Morgunblaðið - 11.05.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.05.1960, Blaðsíða 4
4 MORCUNBI AÐIÐ Miðvikudagur 11. maí 1960 CAN'T SEE A BLAMED TH'NG THROUSH THIS WlND- SHIELD/...X'D BETTER SLOW UP BEFORE.... Þakjárn — Skúr Til sölu er 200 fet af nýju þakjárni, einnig skúr 4,20x 2,60 ferm., klæddur nýju járni. Uppl. í síma 18149. 3ja herbergja íbúð óskast til leigu strax. — Fyrirframgreiðsla. — Sími 13495. — Telpt á aldrinum 10—12 ára ósk- ast í sveit í sumar. Upplýs- ingar í síma 50989. Barnakerra með skermi óskast, og barnavagn til sölu á kr. 900. Sólvallagötu 41. — Sími 17891. Drengja-reiðhjól til sölu, Grenimel 7, kjall- ara. — Sími 18553. Stúlka óskast strax í sveit. — Má hafa með sér barn. — Sími 23539. Viðskiptafræðingur óskar eftir 3ja til 4ra herb. íbúð á hitav.svæðinu, strax eða 14. mai. Tilb. sendist Mbl., merkt: „14. maí-3400“ Siamen’s notuð rafmagns-eldavél til sölu, Bræðraborgarstíg 22. Óska eftir skrifstofu- eða afgreiðslu- starfi, hálfan daginn. Upp- lýsingar í síma 11195 xl. 1—5. — Sumarbústaður óskast til leigu í sumar. — Uppl. í síma 23711. Stúlku vantar MJÓLKURBARINN Laugavegi 162. Uppl. á staðnum. Ungan flugmann vantar 2ja til 3ja herb. íbúð. — Vinsamlegast hringið í sima 24805. Enskir kjólar til sölu nr. 38—44. Upplýs ingar Laugateigi 9, kjall- ara. — Til sölu olíukyndingartæki og mið- stöðvarketill, ódýrt. Uppl. í síma 35116. íbúð í Hafnarfirði Til leigu í 3V4 mánuð, 2 herbergi og eldhus. Uppl. í síma 50540. — Eftir Peter Hoffman áð ur en .... Jakob blaðamaður Júmbó settist við borðið, og Mikkí bar honum heitt súkkulaði. — Hvert erum við eiginlega að fara, Júmbó? spurði hún. — Við ætlum til eyjar- innar, þar sem Bolabítur skipstjóri hefir falið fjársjóðinn sinn, sagði Júmbó. — Þú manst eftir gamla sjóræn- ingjaskipstjóranum, sem við mætt- um á veginum um daginn? Hann hefir arfleitt foreldralaus börn í bæn- um okkar að öllum gullpeningunum sínum — og nú erum við á leiðinni að sækja þá. — Ó, þetta er næstum því of gott, til þess að það geti verið satt, sagði Mikkí. — Heldurðu ekki, að þig sé að dreyma? — Jú, auðvitað, anzaði Júmbó, — en það er jafnspennandi fyrir því! Hlustaðu nú á mig. Ég sé ekkert gegnum framrúðuna. JÚMBÖ Saga barnanna Það er vissara að hægja á sér i dag er miðvikudagur, 11. maí 132. dagur ársins. Ardegisflæði kl. 05.11 Síðdegisflæði kl. 17.34 Slysavarðstofan er opin allan sólar- hringmn. — Læknavörður L..R. (fyrir vitjanlr), er á sama stað kl. 18—8. — Sími 15030. Vikuna 7.—13. maí er næturvörður í Vesturbæjar-apóteki, en sunnudaginn 8. maí í Austurbæjar-apóteki. Vikuna 7.—13. maí er næturlæknir í Hafnarfirði Kristján Jóhannesson, sími 50056. Holtsapótek og Garðsapótek eru opin alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög- um kl. 1—4. Ljósastofa Hvítabandsins Fornhaga 8 er opin fyrir börn og fullorðna alla virka daga kl. 2—5 e.h. I.O.O.F. 7 = 1415118V2 = I.O.O.F, 9 = 1425118 V2 = Stúdentar Menntaskólanum f Rvík 1945 hittast í Tjarnarkaffi uppi í kvöld kl. 8,30. Félag austfirzkra kvenna. — Hinn venjulegi félagsfundur í maí fellur niður. I stað þess verður hið árlega skemmtíkvöld fyrir austfirzkar konur mánudaginn 30. þ.m. í Breiðfirðinga- búð. Frá Guðspekifélaginu. Vesak fundur hjá stúkunni Dögun í kvöld kl. 8,30. í Guðspekifélagshúsinu. Sigvaldi Hjálmarsson flytur erindi: „Rödd þagnarinnar". Listamannaklúbburinn er opinn í kvöld i baðstofu Naustsins. Barnablaðið Æskan, 4. tbl. 1960, er nýkomið út og flytur að vanda fjöl- breytt efni fyrir yngstu lesendurna. — Af efni þessa tölublaðs má nefna: Viltu koma í leik? eftir Þorstein Ein- arsson, íþróttafulltrúa. — Prestsfjöl- skyldan, saga eftir Hope Shelley Mill- er. — Framhaldssagan, Eyjan dular- fulla. — Minnt er á, að frestur til að skila ritgerðum í ritgerðasamkeppni Æskunnar og Félags Sameinuðu Þjóð- anna hefir verið framlengdur til 1. júní n.k. — Þá eru sögukaflarnir I flug ferð með Sören og Onnu. — Sigríður Thorlacius skrifar: Sæluvorið mitt. — Ymislegt annað efni er og í Æskunni að þessu sinni, auk hinna föstu þátta. — Blaðið er allt mjög myndskreytt að vanda. Sýnir í Mokka SVEND Erik Jensen, teiknari, heldur nú sýningu á myndum sín um í veitingastofunni Mokka við Skólavörðustíg. Sýnir hann þar 19 myndir, aðallega teiknimynd- ir og nokkrar vatnslitamyndir. Hugmyndir hefur hann sótt í ís- lendingasögurnar, ennfremur sýn ir hann myndir frá Grænlandi og ýmsar teikningar úr daglega lífinu. Myndirnar eru allar til sölu. Svend Erik Jensen er frá Ála- borg og hefur stundað nám í blaðateikningum í Kaupmanna- höfn. Hann hefur tekið þátt í 3 sýningum í heimalandi sínu. SKÝRINGAR Lárétt: — 1 hæðast — 6 heil- ræði — 7 menntastofnanirnar — 10 dropi — 11 lík — 12 verkfæri — 14 sérhljóðar — 15 slæmum — 18 líkamshluta. Lóffrétt: — 1 gælunafn — 2 van stilltur — 3 reku — 4 skelin — 5 málning — 8 grænmetið — 9 á takmörkunum — 13 fiskur — 16 samhljóðar — 17 ósamstæðir. A\m .< mii iiffj P - 1 r u 1 i f i t flmip ! ■ !!««« 1®, m X II jj | Undrask öglis landa eik, hví vér ’rum bleikir; fár verðr fagr af sárum, fann ek örvadrif, svanni, mik fló málmr enn dökkvi, magni keyrðr, í gagnum; hvasst beit hjarta it næsta mættligt járn, er ek vætti. Þormóður Bersason, Kolbrúnar- skáld: Undrask öglis landa. I Lögbirtingi er skýrt frá nýjum ræðismönnum Bandaríkjanna og Bret- lands hér í bæ. Pierson M. Hall hefur verið veitt viðurkenning sem amerísk ur ræðismaður og vararæðismaður er David B. Trimmins, Aðalræðismaður Breta er Andrew C. Stewart og ræðis maður er David M. Summerhayes. Þá hefur Olafi Ragnars verið veitt viðurkenning sem vararæðismaður Svíþjóðar á Siglufirði. Friðþjófi Jó- hannessyni veitt viðurkenning sem ræðismanni þýzka sambandslýðveldis^, ins á Patreksfirði og Martin Tómas- syni veitt viðurkenning sem vararæð- ismanni Dana 1 Vestmannaeyjum. Pennavinir Mr. Bradác Bedrich, Velké Prílepy 107, Praha - Západ, Czechoslovakia. Skrifar á ensku og þýzku. DANSKI atómeðlisfræffing- urinn Aage Bohr hefur fyrir nokkru fengið heiðurs verðlaun fyrir vísindaaf- rek sín. Verfflaun þess, sem eru að upphæð 2.500 dollarar nefnast Dannie Heinman verfflaun. Afhenti formaff- ur félags bandarískra vís- indamanna í Washington, prófessor Victor F. Weiss- kopf honum verfflaunin á ráðstefnu eðlisfræffinga þar í borg. Prófessor Weisskopf hafði unnið á rannsóknarstofun- un Niels Bohr fyrir heims- styrjöldina síffari, en verff- iaunahafinn er sonur hins fræga vísindamanna. Prófessor Aage Bohr er 38 ára aff aldri og hóf þegar tvö síðustu ár styrjaldar- innar aff vinna með föður sínum í Los Alamos rann- sóknarstofnuninni í Banda- ríkjunum, en síðan 1946 hef ur hann náff hinum merki- lega árangri í rannsóknum á effli atómkjarnans. Áriff 1952 setti hann fram kenningar sínar um hreyí- ingar kjarnaagna, en marg- ar kenningar höfðu áffur komiff fram um þær, sem sumar greindi mjög á um niðurstöður. Hefir þaff komiff í ljós á undanförnum árum hve kenningar Aage Bohr voru athyglisverðar, því að marg ir hlutir, sem hann gerði ráff fyrir í kenningu sinni hafa komið betur í ljós við áfram haldandi rannsóknir, sem framkvæmdar hafa veriff í rannsóknarstofnun Niels Bohr í Kaupmannaliöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.