Morgunblaðið - 11.05.1960, Qupperneq 23
Miðvikudagur 11 maí 1960
MORCTJNBLAÐIÐ
23
Njósnavélin
Framh. af bls. 1
jörð fyrir laun sín, sem voru
$ 2.500,— á mánnði <ísl. kr.
95.000.—), og byggja sér þar
hús.
VINSÆLi BÓK
í braki flugvélarinnar, segir
Rauða stjarnan, að hafi fundizt
eldri gerð af rússneskum her-
mannabúningi, myndir af eigin-
konu Powers, illa farin bók með
mynd af hálfnaktri konu framan
á. Segir blaðið að bókin líti út
fyrir að vera mjög mikið notuð,
sem sýni að hún muni hafa verið
vinsæl meðal yfirmannanna
bandarísku.
Rauða stjarpan segir að „eini
guð flugmannsins var dollarar.
Vegna þeirra flaug hann yfir
land okkar. Vegna þeirra er
hann reiðubúinn að fórna föður
sínum og móður“.
Annað rússneskt dagblað segir
að flugvélin sem skotin var nið-
ur hafi verið búin auka benzín-
geymum, og hafi haft nóg elds-
neyti til að Ijúka 6.500 km flugi
sínu frá Pakistan til Noregs.
HRINGUR OM PESHAVAR
Krúsjeff tilkynnti í gær
fulltrúum vestrænna ríkja að
enginn fengi að tala við
Powers, því Rússar viidu
ekki að utanaðkomandi aðilar
reyndu að hafa áhrif á hann.
Þá aðvaraði Krúsjeff sendi-
fulltrúa Pakistans og sagði að
gripið yrði til gagnráðstafana
þegar í stað ef Peshavar-flug-
völlurinn í Pakistan yrði aft-
ur notaður .til árása á Rúss-
land. Sagði Krúsjeff að yfir-
menn varnarmála í Rússlandi
hefðu dregið hring um Pes-
havar á landabréf sín. Hann
sagði einnig að Rússar mundu
beina eldflaugum að hverjum
þeim vestrænum fiugvelli
sem notaður væri til árása á
Rússland.
Talsmaður Bandarikja-
stjórnar, Lincoln White, sagði
það vera einkennandi fyrir
Ráðstjórnarríkin að þau skuli
beina hótunum sínum til smá-
þjóða, sem enga ábyrgð bera
á njósnafluginu, og sagði að
Bandaríkin myndu styðja
þessi ríki.
ORÐSENDINGIN
1 orðsendingu þeirri er Gro-
myko afhenti sendifulltrúa
Bandaríkjanna er sagt að aliar
upplýsingar bendi til þess að
flugvélin hafi verið send í fjand-
samlegum tilgangi. Er þar harð-
lega mótmælt þessu broti
Bandaríkjanna, sem virðist vera
tilraun til að endurlífga kalda
stríðið og eitra andrúmsloftið
fyrir „topp“-fundinn. Ef slíkar
KR - Þróftur
Framh. af bls. 22.
ólfur og örn brenndu tvívegis af
hvor fyrir sig í góðu færi. Og
Þórður, sem fyrr segir varði oft
af hinni mestu snild og bægði
þannig hættunni frá.
Hlutur Þróttar var vart annar
en að verjast og þáð gerðu þeir
af einstæðri þrautseigju. Fram-
herjar KR voru þeir ^em mest
komu við sögu í leiknum og því
um vörnina lítið að segja.
Veikleiki KR-liðsins var að fá
ei nýtt góð tækifæri. Liðið lék
vel á köflum og oft sér í lagi
skemmtilegar skiptingar fram-
kvæmdar, en markskotin voru
ekki nógu nákvæm og oft flaust-
urslega að þeim unnið.
Þó var stórkostlegt að sjá
til Þórólfs, er hann skoraði
síðara markið og einmitt það
augnablik færði sönnur á
sniild hans sem knattspyrnu-
manns, sem og margar gerðir
hans í þessum leik.
Af öðrum KR-ingum, sem báru
af í þessum leik var Garðar Árna
son, en hann beinlínis réð yfir
miðju vallarins. — Á.Á.
Silfurbrúðkaup eiga 1 dag
Laufey Þorgeirsdóttir og Theo-
dór Guðmundsson, véismíða-
meistari, Flókagötu 9.
Hinn nýi sendiherra Japans á íslandi, herra Akira Matsui, sem
aðsetur hefur í Stokkhólmi, afhenti í dag fotseta íslands trún-
aðarbréf sitt á Bessastöðum, að viðstöddum Emil Jónssyni,
ráðherra, sem heíur farið með utanríkismál í fjarveru utan-
ríkisráðherra. — Að athöfninni lokinni höfðu forsetahjónin boð
inni fyrir sendiherrann og frú hans.
árásir verða ítrekaðar verður
ríkisstjórnin að grípa til gagn-
ráðstafana, og mun ábyrgð af-
leiðinganna hvíla á ríkisstjórn-
um þeirra landa sem standa fyr-
ir árásunum.
Segir í orðsendingunni að rík-
isstjórn Ráðstjórnari'íkjanna
voni að áhuganum fyrir að varð-
veita friðinn, og áhuga banda-
rísku þjóðarinnar í þá átt, sem
greinilega kom fram er Krúsjeff
heimsótti Bandaríkin nýlega, sé
mestur greiði gerður með því að:
Alþiiigi samþykkir
eigtiarnám
ALÞINGI samþykkti í gær end-
anlega að veita Húsavíkurkaup-
stað eignarnámsheimild á svoköll
uðu Preststúni í Húsavíkurlandi.
Skal um framkvæmd eignarnáms
ins fara eftir ákvæðUm laga nr.
61 frá 14. nóv. 1917. Andvirði
túnsins verður óskilorðsbundin
eign Húsavíkurkirkju.
Norræn tónlkt
[ Hallgrímskirkju
KÓR Hallgrímskirkju heldur sam
söng þar í kirkjunni í kvöld kl.
8,3Ó undir stjórn Páls Halldórs-
sonar organleikara. Auk kórsins
koma þarna fram tveir lista-
menn, Árni Arinbjarnarson org-
anleikari og Kristinn Hallsson
söngvari. Á efnisskránni verða
eingöngu verk eftir núlifándi
tónskáld á Norðurlöndum.
Árni Arinbjarnarson leikur tvö
orgelverk eftir Pál ísólfsson:
Chacx>nnu og Passasaglíu. Krist-
inn Hallsson syngur nokkur lög
eftir Árna Thorsteinsson, elzta
rúlifandi tónskáld okkar íslend-
inga, en Árni verður níræður á
næsta hausti. Kirkjukórinn flyt-
ur svo fimm mótettur og sálma-
lög, sitt frá hverju Norðurland-
anna. Höfundar þeirra verka eru
Knud Jeppesen prófessor í Kaup-
mannahöfn, Conrad Baden organ-
lexkari í Drammen, Sulo Salonen
finnskur organleikari, Gottfrid
Berg organleikari í Gavle og dr.
Hallgrímur Helgason, en eftir
hann verður sungin mótettan
„Svo elskaði Guð auman heim“,
sem unnin er upp úr ísl. þjóðlagi
úr sálmabók Guðbrands biskups.
Aðgangur að þessum kirkjutón
leikum er ókeypis og öllum heim-
PARÍS, 10. maí (Reuter).— Sam
eiginlegur leiðangur franskra,
danskra, svissneskra og vestur-
þýzkra jöklafræðinga, undir leið-
sögn franska heimsskautafarans
Paul Yictors, hélt í dag til Græn
lands, þar sem unnið vérður að
rannsóknum í fjóra mánuði.
- Hull
Frh. af bls. 1.
f morgun af Færeyjamiðum,
áætlaði sá áflahæsti síg vera
með um 900 kitt (57 lestir), en
fjórir brezkir togarar af fs-
landsmiðum voru með 1100—
2400 kitt (70—153 lestir). Einn
var með 1650 kitt (105 lestir)
frá Hvítahafi, annar með 2400
kitt (153 lestir) frá Græn-
landi.
Fundarhöld
Grimsby-deild flutningaverka-
mannasambandsins hélt fund á
sunnudaginn, og var þar ekkert
minnzt á landanir íslendinga né
á landhelgina. í fyrramálið
halda yfirmenn á togurum í
Grimsby fund til að ræða ástand-
ið og verkfallshorfurnar, en á
fimmtudag fer Denis Welch til
Lundúna til að sitja fund þar
með John Hare sjávarútvegsmála
ráðherra og brezkum togaraeig-
endum og fulltrúum fiskiðnaðar-
ins. Á föstudag mun svo Denis
Welch halda annan fund með yf-
irmönnúm í Grimsby til að ræða
aftur málin í Ijósi árangurs Lund
únafundarins.
Dagblaðið Grimsby Evening
Telegraph segir að ef verkfallið
skelli á muni það fljótlega ná til
200 togara með 3000 manna á-
hafnir og 4—5000 manna í landi.
Sama blað segir í kvöld að
Grimsby fái 50 nýja togara af
280, sem byggðir verða til
veiða á heimamiðum og ná-
lægum miðum.
Togarinn Jón Þorláksson
kemur til Grimsby í kvöld og
landar hér í nótt samkvæmt
síðustu fréttum, en átti að fara
til Hull.
1.
2.
3.
Hætta nú þegar varúðai-verð-
um, eggjandi árásum á Ráð-
stjórnarríkin.
Binda endi á kalda stríðið.
Bandaríkin og Ráðstjórnar-
ríkin auk annarra ríkja leiti
sameiginlega að lausn alþjóða
vandamála.
VAR HÚN SKOTIN NIÐUR,
EÐA ....
Fréttirnar frá Moskvu um
flugvélina hafa víða sætt
gagnrýni. Spyr til dæmis
franska blaðið Aurore:
1. Hvernig má það vera
að flugvél, sem skotin er nið-
ur úr þessari hæð og með
þessum hraða af eldflaug,
sundrast ekki?
2. Hvernig stendur á bví
að flugmaðurinn hafði tima
til þess að ná filmunum úr
ljósmyndavélum flugvélarinn
ar?
3. Ef Powers var landi
sínu trúr, því þrýsti hann ekki
á hnappinn, sem hefði eyði-
lagt flugvélina eftir að hann
yfirgaf hana í fallhlíf?
4. Á meðan hann var á
ieið til jarðar, hversvegna los
aði hann sig ekki við eitur-
nálina, byssuna og hnífana, i
stað þess að afhenda Rússun-
um þá?
Verkfræðingur sá sem gerði
teikningar að flugvélinni U-2,
hefur sagrt að eftir að hafa
rannsakað ljósmyndir þær
sem Rússar hafa birt af flak-
inu, sé hann sannfærður um
að hér sé ekki um vél af
þeirri gerð að ræða, heldur
sé þetta rússnesk flugvél.
Knattspyma i USA
Framh. af bls. 22.
Bandaríska liðið, sem tók þátt
í Amerísku leikunum var ein-
göngu skipað skólanemendum
kom mjög á óvart og náði þriðja
sæti, einu stigi á eftir Brazilíu.
Bandaríska liðið sigraði Haiti7:2,
Braziliu 5:3, Kúbu 5:0 og Mexikó
4:2 en tapaði fyrir Argentínu 4:2'
og Costa Rica 4:3.
10 lauda keppnin.
Annar stórviðburðurinn til að
auka vinsældir knattspyrnunnar
í Bandaríkjunum er hin svokall-
aða 10 landa keppni, en hún
hefst í New York 25. þ. m. og
stendur fram í byrjun júní. í
keppni þessari taka þátt knatt-
spyrnulið frá 10 Evrópulöndum,
auk liðs frá Argentínu og New
York, en bandaríska liðið mun
verða skipað mörgum aðvinnu
mönnum og er það fyrsti vísir-
inn, til að koma upp liðum knatt
spyrnumanna í Bandaríkjunum.
30.000 verða 50.000.
Mest hefur borið á áhuga fyr-
ir knattspyrnunni við austur-
strönd Bandaríkjanna og þá helzt
í New York og umhverfi hennar.
Komið hefir fyrir að 30.000
manns hafa horft á leik á Ran-
dall’s Islands leikvellinum, og er
það metaðsókn að íþróttakeppni
þar á leikvellinum.
Menn álíta að nú sé hinn rétti
tími kominn til að vinna alvar-
lega að uppbyggingu atvinnuliða
í knattspyrnu og hið stóra skref
því stigið. Búist er við að um
50.000 manns muni sækja leiki
12 landa keppninnar, og er sú
áætlun byggð á þeirri staðreynd
að lið New York verður nú mun
sterkara, en það hefur undan-
farin ár.
Til sölu, óekinu
Chevrolet Corvair
model 1960. sjálfskiptur, með miðstöð og
útvarpi. — Tilboð leggist inn á afgr. Mbl.
merkt: „Corvair“.
LlTstykkjasalan
FRAKKASTfG 7 .
verður lokuð frá 12 á hádegi í dag vegna jarðarfarar.
Hugheilar þakkir færi ég ættingjum og vinum, er
heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á 70 ára afmæli mínu 30. apríl sl. — Einnig
þakka ég þann heiður, er Múrarafélag Reykjavíkur sýndi
mér.
Þorfinnur Guðbrandsson
Fósturmóðir mín og amma okkar
SIGRfÐUR HANSDÖTTIR
andaðist í Elliheimilinu Grund þriðjud. 10. maí.
Ingibjörg Stefánsdóttir,
Sigríður Pálmadóttir, Guðríður Pálmadóttir.
Móðir mín
SIGRtJN BERGMANN
andaðist aðfaranótt 6. þ. m Jarðarförin fer fram frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 13. þ. m. kl. IY2.
Ingibjörg Bergmann Björnsdóttir.
Ai.fijr helgason
bifreiðarstjóri, Barónsstíg 25,
lézt á Landakotsspítala mánud. 9. þ. m. Jarðarför ákveðin
síðar.
Vandamenn.
FfDES EINARSDÓTTIR
sem lézt í Landakotsspítala 4. maí verður jarðsett frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. maí kl. 1,30.
Vandamenn.
Við þökkum innilega öllum þeim, sem hafa vottað okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför
ARNLEIFAR LVDSDÖTTUR
Brautarhóli, Biskupstungum.
Börn, tengdabörn og bamabörn.
i