Morgunblaðið - 11.05.1960, Page 17
Miðvikudagur 11. maf 19B(?
17
' MORCVTSB1 4Ð1Ð
Frá vigsluathöfn húss Slysavarnafélagsins. (Ljósm.: Sv. Þorm.)
Nýtt hús SVFÍ vígt
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór
fram við hátíðlega athöfn vígsla
hins nýreista húss Slysavarnar-
félags íslandfi á Grandagarði.
Ákvörðun um húsbygginguna
var tekin á landsþingi S.V.F.I.
fyrir tveimur árum.
Húsið er 280 ferm. að flatar-
máli en rúmmál 3050 rúmmetrar.
Á fyrstu hæð er geymsla fyrir
björgunarbát félagsins, Gísla J.
Johnsen, böð og snyrtiherbergi
fyrir björgunarsveitina og áhöfn
bátsins, æfingarsalir, herbergi
fyrir hafnarlögreglu o. fl.
Á annarri hæð hússins eru
skrifstofur félagsins, stjórnar-
herbergi og herbergi til nefndar-
starfa. Einnig salur, sem er ætl-
aður félagsdeildum.
Á þriðju hæð er fundarsalur®-
fyrir 140 manns, eldhús forstofa,
fatageymsla og snyrtiherbergi.
Gunnar Friðriksson afhenti hús-
ið fyrir hönd byggingarnefndar,
en forseti S.V.F.Í. veitt því við-
töku.
Vígsla hássins
Biskupinn yfir íslandi, Sigur-
björn Einarsson framkvæmdi
vígslu hússins.
Heiðursgestir við athöfnina
voru Forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson og frú hans,
biskupinn og frú hans, félags-
málaráðherra, Emil Jónsson,
borgarstjóri, Geir Hallgrímsson,
Gísli J. Johnson, stórkaupm. og
frú og Gísli Halldórsson, húsa-
meistari, sem teiknaði húsið.
Biskup lýsti blessun yfir hús-
inu og því starfi, sem þar skyldi
unnið, en síðan tóku til máls For
seti íslands, félagsmálaráðherra
og borgarstjóri. Þökkuðu þeir
Slysavarnafélaginu störf þess á
liðnum árum og árnuðu því
heilla.
Stal bíl og velti
AKUREYRI, 9. maí: — Sá at-
burður gerðist hér aðfaranótt sl.
iaugardags, að ungur maður tók
bíl í óleyfi og ók honum út úr
bænum, en velti á Glerárbrú og
skemmdi bílinn allmikið. Piltur-
n.n var drukkinn, er þetta gerð
ist.
Skömmu eftir atburðinn kom
aðstandandi piltsins og tilkynnti
lögreglunni um óhappið, og hef
ur pilturinn nú játað brot sitt.
Bifreið sú, er hér um ræðir,
fjögurra manna Ford—Prefect.
Hafði eigandi skilið hana eftir
ólæsta og stóð lykillinn í straum
lásnum. Verksummerki á slys-
stað benda til þess, að bíllinn hafi
komið hliðarveg inn á Glerár
götuna og beygt inn á Glerár
brúna og oltið þar, en hún er
mjög breið. Bíllinn dældaðist
bæði á hlið og vélarhlíf og er sem
segir allmikið skemmdur. Ekki
urðu slys á mönnum við atburð
Húsið séð frá sjónum.
þennan. — vig.
Kona lýkur prófi í
f ra m reiðs I u störf u m
MATSVEINA- og veitingaþjóna- •
skólanum var slitið sl. laugardag.
Sveinspróf fór fram daganna 25.
til 2n. apríl. Kl. 3—4 e.h. mið-
vikudaginn 27. apríl var haldin
sýning á köldum réttum mat-
reiðslunema og borðskreytingum
framreiðslunema og er talið að
um fjögur hundruð manns hafi
lagt leið sína á þessa sýningu.
Að kvöldi sýningardagsins var
haldið hóf í húsakynnum skól-
ans og voru framreiddiir af fram-
reiðslunemum prófréttir mat-
reiðslunema. Auk forustumanna
úr samtökum veitingamanna
mættu á hóf þetta ráðuneytis-
stjórar og fulltrúar frá Fjármála-
ráðuneytinu og Samgöngumála-
ráðuneytinu. Skólastjórinn
Tryggvi Þorfinnsson setti hófið
og stjórnaði því, ræður fluttu
Páll Pálmason ráðuneytisstjóri,
Lúðvík Hjálmtýsson f ormaður
Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda og ritari skólanefndar
Janus Halldórsson framreiðslu-
maður. Fór hóf þetta hið bezta
fram.
Að þessu sinni luku sjö mat-
reiðslunemar og fimm fram-
reiðslunemar prófi. Við skólaslit
er fór fram laugardaginn 30. apríl
kl. 4 e. h. hélt skólastjórinn
Trygvi Þorfinnsson ræðu og lýsti
starfsemi skólans á liðnum vetrí.
Við skólann störfuðu auk hans
sem kenndi bóklega og verklega
matreiðslu, 6 stundakennarar. Af
henti skólastjóri prófskírteini og
verðlaun er stjórn skólans veitti
einum matreiðslunema og ein-
um framreiðslunema fyrir ástund
un. Hæðstu einkun við lokapróf
í matreiðslu hlaut Þórir Friðjóns-
son nemandi að Hótel KEA á
Akureyri, en hæstu einkunn í
prófi framreiðslunema hlaut frú
Svanhildur Sigurjónsdóttir nem-
andi í Leikhúskjallaranum, en
hún er fyrsta konan er prófi lýk-
ur í framreiðsluiðn hér á landi.
Verðlaun fyrir ástundun hlaut
Svanhildur Sigurjónsdóttir í
framreiðslu og Gunnar Jónsson
í matreiðslu.
Er skólastjóri hafði lokið ræðu
sinni og afhent prófskírteini og
fyrrnefnd verðlaun tók til máls
formaður Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda og afhenti verð-
laun frá sambantíinu fyrir bezta
prófafrek í hvorri iðngreinanna,
hlaut Svanhildur Sigurjónsdótt-
ir verðlaun fyrir bezta afrek í
framreiðslu en Hallbjörn Þórar-
insson fyrir bezta prófafrek í
matreiðslu. Næstur tók til máls
Bjarni Guðjónsson, formaður Fé-
iags framreiðslumanna og afhenti
verðlaun frá félaginu fyrir bezta
afrek í prófi framreiðslunema og
hlaut Svanhildur Sigurjónsdóttir
þau. Því næst afhenti Sveinn Sím
onarsson verðlaun fyrir hönd
Braga Ingasonar formanns Fé-
lags matreiðslumanna, en þau
verðlaun voru til þess matreiðslu
nema er sýndi bezta kalda rétt-
inn og hlaut Hallbjörn Þórarinns
son þau verðlaun.
Að þessu loknu hélt Böðvar
Steinþórsson, formaður skóla-
nefndar ræðu, bauð hann hina
12 nýju iðnsveina velkomna í
raðir iðnaðarmanna og ræddi um
starfsskilyrði Matsveina- og veit-
ingaþjónaskólans er hann taldi
vera mjög ábótavant, hann gat
þess að nú væri fimmta starfsári
skólans að ljúka og þakkaði hann
skólastjóra og yfirkennara þeirra
starf á liðnum árum.
Síðan sagði skólastjórinn
fimmta skólaári Matsveina og
veitingaþjónaskólans lokið og
skólanum slitið.
V a n u r
rafsuðumaður
óskast. Upplýsingar í síma 11365.
Allt á sama stað
Fyrirliggjandi
Þilplötur
4x9 fet. — Verð með söluskatti kr. 99,20.
Cgill Vilhjálmsson hf.
Laugaveg 118 —Sími 2-22-40
10 ára
Utflutnings- og innflutningsverzlun
Til sölu að hálfu leyti. Viðkomandi verður að geta
annast stjórn fyrirtækisins. Þeir, sem óska frekari
upplýsinga leggi nöfn sín inn hjá Mbl., fyrir laugard.
14. þ. m. merkt: „Gott boð — 4297“.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 28., 34. og 40. tbl. Lögbirtingablaðsins
1960, á b/v Auslfirðingi S.U. 3, eign Austfirðings h.f.,
fer fram eftir kröfu Braga Hannessonar hdl. og Guð-
mundar Péturssonar hrl. við skipið, þar sem það liggur
við Grandagarð í Reykjavíkurhöfn, föstudaginn 13. maí
1960, kl. 3^4 síðdegis.
Borgarfógetinn í Beykjavfk.
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt og útflutningssjóðs-
gjald, svo og farmiða- og iðgjaldaskatt samkv. 40.
tii 42. gr. laga nr. 33 frá 1958, fyrir 1. ársfjórðung
1960, svo og vangreiddan söluskatt og útflutnings-
sjóðsgjald eldri ára, hafi gjöld þessi ekki verið greidd
í síðasta lagi fyrir 15. þ. m.
Að þeim tíma liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá,
skilað gjöldunum.
Reykjavík, 9. maí 1960.
TOLLSTJÓBASKBIFSTOFAN, Arnarhvoli.
Keflavík — Suðurnes
Húsgagnaverzlunin
Carðarshólmi auglýsir
Fermingarnar nálgast! — Höfum glæsilegar ferm-
ingargjafir s. s. Skrifborð 5 gerðir, Saumakassa,
Bókahillur, Hansahillur, Kommóður, Svefnstóla,
ódýrir bólstraðir kollar, fjölbreytt litaúrval, Vand-
aðir stakir stólar með góðu áklæði.
Takið eftir! Sendum heim á fermingardag.
Seljum eingöngu vönduð og góð húsgögn.
Carðarshólmi
Hafnargötu 18 — Sími 2009.