Morgunblaðið - 11.05.1960, Síða 24

Morgunblaðið - 11.05.1960, Síða 24
Íbróttasíðan er á bls. 22. JMftrgitttMiriiitf* I Jóhannesarborg — Sjá bls. 12. 106. tbl. — Miðvikudagur 11. maí 1960 Maður slasast á Kefl avíkurfl ugvellí KEFLAVÍKURVELLI, 10. maí. I>að slys varð hér á flugvellinum í morgun, að Hallgrímur Krist- mundsson, verkamaður, 31 árs að aldri, til heimilis í Keflavík, féll til jarðar frá þriðju hæð og slas- aðist allmikið, þó ekki lífshaettu- lega. Plöntum stolið ER Skólagarðarnir fluttu í fyrravor af Klambratúni i Aldamótagarðana gafst ekki tími til að flytja allar plönturnar þaðan, auk þess sem nýtt land var ekki til- tækilegt til að taka við öll- , um þessum gróðri í einu. Eiga Skólagarðarnir því enn mikið af alls konar fjölærum plöntum og trjám á gamla skólalandinu i Klambratúni, sem á að flytja í nýju garðana. En ekki hefur verið frið- ur með þessar plöntur og hefur verið stolið svo skipt ir hundruðum plantna, eign Skólagarðanna, í fyrra og nú. í fyrra var reynt eftir megni að stugga fólki i burtu, sem ætlaði að ganga í plönturnar. SI. laugardag voru mikil brögð að því að fólk kæmi og hirti sér plöntur. Og I fyrrakvöld komu þar tveir menn í bíl með þrjú börn með sér og stálu plöntum. Ekki náðist í fólk þetta. Slys við höfnina KL. HÁLF sjö í gærkvöldi varð það slys við höfnina, er verið var að afferma Fjallfoss, að Gísli Guðmundsson féll af bátadekk- inu og niður á bryggju, sem mun vera um 6 m fall. Var hann fluttur á Slysavarðstofuna, en sendur þaðan á Landakotsspítala. Hafði Gísli handleggsbrotnað, en ekki hafði fullnaðarrannsókn farið íram á meiðslum hans. Hlé á löndunum þessa viku 1 GÆRMORGUN seldi Júní frá Hafnarfirði í Hull 15414 lest fyrir 9833 sterlingspund. Og í dag sel- ur Jón Þorláksson um 150 lestir. Samkvæmt ábendingu Þórarins Olgeirssonar hefur L.Í.Ú. ákveð- ið að fleiri togarar landi ekki þar út vikuna, að því er Ingimar Ein- arsson hjá L.Í.Ú. tjáði blaðinu í gær. Heppilegra er nú talið að ísl. togarar landi ekki um stundar- sakir í Englandi. Astæðan fyrir því er m. a. sú, að brezku togar- arnir eru nú að koma með fisk af íslandsmiðum, og má því bú- ast við lækkandi verði á markað- inum. Hinn góði markaður í Bretlandi hefur m. a. orðið fyrir það að ísL togararnir komu með eina íslenzka fiskinn á markað- inum. Einnig þykir ástæða til að sjá hverju fram vindur í sam- bandi við hið ótrygga ástand sem skapazt hefur veena verkfalls- boðunarinnar. Hallgrímur var að vinna við stóra íbúðarblokk, sem Aðalverk takar eru að byggja fyrir varnar liðið. Var hann handlangari og var að taka á móti sementsteypu, sem höluð var upp í vélknúinni lyftu, en Hallgrímur tók steyp- una inn um glugga á þriðju hæð. Á lyftupallinum voru tvennar hjólbörur fullar sementsteypu. Erfitt er að fá upplýsingar um hvernig slysið raunverulega gerð ist, þar sem lyftustjóri tók fyrst eftir er Hallgrímur steyptist til jarðar. Heimildarmaður Mbl. taldi þó liklegast að Hallgrímur hefði tekið aðrar hjólbörurnar inn um gluggan, og stigið út á lyftupallinn til að ná í hinar bör- urnar. Þá hafi lyftan farið á hreyf ingu og Hallgrímur misst jafn- vægið og fallið fram af pallinum. Fallhæðin er um sex metrar og kom Hallgrímur með höfuðið á hjólbörur sem lágu á hvolfi á jörðunni. Skarst Hallgrímur mik ið á andliti og óttuðust menn fyrst að hann væri höfuðkúpu- brotinn. Var honum ekið í spítal- ann í Keflavík og við rannsókn kom í ljós að hann var allmikið marinn, með brotna hnéskel og mikið skaddaður á andliti. Ekki voru meiðsli hans fullrannsökuð, en þó var hann ekki talinn í lífs- hættu. — B. Þ. 1 greinargerð, sem fylgir til- iögunni segir svo: Vegalengdin milli Reykjanes- vita og Grindavíkur er um 10. km. Vegur sá, sem nú er notazt við milli Staðar í Grindavík og Reykjanesvita, var lagður árin 1926—1928 af þáverandi vita- verði. Gerð vegarins var fyrst og fremst miðuð við það eitt, að hann væri nokkurn veginn fær hestvögnum, enda aðallega til hans stofnað með það fyrir aug- um, að vitavörður ætti hægara með aðdrætti frá Grindavík. - Þótt vegur þessi hafi upphaf- lega ekki verið gerður sem ak- vegur fyrir bifreiðar, hafa þær þó getað klöngrazt yfir hann, .en yfirleitt er hann ekki talinn fær nema sterkum vörubifreiðum eða jeppum. Það kom brátt í Ijós, að vegur þessi var ekki aðeins nauðsynlegur vegna aðdrátta vita varðarins, heldur hefur hann síð- an verið talinn lífsnauðsynlegur vegna hinna tíðu skipstranda á þessum slóðum. Annálaður strandstaður Alþjóð er kunnugt, að strand- lengjan frá Grindavík að Reykja- nestá er einn annálaðstur strand- staður á íslandi. Þar hafa farizt fjöldi skipa, erlendra og inn- lendra, og tugir sjómanna hafa þar týnt lífi sínu í brimgarðin- um. í Grindavík er ein fræknasta björgunarsveit landsins, og hef- ur hún ætíð átt í miklum erfið- I leikum með að koma sér og tækj Maðurinn féll út um gluggann á þriðju hæð, 6 m fall, og kom með höfuðið á hjólbörurnar, sem sjást á hvolfi á jörðinni. um sínum á strandstað vegna þess hve vegurinn er ógreiðfær. Lítil áherzla hefur verið lögð á við- hald vegarins, en með þeim stór- virku vinnuvélum, sem nú eru fyrir hendi, er tiltölulega auð- velt að gera veg þennan nokkurn veginn greiðfæran á skömmum tíma án mikils tilkostnaðar, þar sem hann liggur að mestu um apalhraun, sem auðvelt er að vinna. Vegur þessi hefur hins veg ar algera sérstöðu vegna hins þýðingarmikla hlutverks, sem hann gegnir, og telja flutnings- menn þessarar tillögu, að brýn nauðsyn, beri til, að hafizt verði handa um lagfæringu hans nú á þessu sumri. Nánar í framsögu. FUS á Siglufirði 30 ára í dag FÉLAG ungra Sjálfstæðismanna var stofnað hinn 11. maí 1930 og er því 30 ára gamalt í dag Afmælis félagsins er minnzt með útgáfu sérstaks afmælis- blaðs. Síðar í mánuðinum verður svo haldið afmælishóf, sem jafn- framt verður árshátíð Sjálfstæð- isfélaganna á Siglufirði. í stjórn félagsins eru nú: Stef- án Friðbjarnarson form., Knútur Jónasson, varaform., Helga Back mann gjaldkeri, Birgir Schiött rit ari og meðstjórnendur Gústaf Nílsson, Haukur Magnússon og Edda Árnadóttir. (Ljósm.: Magnús Gíslason. Vegurinn írá Grindavík að Reykjanesvita verði lagfærður Þingsályktunartillaga Alfreðs Císlasonar bœjarfógeta og Matthíasar Á. Mathiesen TVEIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjöridæmi, þeir Alfreð Gislason og Matthías Á. Mathiesen, lögðu í gær fram á Aiþingi svohljóðandi tillögu um lagfæringu vegarins frá Grindavík að Reykjanesvita í Gullbringusýslu: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta þegar á þessu sumri lagfæra veginn milli Grindavíkur og Reykja- nesvita, þannig að hann verði akfær venjulegum farar- tækjum. — Bátnum hvolfdi — drengjum bjargað AKUREYRI, 10. maí. — Sá atburður gerðist hér í gær að tveir 15 ára unglingar hvolfdu undir sér báti í Eyjafjarðarál, en varð bjargað. Síðari hluta dags í gær fengu tveir strákar bátkænu lánaða og reru frá Slippnum út á fjörðinn. Hafði annar veiðistöng með- ferðis. Var hann klæddur búss- um, en félagi hans í hnéháum stígvélum. Er komið var austur í miðjan Eyjafjarðarál, norðaust ur héðan frá Akureyri, hvolfdi bátnum undir strákunum, enda munu þeir báðir hafa hallað sér út í sama borð kænunnar. Báðir voru þeir syndir. HRÓPIN HEYRÐUST í LAND Annar þeirra reyndi þegar í stað að klæða sig úr bússunum og tókst það, en hinn komst ekki úr stígvélum sínum. Aftur á móti gat hann klætt sig úr úlp- unni, sem hann var í og létti það honum sundið. Þeir fél'agar reyndu að koma bátnum á réttan kjöl, en tókst ekki og ákváðu því að freista þess að synda í land og var styttra til austur- strandar fjarðarins. Þeir félagar hrópuðu mikið er slysið varð. Heyrðist til þeirra bæði frá Litla-Hvammi á Sval- barðsströnd og eins úr Slippnum hér á Akureyri. Drengir er staddir voru í Litla-Hvammi hlupu til og hrintu út báti og reru til þeirra félaga. Urðu þeir Lokadagurinn HAFNARFIRÐI: — Hinn árlegi fjáröflunardagur slysavarnadeild arinnar Hraunprýði er í dag. Verður þá selt kaffi í báðum sam komuhúsunum frá kl. 3 til 11,30 um kvöldið. Merki eru seld á götum bæjarins og ágóðinn af kvikmyndasýningum rennur til deildarinnar. Lík rekið á ísafirði ÍSAFIRÐI, 10. maí: — í sl. viku fannst lík Sveinbjarnar Bene- diktssonar sjórekið inni í fjarð- arbotni, en hann hvarf úr bát smum við bryggju á ísafirði á Þorláksmessukvöld í vetur. Svein björn heitinn var formaður á vélbát og stundaði rækjuveiðar. fyrstir á slysstaðinn og björguðu drengjunum til lands. ÁTTU SUNDKUNNÁTTU LÍFIÐ A» LAUNA Allmargar trillur lögðu úr höfn héðan frá Akureyri, er hrópin heyrðust. Er drengj- unum var bjargað voru þeir . þrekaðir af sundinu og talið vafasamt að þeir hefðu haft sig til lands hjálparlaust. — Hins vegar er víst að þeir hefðu báðir drukknað, ef þeir hefðu ekki verið vel syndir. Bátkænan, sem þeir voru á, var dregin til lands að loknu ævintýrinu, og var komin á flot undir eigendunum í dag. — vig. KRlAN er komin, og hér kemur sönnunin. — Ljós- myndari blaðsins tók þessa mynd yfir Tjörninni í gær. Krían kemur venjulega ekki fyrr en 14. maí, en stundum koma nokkrar á undan eins og í nokkurs konar könnunarferð, að því er Kjartan brunavörð- ur tjáir okkur. En svo get- ur hún líka hafa verið fljótari í ferðum en venju- lega í þetta sinn, því und- anfarið hefur verið stöðug suðaustan-átt og krian því haft meðvind. Kennarar verða lögregluþjónar A TÍMABILINU 1. júní til 15. september í sumar fara 140 götu- lögreglumenn í sitt sumarfrí sem aðrar stéttir. A þessu tíma er önnur stétt einmitt á lausum kili, kennararnir. Þessvegna hefur lög reglan nú snúið sér til barna- skólanna í Reykjavík og boðið kennurum að leysa af lögreglu- þjónana í sumar. Hefur af kenn- aranna hálfu verið tekið vel í það, að því er Erlingur Pálsson, yfirlögregluþjónn tjáði blaðinu í gær. • Löng frí I lögregluliðinu eru nú orðið nokkuð margir sem starfað hafa þar lengi og eiga því rétt á lengra sumarfríi, auk þess sem lögreglu- þjónum eru bættir upp stórhátíð ardagar, sem þeir verða að vinna, með 11 daga viðbótarfríi á sumr- in. Hafa því verið nokkur vand- ræði með að fá nægilega marga í afleysingar á hinum lögb('ðna sumarleyfistíma. I sumar er auk þess í ráði að auka sóknina um eftirlit með vélknúnum farartækj um og bifhjólum. • Tilraun Við vonumst til að fá nú nokkra unga úrvalsmenn úr kenn arastétt í afleysingar í sumar, sagði Erlingur Pálsson. Þeir verða settir í örlitla þjálfun fyrst og fá síðan einkennisbúninga. Við erum að gera tilraunir með þessa samvinnu. Ef þetta gengur vel núna, gæti þetta orðið til þess að þarna fengizt gott, svolítið þjálf- að lið til að leysa af lögregluna á sumrin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.