
Konur í Styrktarfélagi Vangefinna
hafa bazar og kaffisölu í Skátaheimil-
inu við Snorrabraut sunnudaginn 8.
maí n.k. Hefst hann kl. 14 e.h. Margt
góðra muna. Sýndir verða einnig og
seldir hlutir unnir af vangefnum börn
um. Þeir, sem vilja gefa kökur og
fleira komi því í skátaheimilið kl.
10—12 n.k. sunnudag.
I blaðinu í gær misritaðist samskot
til Sólheimadrengsins 1 stað VÞ kr. 25
sé UP 25.
Félag Djúpmanna: Sumarfagnaður í
kvöld kl. 9 í Tjarnarkaffi (niðri).
Ljósastofa Hvítabandsins Fornhaga
8 er opin fyrir börn og fullorðna alla
virka daga kl. 2—5 e.h.
- M ESS U R -
Dómkirkjan: Messa kl. 11 f.h. Séra
Jón Þorvarðss'on. Ferming. Messa kl. 1.
30 vegna landsþings Slysavarnafélags
Islands. Sr. Oskar J. Þorláksson. Eng-
in önnur síðdegismessa.
Neskirkja: Messa kl. 11 f.h. Séra Jón
Thorarensen.
Elliheimilið: Guðsþjónusta kl. 2 e.h
Séra Jón Guðnason. — Heimilisprest-
urinn.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11 f.h. Sr.
Sigurjón P. Arnason. Messa kl. 5 síðd.
Sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup.
Háteigssókn: Fermingarmessa í Dóm
kirkjunni kl. 11 f.h. Sr. Jón Þorvarðs-
son.
Langholtsprestakall: Messa fellur
niður.
Bústaðaprestakall: Fermingarmessa
í Fríkirkjunni kl. 10.30 f.h. Sr. Gunnar
Arnason.
Fríkirkjan: Fermingarmessa kl. 2
e.h. Sr. Þorsteinn Björnsson.
Kirkja Óháða safnaðarins: Messa kl.
2 e.h. Barnasamkoma kl. 10.30 f.h. (Hóp
mynd verður tekin af börnunum.) —
Séra Emil Björnsson.
Kaþólska kirkjan: — Lágmessa kl.
8,30 árdegis. Hámessa og prédikun kl.
10 árdegis.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Messa kl.
2 e.h. Sr. Kristinn Stefánsson.
Reynivallaprestakall: Messa að Saur
bæ kl. 2 e.h. Sr. Kristján Bjarnason.
Kálfatjörn: Messa kl. 2 síðd. Ferm-
ing. Sr. Garðar Þorsteinsson.
Ekki er gott að hengja ullar-
peysur á venjulegt herðatré
eftir þvott. Bezta ráðið er auð-
vitað að leggja peysur milli
tveggja handklæða, en ef ætl-
unin er að hengja þær upp til
þerris, er hægt að búa sér til
herðatré úr samanvöfðum dag-
blöðum. Þá er auðvelt að gæta
þess að herðatréð sé hvorki
lengra né styttra en axlasaum-
arnir. Síðan er vafið utan um
með seglgarni og það jafnframt
notað til að hengja upp eins og
sést á myndinni.
Guðmundur Björnsson fjarv. frá 27.
marz, óákveðið. Staðg.: Skúli Thor»
oddsen, Austurstr. 7, viðtalst. kl. 10—
11 og 4—6.
Jón K. Jóhannsson læknir Keflavík,
verður fjarverandi frá 3. maí til 4.
júní. Staðgengill: Björn Sigurðsson.
Ragnhildur Ingibergsdóttir verður
fjarverandi til júníloka. Staðg. Brynj-
úlfur Dagsson, héraðslæknir í Kópav.
Eigi má ek á ægi
I ógrátandi líta,
síz málvinir mínir
fyrr marbakkann sukku.
Leiðr er mér sjóvar sorti
og súgandi bára;
heldr gerði mér harðan
harm í unna farmi.
(Ketilríður Hólmkelsdóttir:
Eigi má ek á ægi).
Læknar fjarveiandi
Hinn 21. apríl 1960 veitti forseti Is-
lands Geir Jónssyni, héraðslækni í
Reykhóiahéraði lausn frá embætti frá
1. júlí 1960 að telja.
Hinn 21. marz sl. var Arne Prytz
skipaður til þess að vera vararæðis-
maður Islands 1 Malmö.
Hinn 27. apríl sl. var Leíf Dundas
skipaður til þess að vera ræðismaður
Islands í Lissabon.
Sama dag var Helgi Lárusson skipað-
ur til þess að vera vararæðismaður Is-
lands í Palma de Mallorca.
Sama dag var Kurt Paul Erik Juur-
anto skipaður til þess að vera ræðis-
maður Islands 1 Helsingfors.
Anna Þórhallsdóttir, söngkona
er nýkomin heim til íslands eft-
ir nær sex mánaða dvöl í Banda-
ríkjunum. Söng hún þar opin-
berlega og vann að landkynn-
ingu. Segist henni svo frá: 1
Héðan fór ég 24. október til I
Atlanta í Georgíafylki, þar sem 1
ég dvaldist í fimm mánuði. Þar /
er fátt íslendinga, þrjár konur, 1
sem ég veit um. Þar af er ein
fósturdóttir mín, Jóhanna Krist-
jánsdóttir Hudson, sem býr þar
ásamt manni sínum og fjórum
börnum. Einnig er einn maður
íslenzkur þar við nám í verk-
fræði.
Þeir blaðamenn og sjónvarps-
menn, sem ég átti tal við þarna
höfðu aldrei hitt íslendinga og
margir í Atlanta vita ekki einu
sinni hvar ísland er.
Ég söng í útvarpið í Atlanta
7. marz og sýndi íslenzkar mynd
ir og talaði um ísland við nem-
endur í Agnes Scott College,
þar í borg.
Eftir að kuldakastið kom í
febrúar, fýsti marga að heyra
frá íslandi. Marzmánuður var
þarna hinn kaldasti, sem verið
hefur síðan veðurstofa tók þar
til starfa. Mér fannst ekki kalt,
en fólkið þar var að frjósa. Þá
sagði ég mikið frá íslenzku ull-
inni, rómaði ágæti hennar, en
þarna er nær eingöngu notaður
fatnaður úr gerfiefnum og bóm-
»U.
Þá söng ég tvisvar í Lúthersku
kirkjunni í East Point, sem er
útborg Atlanta, söng þá m.a.
Víst ertu Jesú kóngur klár og
þótti fólkinu gaman að heyra
sungið á fslenzku.
Þá má geta þess, að ég fór
utan með sólmyrkvamyndirnar
mínar þrjár og hanga þær nú á
vegg í Bradleystjörnu-rannsókn
arstöðinni í Atlanta og þykja
merkilegar og mjög óvenjulegar.
JÚMBÖ
Saga barnanna
Júmbó dreymdi.... að hann vakn-
aði skyndilega. Stormurinn reif upp
hurðina að baki honum, og vatnið
gusaðist inn. Hvar var hann? Æ-já,
nú mundi hann það. Hann var um
borð í „Svaninum“, skipinu hans
hr. Leós.
Hann flýtti sér upp á þilfar 'til hr.
Leós. — Nú, loksins kemurðu, Júmbó
— of seint eins og vanalega! æpti hr.
Leó gegnum stormhvininn. — Fyrir-
gefðu, hr. Leó, sagði Júmbó lúpuleg-
ur, — en þetta er alveg hræðilegt
veður.
— Já, það er fjárans gustur, sagði
hr. Leó hugsi, — og ég hef verið að
bíða eftir þér til þess að rifa seglin.
Það er ekki fyrir hvaða aukvisa sem
er, skal ég segja þér. Og nú skaltu
sýna, hvað þú getur, Júmbó!
Jakob blaðamaður
Eftir Peter Hoffman
* THEN I'M GOINS IN ^
THE RIGHT PIRECTION!
...THANKG! y___
'/X 0FC0UR6E
( THEVARE/
00 YOU THINK
THE BRIDGES
THERE ARE
WASHEP 0UT?
MISTER, YOU'RE
HEADING STRAIGHT
FOR THE ROSS
RIVER VALLEY/.;.
IT'S COMPLETELY
FLOODED/
ir GENERAL KAIURÍl
coy. IM-WO^lO MCHIjl MWYW
— Af hverju spyrjið þér hvort ég
sé að villast, lögregluþjónn?
— Af því þér eruð á leið til Ross-
ár-dalsins, sem er á kafi í vatni.
— Haldið þér að brýrnar séu farn-
ar?
— Auðvitað!
— Þá er ég á réttri leið! Takk fyrir!
— En....?